Tíminn - 05.12.1958, Page 6

Tíminn - 05.12.1958, Page 6
T I M I N N , föstudaginn 5. descmber 1958. Útgefandi : FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. ■ Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Ríkisstjórnin biðst lausnar RÍKISSTJÓRN Hermanns Jónassonar bað'st lausnar i gær, eftir að ljóst var orðið, að ekkert samkomulag gæti náðst milli stuðningsflokka Jiennar um ráðstafanir til að stoðva hina geigvænlegu aukningu verðbólgunnar, sem hljótast mun af hækk- un kaupgjaldsvísitölunnar nú um mánaðamótin, ef ekk- ert raunhæft verður að gert til að afstýra henni. Vissulega er það rauna- legt að þannig skyldi tiltak- ast, þar sem tiltölulega er auðvelt að afstýra þessari hækkun og tryggja til fram- búðar stöðvun á þeim grund- velli, að kaupmáttur launa verði sami og í febrúar í vet- ur eða í okt. síðastl. Þetta er þó ógerlegt, nema launafólk og bændur gefi eftir veruleg an hluta af vísitöluhækkun- inni nú um mánaðamótin, en við nánari athugun er þar þó ekki um neina eftirgjöf ’að ræða, því að vöxtur verð- bólgunnar, sem af þessari hækkun hlýzt, mun reynast þessum aðilum verstur þegar stundir líða fram. Framsóknarfl. beitti sér eindregið fyrir þessari lausn. Þing Alþýðuflokksins féllst líka á hana í meginatriðum. Kommúnistar, sem nú ráða bersýnilega orðið lögum og lofum í Alþýðubandalaginu svonefnda, höfnuðu hins veg ar slíkri lausn eindregið og buðu ekki upp á annað en einskis verðar sýndartillög- ur. Á nýloknu þingi Alþýðu- sambandsins tókst þeim að koma ár sinni þannig fyrir borð, að það lýsti fylgi við þessar óraunhæfu skrum tillögur þeirra. Með þessu framferði sínu, hafa kommúnistar orðið vald ir að lausnarbeiðni rikis- stjórnarinnar, því að það hefði verið algert óráð og ábyrgðarleysi, að hún héldi áfram störfum eftir að sýnt var, að henni var um megn að afstýra þeirri gífurlegu aukningu dýrtíðarinnar, sem felst í vísitöluhækkuninni áðurnefndu. í RAUN réttri þarf fall ríkisstjórnarinnar ekki að koma neinum á óvart, sem hefur fylgzt með málum sein ustu misserin. Ríkisstjórnin komst á laggirnar á sinum tíma, vegna þess, að eftir kosningarnar 1956 máttu kommúnistar sín minna í A1 þýðubandalaginu en hin frjálslyndari öfl, sem stóðu aö því. Þá strax höfðu Moskvumenn Sósíal.flokks- ins mjög horn í síðu hennar, enda hneigðist hugur þeirra mest að því að endurnýja samstarfið við Sjálfstæðis- flokkinn frá „nýsköpunar"- árunum. Óvild þeirra gegn stjórninni hélt svo áfram að magnast, m.a. vegna þess, að þeir hafa engu fengið ráðið um utanríkisstefnu hennar. Berlegast kom þessi and- staða þeirra í ljós þegar efna hagslögin voru sett á síðastl. vori. Einar Olgeirsson beitti sér eindregið gegn lögunum og fylgdi nær hálf miðstjórn Sósíalistaflokksins honum að málum. Síðan hefur Einar notað yfirráð sín yfir Þjóð- viljanum til að ófrægja eftir megni þessa lagasetningu, er sjö af átta þingmönnum Al- þýðubandalagsins stóðu að, og Þjóðviljinn að flestu öðru leyti verið skrifaður eins og stjórnarandstöðublað. Einar og menn hans hafa jafnhliða unnið markvíst að því að treysta vald sitt í Sósíalista- flokknum og gera Alþýðu- bandalagið áhrifalaust. — Stjórnarkosningin í Sósíal- istafélagi Reykjavíkur er lít- ið dæmi um þetta, en þar var Brynjólfur Bjarnason kosinn formaður, en fráfar- andi form. rægður og felld- ur. Málum er nú þannig j komið, að Alþýðubandalagið j má heita úr sögunni, en völd j in í Sósíalistaflokknum í : höndum Einars og fylgiliðs hans. Þannig hefur Lúðvík ! Jósefsson ekki farið dult með það að undanförnu, að hann myndi ekki leggja í annað sinn til átaka við Einar og félaga hans eins og á siðast- liðnu vori. Með þessum sigri hægri kommúnista i Sósíal- istafl. og endalokum Al- þýðubandalagsins, voru ör- lög ríkisstjórnarinnar raun- verulega ráðin, eins og komið er á daginn. ÞEGAR rikisstjórn Her- manns Jónassonar var mynd uð, var m.a. komizt svo að orði hér í blaðinu, að hún væri tilraun til að tryggja jákvætt samstarf vinstri afl- anna í landinu. Fyrirfram væri engu hægt að spá um það, hvernig þessari tiiraun myndi reiða af, því að þar ylti mjög á því, að hin frjáls lyndari öfl í Alþýðubanda- laginu ykju áhrif sín, og kommúnistar misstu svo ítök að þeir hættu að geta staðið í vegi vinstra samstarfs, eins og þeir hefðu gert á undan- förnum árum. Vissulega hefur þeirri ríkis stjórn vinstri aflanna, sem var mynduð sumarið 1956, heppnast vel á margan hátr.. Þrátt fyrir slæma aðkomu, hefur verið tryggð næg at- vinna og miklar framfarir. Hlutur landsbyggðarinnar hefur verið verulega réttur. Vissulega bendir þessi reynsla til þess, að samstarf vinstri manna, stutt af al- þýðustéttum landsins, sé þjóðinni góð trygging fyrir framtakssömu og réttsýnu stjórnarfari. Frjálslyndir rnenn og vinstri sinnaðir mega því ekki missa móðinn, þótt núv. stjórn falli. Það hefur hins vegar sannast áþreilaniega, að traust samstarf vinstri aflanna kemst ekki á lagg- irnar, nema þaö geti verið með öllu óháð hiutdeild kommúnista. MARG-IR munu nú varpa fram spurningunni: Hvað tek Spiliir engu þótt menn kunni skil á lífsháttum og atvikum á fyrri tið Rætt við Jón Helgason, ritstjóra nm íslenzkt mannííf á nítjándu ö!d Þegar undirritaður heyrði, að bók væri að koma út eftir Jón Helgason, ritstjóra, varð það að ákveðinni sannfær- ingu, að nú þyrfti að spjalla við manninn; hafa við hann eins konar blaðaviðtal um þetta bríarí, sem sumt hefir komið fyrir augu manna áð- ur og þótt mikilsvert, langt út fyrir raðir þeirrar skyldu- viðurkenningar, sem fylgir því, að skrifað er í pólitísk blöð. Ekki þarf að geta þess, að Jón Helgason er ritstjóri Frjálsrar þjóðar, og þar hafa frásagnir af ýmis konar Sigríðum og Fríðum, sauða- þjófum og snillingum verið að birtast eftir hann undan- farið. Og þótt ritstjórinn hafi kannske ekki verið sem allra mildilegastur 1 pólitík- inni, þá hefir hann verið góður við þetta fólk sitt bæði heimildarlega og mann fræðilega séð, og frásagnir hans hafa þar að auki skemmt mönnum prýðilega. í fyrstu var talið að Jíessar frá- sagnir væru ef-tir einhvern uppá- skrifaðan sagnfræðing. En svo kom upp úr dúrnum og kannske helzt á óvart fyrrverandi sam- starfsmönnum Jóns, að hann var liöfundurinn. Ekki ber þó að skilja þetta svo, að þeim, sem þekktu Jón, þætti ótrúlegt að hann hefði skrifað þeUa jafn vel og það var samið, en menn spurðu 'bara, hvaðan úr fjandanum hon- um kæmi nátlúra til að skipta sér af svona nokkru. Þá rám.aði minnsta kosti undir- ritaðan í það, að eitt sinn, er Jón átti þriggja mánaða frí hér á ár- um áður frá fréttaritstjórastörf- um við Tímann, fór hann beint heim i garðinn sinn í Miðtúni 60 og umturnaði honum í þrjá mán- uði, unz allt var þakið blómum og. trjáplöntum. Undirritaður þótt ist sjá i hendi sér, að Jón væri að koma sér upp nýjum garði með þessum frásögnum í blaðinu; og ekki vantaði nalni ræktunarmanns ins. Hver fyrntur og fúinn moldar köggull sagnfræðilegra heimilda var mulinn milli fingranna. svo að hægt væri að láta kjarngrösin spretta á jörð, sem hefir alltaf verið iðin við að sjúga í sig minj- ar þesáarar þjóðar. Hvað sem þessu líður, þá fór hvorki betur né verr en svo, að undirritaður náði tali af Jóni fyr- ir nokkru. — Jæja, Jón. Ég vil fá viðtal. — Við mig? — Það var lóðið. — Út af hverju? — Bókinni_ — Æi. — Heyrðu, vertu nú ekki að þessu. — Hún er ekki komin út. — Það varðar mig ekkert um, ur við? Hér verður ekki reynt að svara peirri spurn- ingu, en vandaríust er hins vegar að svara því hvað æskilegast er. Jafnt vegna efnahagsmálanna inn á við og landhelgismálsins út á við skiptir nú sérstaklega miklu, að stjórnmálaflokkarnir láti ábyrgðartilfinningu og þjóð- hollustu móta gerðir sínar, en leggi yfirboð og blekking- ar til hliðar. Nú sem hingað til, mun þetta sjónarmiö marka afstöðu Framsóknar- flokksins. > JÓN HELGASON — fólk af holdi og blóði ég birti það bara, þegar hún kem- ur. — Það er ekkert um hana að segja. — Láttu m.ig um það. — Svo má ég ekki vera að þessu núna, ég er að fara vestur. — Hvert vestur? — Til Bandaríkjanna. Þá varð ekki frekar við þetla ráðið að sinni og liðu tíu dagar. Jóni snjóaði heim með öðrum biaðamönnum úr Loftieiðaboíis'- ferð og nú slapp hann ekki leng- ur. — Þetta er nú heldur mislit hjörð, sagði Jón og átti við fólkið í bókinni íslenzkt mannlíf, sem hafði komið út meðan hann var vestra. Hvað er ekki mislitt hér á íslandi? lá mér við að segja, en þagði, af því Jón hafði orðið, eins og í öllum venjulegum við- tölum,. — Þarna er fjallað um fólk, allt frá Málfríði Þórhalla- cióttur, sem komst í tæri við úti- legumanninn úr Esjunni og Elená Jónsdóttur, sem átti barnið á hlaðinu á Hnjúki í Skíðadal í hörku norðanbyl, upp í biskupa og amtmenn og þeirra fólk, sem aldrei komst í þess háttar krögg- ur. — Þannig fólk er alltaf heldur ævisögulaust, skaut ég inn í. — Það gat líka komið fyrir það eitt og annað sögulegt, sagði Jón. — Þarna segir til dæmis nokkuð frá þeim Magnúsi Eiríkssyni, guð fræðingi og Jónasi Hallgrímssyni og stúlkunum, sem þeir umgeng- ust hér í Reykjavík. Þá var Landa- kot fyrir utan bæ, og þar áltu heima ungar og kátar systur, Landakotsrósirnar, og Jónas Hall- grímsson og fleiri voru þar tíðir gestir. — Og hvernig gekk svo Jónasi okkar kvennafarið? — Hann hefir líklega ekki haft gott lag á kvenfólki, því að ein þeirra, sem hét Kristjana Knud- sen, fór í kringum hann og var eftirlátari við verzlunarmennina — þeir voru líka hálf danskir og aldanskir, og það var þyngra á metunum heldur en vera skáld r.orðan úr Öxnadal. En líldega hefði hið öxndælska skáld aldrei barið hana né dregið hana á hár- inu, eins og sá verzlunarmaður gerði, sem hreppti hana að lokum. — Það hafa náttúrlega verið til fleiri konur handa skáldum, þótt Knudsen dytti með hárið í þessar dönsku greipar? — Já, það voru fleiri stúlkur í Reykjavík en Landakotsrósirnar' og fleiri piltar en Jónas Hallgríms son og dönsku verzlunarmennirn- i:. Ein var kölluð „jómfrú Sel- hund“ af því að hún var af Eski- móakyni að nokkru leyti. Jón Sig- urðsson og Ingibjörg voru í Iteykjavík á þessum, árum, og Fríða í klúbbnum. scm ætlaði sér að kljúfa báruna helzt til léttilega — þeir þekktu hana Frakkarnir, sem komu hingað með Paul Gaimard. — Og hafa síðan teiknað hana? — Já, myndin er á kápu bókar- innar. — En Reykjavík hefir ekki ver- ið allt? — Nei, það gerðust ekki allir atburðir í Revkjavík. Inni í Laug- arnesi var biskup, og hann átti stjúpdóttur, sem var ofurlítið far- in að pipra. En sú var bót í máli, að það var búið að sjá vei fyrir ráði hennar, og svo kom unr.ust- ir.n heim og drekkti sér i Reykja- dalsá. Það var Þorsteinn Helga- son, sem Jónas Hallgrímsson kvað um. Með heimkom.u hans hefðu átt að renna upp sælutímar í Laug arnesi, en svo fór, að þá syrti fyrst í álinn. „Hann hafði bara Sigríðaskipti, pilturinn“, sögðu kerlingarnar — sveik biskupsdótt urina og tók vinnustelpuna,. sem rcyndar var sýslumannsdóttir. — Nokkur draugagangur? — Ja, hvað segðir þú um það, ef þú fvndir mann skorinn á háls, bærir hann heim i skemmu og legðir hann til, og svo væri hann risinn upp og styddi hönd undir kinn, þegar þú kæmir í skcmmuna næsta morgun? — Ég mundi sækja Þórberg. Kann skrifar stundum um svona. — Þetta gerðisí hjá þeim Svefn eyjafeðgum, Évjóifi eyjajarli og Hafliða, og átti sér bæði forsögu og eftirmál. — Studdi hann hönd undir kinn? — Það bera líéimildirnar. — Svo hefir hann verið jarðað- ur? -— Jarðaður? Já, meðal annarra orða. Vestur á Öndverðarnesi var umsvifamikill útvegsbóndi, sem hét Gísli og hafði i æsku verið í líí'verði Jörundar hundadagakon- ungs. Frakkar komu með dauðan mann í land og létu fvlgja líkinu nokkuð af salti og veiðarfæri. En Gísli bóndi gerði sér lítið fyrir og jarðsöng Frakkann sjálfur á bökkunum hjá sér — var búinn að vera við svo margar jarðarfar- ir, að hann kunni öll prestsverkin upp á sínar tíu fingur og fannst ckki saka þótt hann læsi eitthvað gott yfir manninum, þó aldrei nem,a hann hefði verið kaþólskur í liíanda lífi — Margur er svartur sauður í Drottins hjörð. — Fólkið er af ýmsu tæi. Ég hef reynt að segja hverja sögu sem réttasta og hef hvergi hirt um að draga fjöður yfir löst né kost. Þarna finnur því enginn h.iörð hvítra engla. eins og ég hef rekizt á í sumum bókum. — Engar huggulegar dánar- n.inningar? — Nei, og siálfur sakna ég þess ekkert, þótt þessar jarðnesku englasveitir hafi ekki orðið á vegi mínum, þegar ég hef verið að gtúska i gömlum skjölum eða bréfum, því að mér þvkir fólk af holdi og blóði mikið skemmtilegra. — Heyrðu, hvenær fékkstu þessa þakteríu? — Ha? — Ég á við, hvenær byrjaðir þú á þessu? — Það eru tíu ár síðan ég byrj- aði að kanna heimildir. Ég hef líka lítilsháttar talað við gamla og fróða og hripað hjá mér. Lang- mest af því, sem ég hef viðað að mér, er þó enn í brotum, á laus- um sneplum og blöðum, enda geta stundum liðið heil ár, unz maður rekst loks' af tilviljun á það, sem maður hefir áður leitað að líklega sem, óliklega. En þótt þetta gamla fólk sé seintekið —- það er að segia seinlegt að grafa upp um það vitneskju úr gömliun embættisbókum og bréfum og skjölum, þá hef ég kunnað ágæt- lega við mig í félagsskap við það. Ég hef haft nlikla skemmtun af kunningsskapnum við Þorgrím Hermannsson til dæmis — ég (Framh. á 8. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.