Tíminn - 06.03.1959, Page 5
TÍMINN, föstudaginn 6. marz 1959.
1!
LÁTIÐ EKKI HJÁ LÍÐA
að skapa hinu nýstofnaða heimili
fullkomið öryggi!
Vér bjóíum yíur brunatryggingu á innbúi ýðar fyrir lægstu iðgiöld, sem
fáanleg eru hér á landi.
Auk þess bjóÖum vér ýður fuilkomna heimilistryggingu. I henni er inni-
falin innbús-brunatrygging, skemmdir af völdum vatns og innbrota, slysa-
trygging á húsmótfurinni, skemmdir, sem heimilisfólk kann aí vaída hjá
öðrum og fleira slíkt.
Allt ábyrgt og hyggið
nútímafólk
gerir sér grein fyrir þeim atvikum, sem geta hent. Enginn
veit hvenær ógæfan getur barií atS dyrum, — en þá er of
seint atS hugsa um tryggingar.
Sambandshúsinu, Reykjavík, sími 17080.
Frá Skákþingi Sovétríkjanna:
Tal gaf drottnínguna í „vinargjöf”
en Nikitin kom ekki aftur til leiks
Freysteinn Þorbergsson skrifar
15.—17. umferÖ á skákþinginu
um
IMoskva, 20. febrúar. Skal nú
tekið til þar sem frá var horfið
óður en umferðasjúkdómur einn
tafði iýsingu motsins. I>ar sem
efnið er orðið gamalt, verður kepp
endum ekki lýst nánar, aðeins
eíðustu umferðunum, og skakir
birtar.
Úrslit biðskáka frá 13. umferð:
Vasjúkoff—Tal 0—1
Averbach—Krogíus 1—0
Staða efstu mannanna eftir 14.
mnferðir var þessi:
1. Petrosjan 10i/2
2 Tal 10
3.—4. Tæmanoff og Spasský 9
5 Lútíkoíf 8i/2'
6.—8. Keres, Holmoíf og
Poiúgaevsky o
' i i . . .
15. nmferð.
Gúrgenidze—Petrosjan i/2—V4
Túrmann—Tal i/2—V2
Spasský—Lútíkoff 1—0
Holmoff—Polúgaevský V2—’/2
Bronstein—Averbach 0—1
Gúfeid—Krogíus V4—14
Tæmanoff—JuKtmann 1—0
Vasjúkoíf—Nezmedinoff 1—0
Nikitin—Keres 14.—'/2
Korchnoj—Geller 1—0
Gurgeaidze reyndi vafasama
leið gegn nimzöindverski-i vorn
Petrosjans, og brátt náðu svörtu
menmrnir ógnandi stöðum á borð-
inu. Eftir drottningakaup vann
Petrosjan peð, og horfði þá illa
fyrir Grúsíu. En Gurgenidze brást
ekki trausti landa sinna, var fund
vís á varnaraðgerðir og eftir mikil
anannakaup var saanið jafntefli
við lófaklapp áhorfenda. Tal
tefldi uppáhaldsafbrigði sitt af
kógnsindverskri vörn gegn Fúr-
niann og hóf brátt sóknaraðgerð-
ir á drotiningarvœng. í 20. leik
sá hann sér færi á mannsfórn,
sem leiddi til peðsvinnings. Þjálf
r.ri Tals og vinur, meistari Kobl-
enz, gat nú ekki leynt ánægju-
brosi sínu og mun eins og fleiri
hafa talið, að sigurinn væri að-
eins spurning um tækni og tíma,
en reyndin varð önnur. Tal, sem
einnig mun hafa talið „punktinn
í vasanum“, tefli ekki sem ná-
lcvæmast, og í fjögurra hróka enda
tafli tókst Fúrmann að staðsetja
hróka sína á sjöundu línu. Urðu
þá hlutverkaskipti, Tal varð að
snúast í vörn. Það hhitverk fórst
honum þó vel úr hendi, í 41. leik
var friður saminn.
Efstu menn báru þvi aðeins hálf
an vinning úr býtum dagsins, en
Spasský og Tæmanoff sóttu á með
•nýjum sigrum. Spasský vann Lútí-
koff létt og fallega. Haíði Síberiu
maðurinn oonaði taflið snemrna í
kóngsindverskri vörn, en Spasský
tókst með einföldum leikjum að
notfæra sér hina opnu kóngs-
stöðti andstæðingsins, og eftir 27
leiki var Lútíkoff algerlega varn-
ai’laus sökum lamandi leppunnar.
Bronstein hrókaði langt gegn
Averbach, en kóngssókn hins síð-
arnefnda olli Bronstein brátt mikl-
uin heilabrotum. í tímaþröng varð
hann að þiggja hrók, sem hafði
molað kóngsstöðu hans. Litiu síð-
ar varð hann svo mát úti á borði.
Bronstein virðist eitthvað miður
sín nú orðið. N'aumast verður var-
izt þeirri hugsun, að ha-nn hafi
ofreynt sig á risaverki sínu um
Zurichmótið. En aulc þess' „getur
það ekki talizt vænlegt fyrir eig-
in árangur að auglýsa leynivopn
sín í skákbókmenntunum“, eins
og Bronstein komst að orði við
mig í Portoroz.
Skákin: Spasský—Lútíkoff.
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rc3 Iíbd7
4. c4 e5 5. Rf3 g6 6. Be2 Bg7 7.
0-0 0-0 8. lfel c6 9. Bfl Re8 10.
Bg5 16 11. Be3 f5 12. ef gf 13. de
Rxef 14. Rxe5 Bxe5 15. Dd2 Df6
16. Hadl Be6 17. Bg5 Dg6 18.
Bf4 Df6 19. Bxe5 dxe5 20. De3 e4
21. 13 Rg7 22. fe fe 23. Dd4 Dg6
24. R.xe4 Hf4 25. Hd3 Haf8 26.
Hg3 Df7 27. Bd3 Kh8 28. De5
Bg4 29. h3 Bh5 30. Rg5 Df6 31.
Rxh7 Dxe5 32. Ilxe5 Hd8 33. Rg5
Hfd4 34. Re6 Hxd3 35. Hxg7 Hdl
36. Kh'2 Gefið.
16. umferð.
Felrosjan—Fúrmann 1—0
Tal—Spasský i/2—14
Keres—Korchnoj 1—0
Polúgaevský—Tæmanoff 1—0
Gúfeld—Bronstein 14—5/2
Lútíkoff—Nikitín i/2—Vz
Averbach—Vasjúkoff 1—0
Holmoff—Geller 1—0
Nezmedinoff—Gúlrgenidze 1—0
Krogíus—Júktmann i/4—1/2
í rólegri leið af drottningar-
bragði 'sækir Petrosjan á á drottn
ingarvæng, nær að mynda veilu
á c6 og opna sér sóknarlínu. Fúr-
mann verst lengi vel, en loks kem-
ur hrókur upp á sjöundu línu.
Með slíkan vágest í herbúðiim sín
Mynd þessi er tekin á skákmóti í Moskvu 1956 á Minningamóti um Aljechin,
fyrrum heimsmeistara. Gligoric, Júgóslavíu, til vinstri, teflir viS Smyslov,
Rússlandi. Þessum tveimur mönnum mun Friðrik Ólafsson mæta
á Kanadamótinu í haust.
um fær Fúi'mann ekki lengur var-
izt liðstapi. Ný Capa-skák hjá
Petrosjan. Uppgjör þeirra Tals og
Spasskýs er skák dagsins. Hér
mþetast tveir höfuðandstæðingar.
Djúpt cr hugsað. Hver leikur er
veginn og bókaður, áður en hann
er framkvæmdur, og naumast er
litið upp frá skákborðinu. Tefld
er kóngsindvcrsk vörn. Tal nær
snemma þeim aðstöðumun á
drottningarvæng, að geta hvenær
sem er brotizt þar í gegn. Spasskv
hefir hins vegar góða aðstöðu á
kóngsvæng, en verður að hafa
mestallt lið sitt viðbúið innrás á
drottningarvæng. Eftir nokkurt
þóf vendir Tal liði sínu yfir á
kóngsvæng, en Spasský tekst að
halda velli og verða nú drottning-
arkaup. Er skákin fer í bið, hefir
Tal þó nokkru betri horfur. í
biðskákinni jafnast svo leikurinn,
cg keppendur semja eftir að slcák-
in hefir farið í bið í annað sinn.
Pólúgaevský, sem eftir slæma
byi'jun hafði, er hann loks vann
skák, unnið fimm í röð og gert
síðan eitt jafntefli, reynir nýja
leið gegn nimzoindverskri vörn
Tæmanoffs. Sú tilraun. ber lítinn
árangur. en í miðtaflinu tekst
Pólúgaevský að aðskilja peð Tæm-
anoffs með þeim árangri, a'ð Tæm
anoff verðttr um megn að verja
alla einbúa sína í endataflinu.
Góður sigur tijá Pólúgaevský, sem
berst grimmilega fyrir stórmeist-
aratitiinum, en hefir scnnilega
liafið sprclt sinn of seinl, til að
ná titlinum í þessu móti.
Keres, sem eftir slæma býrjun
hafði einnig sótt sig um miðbik
mótsins, sýndi nú sitt bezta gegrt
Korchnoj. Náði Keres snemma
yfirhöndinni gegn sikileyjarvörn.
andstæðingsins og hafði auga á
öllum aðgerðum, unz hann á réttui
andartaki sneri liði sínu til kóngs
sóknar. Efir nokkra ónákvæmn:
varð Korchnoj að gefast upp sök-
ttm óverjandi mannstaps'.
Einkennileg eru lögmál tilvilj-
t'.narinnar, eða eru það viðjar var.
ans? Gcllcr er eini maðurinn I
heiminum, sem hefir ábe.randi
góða útkomu úr teíldum skákunt
við Botvinnik, hefir unnið þrjár
og tapað einni, og Smysloff hefir
hann sigrað í einvígi, en gegn
Holmoff tapar hann jafnan. Árið
(Framhald á 8. síðu)..