Tíminn - 03.01.1959, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.01.1959, Blaðsíða 3
rÍMHN N, laugardaginn 3. janúar 1359. AÐURINN 1958 Grein þessi er orörétt útvarps- erindi, er Gisli Kristjánsson, ritstjóri flutti þ. 29. des. s.l. Tímans mikla móða fellur í far- veg sinn. Við getum stemmt á að ósi, eða hvar annars staðar er vera skal, frá upptökum itil ósa, og með hjálp tækninnar gerum við það stundum. Við neizlum bæjarlæk- inn, bununa og fossinn, en móða tímans er okkur ofurefli — hún er óstöðvandi. Og það sem meu’a er. Á straumi hennar eru við, hver og einn ein- staklingur, aðeins smásprek, rek- ald, sem berumst með straumn- um, áleiðis að óst og út á tímans víða haf------núsört að vísu, en haf eilífðarinnar er þó öllum opið að koma og 'hjá öllum er það langt eða skammt undan. Og blessað árið 1958 hefur bor- ið okkur áleiðis öll saman. Það er nú á enda, en á áramótum, þessum vegámerkjum tímans. skulum við staldra við stundarkorn og líta yfir farna slóð. Lítum því yfir ögn af því, er gerzt hefur árið 1958, 'Sjáum hvað það he-i'ur fært okkur, hvers er vant og hvað við horfir. Höfum við nú verið smátæk í at- höfnum, eða v'orum við stórvirk, eða voru afköst oikkar ámóta og vant er á einu ári? Fólki í landinu fjölgar, það tek- ur tækni og náttúruöfl í þjónustu sína í vaxandi mæ'li til alls konar starfa og eiginlega ættu öll verks- ummerki að ver.a að sama skapi auðsœrri, umfangsm-eiri og eftir- tektárverðari en fyrr, þess vegna. í búnaðarþætti Kíkisútvarpsins ber manni áð feta þá slóð, er varð- ar búskap og sveitir sérstakeiga, en þar er ekki um aukna fólks- fjölgun að ræða þo að þjóðinni í heild fjölgi árlega hátt á fjórða þúsund manns. lí sveitinni má 'því ékki búast við"eftirtektarverð- ari athöfnum en aniiars staðar. ÁrtarSi og ræktunarstörf Ná'kvæmar tölur um fólksfjölda ■sveitanna, eða fjölgún og fækkun í ýmsum sveitum á árinu 1958, eru ekki til, en æfcla tná að á öllu landinu hafi Htli hreyting orðið frá fyrra ári. Fólki get'ur tæpast fækkað á svei'taheúnilunum, frá því er verið hefur, nema lieimilin falli í auðn, e,n fá tnunu hafa far- ið í eyði þefcta ár. Árið var í heild ekki í harðæra tölu,en- víða um'land var veðrátta andstæð og daglegar athafnir því torveldar stundum og afköst í minna lagi þess vegna. Með nú- tíma bjargráðum og með hjálp ýmiss konar tækni, tókst þó að haga athöfnum svo, að afkoman varð önnur og miklu betri en í álíka árum fyrr á tímum. Veturinn var ekkert óvenjuleg- ur, þó að snjóasamt væri í sumum sveitum, og hafís sást aðeins langt á hafi úti og gerði engum íslend- ingi mein eða miska. En vorið var kalt, mjög kalt og þurrt, svo að gróður kom óvenju seint og var víða talið, að í fardögum væri enginn gróður utan túna og sauð- gróður ekki fyrr en á tímabilinu frá .miðjum júní að sólstöðum.' Þess vegna voru ifcúnin beitt. Sauð-; fé var látið ganga á þeim, e.n kýr ! höfðu þar ekki haga fyrr en síðari hluta júní. Vegna vorkuldanna var vorið mjög gjæfáfrekt og það því fremur sem að þessu sinni munu fleiri ær hafa verið tví- lembdar cn vant er. Viðleitni | bænda til þess að fá sem flestar | ær með tveim lömbum, gefur all-( góðan árangur, enda vinna þar, margir markvisst. Og vorverkin töfðust eins og gróðurinn, vegna vorkuldanna, en lambáhöld urðu yfirleitt með á- gætum, og hafa eflaust aldrei fyrr nm iandsins sem sumarið 1958., Öll hey eyddust, eða því sem næst, en þrátt fyrir að mikið var gefið mun' nyt ánna alivíða hafa tak- markazt svo, að lömbin haíi beðið nokkurn hnekki af svo að þau þess vegna 'hafi reynzt lakar á j blóðvelli ea venja hefur verið um EFTIR GÍSLA KRISTJANSSON undanfarin haust. Sumarkuldar og óvenjulega langvinnir þurrkar hafa þó líka átt sinn þátt í því. Já, því að sumarið var kalt, og um norðanvej-, landið sólskins- snautt og svo var þurrt sunnan lands og vestan að vtansból þrutu víða í ágúst og fé skorti vatn í högum. Sunnanlands var sumarið með afbrigðum sólríkt. Úti- störf hófust seint að vorinu v.egna kulda, og má gera ráð fyrir að ræktunarframkvæmdir hafi þess vegna orðið minni en að und- anförnu .Að því síuðlaði reyndar líka skortur á varahlutum í rækt- unarvélar ræktunarsambandanna, sem sumar stóðu tímum saman eða sumarlangt þess végna. Vélasjóður og Landnám ríkisins höfðu samanlagt 38 skurðgröfur að störfum, og með þeim munu hafa verið grafnir um 3 milljónir m"’ eða álíka og í fyrra. Veður voru hagstæð til þeirra starfa og það lengdi starfstíma þeirra í haust, að veðrátta var mjög hag- stæð allt fram í desember. Vaxandi áburiíarnotkun Áburðarsala ríkisins tjáir, að á árinu hafi verið seldur áburður, er nam 7000 lestúm af hreinu köfnunarefni, en það er um 600 lesta aukning frá fyrra ári. Er nú svo komið, að mikið vantar á að Áburðarverksmiðjan í Gufunesi geti fullnægt þörfum ræktunar- manna fyrir þennan áburð. Hún framleiddi á árinu aðeins um 17500 lestir af Kjarna — þar skorti rafafl til þess að fram- leiðslugetan yrði fullnýtt. Sala köfnunarefni'sáburðar nam sem svaraði 23 þúsund lestúm af Kjarna svo að sala fram yf.jr framleiðslu hefur numið meiru en sem svaraði 6000 lestum, en það þýðir að framleiðslan hefur aðeins numið um 75% af því er notað var. Ilvern hefði d:eymt um það fyrir 10 árum — eða bara fyrir 5 árum þegar verksmiðjan hóf starfsem- ina? Þá bjuggust ýmsir við, að til útflutnings 'kæmi um áraraðir og höíðu áhyggjur af, að við yrðum ékki samkeppnisfærir á erlendum vettvangi. Af fosfór voru notaðar 3700 lestir eða 570 lestum meira en í fyrra. Líklega er þörf fyrir ennþá meira af þessum áburði en bænd- ur nota. Er þvi eðlilegt að könnuð séu viðhorf og leiðir til þess, að Áburðarverksmið.jan gel'i hið fyrsta hafið framleiðslu fosfat- áburðar. Ilafa athuganir um þetta verið gerðar en málið er á undir- búningsstigi. Og svo hafa bændur notað 2150 lestir af kalí en í fyrra 1790 lestir. GISLI KRISTJANSSON Aukin ræktunarlönd og aukin notkun tilbúins áburðar stuðla að auk'nni fóðuröflun og bættri beit, en það skapar aftur meiri fram- leiðslu kjöts og mjólkur. Heyfengur mun hafa orðið nokkru minni en í fyrra. Kuld- arnir og þurrkarnir ollu grasbresti víða og kom það einkum fram í því, að síðari sláttur brást að mestu eða öllu. Þokur og þurrk- leysi um norðanvert landið, megin hluta heyskapartimans, stöðvuðu þar alla nýtingu töðu nema þar sem votheysverkunarskilyrði eru, en þau hafa bændur þar í alltof litlum mæli. Sólskin og þurrkar sunnan lands tak- mörkuðu háarsprettu Á engjum var víða héyjað að mun meira en gerzt hefur að und- anförnu. Var það gert til þess að bæta upp að nokkru misbrest þann, er varð á öflun töðu af tún- unum. Skýrslur yfir talningu fóð- urmagns eru að sjálfsögðu ekki til ennþá. En haustslátrunin segir ofurlítið xim árangur heyskapar- ins. Miklu fleira fé var til slátr- unar leitt en nokkru sinni. Að vísu var fleira á fóðrum í fyrra en nokkurn tíma áður, og svo voru lambahöid góð í vor, svo að einnig það stuðlar að aukrium sláturfjárfjölda. Sláturfé á síÖasta hausti 680 þúsund Á sláturhúsum var í haust slátrað 644 þúsund dilkum, en í fyrra aðeins 515 þúsundum dilka. Af öðru fé var nú slátrað 10.200 geldfjár og 27.500 ám, en þessar tölur samanlagðar segja þá, að um 680 þúsundir fjár hafi verið aflíf- aðar á sláturhúsunum í haust. Töl- urnar eru ekki endanlejgar en miklu skeikar þar ekki. Þar að auki má ætla, að um 100 þúsund fjár hafi verið slátrað heima eins og \rant er, en svo segja gærurnar, sem koma á markaðinn. Aldrei fyrr hafa svo stórar hjarðir gengið í dslenzkum sumarhögum sem á síðasta sumri. Kjötmagn af fé því, er á slátur- húsin köm, mun nema rétt nm 10.000 lestum, en sú aukning, er nemur um 1700 lestum frá fyrra ári, svarar ekki til hins aukna fjárfjölda. Óhagstæð sumarveðr- átta ófullnægjandi haglendi og líklega óvenju margir tvilembing- ar i hópi lambanna, hafa stuðlað að rýrnuninni. Dilkakjötið i ár var 9130 lestir, en það svarar til þess, að meðab fall lambs hafi verið 14,2 kg. í fyrra vó kjöt af 515 þúsund dilk- um 7700 les'tir, eða sem svaraði 15 kg meðal skrokkþunga. Það gerir mismun svo dregur. Um magn framleiðslu af hrossa- kjöti og nautgripakjöti, er ekki vitað fremur en vant er um þetta leyti árs, en slátrun stórgripa stendur jafnan á vetur fram. Einn- ig þar mun um aukna framleiðslu að ræða því að ýmsir förguðu lé- legum kúm í haust og geldneytum var fargað til þess að hafa ekki of margt á fóðrum. Mjólk og mjólkuraíurííir Svo er það mjólkin, verðmesta afurð búskaparins. Hún er gerð upp ársfjórðungslega og því vant- ar enn tölur fyrir síðasta ársfjórð unginn, en á þrem fyrstu árs- fjórðungunum nam innvegið magn til mjólkursamlaganna 55,653 milljónum lítra, en á sama tima i fyrra var magnið 52,1 millj. Aukningin hefur því numið um 314 milljón lítra. Verði tilsvarandi aukning á siðasta ársfjórðungi, nemur framleiðsluaukningin á ár- inu þá a. m. k. 4’/2 milljón lítra, miðað við 1957. Gæti það orðið alit að 7% aukning, en það er tals- vert 'ineira en fólkinu fjölgar í landinu, svo að enn vex mjólkur- magn á þjóðarþegn. 'Nokkuð bendir til að mjólkurmagnið á síðasta ársfjórðungi hafi orðið mun minna en í fyn'a og aukn- ingin á árinu því minni en þetta. Þessi innvegna mjólk hefir ver- ið notuð þannig; að 22,3 milljónir lítra hafa verið seldar sem neyzlu- mjólk, svo og um 650 þúsundir iítra af rjóma, framleiddar voru 756 lestir af smjöri, 1419 lestir af skyri, 896 lestir af ostum og en úthey meira. þar að auki 50 lestir af fóðurosti, gert kaseins úr 4 milljónum iítrá undanrennu og framleiddar 190 lestir af undanrennudufti og 162 lestir af nýmjólkurdufti, allt þetta á þremur ársfjórðungum, eða til septemberloka. Taining á síðasta fjórðungi ársins hefur enn ekki verið gerð til fulls. Tölur yfir afurðir alifugla eru engar til ábyggilegar. Víst er þó, að eggjaframleiðslan hefur numið 1200 lestum á árinu a. m. k. og kjöt meira en 100 lestum, ef not- að hefur verið, en á því er nokkur misbrestur að fólk hagnýti hænsna kjöt — þessa ágætu fæðu — feins og skyldi. Verðmæti þessara af- urða í þjóðarbúi nema að minnsta kosti 40 milljónum króna. Kartöfluuppskeran 90 þúsund tunnur Og svo er það larðargróður sá, sem notaður er til manneldis. Grrænmetisverzlun landbúnaðaip ins telur, að uppskera af kartöfl- um hafi í haust numið að minnsta kosti 90 þúsund tunnum, ef til vill eitthvað betur. Vantar þá mikið til þess að þörf þjóðarirmar fyrir þessa vöru sé fullnægt með inn- lendri framleiðslu. Um rófnaupp- skeru eru engar tölur, en hún var lítil, þurrkar sumarsins ollu því. Rófur spruttu aðallega í septem- ber og október. Framleiðsla garðyrkjubænda var af flestum tegundum meiri en ár- ið áður, metið eftir því er kom íil sölumeðferðar hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna. Samkvæmt töluin þess, nú rétt við jól, hefur það tekið á móti 273 lestum tómata, 56 lestum af gulrótum, 73 lestum hvítkáls, 78 lestum gulrófna, 272 þúsund gúrkum, 36 þúsund iblóm- kálum ,23 þúsund salötum og 20 þúsund knippum af selju. Blómin, sem eru aðal- eða eina uppsikera margra garyrkjubænda, fara aðrar leiðir á markað. Umfangsmesta uppskera þeirra, er jörð yrkja, er að sjálf'sögðu fóðrið, en um magn þess vitum við ekki með vissu fyrr en skýrsl- um forðagæzlumanna hefur verið safnað, hitt vitum við, eins og ég nefndi fyrr, að töðufengur mun verið hafa nokkru minni en á síð- asta ári, og útheyja var nú aflað í stærra mæli en verið hefur að undanförnu. Fóðurkál var ræktað víða en það óx misvel vegna þurr- viðra, það er vatnsfrekt. Það var haft til haustheitar handa kúm og lömbum, með ágætum árangri. Takmarkaður fóðurfengur hef- ur valdið því, að í þetta sinn hefur bústofn bænda ekki aukizt. Fyrn- ingar voru því nær engar í vor og á haustnóttum gat enginn séð það fyrirfram, að sumarveðrátta héld- ist fram í desember, svo sem raun varð á. Styt'tist veturinn við það um tvo mánuði og ætti að skapa traustan ásetning og örugga'n. • Bústofn á íóírum Tölur yfir fjölda búfjár eru auð- vitað ekki fengnar enn. í fyrra gizkuðum við á, að 760 þúsund fjár væri á fóðrum. Við talningu eryndist það 770 þúsundir. Því 'hefur ekki fjólgað, líklega aðeins fækkað, en færra en 750 þúsundir munu þó ekki á fóðrum í vetur, Nautpenmgi hefur heldur ekki fjölgað. Lélegum kúm var að visu slátrað svo og fjökla geldneyta, en ætla má, að 48—49 þúsundir sé á fóðrum samt. Hrossafjöldi mun álíka og síðasta ár, um 33 þúsundir, svín líklega um þúsund auk grísa, sem varið er að ala til slátrunar, hænsni allt að 150 þús- undir, cn geit'fé aðeins um 100 samtals. Við verðum að gæta þess alvarlega, að geitur verði ekki al- dauða á íslandi. Búféð er sá höfuðstóll, sem landbúnaðurinn hefur að stofnfé framleiðslunnar. Að öðru leyti hvílir hann í vélum, áhöldum, húsum og birgðum. Við vélakost- inn bættist enn á árinu allt að 500

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.