Tíminn - 13.06.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.06.1959, Blaðsíða 7
T í M I N N, laugardaginn 13. j\W 1959. 7 Helgi Haraldsson. bóndi, Hrafnkelsstöíum: Er þetta það, sem þjóðin vi „Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast.“ Svo kvað Bláskógaskáldið Jón Magnússon, á fullveldisdaginn 1918. Ég var staddur í Reykjavik 1. des. 1918 og hlustaði á ræðu, sem haldin var á fjölmennum útifundi af einum vitrasta manni, er Sjálf stæðisflokkurinn hefir átt, því að þá átti sá flokkur vitra foringja og það fleiri en einn, meira en sagt verður um hann í dag. Ræðumaðurinn lagði út af orð- unum, sem ég minntist í upphafi, óg þá heyrðu menn þau í fyrsta skipti, því kvæðið var ekki orðið kunnugt, og ég minnist ennþá eftir 40 ár fagnaðaröldunnar, sem þá fór um mannfjöldann og engum gat dulizt. Það er víst, að ég var ekki sá eini, sem þerraði tár af auga í ræðulokin, því það gerðu allir í kringum mig einnig, og mér er nær að halda, að mikill meirihluti hins mikla mannfjölda hafi gert það sama. Þess má geta, að þjóðin var í sárum þennan dag eftir hina ægilegu spönsku veiki, sem var nýlega afstaðan, og af þeirri ástæðu auðhrifnari en á venjuleg- um tíma. Það höfðu þrjár plágur lierjað þessa þjóð þetta eftirminni íega ár, 1918. Fyrst ægilegt gras. leysi eftir gaddaveturinn mikla 1918 og Kötlugos í október um liaustið, en þrátt fyrir allar þessar plágur stóð ég sem bjartsýnn ung. ur maður á Lækjartorgi þennan eftirminnilega dag og hélt í hrifn. ingu augnabliksins, að þessi þjóð ætti glæsilegt friðar- og fram- fara tímabil í vændum, nú þurfti aldrei framár að berjast við Dani, og þá íhund'i, ég ekki eftir neinu til þess að rífast um. En heimskur var ég þá og þekkti illa íslendings- eðli þjóðar minnar. Þó hefði nú saga hennar átt að geta minnt mig á það, að samlyndi og friðsemi hefir aldrei ‘verið sterka hliðin á mörlandanum. Mikið vatn hefir runnið til sjávar þessi 40 ár og oft hefir þjóðin átt í vök að verjast. Má þar til nefna heimskreppuna eftir 1930 og öll þau vandræði, sem henni fylgdu með markaðstöpum fyrir fiskinn. Allt þetta bjargaðist vonum framar, og margt þokaðist í áttina á þessum árum, enda hefir þjóðingóða æfingu í því að berjast við fátæktina, og hana hefir hún þekkt og þolað betur en nokkur líkindi virðast til. Maður gæti því hugsað sér, að það hefði mótazt fast í huga þessarar þjóðar, að fá. tæktin væri hennar eini bölvaldur og allt væri fengið, ef hún væri úr Það er að minnsta kosti tvennt, sem er staðreynd í dag, að það er kominn ægile.gur leki að þjóðar- skútunni og þá ekki síður hitt, að kjaftæðið er kátbroslegt. Þó hefir rekið hval á fjörur hjá einni stétt í þessu þjóðfélagi og það er hjá blaðamönnunum. KjÖr. dæmamáiið er meiri hvalreki á þær fjörur en ég minnist að hafa heyrt áður. Þó að ég sé á móti kjördæmabreytingunni, er ekki ástæða til að fara langt út í það mál, sem svo er þaulrætt. Mér hefir líka alltaf þótt heldur leiðin. legt að taka í þyngri baggann, þeg. ar hallast á truntunni, og ég minn. ist varla ■ að hafa hlustað á mál- færslu, þar sem menn hafa verið eins kaghýddir hæls og hnakka á milli eins og þeir menn, sem halda með kjördæmabreytin.gunni. Það er heldur ekki heiglum hent að halda fram röngum málstað, ef skeleggir menn eru til varnar. Þó tekur út yfir, þegar verja á mál, ef einu rökin á málinu eru þannig, að það má ekki minnast á þau, eins og hér á sér stað. Aðeins hin einu rök fyrir kjördæmabreyUngunni eru þau að efla flokksvaldið, og auðvitað stikla mennirnir í kring- um það eins og kettir í kr'ngum heitan graut,. en í þess stað eru þeir að búa til hinar og aðrar for- sendur til að leggja út af, sem alls ekki eru fyrir hendi, óg sumar .svo fáránlegar, að engu tali tekur eins og t. d. það, að sýsluskipting á Islandi sé danskt fyrirbæri og því lítil eftirsjón að henni. Ekki er nú söguþekkingin á marga fiska, þar sem þetta skipulag hefir verið að smáþróast í þetta horf frá því að Alþingi var stofnað 930 og fram á þennan dag. Minnsta félagsein. ingin í okkar þjóðfélagi eru auð. vitað sveitarfélögin með sinn sam. eiginlega fjárhag. Næst kemur sýslan, venjulega skýrt afmörkuð af vatnsföllum eða öðrum skýrucn mörkum, sömuleiðis með sérstak an fjárhag. Þetta hefir fólkið líka fundið á umliðnum öldum, að er eðlileg skipting. Sveitungar eru tengdir nánustum böndum og sýsl- ungar koma næst, eða hvað um öll átthagafélögin í höfuðstaðnum? Það eru menn úr sömu sýslu, sem mynda með sér félag, af því að þeir finna skyldleikann. Það er kátlegt, að menn skuli deila um svona augljósan hlut. Sýslan hefir þótt og er það sjálf- sagðasta kjördæmi, sem fundið verður, enda veit ég ekki til þess, að sveitamenn hafi kvartað undan þessari skipan málanna. Sannleik. urinn umbúðalaus er þetta: Það eru nokkrir óvitrir og ófyrirleitnir flokksforingjar í Reykjavík, sem hafa komið þessu fargani á stað, þvert ofan í vilja þeirra, sem eru í kjördæmunum. Finnst bændum ekki skönnn að því, að láta ekki merkilegri persónur en Bjarna Benediktsson og Ólaf Thors etja sér saman eins og kapalhestum um mál, aem enga úrslitaþýðingu getur haft á gang þeirra mála, sem nú eru mest aðkallandi? Finnst bændunum sjálfum, að þeir séu aðerns kalineyrð.ir öræfagemsar, sem flokksforingjar í Reykjavík geti réttað eins og hverju öðru óskilafé? Spyr sá, er ekki veit. Helgi Haraldsson Svo er eitt í þessu sambandi, sem margur myndi sakna, og það eru þingmálafundirnir, sem oft voru hinar skemmtilegustu sam. komur. Þeir falla auðvitað niður með öllu, því hvernig ætti að halda fundi, t. d. um allt Suðurland, og um 20 frambjóðendur að tala á hverjum fundi? Hvað ætti líka Vestmannaeyingur að vilja á fund upp í Hreppa, eða Hreppamaður út í Vestmannaeyjar. Ég vildi gjarna vera í brúðkaupinu því, þegar' Bjarni Benediktsson fer að gifta Hreppamenn og Vestmanna. eyin.ga, og heyra vígsluræðuna. Það var víst ekki dæmalaust áður fyrr, að lijón sæjust. fyrst á vigslu- dag, en öfundarlaust er það af mér, ef Bjarni ætlar að fara að koma því skipulagi á aftur með þeim hugsunarhætti, sem nú er ríkjandi með þjóðinni. Þetta er nú nóg um kjördæma- málið, en hvað er svo um önnur vandamál, sem að þjóðinni steðja um þessar mundir? Það er spurn- ing, að þjóðin hafi síðan 1918 átt í þrengri vök að verjast en í dag. Hún á að berjast á tvennum víg. stöðvum, við eitt af stórveldum heimsins í landhelgismálinu og fjárhagsörðugleika svo mikla,‘ að enginn sér fyrir endann á. Einu sinni var það talið eitt það fyrsta til þess að koma þjóð á kné að neyða hana til þess að berjast á tvennum vígslöðvum, enda reið það mörgum þjóðum að fullu. En hvernig hafa foringjar Sjálfstæðis. flokksins farið eftir ráðum for. ingjans vitra frá 1918? Þeir ætla að neyða þjóðina til þess að berj- ast á þrennum vigstöðvum í einu. Þegar henni liggur lífið á að standa sameinuð til þess að mæta erfiðleikunum, þá finnst þeim helzta ráðið að hrinda henni út í tvennar kosningar sama sumarið til þess að það sé alveg tryggt, að hver höndin verði upp á móti ann- arri. Engan smalamann á þjóðin svo he-mskan, að hann haldi, að helzta ráðið til þess, að halda hjörðinni saman og þoka henni áfram sé það að set.ia á hana hundinn og tæta hana í allar áttir, en það er stað reynd, er ei verður móti mælt, að svo heimska stjórnmálaforingja á hún í dag, svo ekki er von, að vel fari. Svo er hitt. Allir hugsandi menn vita, að fjárhagsörðugleikar, sem þjóðin á að stríða við í dagj stafa af því eingön.gu, að lifað hefir verið um efni fram hsilan áratug, og' að minnsta kosti allir bændur vita, hvernig þannig vandamáli á að mæta. Það er eitt ráð til og aðeins eitt, að fara gætilegar og draga úr útgjöldum. Sama gildir um þj'óðina alla, og ég er þess fullviss, að enn á þjóð- in þann manndóm, að hún vill mikið á sig leggja í bili, til þess að þjóðin bjargi sér á þurrt. Til þess þarf þá eitt og það er það, að hún treysti þeim, seni með völdin fara, og trúi því, að þeir vilji setja alla við sama borð. En meðan alltaf er bruðlað meira og meira á hærri stöðum en níðzt á þeim, sem minnst fá úr þjóðar. búinu, þá fæst engin samstaða, og við fáfróðir sveitamenn sjáum enga viðleitni í þessa átt með því að hafa tvennar óþarfar kosningar í sumar og fjölga þingmönnum í 60. Það finnst víst mörgum, að nógu margir séu að flækjast hver fyrir öðrum á þeirri virðulegu stofnun, sem heitir Alþingi, og einu sinni var litið upp til af allri þjóðinni, en jafnmargir nú hafa skömm á. Eða finnst ráðamönnunum helzt til lít. ið að eyða 8 milljónum í þinghald á ári? Hefðu þeir nú í staðinn fyr. ir þetta verið þeir menn að fækka þingmönnum niður í 40 eða jafn. vel þrennar tylftir eins og í gamla da.ga og lækka kostnaðinn um helming. Við fáurn ekki skilið það, sem minnst fáum kaupið, að það mætti ekki fá sæmilegt kaup út úr því fyrir 40 menn að taka það í ákvæð- (Framhald á 8. síðu). sögunni. Þó hefir 'einhver vitur maður á umliðnum öldum komið auga á það, að fleira gæti verið hættulegt en fátæktin ein. Það er maðurinn, sem bjó til málsháttinn alkunna: „Það þarf sterk bein til þess að þola góða daga.“ Og reynslan hef. ir sýnt og sannað að hann var ekki neitt blávatn karlinn sá, sem bjó þennan málshátt til. íslendingar hafa átt góða daga síðasta áratug, það verður ekki dre,gið í efa, og jafnvel komizt svo 'hátt að verða ein ríkasta þjóð í Noröurálfu, en hvað þá um beinin, sem vitri karlinn sagði að þyrftu að vera sterk? Hafa þau reynzt nógu sterk til að þola góða daga? Þar stendur nú hnífurinn í kúnni. Náttúrlega er lítil von til þess að fáfróður fjallabúi og kotkari ráði svo torleysta gátu, að sjá um l'ram. tíð þessarar þjóðar í dag; Þáð vefst líka 'fyrir fleiri, en hlustað hefi ég á mál manna, og verður ástand- inu tæplega betur lýst í fáum orð- um en með hinni snjöllu visu úr Oddsrímu: „íhald klagar Framsókn.frekt, Framsókn lýsir íhalds nekt, kjaftæðið er kátbroslegt og kuggurinn lekur eins og trekt.“ - --------:--------:--;------\ Gróðrarstía fyrir smáflokka Stór kjördæmi með 8 eða fleiri þingmönnum, kosna með hlutfallskosningu, eru hinn eini lífvænlegi jarðveg- ur, blátt áfram gróðrarstíur fyrir smáflokka og flokksbrot, hvert öðru sundurþykkt. Hin- ir svo kölluðu vinstri menn í landinu ættu að liafa getað lært nóg af ógæfu sinni, að þeir skuli vera klofnir í 4 flokka og það við núverandi stjórnarfarsskilyrði. Það er óhugsandi að þeir, sem nú fylla flokk Sjálfstæðismanna, færu lengi varhluta af liinu saina. Skoðanaands.tæðinga og mjög áberandi og djúp. stæðar hagsmunamótsetning- ar eru til staðar í þeim flokki. Þegar búið er að undirbúa jarðveginn og hlúa að klofn. ingsspírunum, þá skjóta þær rótum, dafna og blómgast að Iokum. Þá verður óhægt um vik að reiða öxi að þeim rót. um. Sannast hér liið forn. kveðna að blindur er hver í sjálfs sín sök. Það er hægt, að vissu marki, að virða minnstu flokkunum í landinu það til vorkunnar að þeir freistast til að líta á stundarhag og telja sér trú um bætta vígstöðu við breytt skilyrði. Hitt væri þó ólíkt rismeira og virðulegri afstaða að trúa og treysta á sigur góðs málstaðar án ann- arra meðala en hans sjálfs. Hitt er óskiljanlegt metn- aðarleysi og undirmáls mennska, að stærsti stjórn- málaflokkurinn, sem nú er með þjóðinni, skuli svo gott sem undirstrika það,að hon. um sé ekki sigurs auðið nema með hjálparme'öali hlut. falls kosninga. Það er meira metnaðarleysi og meira van. traust á eigin getu og málstað en maður hefði að óreyndu ætlað. Þyki þeim mönnum, sem að bera hita og þunga dagsins í stjórnmálaforystunni þungt fyrir fæti og erfitt að starfa saman að lausn vandamála þjóðlífsins við núverandi stjórnarfarsskilyrði, hvað verður þá eftir svo sem tvö kjörtímabil hér frá? Ætli þeim gengi betur eftir að hlutfallskosningar væru komnar í kring og flokkarnir orðnir 6—7 talsins? Ætli þeim þætti ekki sem þeir hefðu farið úr öskunni í eld- inn? Framantalin rök gegn stjórnarfarsumturnuninni eiga við almennt og alls stað- ar. Þau tala til allra, livar í flokki, stétt eða stöðu sem þeir standa og hvar sem þeir búa. Enginn getur sloppið við áhrifin og afleiðingarnar. (Úr grein eftir Játvarð Jökul). * ^ A víðavangi ' Af litlu að státa Broslegt er áð lesa þær skrum I greinar Alþýðublaðsins um þuð, i að núv. stjórn muni ekki léyfa atvinnufyrirtækjum neinar verð- hækkanir, þótt þau liækki kaup. Alþýðublaðið lætur eins - og þetta sé eitthvað sérstaklega hrós vert. Þetta er þó ekki annað en hið minnsta, sem liægt er áöl krefjast af núverandi ríkisstjórn, þar sem hún hefir ekki fengið | uinboð til að fara með völd. j nema fram yfir kosningarnar 28. júní. Henni ber því fyllsta skylda til að taka ekki ákvarff- anir er geta bundið hendur næstu ríkisstjórnar í jafn veiga- miklu máli. Það myndi hún hins vegar gera, ef hún færi að .leyfa verðhækkanir nú vegna kaup- hækkana. Stjórn, sem er á förunj, bryti frumstæðustu skyldu sina, ef lmn ynni á slíkan liátt. Sú stjórn, sem helzt getur stært sig af því að brjóta ekki þessa frum- skyldu, liefir vissulega ekki af miklu að státa. Mál séra Ingimars Þjóðviljinn liefir undanfarið gert sér tíðrætt urn fjársvika- mál Ingimars Jónssonar og hald- ið því fram, að fjárdráttúr hans hafi aðallega verið þánnig til kominn, að hann hafi látíð AI- þý’ðuprentsmiðjuna og Alþýðu- blaðið fá það fé, sem liann hafi dregið sér ranglega frá . þeim stofnunum er liann stjórnaði. í því sambandi átelur blaðið m.a., að fyrrv. ríkisstjórn skuli ekki hafa látið rannsaka þetta atriði sérstaklega. Þessu er vitanlega því • aff svara, áð ríkisvaldið á aðeins að- gang að séra Ingimar í þessu til- felli cn ekki þeim aðilum, sem hann kann að hafa látið fé renna til. Það var hann, sem bar á- byrgð á meðferð þess. Hitt er hins vegar tvímæla- laust skylt aðilum eins og Al- þýðuprentsmiðjunni og Alþýðu- blaðinu, að liggja ekki undir því, að til þeirra liafi runnið stolið fé. Alþýðublaðið og Alþýðuprentsmiðjan ættu hér að gera hreint fyrir sínum dyrum, birta um þetta opinbera greinar- gerð eða heimta rannsókn á þessu atriði. Aunað gerir þetta mál dularfullt og ógeðfeíit. Styrkja erlend ríki Alþýðublaðið og Þjóðviljann? Þjóðviljinn ber Alþýðublaðið þeim sökum, að það fái nú ríf- legan fjárstyrk frá Bandaríkja- mönnum. Alþýðublaðið heldur því liins vegar fram, að Rúss- ar styrki útgáfu Þjóðviljáns. Gætu ekki Þjóðviljinn og Álþýðu bláðið sameinazt um að íáta þessar gagnkvæmu ásakanir falla niður og orðið í slaðinn sam- mála um að láta fara fram rann- sókn á því. hvað hæft sé í þeim getgátum, að erlendir aðilar styrki hér pólitíska blaðaútgáfu. Þetta myndi vera þjóðinni bezt að skapi, en hún vill áreíðanlega fá að vita hið sanna í þessum efnum. Annað hljóS í strokknum nú en í fyrra Forustugrein Mbl. í gær hefir yfirskriftina: Hin eina sanna kjarabarátta. F.fni greinarinnar er á þá leið, að hin eina sanna kjarabarátta sé sú að hækka ekki kaupið. Fyrir íéttu ári síðan nélt Mbl. hinu gagnstæða fram og átti þá meginþátt í að kíiýja fram þá kauphækkun, er s.öan hefir valdið mesturn erfiðlemum. Ilvernig geta kjósendur iriyst flokki, sem fylgir á víxl tveú.iur gagnstæðum stefnum eftir ví, hvort Iiann er í stjórn eða stjórnarandstöðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.