Tíminn - 23.12.1957, Blaðsíða 1
TÍMANS erw
SUtsl'ióm og ekrlfstofur
1 83 00
■USsmenn eftlr kl. 19:
11301 — 18302 — 18303 — 18304
41. árgangur.
24 sföar
Reykjaík, mánudagurinn 23. des. 1957.
290. bla3.
Jólasveinar með hest og sleða á Arnarhóli
Brezkt flutningaskip meS 28 manna
áhöfn fórst á NorSursjó síSastl. nótt
Var á leí<S til hjálpar öíru shipi
NTB—Lundúnum og Stafangri, 22. des. — Brezika flutn-
ingaskipið Narva, 2 þús. lestir að stærð, sökk í nótt á Norð-
ursjó, ekki alllangt undan vesturströnd Noregs. 28 man-na
áhöfn var á skipinu og munu mennirnir allir hafa drukkn-
að. Mikilli leit hefir verið haldið uppi í dag af flugvélum
og skipum, en það eina sem fundizt hefir er björgunarbátur
á hvolfi og nokkurt brak, þar sem skipið sökk
í>að var um kl. hálf fjögur s.l.
nótt, að neyðarskeyti barst frá
Narva. Var sagt, að mikill leki
væri kominn að skipinu og hætt
við að það myndi fljótt sökkva.
Norska skipið Leda var ekki
nema 3 sjómílur undan og hélt
þegar til aðstoðar hinu nauðstadda
skipi. Fann Leda brátt skipiS og
setti á flot björgunarbát, sem
komst nálægt Miðinni á Narva.
Hrópuðu bátsverjar til skipsf-
manna að stökkva fyrir borð og
(Framhald á 2. *íðu).
ÞaS var uppi fótur og fit á Arnarhóli síSdegis í gær, og voru þar á ferli menn og málleysingjar. Jólasveinar
úr hestamannafélaginu Fák höfðu beitt gæðing fyrir sleða og þeyst í bæinn. Áðu þeir á Arnarhóli, og safn-
■ðist brátt um þá hópur forvitinna barna og fullorðinna að fagna gestum. — Myndin sýnir jólasveinana með
hest sinn, umkringda börnum. (Ljósm.: Baldur Óskarsson).
Dr. Adenauer telur
laust belti í Mið-Evrópu
Hún sé aðeins gerð til þess að draga
athygli (rá vígbúnaðarvandamálinu
um vopn-
blekkingu
Rættist úr með jólafærið og flestar
leiðir opnar og greiðar í gær
í>ó var kominn skafrenningur á HellisheiÖi
í gærkveldi og færð tekin aÖ spillast
Nokkurn snjó setti niður i sumum héruðum fyrir tveim
eða þrem dögum og spilltist færð. í gær hafði rætzt alível
úr og mátti heita að allar helztu leiðir væru farnar.
Bonn, 22. des. — Dr. Konrad Adenauer kanzlari V-Þýzka-
lands hefir hafnað tillögu Sovétstjórnarinnar um belti í M-
Evrópu, þar sem engin kjarnorkuvopn yrðu leyfð. Kanzl-
arinn sagði, að þessi hugmynd væri sínu verri en sú, sem
margir hafa áður komið fram með, um hlutlaust og af-
vopnað belti ríkja í Mið-Evrópu. Taldi dr. Adenauer, að til-
laga þessi gæti ekki orðið til neins annars en draga athygli
manna frá höfuðvandamáli samtímans: vígbúnaðarkapp-
hlaupinu.
Kanzlarinn lét þessa skoðun í
Ijósi í viðtaJi, sem hann átti við
fréttaritara útvarpsins í Bonn.
Á víffia fylgi að fag'iia.
Eden fyrrv. forsætisráðherra
mun einna fyrstur hafa komið op-
inberlega fram með tillöguna um
belti Mutlausra ríkja í Mið-Evrópu
og var það gert í því skyni, að
auðvelda sameiningu Þýzkalands.
Hafa margir tekið undii' hana, t.d.
hefir brezki Verkamannaflokkur-
inn lýst fylgi við hana, svo og
vestur-þýzkir jafnaðarmenn. Til-
Símstöðvarstjórinn í Borgarnesi
féll wr símastaur og beiS bana
Það slvs vildi til í Borgarnesi laust eftir hádegi í gær,
að Gunnar Hlíðar, símstöðvarstjóri og póstafgreiðslumaður,
féll úr símastaur, er hann var að gera við símalínu, og beið
bana við fallið.
Gunnar var að verki í embættis-
erindum. Hann átti vanda til að
fá krampa, og mun hann liafa
fengið slíkt kast, er-hann var að
Jófastjarna Akurnes-
inga sést úr Rvik
Á Akranesi hefir verið komið
fyrir óvenjulegri jólaskreytingu.
Er það stór upplýst stjarna, sem
stendur upp á 67 metra háum
reyktóf sementsv erk s m i ð j unn a r,
sem nú er nýtokið við að steypa.
Er stjarna þessi um 3 metrar í
þvermál og upplýst vel, enda sést
hún alla leið fr’á Reykjavik.
starfi uppi í staurnum, og olli það
slysinu.
Gunnar var sonur Sigurðar E.
Hlíðar, fyrrv. yfirdýralæknis, rúm-
lega fertugur að aldri. Hann var
hinn nýtasti maður og vel látinn.
lagan í sinni nýjustu mynd um
belti ríkja, sem ekki hefðu kjarn-1
orkuvopn aí' neinu tagi, hefir ver- j
ið tekin upp af Sovétríkjunum. Á j
Parísarfundinum lét Gerhardsen,
forsætisráðherra Norðmanna í það 1
Skína, að hann teldi_ hugmymd
þessa vel athugandi. í umræðum
á brezka þigninu eftir Parísarfund
inn lýsti Bevan talsmaður Verka-1
mannaflokksins um utanríkismál
yfir stuðningi við hugmynd þessa.
Taldi hann, að það gæti ekki tal-
izt mikil fórn til að sameina Þýzka
land, þótt vesturveldin flyttu brott
heri sína gegn því að Sovétríkin
gerðu slí'kt hið sama í Austur-
Þýzkalandi.
Hammarskjöld heim-
sækir hermenn
sína um jólin
LUNDÚNUM, 22. des. — Hamm
arskjöld, framkvæmdastjóri S.þ.
hefir undinfarið dvalizt í Svíþjóð,
en í dag hélt hann til stöðva S.þ.
í Egyptaiandi og fsrael. Ætlar
hanin að vera með hersveitum
S.þ., sem þarna halda uppi gæzlu
yfir jóladagana. Segir í fregnum
að henmennirnir fagni því mjög,
að Hamimarskjöld skuli verða meö
al þeirra yfir hátíðirnar.
Fréttaritari Tímans á Blöndu-
ósi sagði í gær, að áætlunarbílar
Norðuríeiða hefðu komið þangað
frá Akureyri kl. 2 í gær og gengið
vet yfir ÖxnadatsheiSi. Bilarnir
að sunnan komu frá Reykjavík í
Fornahvomm kl. 2 og fónu þaðan
kl. 3, en voru ekki komnir á
Blönduós kl. 6. Var samt, búizt
við, að þeim gengi sæmilega og
mundu hæglega komast tii Akur-
eyrar í gærkveldi. Með þeim voru
um 90 farþegar.
Leiðir vestur á Snæfellsness
voru og greiðífærar og einnig fært
í Dali. Þungfært var í uppsveit-
um Borgarifjarðar.
Hellisheiði var greiðfær í gær
oftir ruðning, en í gærkveldi fór
að skafa þar og spiMtist færð um
sinn. Á Suðuriandsundirlendi var
fært alls staðar og gott.
í Þingeyjarsýslu og Eyjafirði
var vel fært um allar sveitir, snjór
inn ekki ýkjamikill. Þó varð að
ryðja veginn á Vaðlaheiði, og
fóru bílar yfir hana í gær.
Á Auisturlandi var greiðfært um
byggðir og fært ýfir Fagradal.
MIKIÐ FLOGIÐ
í gær otg fyrradag var mikið
flogið á innanlandsleiöum enda
Blaðið er 24 bls. í dag, tvö
blöð, 12 bls. hvort Þetta er
síðasta blað fyrir jól. Blað-
ið kemur ekki út á morgun,
Næsta blað kemur út á
laugardaginn 28. desember.
bjartviðri. Þó voru sumir flugveil-
ir lokaðir vegna snjóa, en búið
að ryðja flesta aðalvelli í gær, svo
sem við Blönduós og við Sauffi-
ánkrók.
Búizt við sunnanátt
og þíðviðri á
jólunum
Blaðið átti tal við Bjöm L.
Jónsson, veðurfræðing, sem var
á vakt í veðurstofunni í gær og
spurði hami hvernig hann teldi
líklegast að jólaveðrið yrði affi
þessu sinni.
— Þaffi er djúp lægð vestur af
Grænlandi, sagði Björn, og ekki
ólíklegt að hún valdi sunnanátt
og þíðviðri hér á landi á aðfanga
dag og kannske eitthvað leng*
ur. Á morgun, Þorláksmessu, er
samt gert ráð fyrir hægviðri og
bjartviðri og nokkru frosti. En
við reiknum með sunnanátt og
hlýviðri um það leyti, sem jélin
ganga í garð að minnsta kosti,
sagði veðurfræðingurinn.
JóIakveSja til lesenda
JóSadansIeiknr FUF
í Silfurtunglinu
Ungir Framsóknarmenn! ’ Nú
fer hver að verða síðastur affi
tryggja sér miffia á dansleikinn
í Silfurtunglinu á annan í jól-
lun. Muniffi að hin bráðsnjalla
liljómsveit Jose Ríba leikur fyrir
dansinum. Tekið við miðapönl-
unum á flokksskrifstofunni,
Edduliúsinu, sími 19285. i
MeS þessari skemmtilegu teikningu eftir Falke Bang, sendir Tíminn les-
endum sínum beztu óskir um gleðlleg jól.