Tíminn - 07.11.1957, Síða 12
YeBrfí:
Hægviðri og léttskýjað — þykn-
ar upp með vaxandi suðaustan
átt í daff.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 1 st,, Akurejri 1 st.,
Kaupmannah. 8 sÞ, Osló 7 st.,
París 7 st. London 4 st NY 10 st.
Fimmtudagur 7. nóv. 1957.
Nýkjörið studentaráð Háskóla íslands
Híð nýkiörna stúdentaráð Háskóla íslands talið frá vin;tri: Magnús Þórðarson, stud.jur.; Hörður Sævaldsson,
stud. odont.; Ólafur G. Einarsson, stud. jur.; Bogi Melstad, stud. med. (gjaldkeri); Birgir ísl. Gunnarsson, stud.
|ur. (formaður); Leifur Jónsson, stud. med. (ritari); Em'l Hjartarson, stud. med.; Guðmundur Guðmundsson..
stud. med.; Ólafur Pálmason, stud. mag. (Liósm.: Filman).
Hríðarbylur um norðan- og austan-
vert landið í fyrrinótt, krapahríð í gær
Hið versta hríðarveður gekk yfir Norður- og Norðaustur-
land í fyrrinótt og stóð fram eftir degi í gær, en þá hlýn-
aði heidur og gerði víða krapahríð. Búizt er við hlýnandi
veðri á þessum slóðum og suðaustlægri átt.
I fyrrinótt hlóð víða niður all-
miklum snjó og þá var einnig mjög
hvasst af norðaustri á Norðaustur
landi og mátti heita blindbylur
sums staðar. í Skagafirði var ill-
fært víða um vegi í gær, heiðar
.ófærar og í Eyjafirði var þung-
fært á vegum. Vaðlaheiði var
gersamlega ófær og heiðar í Þing
eyjasýslu einnig, nema trukkbíl-
um. Fnjóskdælingar flytja mjólk
til Húsavíkur og fara út Kinn.
Þegar leið á daginn í gær batn
aði veður töluvert á Norðurlandi.
Framhaldsskólum á
Akureyri lokað
AKUREYRI í gær: — Framhalds-
skólum hefir verið lokað um sinn
hér í bænum vegna inflúenzunn-
ar. I dag vantaði allmargt nem-
enda og kennara. Barnaskólinn
starfar þó enn um sinn, því að for
föll eru þar minni.
Skólahaldi enn frest-
að í Reykjavík
Fræðslustjórinn í Reykjavík hélt
fund með skólastjórum í bær.um
í gær til þess að ráðgast um,
hvort unnt mundi að hefja kennslu
að nýju í dag, eins og ráð hafði
verið fyrir gert. Kom í ljós, að
enn liggja svo margir nemendur
og kennarar, að ekki er líklegt að
sókn verði betri en rétt áður en
skólum var lokað, og var því á-
kveðið að Wefja ekki kennslu
fj’rst um sinn í barna- og ung-
lingaskólum. Kennsla hefst þó aft
ur í Kennaraskólanum í dag, og
kennsla heldur enn áfram í nokki’-
um framhaldsskólum.
Snjóalög hefta sam-
Fangar spýttu á fanga-
verði og spörkuðu í þá
Ölæ tin hófust {jegar komií var me$ Jóhacn
Víglundsson í hlað á Litla-Hrauni
í fyrrakvöld og gærmorgun gerðu fangar á Litla-Hranni
’ippsteit. Börðu þeir á klefahurðir sínar fram eftir nóttu
)g gerðu allan þann hávaða sem þeir gátu. Ólætin h.ófust
svo aftur í morgun og var þá kallað á lögreglu úr Réykja-
vík til aðstoðar fang2vörðunum. Svo má heita að kyrrt hafi
verið á vinnuhælinu í dag, en tveir lögregluþjónar eru nú
á vöktum með fangavörðunum. Þá er yfirfangavörðurinn
kominn austur, en hann hefir legið veikur í Reykjavík.
Þá gerðist það kl. 10 í morgun,
að einn fanganna varð bráðkvadd
ur við klefadyr sínar. Hafði hann
verið á göngunum ásamt öðrum
föngum og kenndi sér einskis
meins fyrr en hann hné niður.
Búizt er við að hjartaslag hafi
orðið honum að aldurtila.
Ólætin hefjast.
Eins og kunnugt er af fréttum,
þá struku þrír fangar frá Litla-
Hrauni og tókst að handsama þá
eftir nokkurt þóf. Einn þessara
fanga slapp aftur, þegar komið
var heim að Litla-Hrauni. Var
það Jóhann Víglundsson. Fannst
hann í fyrrakvöld á Eyrarbakka
og hafði falið sig i geymslu á
olíuflutningabíl og ætlaði að kom-
ast þannig til Réykjávíkur. Fanga
' vörður frá Litla-Hrauni fór og
sótti Jóhann. Var hann þá villtur
og illviðráðanlegur og ekki um
annað að gera en setja hann í
handjárn. Þegar fangavörðurinn
steig svo út úr bifreið þeirri, sem
flutti þá að Litla-Hrauni ásamt
Jóhanni og fangarnir sáu að Jó-
hann var í jámum, hófust ólætin
með hrópum og köllum.
Hræktu og spörkuðu.
Eins og kunnugt er, þá eru að-
eins tveir fangaverðir að störfum
í einu. Fengu þeir eðlilega við
lítið ráðið. Réðust þeir þó til inn-
göngu með Jóhann, en voru óðar
umkringdir af æpandi föngum,
sem hræktu á þá og spörkuðu í
þá. Fangarnir reyndu þó; ekkf að
hindra, að verðirnir settu Jóhann
i einangrunarklefa i k.iallara búss-
ins. Þessir atburðir gerðust á • nilli
klukkan fimm og sex í fyjra-
kvöld, en reg-lur mæla svo . fýrir
að fangar skulu ekki lokaðir in.ni
fyrr en klukkan níu. Voru . fár.g-
arnir á göngunum og voru tilhúnir
í allt.
(Framhald á 2. síðu).
Bristol Britannia-
vél fórst með 15
manns
LONDON, 6. nóv.: — 15 manns
fórust í dag, er geysistór farþega-
flugvél af gerðinni Bristol Britan-
nia fórst í lendingu skanimt frá
Bristol, er hún var að k«ma úr
tilraunaflugi með tæknifræðinga
um borð. Var vélin sú stærsta, cr
smíðuð Iiefir verið af þessari teg-
und og var ætinnin að nota hana
á flugleiðinni yfir Atlantshafið.
Eru nú 20 slíkar vélar í notkun,
flestar þeirra í eigu brezka flug.
félagsins BOAC. Er þetta í fyrsta
skipti, sem svo alvarlegt slys kem
ur fyrir Bristol Britannia-vél.
Vélin hrapaði til jarðar í skóg-
lendi og kom þcgar upp eldur í
hcnni. Nokkrar skemindir urðu
á húsum í nágrenninu.
Á Austurlandi var og allmikil
snjókoma og krapahríð í gær og
talið að snjó kingdi þá niður á
fjöll og heiðar. Illfært mun yíir
Fagradal og ófært um Oddskarð
og Fjarðarheiði. Þar varð snjóbíll
að snúa við í fyrrakvöld.
Innanlandsflug til Norður- og
Austurlandsins mun hafa legið
niðri í gær vegna dimmviðris.
Smíðaðar verða 90
þús. tunnur í Sigluf.
Frá fréttaritara Tímans
í Siglufirði.
Tunnuverksmiðja ríkisins í Siglu
firði er nú í þann veginn að taka
til starfa og er komið til Siglu-
íjarðar allt tunnuefni, nema það,
sém væntanlegt er frá Noregi.
Ráðgert er að smíðaðar verði
um 90 þúsund síldartunnur í Siglu
firði í vetur, eða svipað magn og
smíðað var þar á síðasta vetri.
Vinna væntanlega við tunnusmíði
35—40 manns og verður unnið í
tvískiplum vöktum.
Gekk fyrir forseta
PóIIands
Hinn 31. okt. s.l. afhenti Harald-
ur Guðmundsson forseta Póllands
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Póllandi með búsetu í
Oslój — (Frá utanríkisráðuneyt-
inu).
Bókmenntakynning
um Jónas Halí-
grímsson
Stúdentaráð Háskóia íslands
hefir ákveðið að efna til bók-
menntakynningar um Jónas Hall-
grimsson 16. nóvember n.k. á 150
ára afmæli Jónasar. — Hefir dr.
Einar Ól. Sveinsson prófessor tek-
ið að sér að sjá um bókmennta-
kynningu þessa, en hún verður
með svipuðu sniði og fyrri bók-
menntakynningar stúdentaráðs. —
Verður nánar skýrt frá henni síð-
ar. —
göngur við Fljótin
HAGANESVÍK i gær: — Hér í
Fljótum hefir verið mikil ótíð síð-
an 20. október. Nú er orðið gjör-
samlega jarðlaust og búið að taka
fé á hús, nema niður við sjóinn.
Samgönguvandræði af völdum
snjóa hafa vaidið því, að enginn
varningur hefir komizt til Haga-
nesvíkur úr Skjaldbreið eða póst
Gaillard fer til London tilviðræðna
við Macmillan um Parísarfundinn
París, 6. nóvember. — Yngsti foi-sætisráðherrann í sögu
fjórða franska lýðveldisins, sósíalradikalinn Felix Gaillard,
tók við stöðu sinni i dag. Stjórnarkreppan, sem varað hafði
í 37 daga, var leyst aðfaranótt miðvikudagsins. Ríkisstjórn
bátnum nú upp á síðkastið, nema j Gaillards er hin 24. eftir síðasta stríð. Þingið veitti henni
traust sitt með 337 atkv. 173 greiddu atkvæði á móti.
einu sinni úr póstbálnum frá því
hann hóf áætlunarferðir sínar í j
haust. Fljótin eru nú einangruðl
eins og endranær nema frá sjó. Er j
það gömul saga bér, en í ár hefir
snjórinn komið óvenju snemma. í
fj'rra var bílfært í Fljótin fram í
febrúar. — S. E.
Síðdegis í dag kom stjórnin
saman í fyrsta sinn, og skyldi hún
þá ræða um framlengingu á hinu
sérstaka alræðisvaldi, sem hún
hefir í Alsírmálinu. Einnig skyldi
rætt um nauðsynlegar ráðstafan-
íslenzku kristnlboðarnir í Konzo
gera að sárum þeirra sem Ifónin bíta
í fregnum, sem borizt hafa
hingað til lands frá íslenzku
kristniboðsstöðinni í Konsó í
Afríku, hafa ljón gerzt hættuleg
íbúum þeirra héraða, scm næst
iiggja kristniboðsstöðinni og hef
ir hjúkrunarlið kristniboðsstöðv-
arinnar gert að sárum manns,
sem bitinn var af ijóni.
Segir frá þessu í bréfi frá
Felix Ólafssyni kristniboða. Þeg
ar komið var með mann einn á
sjúkraskýlið, göptu stór tannaför
á handlegg hans. Næstu daga
voru nær eingöngu börn og ungl-
ingar og gamalmenni í þorpinu.
Aliir vopnfærir karlmcnn fóru á
ljónaveiðar.
Aðsókn að skóla kristniboðs-
ins er ínikil, en þegar kornið er
þroskað og sá tími kemur, að
fuglarnir fara að kroppa það,
hverfa strákarnir úr skóianum,
því allir verða þeir að gæta r.kra
(eðra sinna. Ilópur góðra og efni
legra drengja tóku próf frá ís-
lenzka kristniboðsskólanum á
síðasta sumri.
Sjúkraskýli kristniboðsins er
mikið sótt og streymir fólk þang
að, einkum á markaðsdögum.
íslenzku kristniboðunum vcrð-
ur mikið ágengt í starfi sínu og
snúa mörgum til kristinnar tvú-
ar. f sumar snerist háttsettur
liöfðingi í þorpi skammt frá
kristniboðsstöðinni til kristinn-
ar trúar, en lengi eru nienn að
vinna bug á hjátrú og hindur-
vitnum, enda er djöflaótti fólks-
ins rótgróinn.
Sýnt er, að íslenzku kristni-
boðarnir í Konsó vinna mikið
starf í mannúðarmálum með
rekstri sjúkraskýlisins og upp-
fræðsla þeirra og skóli er kær-
komið starf inni á hinu mikla
meginlandi, þar sem allt slíkt er
enn mjög af skorrtum skammti.
ir lil þess að útvega ríkissjóði
Frakka lán úr frar.ska þjóðhank-
anum.
Fyrsta stórverkefni stjórnarinn
ar verður að koma Alsírmálunum
á fastan grundvöil. Einnig vill
Gaillard, sem var fjármálaráð-
herra í fj'rri stjórn, leggja hina
mestu áherzlu á að bæta efnahag
Frakklands. Hann mun m.a. reyna
að koma í veg fyrir, að fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1958 komi
fyrir þingið fyrr en í janúa_r. —
Nú þegar ætlar hann að reyna
að fá stórfellt lán erlendis, tii þess
að koma í veg fyrir, að franskur
iðnaður lendi í hárefnaþroti.
Það voru einkurn kommúnistar
og poujadistar. sem greiddu at-
kvæði á móti Gaillard í þinginu.
11 af 39 fulltrúum sósíalradikala
sátu hjá við atkvæðagreiðsiuna,
þar á meðal Mendes France, en
hann er á móti stefnu Gaillards
í málefnum Aistr.
Gaillard muu fara til Lotuion
í næstu viku til viðræðna við
Macmillan um fitnd þjóðanna í
Atlantshafsbamlalaginu, sem
haldinn verðux i París í næsta
mánuði.