Tíminn - 01.08.1958, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.08.1958, Blaðsíða 8
 Norðaustan gola eða kaldi, létt- skýjað. Hltl kl. 1«; Reykjavik 12 st., Akureyri 8 st„ París 25 st„ Kaupmannah. 19 st., New York 30 st, Berlín 23 st. Föstudag'ur 1. ágúst 1958. Landbúnaðarsýning á Selfossi Á myndinni sést hús SláturféJags Suðurlands á Selfossi. Búnaðarsamband Suðurlands minnist 50 ára afmælis með veglegri landbúnaðarsýningu í sláturhúsinu þann 16. þ. m. Sjá grein á 5. síðu í dag — (Ljósm. Tíminn). Landsleikur við íra í knattspyrnu á Laugardalsvelli annan mánudag — Mest atvinnumenn í írska HUinu, sem leikur auk þess vií Akranes og KR Mánudoginn 11. ágúst leikur íslenzka landsliðið í knatt- spyrnu 22. landsleik sinn í þeirri íþrótt. Mótherjar að þessu sinni verður landslið írska lýðveldisins. Er það mjög gott lið, sem náð hefir ágætum árangri á undanförnum árum. Flestir leikmenn liðsins eru atvinnumenn. Leikurinn verður á Laugardalsvellinum og hefst kl. átta. Blaðamenn ræddu í gær við móttökunefnd þá, sem sér um heimsóknina. Ólafur Hallgrímsson formaður nefndarinnar, og írskur konsúll hér, skýrðu frá heimsókn franna, en auk hans í nefndinni eru Axel Einarsson, Sveinn Björns son, Ólafur Sigurðsson, Jón Þórð- arson og Jón Guðjónsson. Kemur 9. ágúst. írska landsliðig kemur hingað laugardaginn 9. ágúst með flugvél frá Flugfélagi íslands. í förinni eru 16 leikmenn, þjálfari og fimni manna fararsíjórn. Liðið dvelur hér í viku og leikur á því tíma- bili þrjá leiki. Hinn fyrsti verður mánudaginn 11. ágúst, og er það landsleikurinn. Miðvikudaginn 13. ágúst leikur liðið við fslandsmeist arana frá Akranesi og hinn síðasti föstudaginn 15. ágúst gegn Reykja víkurmeisturunum K. R. Knatt- spyrnuráð Reykjavíkur átti að velja lig í þann leik, en ákveðið var að velja KR-liðið í heild. — Allir þessir leikir fara að forfalla- lausu fram á Laugardalsvellinum og hefjast kl. 8. Dómari í landsleiknum verður kunnur norskur dómari, Leif Gulliksen, en línuverðir íslenzkir. Sterkt lið. Landslið írlands er eitt af sterk- ustu liðum, sem íslenzka lands- liðið hefir mælt og eru því sigur- möguleikar okkar manna sáralitlir. Flestir leikmannanna hafa leikið Leikmenn úr sjö liðum leika í pressuliði gegn landsliðinu Leikurinn ver^ur á þriíijucíag á Laugardalsvelli Á þriðjudaginn fer fram á Laugardalsvellinum knatt- spyrnuleikur miili landsliðs KSÍ og pressuliðs, sem Samtök fþróttafréttaritara völdu. Leikmenn pressuliðsins eru úr sjö félögum og má segja, að talsverður tilraunasvipur sé á liðinu. fjölmarga landsleiki fyrir land sitt, og náð ágætum árangri, t.d. sigruðu írar Dani tvívegis í heims meistarakeppninni í fyrra (í und- anrásum, ekki Norður-írland) og gerðu jafntefli við Englendinga, einnig í þeirri keppni. Fyrir landsleikinn kemur út leikskrá með ýmsum upplýsing- um um írsku leikmennina, árang- ur landsliðsins og írskf íþróttalíf. Tommy Dunn, fastur maður i úrvals- iiðum írlands. Landsliðsnefnd KSÍ valdi lið sitt þannig; talið frá marbmanni fið vinstri útiherja. Helgi Daníels- son, Hreiðar Ársæl-sson, Jón Leós- son, Sveinn Teitsson, Halldór Hall- dórsson, Sveinn Jónsson, Þórður Þórðarson, Ríkarður Jónsson, Þór- ölfur Beök, AJbert Guðmundsson og Ellert Schram. Pres's'uliðið er þannig: Heimir Guðjónsson, Árni Njálsson, Rúnar Guðmundsson, Páll Aronsson, Hörð ur Felixson, Einar Sigurðsson, Hf., Páll Jónsson, Keflavík, Björn f Gístason, ísafirði, Ragnar Sig- tryggsson, Hf., Helgi Björgvins- son, Akranesi, og Ásgeir Þorsteins son, Hf. Ingimar Jónsson dæmd ur í 3^/2 árs fangelsi Sekur fundinn um þrenns konar brot: Fjár- drátt, misferli í meíSferð skólafjármuna og vanrækslu í opinberu starfi — dómurinn kveíinn upp í gær í gær var í sakadómi Reykjavíkur kveðinn upp dómur í máli ákæruvaldsins gegn Ingimar Jónssyni, fyrrv. skóla- stjóra. Dómsorð hljóðaði svo: Ákærður Ingimar Jónsson sæti fangelsi í 3 ár og 6 mánuði. Ákærði eryfrá birtingu dóms þessa sviptur kosningarétti og kjörgengi tii opinberra starfa. Frá happdræiti Framsóknarílokksins VandatJir vinningar: íbúð - heimilistæki - föt - ferðalög ★ Þeir, sem fengiS hafa heimsenda miða, eru beSnir að gera skii sem fyrst. — Skrifstofan er á Fríkirkjuvegi 7. Sími 1-92-85. irk Umboðsmenn úti á landi: Hefjið sölu strax. 'krk'k Ennþá fást miðar á skrifstofu happdrættisins, sími 1-92-85. — Það eru fáir svo ríkir, að þeir hafi efni á að eiga ekki miða í HAPPDRÆTTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS Ronnie Nolan, talinn bezti leikmaður í írsku deildinni. Fleiri og fleiri viður- kenna íraksstjórn NTB—LONDON, 31. júlí. — Belgía, Austurríki og Tyrldand viðurkenndu í dag hina nýju stjórn í írak. Haft er eftir áreið anlegum heimildum í London, að Bretar muni einnig viðurkenna hana ,og má búast við yfirlýsingu þess efnis frá þeim á morgun. Dómurinn var upp kveðinn af Þórði Björnssyni, sem skipaður var dómari 1 máli þessu samkv. sérstakri umboðsskrá. Skýrði hann fréttamönnum frá dómsniðurstöð- um í gærkvöldi. Stórfelldur fjárdráttur. í dómsorði segir ennfremur, að ákærður skuli greiða allan máls- kostnað, þar með talin laun skip- aðs sækjanda, Ragnars Jónssonar hrl., og skipaðs verjanda ákærða, Sigurðar Ólasonar hrl., kr. 25 þús. til hvors. Þá segir, að dómi þess- um skuli fullnægja með aðför að lögum. Ákærði var sekur fundinn um þrenns konar brot: Fjárdrátt, mis, ferli í meðferð fjármuna skóla þess, er hann var skólastjóri við og loks vanrækslu í opinberu starfi sínu við skólann. Fjárdráttur úr þrem sjóðum. Talið var sannað, að ákærði hefði dregið sér fé úr þrem sjóð- um á tímabilinu frá 1941 til árs- luka 1954, Úr rekstrarsjóði Gagn- fræðaskóla Reykjavíkur, sem sið- ar varð Gagnfræðaskóli Austur- bæjar, samtals kr. 441.681,92. — Úr byggingarsjóði sama skóla sam tals kr. 57.374,60 eða samtals kr. 839.770,09. Þessi upphæð er kr. 14.366,78 lægri en upphæð sú, sem ákærður var kærður fyrir, að hafa dregið sér í ákæruskjali dóms- málaráðuneytisins. Er fjárdráttur- inn aðalbrot hins dæmda. Keypti bifreið. Þá þykir sannað, að ákærður liafi árið 1942 keypt bifreið, R- 2296 fyrir fé Gagnfræðaskólans. Dómari telur sannað, að þessa bif- reið hafi ákærði rekið í þágu sjálfs Sín, m.a. í vinnu við Reykjavíkur- flugvöll, hir( tekjur af rekstri bif- reiðarinnar, en greitt gjöld vegna rekstrara hennar úr rekstrarsjóði skóians og fært síðan í bókum rekstrarsjóðs kr. 54.051,20, sem tap- á rekstri bifreiðarinnar, sem seld var síðan í des. 1954 fyrir kr. 18.000.00 og látið þá upphæð ganga einnig til gréiðslu á tapi af rekstri hennar. Hins vegar var ákærði sýknaður af ákæru ákæru- valdsins um að hafa keypt bifreið í lieimildarleysi í þessum sama tilgangi. Veitt lán af fé skólans. Þá er ákærði sakfelldur fyrir að hafa veitt nokkrum aðilum lán af fé skólans, þremur einstakling- um, samtals að upphæð kr. 85.000,- og einu fyrirtæki kr. 153.304,56, eða samtals kr. 238.304,56. Hins vegar var ákærði sýknaður af á- kæru um að hafa lánað þrem öðrum einstaklingum og fyrirtæki j samtals kr. 205.000,00 af fé skól- ans. Einnig var ákærði sekur fund-' inn um að hafa sett viss verðbréf skólans að nafnverði kr. 60 þús. að handveði í lánsstofnun fyrir einkaskuldum sínum. Áækrði hef- ir staðið skil á sumum þessara bréfa, en andvirði sumra þeirra fór fil greiðslu á einkaskuldum ákærða. Loks er ákærði dæmdur fyrir stórfellda vanrækslu og hirðuleysi í skólastjórastarfi, svo sem að blanda saman við sin einkafjár- mál hinum ýmsu sjóðum skólans og með því að misfara með fjár- muni skólans. Ákærði var sekur fumtinn sam- kvæmt 247 gr. og 141 gr., sbr. 138 gr. hinna almennu hegningar laga. Dómfelldi hefur áfrýjað dóms- niðurstöðu til hæstáréttar. Umfangsmikið mál. Þórður Björnsson, fulltrúi saka- dómara, sem hefir haft með mál þetta að gera sllfr f-rá- upphafi, kvað það mjög unxfangsmitíið. — Sem dæmi um það má nefna, að dómprófin sjálf eru um tSO vél- ritaðar síður, auk fjölmargra skjala og skýrslna, sem liggja í frumriti. Dómurinn sjálfur var ca. 150 vélritaðar síður. Gangur málsins. Upphaflega var mál þetta kært árið 1955 og hófst rannsókn 23. maí það ár. Það var sent til dóms málaráðuneytisins 15. júní 1956 og síðan aftur að lokinni fram- haldsrannsókn 16. júlí 1957. Var málig svo endanlega tekið til flutn ings og dóms 11. þ:m. og dómur kveðinn upp í gær, eins og áður segir. Hvert fór féð? Þórður Björnsson, setudómari í máli þessu, kvað verulegan hluta af rannsókn þess hafa beinzt að því að finna, hvað orðið hefði af því fé, er ákærði er dæmdur fyrir að hafa dregið sér. Sú hlið máls- ins væri þó mjög umfangsmikil og flókin og taldi hann ekki unnt að gera þvi atriði skil á hlutlægan hátt í stuttu máli. Um endur- greiðslu á því fé, sem ákærði liefir dregið sér, sagði setudómari. að í ákæruskjali ákæruvaldsins hefði ekki verið krafizt endurgreiðslu og væri það mál út af fyrir sig. Óvænt kosninga- úrslit í finnska þinginu A þriðjudaginn var Sukselainen kjörinn forseti finnska þingsins eftir sögulegar kosningar. Fager- holm liafði verið þingforseti síðan 'árið 1945. Við fyrstu atkvæða- greiðslu fékk Fagerholm 51 atkv. Sukselainen 83 og þingforsetaefni kommúnista 49 atkvæði. Með. því að enginn fékk nægilegan meiri- hluta, veittu kommúnistar Agrar- flokksmanninum Sukselainen at- kvæði sín, en fengu í staðinn vara- forsetann kjörinn úr sínum hópi. Keflvíkingar Skemmtiferð verður farin á vegum FUF í Keflavfk laugar- daginn 2. ágúst kl. 2 e.h. Farið verður vestur að Bjarkalundi í Barðastrandarsýslu. Allar nánari upplýsingar gefur Gunnar Árna- son, síini 502, Keflavík. FUF í Keflavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.