Tíminn - 05.12.1958, Blaðsíða 3
T í M I N N , ffoítudaginn 5. desember 1958.
rr auBve" »a “,li\j
__Ps^utaf
, ferðaiJ
“ gaeð
|hvar
irra L
í‘l“ ^ bSS a"'at 8I
**«*'"<:*
“^^siand bein^yj
„Hinn
fullkomni
glæpur“
Sfúlka, sem
stundaði síma-
vændi, álifin
hafa verið myrt
með dáleiðslu
gepum síma
★
Aðalumræðuefnið
í Þýzkalandi
þessa dagana.
mm
Fyrir rúmu ári síðan var
Rosemarie nokkur Nitribitt,
sem mun hafa verið í flokki
þeirra gleðikvenna, sem ná
í sambönd sín símleiðis,
myrt í Frankfurt í Þýzka-
landi. Morðið vakti mikla at-
hygli, þar sem fljótlega
breiddist út sá orðrómur, að
margir þekktustu manna í
vestur-þýzkum iðnaði og
stjórnmálum hefðu verið í
kunningsskap við hina
myrtu.
Sérlega varð málið mikið um-
rætt, þegar kvikmynd var gerð
um málið, en hún nefndist „Stúlk-
í.n Rosemarie“ og er ádeila á hina
nýju, þýzku stétt iðnaðarmanna
og iðjuhölda. Kvikmyndin var
fiumsýnd á kvikmyndahátíð, eftir
að vestur-þýzka utanríkisráðuneyt-
ið hafði gert ítrekaðar tilraunir
til að gera hana upptæka eða
brnna á annan hátt. Hún fer nú
sigurför um allt Þýzkaland.
Aldrei upplýst
En morðið, sem er.aðalefni kvik
myndarinnar, var aldrei upplýst.
Allt frá því í febrúar þessa árs
! hefir maður að nafni Heinz Pohl-
i nvann setið í fangelsi grunaður
. um að hafa framið morðið, en
| hrnn hefir fram á þennan dag
neitað harðlega að hafa nokkuð
' komið þar nálægt. Nú hefir ný
j kenning varðandi morðið skotið
upp kollinum og gert Nitribitt-
morðið aftur að einu helzta sam-
ræðuefni manna þarna.
JF
„Stúlkan ROSEMARIE" var vel efnuð, átti m. a. fallegan sportbíl — enda
voru kunningjar hennar ekki af lakari endanum, að því er sagt var
„Hiö fullkomna morð*7
í demantabænvim Idar-Ober-
stein hefir athyglin beinzt að al-
þjóða-gimsteinasala, sem mun hafa
verið í Frankfurt um nóttina, sem
rnorðið var framið, og sem oft hef-
ir látið prð falla um „hið full-
komna morð“ við vini sína og
kunningja í Þýzkalandi. í þessum
srmræðum hefir hann líka þrá-
sinnis bent á þá aðferð, að dáleiða
fórnarlambið gegn um síma. Nú
er það staðreynd, að oft bar svo
við áður en Rosemarie lézt, að
hún fékk hótanir gegn um síma,
og lét hún líka nokkrum sinnum í
ljósi ótta um að verða myrt. Lög-
reglan hefir af þessum ástæðum
rannsakað möguleikana á að hinn
nýtilkomni orðrómur hafi við rök
! að styðjast, en lögreglumenn álita
þessa hugmvnd þó of furðulega
! til þess' að hún geti verið rétt.
Helzt eru þeir því á þeirri skoðun,
að hér sé aðeins um að ræða enn
I eina hinna 378 kenninga, sem upp
hafa komið um málið en ekki
sannazt. Þeir álíta möguleikana á
dáleiðslu gegn um síma ekki
mikla — en þrátt fyrir það er
þetta eitt aðalumræðuefnið í
Þýzkalandi þessa dagana.
obert Donat hefði dáið örsnauður
Eiginkonan 14 ára vakti
hneykslun í Bretlandi
pt|g|||
Þegar erfðaskrá leikaransi
fræga, Roberfo Donat, sem
lézt í júní síðastliðnum, varj
opnuð fyrir fáeinum dögum,
kom í Ijós, að ef hann hefði
ekki leikið í síðustu mynd
sinni: „The Inn of the Sixth'
Happiness'*, hefði hann ekki
sM
Ameríski sjóliðinn og eiginkonan
14 ára
Það vakti athygli í Eng-
landi um daginn, þegar am-
erísk stúlka kom yfir hafið
til að heimsækia eigihmann
sinn, sem þar er í ameríska
hernum — ekki vegna þess
að slíkar heimsóknir séu
ekki daglegur viðburður þar
um slóðir, heldur af hinu,
að stúlkan sem hér um
ræðir er ekki nema 14 ára
gömul.
Bretar hafa brugðizt við i-eiðir
og hneykslaðir þegar öll brezku
blöðin birtu fréttir af hinni ungu
brúði og vilja ekki liafa slíkt
háttalag í sínu landi. Þeir hafa
heldur ekki látið sitja við orðin
tóm, heldur er málið komið fyrir
innanríkisráðherrann, og þegar
síðast fréttist voru allar líkur til
að hin unga brúðtir yrði að hverfa
úr landi eftir 48 stunda viðdvöl
þar, og halda heim til Banda-
ríkjanna aftur.
Vegna þessa hefir málið verið
rannsakað með tilliti til þess,
hvort þau Barbara Scruggs, 14
ára, og maður hennar, sem er
amerískur sjóliði, hafa verið lög-
lega saman gefin. Komið hefir í
j ljós, að brúðurin sagði rangt til
um aldur sinn við prestinn sem
gaf þau saman, sagðist vera 18
ára, og presturinn tók það gilt
, vegna þess að hún leit út fyrir
að vera 18 ára“. Þrátt fyrir þetta
segir talsmaður ameríska sjóhers-
ins í Bretlandi, að herinn muni
I standa með þeim ungu lijónunum,
! ef í Ijós komi að giftingin sé
lögleg.
En brezkur þingmaður einn,
sem hefir talsvert blandað sér í
| málið, mun ekki láta þetta við-
j gangast, eftir því sem hann segir,
; því að „almenningsálitið í Bret-
i landi lætur sér ekki lynda að
I stúlkur undir 16 ára aldri giftist
! cg eignist börn. Það er andstætt
j lögum og siðferðislegum sjónar-
miðum okkar“. Það eru því allar
likur til þess að stúlkutetrið verði
1 að hverfa frá Bretlandi að sinni.
ROBERT DONAT
í síðasta hlutverkinu
— ef hann hefcíli ekki leikicS í sí'ðustu kvik-
mynd sinni, sem hann ofreyndi sig á.
látið eftir sig einn einasta stóð ,við sjúkdóminn, sem var að
eyri, enda þótt hann hafi le8§ja hann að velli- ÞeSar að-
sem einn bekktari kvik- eins vlka var eftir af kvikmynda’
sem einn pekktan kvilc- tökunni hafði hann unnið
myndaleikara, areiðanlega fieytt heilan dag í steikjandi hita
unnið sér inn miklar f jár>- Framhald á li. síðu.
hæðir um ævina.
í erfðaskránni ánafnar hann
börnum sínum þrem því sem hann
lætur eftir sig, sem reyndist vera
24.752 sterlingspund, og skal það
Skiptast jafnt á milli þeirra, en
fyrir síðustu kvikmyndina fékk
hann greidd 25.000 pund, eða 248
pundum meira hann lætur eftir
sig.
Langt leiddur
Hann mun hafa tekið síðasta
hlutverkið til að komast hjá því
að deyja snauður maður, enda var
hann svo langt leiddur í blutverk
inu, að öllum sem fylgdust með
honum er hann lék það, var ljóst,
að það yrði hið síðasta .En hann
sagði engum manni frá ástæðunni
fyrir þvi að hann neytti síðustu
kraftanna til að leika þetta hlut-
verk, heldur barðist hann í sex
vikur, meðan á kvikmyndatökunni
DÓTTIR DONATS
—fær arf eftir all't
Úrsíit í skoðanakönnun Tímans um 10 beztu lögin
Þá eru komin úrslit í skoðanakönn-
un þeirri sem Tíminn efndi til um
10 vinsælustu dægurlögin. Geysi-
mikil þátttaka var i skoðanakönn-
un þessari og hefir það því tekið
nokkurn tíma að vinna úr lausn-
unum, sem borist hafa og hefir
það því dregist nokkurn tíma að
hægt yrði að birta úrslitin.
í fyrsta sæti varð lagið Mama, sungið
af Marie Adams, en Marie þessi
hefir lengi sungið með Johnny
Otis, og verið mjög vinsæl vestan
hafs. Svo virðist sem hún muni
einnig „slá í gegn“ hér heima. f
öðru sæti er Manstu ekki vinur,
sungið af Helenu Eyjólfsdóttur,
en hún er ugglaust vinsælasta
söngkonan okkar um þessar mund
ir. What Am I Living For, með
Chuck Williams, varð í þriðja
sæti og það fjórða er skipað Ingi
björgu Smitli og Nú liggur vel á
mér.
Mango Vendor, sungið af þeim Nínu
og Friðrik er í fimmta sæti, og er
það að vonum að þau skuli vera
á þessum lista, jafn mikla „l'ukku“
og þau gerðu hér í Reykjavik á
dögunum. Geimferðin, sungin af
Skafta Ólafssyni er í 6. sæti og
Buena Sera, sungið af Louis
Prima í þvi 7.
HELENA EYJÓLFSDÓTTIR
—í öðru sæti
Ekki fór það svo pessu sinni að Elvis
Prestley væri hér ekki einhvers
staðar á blaði, en hann er í 8.
sæti með lagið King Creole, úr
samnefndri kvikmynd, en mynd
þessi hefir vakið mikla afhygli
erlendis og þykir sýna það, sem
flestir héldu ómögulegt, sem
sagt aö Prestley geti leikið í
kvikmynd. í 9. sæti eru Óðinn
Valdimarsson ásamt Atlantic
■kvartettinum með lagið ó, Nei,
en það mun vera sama lagið og
Fats Domino söng á sinum tima
undir nafninu Oh, Boy. Lestina
rekur síðan Volare, eða Nel Blu
Dipinto di Blu, sungið af höfund-
inum, Domínico Modugno, og er
nú ljóst orðið að ekki verður þess
, langt að bíða að enginn muni
eftir þessu l'agi sem svo vinsælt
var hér að þess eru fá eða engin
dæmi.