Tíminn - 28.11.1957, Síða 7

Tíminn - 28.11.1957, Síða 7
T í MI N N, fimnitudaginn 28. nóveniber 1957, 7 Norskir fiskimenn héldu opinni leið frá Noregi á stríðsárunum BækistöS þessara hugprúíu sjómanna var á Shetlandseyjum. Kvikmynd sýnd hér af þessum víkingum nútímans. Rætt vio NjörÖ Snæhólm, er var þeim samtíÖa á Shetlandseyjum Fyrir skömmu stóðu yfir sýningar í Bæjarbíói í Hafnar- firði á kvikmyndinni Norskar hetjur og fjailaði hún um þann þátt í norskri baráttu á stríðsárunum, sem fiskimenn á smá- bátum áttu í því að koma fólki undan frá Noregi og afla jafnframt vitneskju um athafnir Þjóðverja í landinu. Menn þessir fóru á bátum sínum yfir opið og úfið haf til bækistöðva sinna á Shetlandseyjum. Kvikmyndin er samin eftir tveimur bókum, The Shetland Bus eftir David Howard og Shettands- Larsen eftir Frithof Sælen. Mvnd þessi er ekki raunveruleg stríðsmynd með tilheyrandi ástarævintýri og uppdiktuðum hetjuskap, heldur nálgast hún að vera heimildarmynd, ámóta og kvikmyndin Björgunin við Látrabjarg. Mun það kannski hafa valdið mestu um það, að myndin fékk litla aðsókn. Mynd þessi var frumsýnd með mikilli viðhöfn í Osló. Við það tæki- færi flutti fyrrverandi yfirmaður andspyrnuhreyfingarinnar norsku ávarp, þar sem hann skýrði frá því, að myndin væri einkum gerð til heiðurs þeim sextíu manna hópi, sem kom við sögu siglinga fiskibátanna, en jafnframt væri hún tákn- ræn fyrir þann hetjuanda og fórnfýsi, sem hefði einkennt baráttu Norðmanna á stríðsárunum og eru þessi orð manns- ins sannmæli. lengur að lóna upp við ströndina undir þvi yfirskyni að verið væri að draga þorsk, varð vogskorin strcndin enn meiri griðastaður en áður og gerði öðru fremur mögu- lega áframhaldandi mannfiutn- inga og njósnir. Verður ljóst af myndinni, að Norðmönnum var sæmilega opin leið yfir hafið til Shetlandseyja, án þess að um meiri hættu væri að ræða, en- gekk og gerðist. Þrátt fyrir þessa opnu leið skyldi engin ætla að ferðirnar íafi verið lystireysur fyrir ævin- .ýragjarna menn og segir Larsen vól;. frá þessu í lok myndarinnar. Hann segir: „Mörgum er stríð vama og ævintýri. En stríð er hryllileg, sár og eyðileggjandi 5nn. Við börðumst fyrir það, sem við trúð.um á, og það gaf barátt- unni gildi. Að launum fengum við hjálp og stuðning frá löndum okkar heima, þakklæti frá þeim, sem við 'fluttum til frelsisins og gleðina yfir að vita að við héldum opinni leið yfir hafið frá hernumd um Noregi til bandamanna vorra“ Frá Nauthólsvík til Shetlandseyja Þegar tíðintlamaður blaðsinS| hafði séð myndina, minntist hann þess, að Njörður Snaehólm hafði ritað bók, sem kom út 1949 og nefnist: Á kafbátaveiðum. — Njörður var í norska flugliðinu á stríðsárunum, en þótt hann hefði flugpróf, öxluðust málin þannig, að hann annaðist löggæziu, fyrst hér við Nauthólsvíkina og endaði sem lögregiustjóri, bæði við flug völlinn hjá Stavangri, Sola og Fornebu við Osló. í bókinni skýrir Njörður frá veru sinni á Shetlands eyjum frá árinu 1943 og til stríðs loka. Þess vegna þótti tilhlýðilegt að ganga á fund Njarðar, nú þegar þessi anynd er sýnd hér, og spyi'ja Sá, er einna mest kemur við sögu í myndinni og átti jafnframt einna stærsta sögu í veruleikanum, er Leif Lansen, sem fékk viðurnefnið Shetlands-Larsen á stríðsárunum. Hann fór, eins og fleiri landar hans, marga frægðarför til Noregs í stríðinu, en til marks um það, í hvaða hættu var sótt, er sú stað- reynd, að fjörutíu og fjórir af hann um Larsen og aðra, sem voru í flutningunum. Njörður er nú starfandi í rannsóknarlögregl- unni. Er óhætt að segja, að hann hafi fengið góða undirstöðu- mennt í starfi sínu, er har.n var að hreinsa til á svæðinu í kringum Sola í allri þeirri upplausn, sem að sjálfsögðu ríkir í landi, sem er að losna undan hernámi og er að nýju að taka við sjálfstjórn. Segir Njörður nokkuð frá þessum störfum sínum í bókinni, og hefði sú frásögn mátt vera lengri. Kona Njarðar, Magnhild Snæhólm var í Noregi öll stríðsárin, og sonur þeirra, Harald, sem fæddist 1939. Leynideildin Þetta eru orðnir frægir menn, Þeir Larsen og félagar hans, segir tíðindamaður blaðsins og er setztur á móti Nirði við borðið í skrifstofu hans við Fríkirkju- veg. Já, segir Njörður. En á stríðs- árunum var yfirleitt lítið talað um þessa anenn af þeirri einföldu á- stæðu, að þetta var eina deildin þarna, sem farið var virkilega leynt með og enginn mátti vita hvað hafði fyrir stafni. Og flestir gerðu sér að reglu að halda sér saman, af þeirri einföldu ástæðu að undir því gat líf þeirra verið kcmið. Við, sem vorum þarna í slööinni, vissum alltaf um þá og Leif Larsen Dansað í þinghúsinu Maður sá alla þessa karla, segir Njörður. í Scalloway voru menn, sem höfðu verið í flugliðsdeild okkar og svo kynntumst við í þing húsinn í Lerwick. Ekki hafið þið setið þing þarna? Nei, en þing- húsið var notað til skemmtana- halds. Þar voru böll og aðrar skemmtanir og þar hittust menn. Annars er þarna gamall þingstað ur og stendur í Bresseysundi. Hann heitir reyndar Þingvöllur og er lítil eyja, en menn gátu stiklað á steinum út i hana. Árið 876 lentu eyjarnar undir Noreg og lutu I bardaga viS tvær þýzkar orustuvélar. heimsóttum þá og þeir okkur. — Stöðin, sem Njörður visar þarna trl, var í sundinu Sullom Voe, sem er í um þrjátíu kílómetra frá Lerwick, höfuðstað eyjanna. Lars- en og félagar hans höíðu bækistöð í Scalloway. Njörður hefur dregið fram herkort af eyjunum og lagt það á boröið til að sýna afstöð- una. Bækistöð tundurskeytabát- anna var í Lerwick, segir Njörður. Norðmenn fengu tíu tundurskeyta báta frá árinu 1943. Þá lauk ferð- um fiskibátanna, en þesisir tíu tundurskeytabátar voru það at- hafnasamir undan ströndum Nor- egs, að 1 j)ð"erjar reiknuðu með, að þeir vLi’u íkki færri en þrjátíu. Tundurskcytabátar þessir sökktu milli fjörutíu og fimmtíu skipum og löskuðu nær þrjátíu. NjörSur Snæhólm þeim sextíu, er hófu þessar ferðir á árinu 1941, létu lífið á þeim tveimur árum, sem liðu þar til hinir svonefndu tundurskeytabát ar leystu fiskibátana af hólmi. í fyrstu vissu Þjóðverjar ekki nema óljóst um ferðir fiskibátanna, enda var mikil leynd yfir allri starfseani þess hóps Norðmanna, er siglingarnar stunduðu. Það kem ur fram í myndinni og ekki af ástæðulausu, að mönnum þóttu fiskibátarnir, sem voru frá fjöru- tíu til sextíu lesta skip, heldur hægfara og ekki hægt að koma við þehn vopnabúnaði, sem þurfti til að invæta árásum Þjóðverja úr lofti og af sjó. Hins vegar höfðu fiskibátarnir það fram yfir tundur skeytabátana og önnur vopnuð för, að undir Noregsströndum var hægt að láta líta svo út, sem um bát í róðri væri að ræða og þess vegna sluppu þeir frekar við að vekja eftirtökt, sem kostaði ekk- ert minna en dauðann. Strönd Noregs Leikmenn hljóta að undrast hversu vel Norðmönnuan gekk að lialda uppi anannflutningum tíl og frá Noregi rétt við nefið á Þjóðverjum, Landið sjá'lft lagði mönnum til ákjósanlegar ytri að- stæður, sjálf strandlengja Noregs með vogum sínum og víkum gekk óbeint í andspyrnuhreyfingu þjóð- arinnar á fyrsta degi hernámsins. Síðar, þcgar tundurskeytabátarnir R°is 1 átt Noregsstranda, eftir að skipið hafði verið skotið undan þeim komu til sögunar og ekki var hægt Flestir særðust í viðureigninni. Noregskonungum í ein sex hundr uð ár. Sér þess víða merki. Göturn ar í Lerwick bera nöfn norskra konunga, en tungumál eyjar- skeggja, þegar þeir tala ekki ensku, er með öllu óskiljanlegur andskoti, en það kom ekki að sök. Fólkið var sérsíaklega alminlegt við okkur og höfum við kannski notið þess, að langt var síðan þeir höfðu haft spurnir af norskum kóndum forn- og miðalda. Eftir kristnitöku var reist kirkja skammt undan ströndinni við Þingvöll, en í hana hlupu sakamenn þeir, sem fengu grið á Þingvelli. Grið fengu menn á þann hátt, að fólkið raðaði sér í fjöruna, þar sem stiklurnar voru úr eynni, en sakamaður stóð í hólmanum. Síðan hljóp hann á stiklunum í land og hleypti fólkið honum í gegn og til kirkjunnar, hélt hann lífi, en annars tók fólk- ið á móti honum í fjörunni og drap hann. Tolfsalli í ÞrándheimsfirSi Mér þótti myndin góð, sagði Njörður. Eina ferð fór Larsen, sem ekki er tekin með þarna í myndinni og var sjálfsagt ein af mestu ferðum hanis, þótt hún mistækist. Þetta gerðist áður en ég kom til Shetlandseyja og ég heyrði ekki nema lítið um ferðina fyrr en löngu síðar. Leyndin var það mikil, að Larsen vann sjálfur ásamt einum manni að breyling- um, sem varð að gera á báti hans vegna þessarar ferðar. í stuttu máli sagt: Larsen fékk það verk- efni að flytja tvo tveggja manna kafbáta til Þrándheims, en þeir áttu að sökkva þýzka beiliskipinu Tirpitz, sem lá þar. Seinna, þegar Lancaster vélarnar löskuðu skipið, (Framhald á 10. síðu) Á víðavangi Bjarni og rússneska konan Fátt hefir upplýst betur liug- skot stjóniarandstöðunnar eti birting rússnesku greinarinnar í Morgunblaðinu. Gamli áróðurinn um að Bandaríkin hafi keypt liér herstöð fyrir dollara birtist enn einu sinni í rússnesku blaði hér á dögunum. Höfundurinn er rússnesk kona, Tamara Ersliova, sem launar gestrisni hér og vin- samlegar móttökur, með rógskrif ■ um um þessi mál. Út af fyrir sig' cr það þó ekki tiltökumál. Þessi hefir verið tónninn í rússnesk- um áróðri lengi; niálið komst á alveg nýtt stig, þegar það sýndi sig, að aðalblað stjórnarandstöð- unnar, undir forustu fyrrv, .utan rikisráðherra, gerði þennan • mál- fiutning að sínum niálflutningi, endurprentaði rússnesku greinina með myndum á forsíðu og undir stórri fyrirsögn, bætti svo við frá eigin brjósti til áherzlu, að víst mundi þetta allt satt og rétt enda mundi konan liafa heimild ir hjá stjórnarliðinu! Uppljómuð augnabliksmynd Þarna sjá landsmenn í einit vetfangi, hvernig stjóranrand- staða Morgunblaðsins og for- svarsmanna íhaldsins er orðin: Það, sem var argasta lygi um vinveitt ríki, sem sýnt liefir ís lendingum drengskap og hjálp- semi í Ianga liríð, m. a. meðan íhaldsforingjarnir sátu í stjórn arráðinu, er allt í einu orðið satt og forsíðufréttaefni þegar þeir eru oltnir út úr stjórnarráð inu. Bandaríkjamenn eiga að hafa breytzt þessi ósköp Vegna þess að Bjarni og Ólafur fengu ekki lengur að vera í stjórn á íslandi. Flesta daga vikunnar ganga blekkingar og ósaiínindi, fréttafalsanir, hártoganir, rangar ívitnanir, yfirhilmingar og annar ósómi ljósum logum um síður Morgunblaðsins. Óáreiðanlegheit- in og undirgefnin við valdastreit una, skín þar út úr hverri máls- grein. En aldrei hefir allt þetta opinberast þjóðinni á jafn einfald an, auðskilin og uppljóipaðgn Iiátt og í viðskiptum Bjarna. og Tamöru Ershova. Þau éru eins og upplýst ljósmynd á sýiiingu. Útkoman verður þjóðar- fyrirlitning 1 Önnur saga er svo endurvakn ing' ófrægingarstríðsins. Hernað arlistin er nú orðin alveg aug- ljós. íhaldið þekkir sín vopn og þykist kunna að beita þeim. í fyrra birtist erlendis allt í einu og alveg upp úr þurru, „frétt“ iun að íslenzka ríkisstjórnin væri að undirbúa viðurkenningu kommúnistastjórnarinnar í Aust- ur Þýzkalandi. Þetta voru helber ósannindi, en liefði vakið athygli erlendis, ef satt hefði verið. Dag inn eftir birtu ýmis blöð á Norð urlöndum og í Vestur-Þýzkalandi „fréttaskeyti'* frá umboðsmönn- um útlendra fréttastofnanna á Is- landi. Þau hófust svona: „Aðal- málgagn Sjálfstæðisflokksins, stærsta flokks landsins, sem er í stjórnarandstöðu, upplýsir . . .“ o. s. frv. Sem sagt: Lygalopinu uppvafinn liér heima til þéss að fá tilefni til að senda ófræging- arskeyti úr landi. Sama sagau gerðist nú fyrir helgina. Ólafur Thors lieldur svikabrígslaræðu suður í Keflavík, úthrópar stjóru landsins fyrir „betl“ og svika- fyrirætlanir; áður hafði Mbl. sagt að landsstjórnin væri „fjandsamleg“ Atlantshafsbanda- laginu. Daginn eftir birtast frétt irnar í útlendum blöðum, og hef j ast svona: „Ólafur Thors formað ur Sjálfstæðisflokksins, sem er í stjórnarandstöðu, upplýsti í ræðu í gær . . .“ o. s. frv. Þann ig er óhróðrinum komið á fram færi og er alþjóð nú orðið ljóst þetta svívirðilega athæfi. Látuni vera þótt liart sé deilt innan lands. En siðleysi íhaldsins í ó- fræginarstríðinu slær öll þess gömlu met. Fyrir það verðskuld- ar það þjóðarfyrirlitniugu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.