Tíminn - 17.10.1959, Side 6
ö
T í M I N N , laugardaginn 17. október 1959.
I
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstj&ri og ábm.: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur á Edduhúsinu við Lindargötu
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18305 og
18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn).
Augiýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 323
Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13 948
Stjómarflokkarnir eru jafnsekir
ÞAÐ skýrist nú alltaf
betur og betur hvers vegna
Sjálfstæðisflokkurinn valdi
heldur þann kost í desember
síð'astl. að láta Alþýðuflokk-
inn einan mynda stjórn,
heidur en að flokkarnir
mynduðu stjórn saman. For
kólfar Sjál,fstæðisflok.ksijis
ætluðu áð stjórna með slíkum
kákráðstöfimum fram yfir
kosningar, að þeir vildu ekki
bera formlega ábyrgð á þeim.
Alþýðuflokknum var það hins
vegar ekki of gott, ef hann
vildi vinna þetta til fyrir ráð
herrastólana.
Afleiðingar þeirrar stjórn-
arstefnn, sem hófst með sam
vinnu Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðufiokksins, eru nú
sem óðast að koma í ljós.
Þær eru þannig, að það er
meira en skiljanlegt, að Sjálf
stæðisflokkurinn vildi losna
við ábyrgðina.
AFLEIÐINGAR þær, sem
þegar eru orðnar augljósar,
eru þessar:
Aldrei hefur verið lögð eins
mikil skatta- og tollabyrði á
þjóðina og á þessu ári. Ekki
sizt hafa hinir beinu skatt-
ar verið stórauknar. Þannig
greiða einstaklingar í Reykja
vík nú 30 millj. kr. meira í
tekjuskatt og útsvar,,á þessu
ári en í fyrra.
Framlög til uppbóta og
niðurgreiðslna hafa verið
aukin frá 250—300 millj. kr.
og mun síðari upphæðin þó
nær sanni. Engra varanlegra
tekna hefur verið aflað til að
vega upp á móti þessum út-
gjöldum.
í ár hefur tekna til að vega
á móti þessum auknu útgjöld
um, verið aflað með því að
eyða 80—90 millj. kr. greiðslu
afgangi ríkisins frá siðastl.
ári, með því að auka svo inn-
flutning hátoilavara, að geig
vænlegasti gjaldeyrisskort-
ur er framundan, og með
söfnun lausaskulda eftir því,
sem þarf t il viðbótar. Á
næsta ári verða allar þessar
lindir þurausnar. Þá blasir
við að afla 250—300 millj. kr.
nýrra álaga eða gera einhverj
ar ráðstafanir, sem hafa svip
aðar afleiðingar fyrir al-
menning.
Vegna hins mikla innflutn
ings hátollavara, er ástandið
í gjaldeyrismálunum nú
verra en það hefur nokkru
sinni áður verið. Aðstaða
bankanna gagnvart útlönd-
um er nú 180 millj. kr. lakari
en um áramótin. Mikill skort
ur er þegar oröinn á ýmsum
vörum, einkum á vörum til
byggingar og iðnaðar. Þessi
skortur mun stóraukast
næstu mánuðina.
Þær staðreyndir, sem hér
eru raktar, sýna það ótví-
rætt og sanna, að þær bráða
birgðaráðstafanir, sem stjórn
in hefur beitt til að leyna
þjóðina hinu raunverulega
ástandi fram yfir kosningar,
munu á næstunni hafa í för
með sér miklu meiri efna-
hagsörðugleika en nokkru
sinni hefur verið glímt við
seinustu áratugina. Vegna
þeirra er nú allt orðið verra
og örðugra viðfangs en um
seinustu áramót, þegar Fram
sóknarmenn lögðu til, að
reynt yrði að koma á alls-
herjarsamstarfi til lausnar
vandanum. Þá átti ríkið veru
legan tekjuafgang, en um
næstu áramót blasir við halli
á rekstri þess. Þá var gjald-
eyrisástandið sæmilegt, en
nú geigvænlegt. Þá voru upp
bæturnar og niðurgreiðslurn
ar 250—300 millj. kr. lægri
en þær eru nú. Aldrei síðan
1942, þegar flokksstjórn Ól-
afs Thors fór með völd, hef
ur sigiö eins mikið á ógæfu-
hlið á einu ári og nú.
ÞETTA sá Sjálfstæðis-
flokkurinn fyrir um sein-
ustu áramót, að myndu verða
afleiðingar af þeim bráða-
birgðaráðstöfunum, er þá var
stofnað til. Þess vegna var
hann svo stórlátur að láta
Alþýðuflokknum eftir alla
ráðherrastólana. Þannig
myndi hann losna við ábyrgð
ina af þeim vandræðaráðstöf
unum, sem geröar yrðu. En
honum á ekki að gagna slík
ur feluleikur. Báðir stjórnar-
flokkarnir eru jafnsekir og
sá ekki minna, sem reynir
að vera í felum. Eftir stjórn
arfarinu, sem ríkt hefur á
þessu ári, ber þjóðinni ekki
siður að dæma Sjálfstæöis-
flokkínn en Alþýðuflokkinn.
Val íhaldsandstæðinga
ÞAÐ er kunnara en frá
þurfi að segja, að völd íhalds
ins á íslandi hafa fyrst og
fremst byggzt á sundrungu
íhaldsandstæðinga.
íhaldið hefur aldrei haft
meirihluta í landinu og sjald
an meirihluta í Reykjavík.
Samt hefur það ráðið miklu
á sviði landsmálanna og
mátt heita einrátt í Reykja
vík.
Ástæðan er sú, að íhalds-
andstæðingar hafa skipt sér
í marga flokka í stað þess að
fylkja sér undir merki eins
flokks.
Ef íhaldsandstæðingar
halda þessari sundrungu á-
fram, áorka þeir engu öðru
en því að viðhalda völdum
íhaldsins og efla þau.
Þetta er líka fleirum og
fleirum íhaldsandstæðingum
að verða ljóst. Þess vegna óx
Framsóknarflokkurinn mest
allra flokka í þéttbýlinu í
seinustu kosningum. íhalds
andstæðingar geröu sér ljóst
í enn ríkari mæli en áður, að
hann er sá flokkur, sem væn
legast er að efla gegn í-
h'i’dinu. Hann"'hefur reynst
bezt i baráttunni gegn því.
í kosningahríðinni
&
Stríð Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðufiokksins heldnr áfram
og harðnar með hverjum ilegi.
Sumir eru að halda að þetta
verði heitt stríð og kalla þurfi
varnarliðíð til að skakka leik-
inn. Eins og allir vita er þetta
handritastríð um stefnuskrárn-
ar, sem eru alveg eins, og þeir
þekkja ekki sundur, stjórnar-
flokkarnir. Alþýðuflokkurinn
segir: Þú stalst lienni frá mér,
og íhaldið segir: nei þú hnupl-
aðir henni frá mér.
Hnuplöld
Sumir epru farnir að kalla
þcssa kosningahríð hnuplöld.
Þessi ósköp byrjuðu þegar
„bréfhirðingamaður“ komma
fór í tösku Hannesar, sem
frægt er orðið. Svo virðist hann
næst liafa komizt í gulu skúff-
|| una hans Bjarna Ben., sem var
galtóm einn góðan veðurdag,
| þegar Bjarni þurfti að grípa til
\ hennar. Þá kom í ljós, að inni-
| haldið var komið upp á Þjóð-
|| vilja, og Bjarni hefur síðan
j \ orðið að fá endurnot þess fyrir
II náð og miskunn.
H Hitt verður aftur að telja
Ivafamál, að „bréfhirðingamað-
urinn“ sé nokkuð viðriðinn
þetta víxlhnupl, sem kratar og
A íhaldið eru að kenna hvorir
® öðrum. Sú deila er miklu lík-
| ari því, þegar fjáreigendur eru
m að togast á um sömu kindina,
* af því að cyrnamarkið er eig-
S. inlega alveg eins.
II Handritamál
|| Þetta er eins konar liand-
|| ritamál, enda grípur Mbl. til
þess ráðs í gær að leita langt
aftur í tíinann máli sínu til
sönnunar og eignarétti sínum á
stefnuskránni til halds. Ilann
segir, að Alþýðuflokkurinn sé
nú alveg þversnúinn í skatta-
máluniun síðan 1917. Þá hafi
hann sagt: niður nieð tollana
en upp méð beinu skattana.
Nú segi hann liins vegar: niður
með beinu skattana en upp með
tollana. Þetta kallar Moggi
hringsnúning og hneykslast á.
Satt að segja finnst mér að
þetta sé ekki sérlega mikill
snúningshraði, og töluvert
meiri snúður sé á öðrum, t. d.
Mogga sjálfum, því að liann
hefur hvað eftir annað leikið
sér að því að snúast hraðar en
jörðin, svo sem frægust dæini
eru um af bráðabirgðalögunum.
Annars eru vonir til, að
þessi handritadeila leysist þeg-
ar kratarnir eru komnir að
fullu heim í íhaldsfaðminn
eftir kosningar. Þá dugar eitt
handrit af stefnuskránni. Það
væri sannarlega gleðiefni|, eí
lausn handritadeilunnar við
Dani væri eins nærri, þótt
fjarri sé mér að óska okkur
vistar í náðarfaðmi Dana.
En að vera að setja út á það,
þótt kratar hafi breytt svolítið
um stefnu síðan 1917, er hálf-
gerð hótfyndni og þeir ættu að
geta farið eins vel í íhaldsfaðm-
inuin fyrir það.
í beifu
Þær skemmtilegu fréttir ber-
ast frá Vestfjörðum, að íhald-
ið hafi gripið til þess ráðs þar
vestra að hafa Hannibal í
beitu. Hið pólitíska fiskirí í-
ha'Idsins liefur verið svo stein-
dautt þar vestra, að það hefur
(vúrla fengið bein úr sjó og
orðið að dorga í dauðum sjó á
fundum sínum. En þegar til
Bolungarvíkur kom flaug Sig-
urði frá Vigur það loks í hug
að hvísla því og láta berast,
að Hannibal mundi koma á
fundinn. Fólk veit, að Hanni-
bal getur verið tannhvass og
það hlakkaði til að heyra hann
leggja þá Sigurð, Þorvald og
Kjartan undir jaxl. Ekki var
nú velvildin í þeirra garð meiri
en þetta. Allniargt fólk kom á
fundinn í þesséjri tilhlökkun,
en þar var þá enginn Hannibal,
aðeins íhaldsduggarar með ber-
an öngulinn eins og fyrr. Fólk
fór því heim heldur vonsvikið,
þótt þetta væri svo sem ekki í
fyrsta sinn, sem lítt væri mark
takandi á orðum þessara liðs-
odda.
Beita samt
En þetta minnir menn á, að
í raun og veru er framfooð
kommúnista á Vestfjörðum
eins konar íhaldsbcita samt,
því það er með öllu vonlaust,
áð sá listi komi að manni, en
laðeins tVraun til að sundra
fylkingu vinstri manna og auka
sigurlíkur ílialdsins. Þetta veit
íhaldið, og það er einmitt sú
vissa sem* hefur blásið því í
brjóst því snjallræði að nota
Hannibal til að smala fólki á
íhaldsfund. Það væri hlutvérk
hans í kosningunum hvort sein
væri. Hugmyndin átti sér aug-
Ijósar rætur og var því ekki
helber uppspuni.
i
Hárbarður
Gunnars þáttur Thoroddsens
Stjórnlaus
Sjúkrahúsmálin.
XIV. kafli.
Við kvöddum Heilsuverndar-
stöðina í síðasta þætti, og verð-
ur nú vikið að öðru, sem meiri
þýðingu hefur fyrir bæ og al-
þjóð.
(Þó skal þess getið, að í
síðasta kafla láðist að geta
þess, að lyftan í Heilsu-
verndarstöðinni gleymdist.
Varð því að setja lyftukassa
upp úr þakinu og brjóta
gang fyrir liana niður í kjall-
ara. Þessi framkvæmd ein
kostaði litla — eina milljón
og finnn hundruð þúsund
krónur).
Það má segja að gulli hafi
rignt yfir þessa þjóð allt frá
stríðsbyrjun þó annað mál sé
það, hvað heilsusamlegt það
hefur verið fyrir andlegt heil-
brigði þjóðarinnar. Mikið hef-
ur verið byggt, margt gott, en
því miður mangt sorglega mis-
heppnað. (t. d. Faxi, Hæringur
og Glerverksmiðjan og m. fl.).
Það var eins og allt mætti
byggja nema sjúkrahús. Lækn-
ar bæjarins stóðu ráðþrota
með hundruð sjúkra manna,
sem hvergi var hægt að koma
undir þak. Loks kom skriða á
Hann er líka lang stærsti
andstöðuflokkur þess.
í kosningunum nú eiga í-
haldsandstæðingar raunveru
lega ekki nema um tvennt
að dvelja: Að efla Framsókn
arflokkinn og skapa þannig
sterkan andstöðuflokk gegn
íhaldinu, eða .tvístrast milli
smáflokka og treysta þannig
aðstöðu íhaldsins.
Þetta val íhaldsandstæð-
inga ætti ekki að verða erfitt.
bær - án
málið og þá átti líka að gera
allt í einu. Það var rokið í að
byggja þrjá slóra spítala alla í
einu þó að vitað sé að sumir
þeirra verði ekki komnir upp
fyrr en eftir tug eða tugi ára.
Hvaða bóndi mundi á vordegi
hefja smíði á þremur heyhlöð-
um samtímis og steypa kjall-
arann á þeim öllum og láta
síðan sumarheyskapinn liggja
úti á túni? Svipað hefur skeð
hér í sjúkrahúsmálum bæjar-
ins. Það eru aðeins sjúkir
menn, sem ei,ga að liggja úti,
án aðstoðar samfélagsins. Það
var reynt að fá bæinn til sam-
starfs að koma upp Lands-
spítalanum nýja, en við það var
ekki komandi. Tröllaukið „Bæj
arsjúkrahús“ var sýnt í bláu
bókinni fyrir hverjar undan-
farnar kosningar.
Bæjarsjúkrahúsið er nú bú-
ið að steypa upp að nokkru,
en það kemur engum veikum
manni að gegni í náinni fram-
tíð.
Þarna gætir sama óhófsins
og íburðar og við Heilsuvernd-
arstöðina. Spitalinn sjálfur á
að vera 6 hæðir auk kjallara
(mistök urðu með kjallarann,
sem kostaði Vz milljón, en það
■köllum við nú smámuni).
Óhemju mikill turn er þarna
fyrirhugaður, skal hann rísa 7
hæðir yfir sjálfa byggingu, svo
auðvelt ætti að vera fyrir vænt
anlegt stairfslið spítalans, að
fylgjast vel með „Spútnikum
og Könnuðum framtíðarinnar.
Þessi -gífurlegi -turn er svo
rammbyggilegur, að undirstöð-
ur hans eru að miklu leyti járn
og veggþykkt hans neðantil er
1 metri!
Allt er hús þetta gert eins
dýrt og frekast er kostur, allir
hliðarveggir eru járnbentir svo
hraustlega, að slíkt hefur
aldrei sézt nema við brúar-
smíði, þar sem aka skal 10
6. grein
tonna hlöðnum bíl. Það er
mjög ánægjulegt að ge.ta haft
hluti vandaða, en einhvers
staðar þurfa þó takmörkin að
vera. — Ég er viss um að þó
himinn og jörð fyrirfærust, þá
mundi Bæjarsjúkrahúsið okk-
ar svífa óbrjótanlegt í geimn-
um. í þessum sjúkrahúsmálum
okkar hafa orðið sorgleg mis-
tök, sem erfitt er að afsaka.
Vitanlega átti að byggja 1
spítala fyrst og koma honum
upp fullgerðum. Og það væri
til -staðar nú, ef okkar litla
þjóðfélag hefði haft samvinnu
í stað sundrungar um þetta
þjóðmál.
Það verður ekki skilið svo
við þetta mál, að minnast ekki
nokkrum orðum á Fæðingar-
deildina. Rekstur hennar ann-
ast bær og ríki í félagi. Mikil-
hæfur læknir veitir henni for-
stöðu, sem er Pétur Jakobsson,
.störf hans þarf ekki að fjöl-
yrða um, þau eru viðurkennd
af öllum. Þessi -stofnun er
löngu orðin allt of litil. Reykja
víkurbær átti þess kost að
byggja við hana, en það vildu
forustumenn bæjarins ekki
taka í mál.
í stað þess er rokið í það
að byggja nýja fæðingar-
deild á horni Eiríksgötu. Gam-
all húshjallur, sem bærinn á,
er byggður upp að innan, þar
á að setja upp fæðingadeild
án læknis eða skurðstofu, sem
sagt II. fl. fjTÍrtæki; slitið úr
sambandi við aðal fæðingar-
spítala landsins. í þessa dæma-
fáu ráðleysu, er nú búið að sóa
,að sögn fróðra manna, 3 mill-
jónum. í gamalt hús, sem aldr-
ei verður nema vandræða
kofi. —
Þarna er ein ný — synd bæj-
arstjórnar íhaldsins, og voru
þó nógar fyrir. —
A.B.C. framh.