Tíminn - 09.07.1958, Blaðsíða 1
3ÍMAR TÍMANS ERU:
Rltttjórn og skrifstofur
1 83 00
BlaSamenn eftir kl. 19:
lU«t — 1*302 — 18303 — 18304
42. árgangur.
Reykjavík, miðvikudaginn 9. júlí 1958.
EFNI:
Hugleiðingar um hafnarbætur
bls. 5.
Grein eftir Bevan, bls. 6.
Viðtal við Guðjón bónda í Ási,
'bls. 7.
148. biað.
Brezka st jórnin harðskeytt við íslend
inga, en Rússum leyfist flest
Ummæli brezks blafts. Togarar Rússa beita
ofríki á miðunum við Hjaltlandseyjar
Glasgov-blaðið Bulletin flytur tveggja clálka innrammaða
klausu um aðfarir rússneskra togara á miðum við Hjaltland
og þar í kring. Blaðið víkur einnig á skemmtilegan hátt að
landhelgípdeilu brezku stjórnarinnar við íslendinga.
Fulltrúar á póstmálaráðstefnu í Reykjavík
■ Fyrst er rakið, að brezka stjórn-
ín hafi mótmælt í Moskvu, er
rússneskir togarasjómenn gengu
á land i Hjaltlandi og huggðust
handsama pólitískan st'rokumann,
sem leitað hafi hælis á bóndabýli
þar.
Yfirgangur Russa.
Vissulega hafi verið rétt að mót-
lhælá, það eina sem velcti furðu,
sé að svo skuli ekki hafa verið
gert fyrir löngu. ekki vegna manna
ferða í landi, heldur vegna fá-
heyrðs yfirgangs á miðunum. —
Togaramenn Rússa á þessum slóð
um hafi þverhrotið allar reglur
óg samninga og gert það svo lengi,
að þeir hljóti að hafa ofðið undr-
andi, er landgöngu þeirra var mót
mælt.
• •
Ofgamenn í Alsír
ánægðir með
Soustelle
NTB—PARÍS, 8. júlí. — Velferðar
nefndin í París hefur lýst mikilli
velþóknun vegna skipunar Sou-
stelle í emhætti upplýsingamála-
ráðherra og segist nefndin viss
um að hann geti leyst þann mikla
vanda, sem hans bíði í því em-
bætti.
Hrekjast á lakari mið.
Meðal sjómanna á. eyjunum sé
mikil gremja ríkjandi yfir ástand
inu, enda sé nú svo komið, að
sj.órnenn þar kjósi heldur að sækja
á mið, sem þeir vila að eru léleg,
en hafa þann kost', að þar eru
net þeirra ekki eyðilögð af botn-
vörpum togaranna, sem draga misk
unarlaust yfir netin. Segir blaðið,
ag erfitt sé að verjasf þeirri hugs-
un, að Rússar hagi veiðum sínum
þarna á þennan veg af ásettu ráði,
enda séu þeir vel á veg komnir
með að hrekja heimamenn af
beztu miðunum, sem þeir hafa
sótt um aldir.
Brezka ljónið og smáríkið.
En brezka stjórnin hafi látið
þessu ómóhnælt og heimamenn
hafi orðig að sætta sig við ofríkið,
þótt gremja þeirra sé mikil.
En, segir blaðið, þegar uni sé
að ræða fiskveiðiréttindi og
reglugerðir í því sambandi, þá
standi ekki á brezku stjórninni
að sýna íslendingum í tvo heim-
ana. En ísland sé lítið ríki. Sovét
ríkjunum virðist Iiins vegar hald
ast uppi ag fara sínu fram og
ákveða upp á sitt eindæmi þær
| reglur, sem gilda skuli.
Loks segir blaðið, að stjórnmála
mennirnir verði sjálfsagt ekki í
vandræðum með að fii\na afsak-
anir fyrir linku sinni gagnvart
Rússum, en þær muni þó lítið
draga úr reiði Hjaltlendinga.
Kommúnistar og hægri menn unnn
verulega á í íinnsku kosningnnnm
Búizt viS langri stjórnarkreppu í landinu
NTB-Helsinki, 8. júlí. — Óvissa einkenndi stjórnmála-
ástandið í Finnlandi í dag eftir að úrslit þingkosninganna eru
kunn í meginatriðum. Það, sem kom mest á óvart, var sigur
Folksdemokrata og verulegur ósigur Bændaflokksins. Iíægri
menn unr.u einnig á. Kosningaþátttakan var aðeins 70%, en í
næst síðustu kosningum var hún 79%.
í gær hófst i Reykjavík norræn póstmálaráðstefna og stendur hún til 13. þ. m. Hér birtist mynd af þátttakend-
um í ráðstefnu þessari. Þeir eru taldir frá vinstri, fremri röð: Frk. G. U. Andersson (D), A. Hultman (S), K.
Johannessen (N), G. Briem (í), A. Krog (D), O. Saloila (F), T. S. Nylund (S). — Aftari röð: E. Sandholt (í),
P. Eqgerz (í), M. Jochumsson (í), I. Lid (N), C. M. Settergren (S), K. A. Löfgren (S), W. Sjögren (N), G. A. E.
Jonsson (S), K. E. H. Havered.
Viðræður H. C. Hansens við íslenzk
stjórnarvöld eru mjög mikilvægar
segir i fregnum frá Kaupmannahöfn.
Forsætisráðherrann kemur hingað í dag
NTB-Kaupmannahöfn og Lundúnum, 8. júlí. — Forsætis-
og utanr'kisráðherra Danmerkur, H. C. Harisen, mun koma
til Reykjavíkur seint á þriðjudagskvöld, segir í fregn-um frá
Kaupmannahöfn. Mun hann eiga viðræður við íslenzka stjórn-
málamenn um stækkun fiskveiðilandhelginnar við ísland og
Færeyjar í 12 sjómílur.
Sigur Fólksdemokrata, en þar
ráða kommúnistar mestu kom nokk
uð á óvart'. Er talið, ag atvinnu-
leysi og ringulreið sú, sem undan
farið hefir rikt á stjórn landsins,
eigi sinn þátt í sigri þeirra. Eftir
er að íelja utankjörstaðaalkvæði
og geta þau breytt nokkru.
Úrslitiir.
Kosnir voru tvö hundruð þing-
'menn. Jafnaðarmenn hafa fengið
50 þingmenn, höfðu áður 47; Fólks
demokratar fengu 50 þingmenn,
höfðu áður 43; klofningsflokkur
Brsela á sildarmið-
iinum - skipin
í landvari
Bræla var á síltlarmiðunum fyr
ir Norðuriandi í gær og engiu
síMveiði. Skipin voru líka yfir-
leítfc í landvari eða inni á höfn-
um og biðu þess að veður batnaði
útifyrh-. Þannig voru á annað
himdrað síldarskip í liöfn á Siglu
firði í gær.
frá jafnaðarmönnum fékk 3 þing-
menn, hafði engan áður; Hægri
flokkurinn 28, hafði 24; Sænski
flokkurinn fékk 14, hafði áður 13;
Bændaflokkurinn fékk 48, hafði
áður 53; Finnski flokkurinn 7,
hafði 13 áður. Það vekur athygli,
að klofningsflokkurinn frá jafnað-
armönnum náði litlum árangri og
þykir sennilegt, að aftur muni
draga saman með flokkstorotun-
um, ekki sízt eftir sigur komm-
únista.
Ekki síðan 1917.
Varla er talið, að utankjörstaða-
atkvæði muni breyta neinu veru-
legu, og því mun mega fullyrða,
að í fyrsía sinn síðan 1917 liefir
verið kjörið þing í Finnlandi, þar
sem borgaraflokkarnir eru í minni
hluta. Samanlagt liafa jafnaðar-
menn og kommúnistar 101 þing-
mann. Búizt er við langvinnri
stjórnarkreppu í Finnlandi. For-
ingjar nokkra borgaraflokka hafa
lýsf yfir, að þeir nmni styðja sam
steypustjórn allra toorgaraflokk-
anna. Hertha Kuusinen foringi
kommúnista kvað augljóst, að ekki
væri hægt ag mynda stjórn í land-
ínu án þátttöku fiokks síns.
Haft er eftir þeim, sem þessum
m'álum eru vel kunnugir í Höfn,
að viðræður þessar muni hafa
mjög imibla þýðingu, einkum með
til'liti til þess, að brezka stjórnin
hafi í svari sínu til dönsku stjörn-
arinnar raunverulega hafnað samn
ingum við Dani, fyrr en deilan við
íslendinga sé til lykta leidd, eða
minnsta kosti liggi ijósar fyrir en
nú er.
Hafi samstöðu.
Haft er eftir danska blaðinu
„Information", að II. C. Hansen
muni revna að skapa grundvöll fyr
ir samkomulag, er nái til ríkjanna
Iþriggja, Bretlands', Færeyja og ís-
lands. Enda sé þetta eina leiðin,
segir blaðið, til að leysa þann
vanda, sem að sleðji.
Rússar slepptu
flugmönnunum
NTB-Moskva, 7. júlí. — í dag
leystu Rússar úr lialdi níu manna
áhöfn bandarískrar lierflugvélar,
sem þeir neyddu til a'ð lenda í
Armeníu 27. síðasta mánaðar. —
Var flugvélin á leið frá Kýpur til
Teheran og mun liafa villzt af
leið. Sökuðu Rússar Bandaríkja-
rnennim um að liafa virt að vett-
ugi lofthelgi sína. Flugmennirnir
voru teknir til geymslu, en flug-
vélin brann. Klögumálin Iiafa svo
gengið á víxl út af þessum at-
burði, og liafa Rússar í síðustu
orðsendingu sinni um þetta skor-
að á Bandaríkjamenn að sjá svo
um, að liliðstæðir atburðir gerist
ckki í framtíðinni.
Færeyingar vilja semja.
Dönsku stjiórnmíálaflokkarnir og
landstjórnin hafa látið uppi áiit
sitt á svari brezku sljórnarinnar.
Er svo að sjá á þeim yfirlýsingum,
að ailir flökkarnir, nema Þjóðveld
isflokkurinn, vilji loysa málið með
saminingum við Breta og telji enga
aðra leið færa. Virðist sem Folka-
flokkurinn hafi breytt afstöðu
sinni frá því fyrr í vor, er Lög-
þingið samþykkti einhliða út-
fænslu landhelginnar. Eru þessar
fregnir samkvæmt fréttum ís-
lenzka rikisútvarpsins.
Bretar stækki sína eigin
landhelgi.
íhaldsþingmaðurinn Sir Rohert
Boothy Stakk upp á því í neðri
miálstofu brezka þingsin’s í dag, að
Bretar fari að dæmi annarra ríkja
og færi út sína eigin fiskveiðiland-
ihelgi og verndi þannig sína eigin
H. C. Hansen
forsætis- og utanríkisráðherra
ha'gsmuni. Kom þessi skoðun hans
fram í samtoandi við fyrirspurn,
sem hann gerði til Skotlandsmála-
ráðherrans og var á þá leið, hvort
fyrirhugaðir samningar um fisk-
veiðilandhelgi mvndi ekki leiða til
iþess, að. hrygnngastöðvarnar í
Moray-fiðri á Skotlandi og 1 sund-
um milli Skotlands og Hebridse-
eyja yrðu friðaðar. Ráðherrann
svaraði því til, að Bretar ynnu að
verndun flskimiða sinna í samræmi
við .alþjóðlega samninga, sem gerð
ir væru á þessu sviði.
Dísarfelí er væntanlegt með 400 tonn
af belgískum kartöfíum á morgun
Dísarfell var væntanlegt til landsins í nótt með farm af nýj-
um belgiskum ka-rtöflum, um 400 tonn. VerSa þær kartöflur
væntanlc-ga komnar til afgreiðslu í verzlunum á föstudag.
Samhand smásöluverzlana hefir
ákveðið að þessar kartöflur skuli
skamnntaðar fyrst í stað. en jafn-
framt er 'talið rétt að beina því til
aimennings að ástæðulaust er að
birgja sig upp af kartöflum eins
og isafcir standa. Á næstunni eru
væntanleg til landsins þrjú önnur
skip með kartöflur, nýja hollenzka
uppskeru, og verða þau öll kornin
til landsinis fyrir og um 20. júlí.
Þessar kartöflúbirgðir eiga að vera
nægjanlegar þar til íslenzk upp-
slbera kemur á markað.
Til að tryg.gja að allir fái eitt-
livað af kartöfiunium, verða þær
því skamimtaðar fyrstu dagana, en
ástæðulaust er að óttast frekara
kartöfluleysi í sumar.