Tíminn - 12.03.1959, Síða 3
T í >11 N N, fimmtudaginn 12. marz 1959.
3
Ulöglegt tíladrá
iú vandamál víos
vegar í Afríku
ÆKSBb ★
450 veiði-
íijófar
teknir á
einu ári
í Kenýa
F jöídamorð
í þjóðgarði
— ca. 3000
fílar fundust
drepnir
Stjórnarvöldin í Kenýa í
Afríku hafa afhjúpaS þau
— undarlegustu fjöldamorð,
sem sagan greinir frá. í
eihu horni hins víðlenda
Tsavo þjóðgarðs hafa menn
fundið leifarnar af nálega
3000 fílum. sem orðiö hafa
leyniskj'ttum, sem stunda
óíöglegar veiðar, að bráð.
Talið er að fíladrápin hafi stað-
ið yfir í tvö ár, og ekki -er vitað
nerna tala hinna drepnu fila í garð
inum sé nær fimm en þremur þús-
ERROL FLYNN
-— ekki nothæfur
Oastro tiafnaði
Errol Flynn
Kvikmyndaleikarinn Errol
Flynn, sem jafnan er tilefni
til hneyksla og umræðna, tók
sem kunnugt er þátt í stríði
Castros gegn Batista á Kúbu.
Þátttaka Errois varði þó ekki
nema í eina viku, en það dugði þó
til þess að hann hefir skrifað marg
ar og vel borgaðar blaðagreinar
tim œvintýri sín á eynni.
Nú hefir hann gert Castro það
iíosta'boð, að gerast meðlimur í
stjórn hans — sém eins konar
áróðurs- og upplýsingamálaráð-
herra, en Castro hefír hafnað boð-
inu, eftir því sem fregnir herma.
Þykir mönnum þetta tilboð Errol
Flynns með ólíkindum. og nær að
hann hefði boðizt til þess að verða
Eleðikvennaráðherra, en eins' og
kunnugt er, er Kúba hreinasta
gróðrarstía fyrir þess háttar kven-
fólk.
undum. Forstöðumaður þjóðgarðs-
ins, Cowie að nafni, segir að hér;
hafi verið um að ræða það mesta:
fíladráp, sem um getur á jafn tak-|
mörkuðu svæði í Afríku. Skytturn-i
ar hafa setið fyrir dýrunum við
vatnsból þeirra, og skotið þau misk
unnarlaust þar.
450 veiðiþjófar teknir
í Kenýa
Ólöglegar veiðar fíla eru orðnar
mikið vandamál ekki aðeins í Ken
ýa, heldur einnig um alla Afríku
og enda þótt þungar refsingar
liggi við veiðiþjófnaði, eru alltaf
til þeir fífldjörfu veiðimenn sem
hætta sér inn í þjóðgarðana og
brytja þar fílana niður. Á síðast-
liðnu ári voru handteknir 450 veiði
þjófar í Kenýa.
ÞaS er að sjálfsögðu ógerningur
fyrir brezku stjórnarvöldin að
halda uppi lögum og reglu á þess-
um víðáttumiklum landflæmum.
Slátrunin í Tsavo-garðinum virðist
sem komið er, hefur stjórninni
hafa verið vel skipulögð, og enn
ekki tekizt að hafa hendur í hári
þeirra, sem þar voru að verki.
Útrýmir menningin fílunum?
Nú spyrja menn í Afríku sjálfa
sig: Fer svo að leikslokum að hin
stöðuga siðvæðing álfunnar verður
til þess að fílarnir þar líði undir
lok? Munu þeir hverfa á sama hátt
og forfeður þeirra, Mammúta'rnir
gerðu fyrir þúsundum ára síðan?
Svarið kemur mönnum ef til vill
á óvart. Fílarnir virðast þrífast liið
bezta enn sem 'komið er að minnsta
kosti og timgast ört. Á nokkrum
stöðum hafa menn þó orðið að
grípa til þess ráðs að þynna hjarð-
irnar.
Þúsundir þrífast enn
Það er ógjörningur af eðlilegum
ástæðum, að láta fara fram eins
konar allsherjar talningu á fílum
þeim, sem lifa í Afríku. Á stöku
stað hefur þetta þó verið reynt, og
í austurhluta Kenýa hefur mönnum
talizt svo til að lifi urn 4000 fílar.
Bandaríski vísindamaðurinn dr.
Buechner segist hafa lalið ekki
færri en 8000 fíla við Murchinson
vatnsföllin í Uganda. Hann flaug
þar yfir og taldi filana, en flugið
var nauðsynlegt itil þess að fá rétta
mynd af fjölda þeirra, vegna þess
að fílar eru óróa.-kcpnur hinar
mestu og flytja sig tíðum úr einum
stað í annan og fara hratt yfir. Það
virðist því engin 'hætta vofa yfir
filastofninum í bráð. Þeir lifa góðu
lífi á Indlandi og Súmatra o-g enn
er mikill fjöldi fíla á Ceylon.
Vandræði á Ceylon
En á Ceylon eru þeir að verða
til hreinustu vandræða. Þróunin
þar hefur orðið sú, að stórir hlutar
eyjarinnar hafa verið ræktaðir til
hlitar. Skógarnir eru fáir og smáiv,
og geta ekki framfleytt öllum fila-
grúanum. Þetta verður til þess, að
þeir leita inn á nærliggjandi akra
og plantekrur og valda þar oft til-
finnanlegu tj-óni og þá halda bænd-
Endurminningar Hedy Lamarr
„Frifz keypti ekki nektartnyndina“!
í endurminningum Hedy
Lamarr, sem nýiega eru
komnar ut í bók, hefir hún
verið óvenju berorð um feril
sinn sem leikkona
Frk. Lamarr vakti á sínum
tima (1933) alheimsathygli fyrir
f.ð koma frarn á Evuklæðum ein-
um saman í kvikmyndinni
„Ekstase" og eins fyrir að hún
skömmu seinna, þá undir nafninu
Hedi Kiesler, gekk í heilagt hjóna
band með vopnakónginum og
margmilljóneranum Fritz Mandl,
sem hún síðar skildi svo við eins
og lög gera ráð fyrir. Sagt var, að
Mandl hefði verið svo afbrýðis-
samur gagnvart þessari „djörfu“
kvikmynd, eins og þessar myndir
'heita hér, að ihann hefði keypt
upp öll eintök hennar, sem hann
gat komið höndum yfir — og þess
vegna hafi hlutaðeigandi kvik-
myndafélag framleitt 10 sinnum
fleiri eintök af myndinni en upp-
haflega hafði verið ráðgert.
HEDY LAMARR
— engin kaup
Þetta er helber uppspuni, segir
Hedi Lamarr í hinni nýútkomnu
'bók. Kvikmyndafélagið fann þessa
j sögu upp sjálf't, til þess eins að
j auka eftirspurnina, og í auglýsinga
skyni. — Fritz keypti ekki svo
iiuikið sem eitt einasta eintak! Þá
I \eit maður þaö.
Bardot til fundar viö Krústjoff
Frakkar hafa fundiS nýtt leynivopn í kaida stríðinu
I öllu fiaSrafokinu sem orSiS hefir
varðandi kvenfízkuna 1959, hafa karl
mennirnir orSiS útundan meS þeirra
tízku — sérdeilis hártízkuna! Hér að
ofan sjást tvær nýjustu hárgreiðslur
karlmanna. KlippiS myndirnar út
og ræðið málið við rakara yðar.
Búizt er við enn einum
fundi „hinna stóru“ á næst-
unni. Fundur þessi er þó
næsta óvenjuiegur, því að
hinir stóru í þessu tilfelli eru
Brigitte Bardot og Krústjoff,
en ekki de Gaulle og Aden-
Brigitte Bardot er af frönskum
ráðamönnum álitin vera eitt það
■bezta pólitíska leynivopn, sem
hægt er að hugsa sér gegn Krus't-
joff!
„Músíkalska
ur fokvondir í herferðir gegn'
skemdarvörgunum. Þessar herferð-
ir voru á góðri leið með að útrýma
hinum stóru fíium á Ceylon, en þá
kom nokkrum hrezkum dýrafræð-
ingum ráð í hug. Þeir handsömuðu
alla þá fíla, sem þeir gátu komið
höndum yfir, þar sem skógarnir
voru strjálir, og fluttu þá itil frum-
skógabeltanna, sem enn finnast á
eyjunni, og slepptu þeim þar laus-
um. Á skömmum tíma tókst þannig
að bjarga 200 fíkim frá dauða og
um leið losnuðu akrarnir við
skemmdarvargana.
Kraftakarlar
Það eru fáar skepnur, sem menn
hafa jafn rnikinn áhuga á og fíl-
um, og sem betur fer, er það ekki
■aðeins vegna fílabeinsins. Fílar eru
ein sú dýrategund, sem menn hafa
ekki daglega fyrir augunum, og
mönnum finnst mikið til þessara
■kraftakarla í dýrarikinu koma.
Vaxtarlag þeirra útaf fyrir sig er
svo óvenjulegt, að ek'kert því um
líkt er að finna í dýrafræðinni.
Fílarnir eru eins konar hluti af
iiðnum tímum, sem ganga Ijóslif-
andi meðal okkar enn þann dag í
dag. Þeir eru eftirkomendur hinna1
geysistóru ,,mastodonta“, sem á sín
um tíma komu sléttunum til að
skjálfa líkt og i jarðskjálfta, er
þeir fóru um.
AfríkufíHinn er kenjóttur
1 dag eru þrjár mismunandi teg-
■undir fila eftirlifandi — ein í Asíu
og tvær í Afríku. Asíufíllinn er sá,
sem oftast er 'hafður til sýnis í
dýragörðum og sirkusum, því auð-
velt er að temja hamn. AsíufíUinn
er til í mörgum afbrigðum, Ceylon-
fíUinn, MalajafílUnn og Súmatra-
fíllinn, svo að dæmi séu nefnd.
Þessar tegundir eru ■allar nauðalík-
ar, en greinast frá Afríkufílnum
með styttri eynun og sléttari og
(FramUald á 8. síðuj
auer.
Svo er mál með vexti, að í júní
næstkomandi leggur B.B. land und
ir fót og heldur til Moskvu til
þess að vera þar viðstödd Rúss-
BRIGITTE BARDOT
— i'eynivopnið.
landsfrumsýningu nýiustu kvik-
myndar sinnar, „Barbette fer í
stríð“. Við ræddum nokkuð þessa
■mynd á síðunni í gær, og eins og
kunnugt er, þá þykir hún helzt
hafa það til síns' ágætis, að Bardot
cr alklædd allan tímann á tjald-
inu. Hún leikur franska hjúkrun-
arkonu, vafalaust af fáheyrðri
snilld.
„Með Rússum"
Framleiðendur kvikmyndarinn-
ar láta það heita svo, að hjúkrun-
orkonan, sem starfar í liði frjálsx*a
Frakka, hafi þá auðvitað unnið
ineð Rússum í leiðinni.
rjómabollan"
Hvað er orðið um Liberace,
„hina músíkölsku rjóma-
bollu“, eins og hann er ííð-
um nefndur af löndum sín-
um? Undanfarið hefir allt
gengið á afturfótunum fyrir
honum, lesum vér í erlendu
blaði fyrir skömmu.
Þetta er hreinasta „sensasjón“,
eins og það heitir í útlandinu.
Liberaee hefir lagt bæði gulfbró-
deruðu jakkana og minkapelsana
á ihilluna. Þegar hann kom fram í
sjónvarpi vestan hafs fyrir
skömmu leit hann næstum því út
eins og hver annar maður. Menn
tóku meira að segia ef.tir þv’í að
myndin af mömmu var ekki leng-
ur á píanóinu. Gagnrýnendur spá
því nú hverjir um aðra þvera, að
þessi nýja og látlausa framkoma
hans eigi eftir að skapa honum
jafnvel enn meiri vinsældir en
ha,nn hefir nokkru sinni haft.
Liberace sé þess heldur prýðilega
músíkalskur og hann hafi til að
bera bæði persónutöfra og kímni.
Hér hlýtur að hafa orðið mikii
breyting á!
LIBERACE