Tíminn - 04.10.1958, Side 2
TÍMINN, Iangarðaginn 41 október 1955*
Ekkert læknar magasár eins
og hákarl
Haft er eftir k'tnnum
lækni, Oddi Jónssyni frá Mið
húsuin, aS ekkert læknaði
magasár eins og hákarl.
Hvað sem því líður er það
staðreynd, að þeir Reykvík-
ingar verða stöðugt fleiri
með hverju ári sem líður,
sem neyta hákarls meira eða
minna. Má segja að bæjar-
búar hafi -svo að segja upp-
götvað þennan gamla þjóðar
rétt að nýju. Góð veitinga-
hús bera hákarl á borð til
hátíðabrigða og hans er
neytt á fjölmörgum heimil-
um svo að segja claglega.
S, í, B, S,
(Framhald af 1. síðu)
Tóníeikar í Eyrar-
bakkakirkju
A sunnudaginn kemur 5. okt.
halda þau Elsa Sigfúss og Páll ís'
ólfsson tónleika í Eyrarbakka-
kirkju.
Flytja þau verk eftir gamla,
klassiska höfunda, ásamt íslenzk
um. hað þarf ekki að kynna þessa
ágætu listamenn nánar hér, því svo
vel hafa þau bæði ávaxtað sitt
pund, er þau hlutu að vöggugjöf,
að þau eru þjóðkunn. Elsa Sigfús
mun vera einn sá íslendingur,
sem hefur mest og bezf allra
þeirra kynnt íslenzka tónlist á er
lendum vettvangi með söng sín
um. Hún hefur haldið hljómleika
í kirkjum, hljómleiksölum og þó
sérstaklega í útvarpi í hundraða
tali, í öllum Norðurlöndum, Þýzka
landi, Englandi og í Hollandi, og
hvarvetna vakið almenna athygli
fyrir sina sérkennilegu djúpu og
mjúku altrödd og hina fágætu
túlkun, sem aldrei verður lærð,
en aðeins meðfædd.
AIls staðar hefur Elsa hlotið
mjög góða dóma og með hinni lát
lausu og fáguðu framkomu sinni
hefur hún verið þjóð vorri til mik
ils sóma. Til merkis um vinsældir
hennar í Danmörku má geta þess,
að hún hlaut styrk úr sjóði Tage
Brandt árið 1956, sem er einn
mesti heiður, sem konu hlotnast
þar í landi. Styrkurinn er 10 þús.
kr. og er veittur listakonum á öll
um sviðum, sem taldar eru skara
fram úr.
Elsa cr eini útlendingurinn sem
hefur hlotnast þessi heiður. Svo
er hún vinsæl þar í landi að það
má segja að henni standi þar
opnar allar dyr jafnt í höll sem
koía. Nú er hún hér heima í til-
efni af því að í sumar átti hún
25 ára söngafmæli. Viss tímamót
í lífi voru vekja vissar kenndir
í meðvitund olckar. Verður þá
flestum sem haía skilað hamingju
sömu starfi .er spannar aldarfjórð
ungs skéið' hugsag til bernskuár
anna. Leítaði því liugur EIsu til ís
lands í þessu sambandi sérstak-
lega.
Svo við snúum okkur þá aftur
að hljómleikunum á Eyrarbakka, á
sunnudaginn kemur, verður ekki
hjá því koniist að minnast á dr. Pál
ísólfsson, okkar ágæta meistara,
sem aðstoðar Elsu á þessum hljóm
lcikuin.
Það er freistandi, fyrst maður er
með penna í hönd, þó ekki væri
nema ag stikla með fáum orðum
um þá djúpu þögn, sem umlukt
hefur þann mann, þrátt fyrir hið
geysimikla starf, sem hann hefur
innt af hendi í þágu íslenzkrar
tónmenningar á öllum sviðum,
þegar okkur bæri að þakka hon
um.
Það er ekki af neinni tilviljun
að þau frændsystkinin halda
fyrstu hljómleika Elsu Sigfúss á
þessum timamótum í Eyrarbakka
kirkju. T.l þess standa djúpar ræt
ur. Þau eru hreinir ávéxtir þeirr
ar menningar er feður þeirra gróð
ursetlu þjóð vorri til vaxandi
þroska og blessunar.
Sigrún Gísiadóttir.
Flestir bragða hákarl einhvern
tíma á ævinni. Sumum bregður
þannig við, að þeir mega ekki sjá
hann upp frá því, en öðrum, og
þeir eru fleiri, finnst þetta kosta-
réttur og ræða gjarnan um hann
af sömu ákefð og laxveiðimenn
um þá fiska, sem þeir misstu.
A og D
Margt í nútíma læknavísindum
rennir stoðum undir þá kenningu,
að hákarl sé hið bezta læknislyf.
Dýralæknar í Danmörku hafa kom
izt að þeirri niðurstöðu, að hægt
er að lækna magabólgur í alidýr-
um með því að gefa þeim stóra
skammta af A og D vítamínum.
Þessi vítamín eru aðalefnin í há-
karlinum. Þá hefir kunnum pró-
fessor í Hamborg tekizt að lækna
illkynjaðan húðsjúkdóm (Psorias-
is) með D-vítamíni, en sjúkdómur
þessi hefir verið talinn ólæknandi
til þessa. Það eru því óneitanlega
haldgóð efni í hákarlinum, sem
nú er orðið í svo mikilli tízku að
neyta hér í Reykjavík.
Veiddur í vörpu
Fjórir eða fimm menn hér í
Reykjavík munu einkum verka
þann hákarl, sem hér er á mark-
aði. Verkun hans er töluverð
íþrótt ef vel á að takast og hefir
sú íþrótt gengið svo að segja í
erfðir. Sést það á því, að þeir,
sem hér verka hákarlinn, eru ann-
að hvort Austfirðingar eða Vest-
firðingar, en í þessum landshlut-
um hefir íþróttin náð hæst. Fyrr-
um var hákarl veiddur vegna lifr
arinnah; en nú er þeim veiðum
lítið sinnt. Sá hákarl, sem verkað-
ur er hér í Reykjavík, fæst í vörp-
ur togara og er honúm hent, nema
samkomulag hafi tekizt með skip-
stjóra og þeim, sem verkar há-
karlinn, um að hirða hann til
verkunar.
Kæstur
Hákarlinn er verkaður þannig,
að hann er vai'inn innan í segl og
síðan grafinn í malarkamb eða
sand. Þar er hann látinn liggja í
18—25 daga undir hálfs metra
Jagi af möl eða sandj. Eftir þessa
kiesingu er hann tekinn upp og
þveginn og þurrkaður og látinn
hanga i eina sex mánuði. Það
þykkasta af hákarlinum er hvít-
leitt á lit og nefnist skyrhákarl,
en þvnnri beiturnar eru glærar og
bera nafn af því. Söluverö á há-
karli ’hér í Reykjavík mun vera
misjafnt, en lætur nærri að vera
um tuttugu og 'fimm krónur kíló-
ið.
Oft er gott . . .
Oft er gott sem gamlir kveða,
segir máltækið. Og margt i gömlu
mataræði hérlendis er vert eftir-
breytni. Hákarlsát er tvímælalaust
hollt og því allt annað og meira
en skemmlilegur og þjóðlegur sið
ur. Sagt er, að hákarl og brenni-
vín fari vel saman. Má vel vera, að
slíkur kyngikraftur fyígi ‘ hákarl-
inum, að hann styrki menn jafn-
vel gegn áhrifum áfengis og þarf
þá varla frekari sannana við um
ágæti hans.
vinnuheimilið að Reykjalundi.
Á s. 1. 'sumri veitti sambands-
þing heimild til þess að taka að
Reykjalundi almenna öryrkja til
allt að 4 mán. dvalar en þetta hef
ur ekki komið til framkvæmda
enn. Ennfremur samþykkti sam-
bandsþyngið í sumar að veita heim
ild til þess ag koma upp vinnu- i
heimili fyrir öryrkja í Reykjavik
og sambandsstjórnin hefur nú sam .
þykki að nota þessa heimild. Verð
ur háfist handa um að reisa tvö
vinnuheimili hér, sem hvort um '
sig rúmi 20—30 manns. Ennfrem
ur hafa verið gerðar tilraunir til
þess að koma berklaöryrkjum úr
heilsuspillandi húsnæði og má
segja að það hafi tekist að mestu
leyt'i. Á Reykjalundi eru nú milli
70 og 80 vistmenn en fullskipað
rúmar heimilig 91 vistmenn og er
gert ráð fyrir að svo verði í vetur.
Á sunnudaginn kemur er hinn
árlegi merkjasöludagur SÍBS, og
verða þá merki þess seld á götum
bæjarins. Líkt og áður eru merkin
jafnframt happdrættismiðar og
eru 300 vinningsmerki falin í
merkjunum. Aðal vinningurinn er
20,000 króna útvarpsgrammófónn
auk fjölda annarra vinninga. Tíma
rit SÍBS verður og selt á sunnu-
daginn og er þess vænzt að bæjar
búar bregðist vel við og styðji mál
stað sambandsins með því að
kaupa merki og tímarit SÍBS á
sunnudaginn kemur.
eyna í auðn. Nú væri firslitahríð
framundan og um að gera að láta
hvergi bugast og sanna mátt sam
takanna í trausti þess, að vig mun
um endanlega vinuna sigur á vald
beitingunni og harðstjórninni. 111
virki héldu í dag áfram á eyj
unni. og var m. a. brezk kona
skotin í bakið til bana. Makarios
ræddi í dag við Karamanlis og
Averoff, forsætisráðherra og utan
ríkisráðherra Grikkja, um Kýpur
málið.
OrBsendingar
Makarios
(Framhald af 1. síðu)
réttlætisreglum. Ennfremur kall
ar Makarios áætlunina ólöglegt
samsæri Breta og Tyrkja gegn
grísku ibúunum og myndi leggja
(Framhald af 1. síðu)
nærri brezkum togurum, að hætta
gæti oröið á ásiglingu.
Þá hefir utanríkisráðhérra
einnig borið fram við sendi-
herra Breta mótmæli gegn
þeim fregnum, sem birzt
hafa í brezkum blöðum og
virðast greinilega runnar
undan rifjum flotamálaráðu-
neytisins brezka, að engin
aðstoð hafi verið veitt og að
verulegar tafir („eonsider-
able delay“) hafi orðið í sam
bandi við það, að brezkur
sjúklingur fengi læknishjálp
á Patreksfirði.
Taldi ráðherrann, að furðu
gegndi, að ábyrg yfirvöld birtu
slíkar fregnir, er bæði væru ósann
ar og að því er virðist ætlaðar til
þess að hafa áhrif á skoðanir al-
mennings í Bretlandi og öðrum
löndum, þegar haft væri í huga
að íslendingar hefðu í þessu til-
viki veitt veigamikla aðstoð til
þess að bjarga lífi sjúklingsins,
enda þótt ihann væri skipverji af
erlendu skipi, er væri að brjóta
íslenzk lög og reglugerðir."
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Dmunintiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiniiiiiiiiiiuimiuiiiiitntuiuimni
KAFFIBÆTIR
Merkileg sýning
I gær var opnuð í Listamanna
skálanum sýning á vegum Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur. Er sýningin
nefnd „Meg eigin höndum“ og er
margt mjög merkilegt þar að sjá.
Áreiöanlegt. er að margir munu
koma til að sk.oða sýninguna og
þeir sem gera það fara margs
í'róðari og mun sýningin vekja á-
huga margra á tómstúndaiðju.
Áður en sýningin var opnuð
flutti Sveinn Kjarval húsgagna
arkítekt ávarp, en síðan opnaði
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
sýninguna með ræðu. Var þarna
margt manna og gerður góður róm
ur að allri tilhögun sýningarinnar.
Mun sýningin standa til 14. októ
ber og samhliða henni verður ým-
isskonar kynningarstarfsemi svo
sem tízkusýning, listkynningar,
laflkynning og tónlistakynning
auk margs fléira.
Sýning þessi á erindi til bæði
ungra og gamalla.
i- og mynd-
listaskóiinn I
Kennsludeild hagnýtrar myndlistar, Myndlista- |
deild, Teiknikennaradeild, Listiðnaðardeild s
kvenna, Dagdeildir, síðdegis- og kvöldnámskeið. =
Kennslugreinar: Teiknun, listmálun, listasaga, 1
steinprent, tré- og dúkrista, tréstunga, letrun, sáld |
þrykk, batik, tauþrykk, mynzturgerð, mosaik, 1
fresco, vefnaður, listprjón, bókband, húsgagna- i
teiknun o. fl.
Umsóknir sendist skrifstofu skólans nú þegar. =
Opin daglega kl. 5—7 síðd. =
Skólastjórinn. ||
Hæui(Biainuiimiiiiimiuiiiiiiiiiiuiuiiiiiiiiiiuuiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiK»
ðiiiiiiimmiiimniimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimnininanB)^
HafnaríjörtSur HafnarfjörÖur |
íaðburöur |
Börn eða unglinga vantar til blaðburðar í s
HAFNARFIRÐI strax.
Upplýsingar á Tjarnarbraut 5, sími 50356. j§
ffiaaaEaimmnDiBanBBBaBBiiiaaiEimmiminaniiiiinnaBBHgBmniMr
..............................................................
Það er erfitt að laga verulega
gott kaffi, án þess að nota liæfi-
legan skammt af úrvals kafi'ibæti
í könnuna. —
Gömlu dansarnlr
hefjast aftur í G.T.-húsinu í kvöld kl. 9.
| CARL BILLICH
færasti danshljómsveitarstjóri landsins stjórnar
nú aftur hljómsveitinni og
Dansstjóri
| verður hinn mjög svo vinsæli
HELGI EYSTEINSSON
Dansgólfið er eins og allir vita hið bezta
á iandinu.
— Án áfengis — bezta skemmtunin —
Aðgöngumiðar frá kl. 8 —- sími 1-33-55.
HiiiiiiittimnmiiiitiniinniiimiminiiiimiiiiiiiiiiiiRiHinuHmitimniiHmiiniHmimiaiummiimmiMi
$
z
■*
Kaffibætisverksmiðja
0. Johnson &
Kaaber h.f.