Tíminn - 11.09.1959, Page 10
10
T f MIN N, föstudaginn 11. sepíember 1959.
Reykvíkingar keppa
í sundi á Akureyri
Sundfólk frá Armanni og ÍR tók ,
þátt í sundmóti er fram fór á Akur
evri á laugardaginn va>r. Hafði sund
fólkinu verið boðið til keppninnar
af sunddeild Knattspyrnufél. Akur-
eyrar, sem gekkst fyrir móti þessu.
Helztu úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir: i
50 m skriðsund drengja:
Þorst. Ingólfsson Á 29,8 sek.
Óli Jóhannsson KA 31,8 —
Lúðvík Kern Á 31,8 —
50 m baksund karla: Guðmundur Gíslason ÍR 33,5
Þorsteinn Ingólfsson Á 37,0 —
Óli Jóhannsson KA 45,0 —
100 m bringusund fearla:
1.—2. Einar Kristinsson Á 1:21,2 mín.
1.—2. Guðm. Gíslason ÍR 1:21,2 —
3. Sæm.' Sigurðss. Á 1:26,5 —
100 m skriðsund karla:
1. Guðm. Gíslason ÍR 1:00,1 mín.
2. Siggeir Siggeirsson Á 1:09,0 —
3. Björn Arason KA 1:09,3 —
4x100 m boðsund karla:
1. Sveit Reykvíkinga 1:57,6 mín.
(Sig. Þorst., Siggeir, Guðm.)
2. Sveit KA (Akureyrarmet) 2:04,0
2. Sveit KA 2:04,0 —
(Akureyrarmet).
(Vernh., Óli, Eirikur, Björn).
50 m baksund kvenna:
1. Ágústa Þorsteinsd. Á 38,0 sek.
2. Hrafnh. Guðm.d. ÍR 42,2 —
3. Rósa Pálsdótir KA 45,6 —
50 m bringusund stúlkna:
1. Hrafnh. Guðm.d ÍR 41,0 sek.
Valbjöm öruggur með 4.40 í stangar
stökki. — Hilmar sigraSi í 100 m hl.
Einkaskeyti frá Herði
Haraldssyni.
Gautaborg, 9. sept. — íslenzku í-
þróttamennirnir náðu góðum ár-j
angri á alþjóða frjálsíþróttamótinu j
í gærkvöldi. Hilmar sigraði í 100
m hlaupinu. Fékk tímann 10,6 sek.|
Annar varð Trollsaas 10,8 sek. og
þriðji Malmroos 10,9 sek. — Val-
björn Þorláksson sigraði í stangarj
stökkinu, stökk 4,40 m. Annar varð
Krzesinsky 4,30 m. — Þórður Sig
urðsson varð fimmti í sleggjukasti
kastaði 52,85 m., sem er hans næst
bezti árangur, en bezti árangur
hans er ísl. metið 53,20 m. sem
hann setti hér heima í sumar. —
Hörður Haraldsson varð annar í
400 m hlaupinu. Fékk tímann 49,3
sek.
2. Helga Haraldsd. KA 42,1 —
(Akureyrarmet).
3. Sigrún Vignisd. KA 45,6 —
50 m skriðsund kvenna:
1. Ágústa Þorsteinsd. Á. 30,0 sek.
(Betri tími en núg. Ísíandsmet).
2 Hrafnh. Guðm.d ÍR 34,4 —
3. Erla Hólmsteinsd. Þór 36,0 —
4x50 m boðsund kvenna:
1. Sveit Reykvíkinga 2:29,0 mín.
2. Sveit Akureyrar 2:29,4 —
Enska deildar-
keppnin
Úrslitin í ensku deildarkeppninni
s.l. laugardag voru sem hér segir:
1. deild.
Arsenal—Tottenham i—i
Birmingham—Manch. Utd. i—i
Blackburn—Sheffield W. 3—1
Blackpol—Nottingham F. 0—1
Chelsea—Burnley 4—1
Luton—Bolton 0—0
Manch. C.—'Wil'ves 4—6
Newcastle—Preston 1—2
West Bromwich—Leicester 5—0
West Ham—Leeds 1—2
Úrslit á þriðjudag í 1. deild urðu:
Burnley—Preston 2—1
2. deild
Úrslit s.l. laugardag urðu:
Brighton—Portsmounth 3—1
Bristol Rov.—Aston Villa 1—1
Cardiff—Bristol City 4—2
Hudderfield—Leyton Orient 1—1
Hull City—Oharlton 0-4
Ipswich—Lincoln City 3—1
(Framhald á 11. síðu)
Skákmótið í Hafnarf.
Eokið er tveimur umferðum á
skákmótinu í Hafnarfirði, er hófst
s.l. föstudagskvöld. Þau einstæðu úr
slit urðu í 1. umferð að allar skák-
irnar enduðu með jafntefli en þá
tefldu saman Þórir Sæmundsson og
Stígur Herl'ufsen; Eggert Gilfer —
hinn aldni skákjöfur bættist í hóp
inn á síðustu stundu — og Sigur-
geir Gíslason, Jón Pálsson og Birgir
Sigurðsson, Jónas Þorvaldsson og
Jón Kristjánsson, og Skúli Thorar-
ensen og Kári Sólmundarson.
Önnur umferð var tefld s.l. sunnu
dag og þá vann Þórir Skúla, Jónas
Birgi, en Sigurgeir og Jón Pálsson,
Stígur og Jón Kristjánsson og Kári
og Eggert gerðu alllr jafntefli.
Eftir tvær umferðir eru þeir jafn
ir og efstir Jónas og Þórir með lVz
vinning hvor, Eggert, Jón Kr., Jón
P., Kári, Sigurgeir og Stígur einn
vinning hver, og Birgir og Skúli
hálfan vinning hvor.
Þriðja umferð verður tefld annað
kvöld í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 8.
Akureyringar sigur-
sælir
Knattspyrnulið Akureyringa sýndi
knattspyrnumönnum Vals um s.l.
hélgi, hvers reykvískir knattspyrnu-
menn mega vænta, er þeir leggja
leið sína til keppni við Akureyr-
inga á komandi sumri, en á Akureyri
munu fara fram fimm leikir X. deild
arkeppninnar næsta sumar. Valur
keppni tvo leiki við Akureyrarliðið
og sigruðu Akureyringar báða leik-
ina. Fyrri leikurinn fór fram á laug
ardag og lauk með stórsigri nJA
5:0. Á sunnudag sigruðu Akureyring
ar Val 4:2.
Val'ur var ekki með fullskipaðan
meistaraflokk í þessari ferð félags
ins, en þrátt fyrir það bera þessir
leikir með sér, sem og við höfum
séð hér sy'ðra, er Akureyringar voru
hér á ferð fyrir skömmu, að full
ástæða er til að reikna með Akur-
eyrarliðinu, sem fyllilega keppnis-
færu liði í 1. deild.
»«**»*»»»»»»»*»»«*»«»»«»»»»*»»****«»»*»*»»*»»»»»«»*»»*»»*»*»»*****»*»*»»»**<
Vil taka á leigu
eða veita forstöðu Veitingahúsi, félagsheimili eða
húsnæði fyrir veizlu og fundarhöld. Mai’gt annað
kæmi til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl fyrir
18. þ.m. mei-kt: „Veitingam.—4918“.
Súgþurrkun
Orðsending til bænda frá Landssmiðjunni
Blásari: GerS H 11.
Að gefnu tilefni viljum vér
hér með btnda þeim bænd-
um, er hugsa sér að kaupa
súgþui’rkunartæki fyrir næsta
sumar, á, að nauðsynlegt er
að senda pantanir nú þ^gar,
svo trvggt verði að afgre.'ðsla
geti farið fram tímanlega
næsta vor.
Bændur, sem ekki hafa rafmagn, geta valiS milli
tveggja tegunda af aflvélum, þýzkr HATZ diesel-
véla og enskra ARMSTRONG SIDDF.LEY dieselvéla.
BáSar þessar tegundii dieselvéla eru loftkældar
og hafa reynzt afburfta vel.
Enn fremur má velja milli 3ja gerSa af blásurum:
1. blásari (gerð S 11) upp að ca. 60 m2 hlöSustærð.
2. blásari (gerS H 11) upp að ca. 90 m2 hlöðustærð.
3. blásari (gerð H 12) upp að ca. 180 m2 hlöðustærð.
Blásarar fyrir stærri hlöSur eru smíSaSir eftir
pöntun. —
Armstrong-Siddeley
dieselvél
Hatz, dieselvél
1
Reykjavík, september 1959,
LANDSSMIÐJAN Reykjavík — Sími 1 16 SO