Tíminn - 21.01.1960, Page 9

Tíminn - 21.01.1960, Page 9
TÍMINN, fimmtudaginn 21. janúar 1960. « 15 — Ekki eins langt og þér kannske haldið, svaraði' Rósa munda, — þó að ég sé hvorki gráhærð né gigtveik. En ég ætlaði að fara að segja, þegar gripið var fram í fyrir mér, að mig langar þá alltaf til að velta mér ofan brekkuna, eins og þegar ég var krakki. — Og hvað er því til fyrir- stöðu? spurði Tom skelli- hlæjandi, þegar hann hugs- aði sér Rósamundu velta sér ofan brekkuna. — Hvað skyldi vera því til fyrirstöðu, ungfrú Rósamunda? — Velsæmið, venjurnar! svaraði hún. — Mikil ósköp! sagði María Gregson brosandi. — Hvað þurfum við að vera að kæra okkur um venjur á slíkum dýrðardegi? — f>að sýnist nú raunar varla vera mikil ástæða til þess, sagði' Rósamunda. — Það er miklu skemmti- legra að fara í feluleik, sagði Tom af lævísi sinni'. — Æ-nei, hann er svo leið inlegur, sagði Rósamunda. Tom vildi þá veðja um þaö, að Rósamundu myndi ganga illa að finna, ef hún ætti að leita. — Um hvað viltu veðja? spurði' Maria. — Eg skal gefa yður nýja hanzka, sagði Tom við Rósa- mundu, — en ég ætla ekki að segja hvað ég áskil mér, ef ég vinn veðmálið, fyrr en ég sé hvort ég vi'nn. — Þú hefur rangt við, Tom, sagði systir hans hlæjandi. — Mér er alveg sama, sagði Rósamunda. — Eg er viss um að vfnna. Það er bara klaufa skapur að geta ekki fundið i feluleik; þaö er ekki stór vandi. En það fóru nú samt leikar svo, að Rósamundu gekk full- erfiðlega að finna, og á end- anum neyddist hún tii að spyrja Tom í vandræðum sín um, hvað hann ætlaði að setja upp. — Það skal ég segja yður í blómagarðinum, svaraði hann. — Við skulum koma og skoða Paradísiha hennar Maríu, sem við köllum svo. Það var búið að sýna Char iottu þessa Paradís, svo að þau Tom og Rósamunda gátu veríð þar i einrúmi, og það hefur hann ef til vi'li verið búinn að hugsa sér fyrirfram. Ailt fyrir það var Tom orðinn svo þegjandalegur þegar þangað kom, að Rósamunda fór að stríða honum á þvi. — Ef satt skal segja, þá liður mér hálf illa, sagði' Tom undirieitur, og vildi ekki' undir eins láta uppskátt, hvað honum bjó í huga. — Það er ilia farið, sagði Rósamunda. — Eg bjóst við að þér munduð segja það, stundi hann upp svo aumkvunar- lega sem honum var mögu- legt. — Já, svaraði hann, enn eymdarlegri. — Að eiga mi'g, Rósamunda! — Hann hélt svo áfram í miklum ákafa: — Eg elska yður svo heitt, hj artað mitt — ungfrú Fi'eld- I ing ætlaði ég að segja — að | ég tek út hreinar og beinar ' þjáningar. , I Rósamunda rak upp skelli' hlátur, en varð svo allt í einu j alvarleg, því að henni skildist að þetta myndi vera alvöru- < mál. | — Eg veit ekki' aimennilega við hvað þér eigið, herra Gregson, sagði hún. — Ó-jú, þér vitið það vei, svaraði Tom, og var nú hinn kannske flasa að þessu, og áfjáðasti. — Yður finnst ég ekki hafa hugsað það nógu vel, en undir eins og ég leit yður í fyrsta sinn, datt mér í hug að þarna væri einmitt stúlka handa mér. Haldið þér að þér gætuð ekki láti'ð yður þykja ofurlitið vænt um mig? ( Hann var nú orðinn mjög alvarlegur og greip um báðar hendur hennar og titraði' all- ur af geöshræringu. — Eg veit að yður kemur þetta á óvart, hélt hann á- fram, — en ég hef verið svo dauðhræddiur um, að þiessi Martei'nn Dungal kynni þá og þegar að koma í Ieitirnar, i og að þér mynduð þá ekki líta við mér. Eg veit að það er heimskulegt að tala svona, en ég mátti til að segja yður, góða Rósamunda, hvað mér lá á hjarta, og að ég hef elsk að yður frá því fyrsta að ég sá yður, þó að þér hafið ekki orðið þess vör. Þér verðið að muna það, að mér þykir svo innilega vænt um yður, og þaö er ekkert það til, sem ég ekki vildi gera yður til geðs, ef þér vilduð leggja út í það að játast mér. — Þér gerið mig alveg ör- vi'ta, sagði Rósamunda, þegar ofurlitið hlé varð loksins á fyrir honum. — Eg hélt að fólk þyrfti að kynnast árum saman, áður en það tæki í mál að fara að gifta si'g. — Ja — nei — nei, svaraði Tom undir eins. — Faðir minn bað móður minnar þeg ar hann sá hana í þriðja sinn, og svo giftust þau rétt þar á eftir. En ég veit það, að sam- farir þeirra urðu hinar ástúð legustu, og faðir mi'nn harm- aði hana ákaflega þegar hún dó. Og segið þér mér nú, góða bezta — þykir yður ekki svolítið vænt um mig? — Jú, svaraði hún hikandi. — Það getur verið. — Þá er allt í bezta gengi, sagði' Tom, — og yður fer að þykja vænna um mig, þeg ar þér kynnist mér betur. Eg er eihri af þeim mönnum sem segja má um, að hjartað sé gull, þó að hamurinn sé óálit legur. — Mér sýni'st þér vera full- laglegur, sagði hún hrein- skilnislega. — Það er fyrirtak! sagði Tom og varð glaður við. — Segið þér þá já fyrir alla muni, og ég skal lofa yður því að yður skal aldrei iðra þess. — Viljið þér ekki gefa mér dálítinn frest til umhugsun- ar? spurði hún; — svo sem einn eða tvo daga. — Einn eða tvo daga, sagði' hann og sá, að hún var að ganga úr greipum sér. — Ef ég gef yður frest til umhugs- unar, þá sjáið þér strax hvað dæmalaust flón ég er — eða að eitthvað verður þá til hindrunar — og þá hef ég ekki önnur úrræði en að stytta mér aldur. — Bara þangað til á morg- un, sagði hún i bænarrómi, og vissi' ekki vel, hvernig hún átti að taka þessu. — En þér ætlið að segja já, hvað sem ööru líður. Er ekki svo? — Ekki er ég nú viss um það, sagði hún, — en ég skal gera það sem ég get fyrir yður. — Segið þér mér aðeins eitt, sagði hann. — Hafið þér augastað á nokkrum öðrum? — Nei, svaraði' hún hrein- skilnislega. — Nei — hér er ekki um neinn annan að ræða. Þetta varð hann að gera sér að góðu, en hann lei't ekki af henni augunum það sem efti'r var dagsins, og Rósa- munda fann, að sér myndi veitast erfitt að neita hon- um, ef hún kæmist að þeirri' niðurstöðu. Þegar þær Rósamunda og Charlotta komu heim á bú- garðinn, sá Rósamunda að Guy og fáðir hennar voru venju fremur sviþþungir og gat hún sér þess til, að ein- hver ný vandræði hefði borið að höndum viðvíkjandi' veð- inu og að einhver ógæfa vofði yfir. — Guy, sagði hún jafn- skjótt og hún gat náð tali' af bróður sínum svo að aðrir heyrðu ekki. — Hefur nokkuð nýtt komið fyrir? Þið feðg- arnir eruð svo dapurlegir, að ég óttast að þetta hafi farið enn á ver en á horfðist. — Við höfum nýlega frétt, sagði Guy, — að Hassel þessi' hafi skrifað Norton mjög bit- uryrt bréf og sagt í því, að frestur sá, sem hann hafi gef- ið okkur, sé nú þegar á enda og að hann ætli' að láta okk- ur fá þrjá mánuði til þess að undirbúa burtför okkar héðan. Faðir okkar er alveg ráðþrota eins og geta má nærri og þetta tekur mjög mikið á hann. .... fspanft yður hlaup r írílþ murgra. verzkua.! OÓRIMM. <1 ÖUUM «! ^ - Ausburecaraeti Nýnppbvottavél til sölu. Vaskar upp og þurrkar fyrir 4. manna fiöl- skyldu. vJppl. í síma 14663. — Æ, getum við þá ekkert gert, Guy? spurði hún ótta- slegin. — Ekki held ég það, svaraði' hann og leit undan, svo að hún sæi' ekki hve þungt hon- um féll þetta. — Við getum ekki borið frarn neina trygg- ingu, sem gæti komið i veg fyrir þetta þó að ekki væri nema um stundarsakir. Eg held ég gæti' gifzt hvaða keii. ingarnorni sem væri, ef húa aðeins væri nógu rík, til þese að firra föður mnn þessuia vandræðum. Allt í einu var sem ljóo£ væri brugðiö upp fyrir Rósæ- mundu, og sá hún nú leið tf:. þess að bægja sjálf þessu böííi frá ástvinum sinum. s. ) úlpan Vinsælasta kuláaflíkin á bcrn og unglings Fæst hjá: VALBORG, Austurstræti 12 SÓLEY, Laugavegi 33 MARTEINI, Laugavegi 31 LÓTUSBÚÐINNI, Hafnarfirði og víðast út um land. Heildsölubirgðir: SOLIDO umboðs- og heildverzlun Vesturgötu 25 — Simar 18860 — 18S50 Mórverk Menn vanir múrverki vilja taka að sér verk í nágrenni Reykjavikur eða austur í | sveitum. Upplýsingar í síma ' 34971 frá kl. 4—6 fimmtu- dag og xostudag. >>:>:*:>:>:*:>:>:>:*:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:3»:»:4:'*:'*''>->:4“','-'4''‘4-’*-’'*--*‘'*~*'^ Flugfreyjustörf Frestur til að skila umsóknareyðublöðum um flug- freyjustörf hjá felaginu, hefur verið framlengdiír til 27. janúar. Umsóknareyðublöð eru afhent s skrifstofu félagsins Lækjargötu 4, Reykjavík e* hjáafgreiðslum þess á eftirtöldum stöðum: Akureyri — Eigiisstöðum — ísafirði og Vestmanr\3° eyjum. -------------- /C£/A A/UA //? (*:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>;>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>.>:>:>:>:>:>:>:>;>:>:»:>:>:>:>:»:»:>»st Góð fjárjörð Jörðin Innri-Lambadalur í Dýrafirði er til kaups cg ábúðar í næstu fardögum. Semja ber við eiganöa. og ábúanda jarðarinnar, Guðmund Bjarnasoa, sími um Gemlufell. ýsing Kaupfélagsstjórastarfið við Kaupfélag Dýrfirðinga er laust til umsóknar nú þegar. — Þeir sem á- huga hafa fyrir starfinu, snúi sér til formanas kaupfélagsstjórnarinnar, Jóhannesar Davíðssonar, bónda Neðri-Hjarðardal, eða Kristleifs Jónssonsr, fulltrúa í Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem ge:a allar nánari upplvsingar. Umsóknarfrestur til 1. marz. ■ Stjórn Kaupfélags Dýrfirðtnga ! Fóstra rnín, Guðríður Jakobsdóttir, Hávallagötu 3, lézt í Landakotsspitala 19. þ. m. Erna Óskarsdóttlr. r; l:>' I *

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.