Tíminn - 28.02.1960, Blaðsíða 9
TtlINN, stuumdagbui 28. febrúar 1960.
9
Tilkynning
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á smjörlíki frá og með 27 febrúar
1960.
Gegn miðum Án miða
Heildsöluverð, hvert kg. . . kr. 9.92 kr. 18.25
Smásöluverð, hvert kg. . . — 10.80 — 19.50
Reykjavík, 26. febrúar 1960.
VerSlagsstjórinn.
•v»v«v»v»v»v»v»v»v«v
Málverk frá íslandi
eftir ameríska málarann
PONSI
Bogasal Þjóðminjasafnsins 27. febrúar—8. marz
1960 kl. 11—22 daglega.
Innllega þakka ég öltum þelm, er sýndu mér vinsemd og samúð
við andlát og útför elglnmanns mins,
Hinriks Guðmundssonar,
oddvlta á Flateyri.
Guðrún Eiríksdóttir.
75 ára: Frú Guðlaug Sveinsdóttir
fyrrv. húsfreyja á Hvilft í Önundafirði
f dag er mér í hug vestfirzk
sæmdarhúsfreyja og gömul vin-
kona, sem nú fyllir sitt 75. aldurs-
ár. Það er frú Guðlaug Sveinsdótt-
ir fyrrum húsfreyja á Hvilft í
Önundarfirði. Og vissulega á hún
það margfaldlega skilið, að ég
muni þennan dag og sendi henni
kveðju.
Frú Guðlaug Sveinsdóttir er
fædd að Plateyri 28. febrúar 1885.
Voru foreldrar hennar hjónin
Sveinn skipstjóri Rósinkransson
frá Tröð og Sigríður Sveinbjarnar-
dóttir frá Skáleyjum á Breiðafirði,
alsystir sr. Jóhanns Lúthers prests
að Hólmum í Reyðarfirði. Voru
þetta merkishjón af sterkum
stofni, vel kynnt og metin, —
Svcinn skipstjóri talinn mikill um
svifa- og atorkumaður, eins og
þeir frændur fleiri og frú Sigríður
afbragðs kona, glæsileg ásýndum,
gáfuð og hjartaprúð. Þau hjón
áttu saman 9 böm er upp komust,
7 syni og 2 dætur, og voru þeir
Ólafur vélfræðingur og skipaskoð-
unarstjóri og Guðmundur skip-
stjóri þeirra kunnastir, en öll
voru þessi börn hið mesta myndar
og atgerfisfólk. Eru nú 2 synirair
á llfi, þeir Jón bóndi á Hvilft og
Matthías kaupmaður á ísafirði,
svo og dæturnar báðar, Guðlaug,
sem hér verður einkum getið, og
María húsfreyja í Osló.
Frú Sigríður Sveinbjarnardóttir
var ekkja orðin, er ég kynntist
henni, og dvaldist á Hvilft hjá
Guðlaugu dóttur sinni og tengda-
syni, ástfólgin móðir og amma.
En meirihluta þeirrar jarðar
höfðu þau Sveinn keypt um 1890,
flutt þangað og búið þar síðan. En
Hvilft er skammt innan við Flat-
eyrarkauptún og vel í sveit sett.
Og á Hvilft ólst frú Guðlaug upp
hjá foreldrum sinum í stórum
systkinahóp og á mannmörgu og
athafnasömu heimili og reglusömu.
Enginn skóli jafnast á við 6l£kan
gróðurreit. Og á Hvilft hefur hún
átt heima alla ævi síðan og þar
unnið sitt veglega ævistarf.
Ung að áram fór frú Guðlaug
til Noregs og dvaldist þar um 3ja
ára skeið. Gekk hún þar í hús-
stjórnarskóla, en kom svo heim
og giftist 5. nóv. 1910 og tók þá
þegar við húsfreyjustörfum á
Hvilft. Maður hennar var Finnur
Finnsson, sonarsonur Magnúsar
Einarssonar bónda þar og skip-
stjóra, sem var á sinni tíð einn
ágætasti vinur og stuðningsmaður
Jóns forseta og varaþingmaður ís-
firðinga um eitt skeið. Var Magnús
alhróðir þeirra Torfa á Kleifum
og Ásgeirs í Kollafjarðarnesi o,
á Þingeyrum, en þetta voru þjó>
málagarpar á þeirri tíð, sem kunn
ugt er, og íslenzkir inn í hjarta-
rætur.
Finnur Finnsson var afbragðs-
maður og svo vel kynntur í heima-
sveit sinni, að hún gerði hann
sjötugan að heiðursborgara sinum.1
— Hann er nú látinn fyrir nokkr-
um árum.
Vel man ég enn septemberkvöld-
ið fagra fyrir tæplega hálfri öld,
er við hjónin með barn á 1. ári
riðum út Hvilftarströndina á leið
til Flateyrar, þar sem beið mín
vandasamt starf meðal ókunnugs
fólks. Þá er forvitinn hugur við-
kvæmur og meyr. — Margs spurði
ég fylgdarmanninn meðan hestarn
ir lötruðu út veginn þetta kvöld.
m. a. um nafn þeirrar jarðar, þar
sem nýtt og mikið steinhús reis
hátt á hægri hönd. Það var Hvil-ft
og þar bjuggu ung og atorkusöm
hjón, sagði hann, sem vafalaust
myndu verða stórrík.
Hefur mér oft komið þessi spá
i hug því að hún hefur rætzt á hinn
bezta veg, — ríkidæmi hamingju-
sams hjúskapar og barnaláns. —
Og víst átti ég eftir að finna frá
Hvilft andblæ ríkidæmis þess hug
arfars og hjartaþels, sem lyftir
huga til hærra marks og er mikill
styrkur í starfi og gleðigjafi. Fyrir
það er ég í þakkarskuld. Fáum er
meiri þörf skilnings og samúðar
en kennaranum. Slíkt „innlegg"
er vísast til að gefa háa vexti, sem
jiemendur hans njóta. Á Flateyri
var gott að vera innan um úrvals
fólk og þar ber Hvilft hátt í huga.
Hvilft er ekki .stór jörð, eða
var ekki þá, þótt nú sé búið að
bæta hana stórum og stækka. Og
ekki var bú þeirra Guðlaugar og
Finns stórt, enda bjuggu þau ekki
á allri jörðinni. En svo vel og far-
sællega var búið, svo vel unnið og
slík ráðdeild sýnd, að þau hjón
voru alla tíð fremur veitandi en
þurfandi, og komu þó upp stórum
barnahóp, 6 s~..um og 5 dætrum,
er öll voru kostuð til menntunar,
synimir allir stúdentar, og fjórir
þeirra luku háskólaprófi og dæt-
urnar 4 gagnfræðaprófi og ein
kennaraprófi.
Og þessi börn komu eitt af öðru
inn í .skólann minn á Flateyri með
hið ágætasta veganesti að hei-ian
— fljúgandi læs, háttprúð og kapp-
söm að hverju sem þau gengu og
öll prýðilega gefin. Og þannig hafa
þau reynzt á námsbraut og í slarfi,
— arfurinn að heiman hefur reynzt
þeirn dýrmætur.
Ætla má að nóg hefði verkefr.ið
verið heima við bú og böra, svo
vel sem slíkt var rækt, og mundi
svo flestum hafa reynzt. En atorka
þeirra Hvilftarhjóna var svo frá-
bær og áhugaefnin svo brennandi,
að þau eyddu utan heimilis margri
dýrmætri stund í störf að hug-
sjóna- og félag.smálum. Þar bar
Góðtemplarareglan og binc . .dis-
starfið hæst. Það var þeim sam-
eiginlegt áhugaefni og hjartans
mál, er þau fórnuðu miklum tíma.
Og samvinnuhugsjónin átti þ..u að
hollvinum, auk þess sem frú Guð-
laug tók virkan þátt í félagsstörf-
um kynsystra sinna. — Var undra-
vert hve miklu þessi .samhentu
heiðurshjón og ágætu þegnar
fengu áorkað.
Frú Guðlaug Sveinsdóttir er
fríðleikskona, hreinlynd og ör til
geðs og gerðar, prýðisvel ge. . jg
frábær að dug og kjarki. Hún er
kona trúrækin af hug og hjar-ta,
og að öllu hin ágætasta kona og
móðir. Hún má í dag líta á liðna
tíð með glöðum og þakklátu hug.
Hún hefur verið hinn trausti og
trúi þjónn í lífsins ríki og skilað
miklu dagsverki. Og glöð og von-
góð mun hún líta fram á veginn,
— þessa heims og annars, örugg
og sterk í trú sinni á lifsins guð
og eilífa tilveru. Slíkt lífsviðhorf
er hamingja og guðsgjöf.
Svo sem áður er getið varð þeim
Hvilftarhjónum, Guðlaugu og
Finni, 11 barna auðið og lifa 10
þeirra:
Sveinbjörn, hagfræðingur, kv.
Thyru Olsen.
Ragnheiður, kennari, g. Guðst.
Sigurgeirssyni.
Hjálmar, viðskiptafræðingur, kv.
Doris Walker.
Sigríður, hjúkrunarkona, gift
David Tate, verkfr.
Sveinn, lögfræðingur, kv. Her-
dísi Sigurðardóttur.
Jóhann, tannlæknir, kv. Kristve:gu
Björnsdóttur.
María, hjúkrunarkona, ógift.
Málfriður, hjúkrunarkona, gift
Marías Guðmundssyni.
Kristín, nuddkona, gift Garðari
Fenger.
Gunnlaugur, stúdent, bóndi á
Hvilft, kv. Sigríði Bjarnadóttur.
Jakob, .stúdent, var við lyfja-
fræðinám, en er látinn, ókv.
Auk sinna eigin barna ólu þau
hjón upp einn fósturson, Leif Guð-
jónsson að nafni.
Að svo mæltu sendi ég nú frú
Guðlaugu Sveinsdóttur innilegar
hamingjuóskir með áfangann og
unna sigra, þakka henni af alhug
ágæta viðkynningu og samstarf og
b'ð henni og ástvinum hennar
blessunar um alla framtíð.
Snorri Sigfússon.