Tíminn - 03.03.1960, Qupperneq 2
I
TÍMIfíN, ftomtadaginn S.^magUWfl.
Lceknafélag Reykjavíkur efndl tfl velzlu I Framsóknarhúslnu vlð Frlklrkjuveg s. I. laugardag tll þess að mlnn-
ast M éra afmaells félagslns, sem var í október s L Vegna annrfkls lœkna og annarra atvlka reyndlst ekkl
unnt að hafa hátfðavelzlu nálægt afmællsdeginum og var hennl þvl frestað þar ttl nú. Hóflð var fjölsótt og eltt
hlð mesta og vegtegasta, sem læknafélaglð hefur haldlð. Forsetl íslands hr. Ásgelr Ásgelrsson ávarpaðl sam-
kvæmlð en ræðu fluttl formaður félagslns, Arlnbjörn Kolbeinsson, landlæknlr Slgurður Slgurðsson, hellbrlgðls-
málaráðherra Bjarnl Benedlktsson og forsetl bæjarstjórnar Gunnar Thoroddsen ráðherra. Fyrlr mlnnl kvenna
mæltl Dr. med. Óskar Þórðarson en fyrlr mlnnl íslands próf. Guðmundur Thoroddsen. Undlr borðum var
flutt afmælisdrápa „Domus kvlða medlca", sem Ólafur Tryggvason hafðl samlð, elnnlg var flutt afmælis-
kantata eftlr Þórarlnn Guðnason lækni, var hún flutt af Árna Tryggvasynl lelkara og fleirum. Góður rómur
var gerður að skemmtlatrlðum þessum og höfundum vel fagnað af velzlugestum. Skeyti og blóm bárust félag
Inu vfðs vegar að.
Njasalendingum
verði liðsinnt
Áskoru’n háskólastúdenta til ríkisstjórnarinnar
Farið þið til
Sovét í sumar?
Tveir fulltrúar INTOURIST komu hinga9 til
lands og ræddu um möguleg ferðamanna-
skipti milli Sovéts og íslands
Agadir
Nýlega komu tveir fulltrúar
sovét ferðaskrifstofunar In-
tourist hingað til lands.
Dvöldu þeir hér í þrjá daga og
ræddu við íslenzka aðila um
möguleika á ferðamannaskipt-
um milli Sovétríkjanna og ís-
lands á næsta sumri.
Annar þessara manna var for-
stjóri Intourist á Norðurlöndum,
Nadzaroff. Ferðalög milli þessara
tveggja ríkja hafa verið mjög lítil,
en nú er vaxandi áhugi fyrir að
auka ferðarnannaviðskipti.
Hópar og einstaklingar
Bæði getur komið til greina ein-
staklingsferðir og hópferðir. Sovét-
ríkin hafa nú verið opnuð ferða-
fólki mun meira en áður hefur
verið, og margt gert til þess að
búa í haginn fyrir það. Hvort sem
um er að ræða einstakling í eigin
híl eða hópferðir í stærri bílum
býður Intourist upp á margar mis-
munandi leiðir og aðhúnað, hvort
sem menn vilia heldur eyða ferð-
Aðalfundur full-
trúaráðs Fram-
sóknarfél
Kópavogi
1
Aðalfundur fulltrúaráSs
Framsóknarfélaganna í Kópa-
vogi verður haldinn í Barna-
skólanum við Digranesveg
föstudaginn 4. þ. m. síðdegis.
inni í flakk milli sögufrægra staða,
safna og fagurs landslags, eða
njóta hvíldar einhvers staðar á
fallegum og þægilegum stað og
sitja þar um kyrrt.
Kostnaður
Kostnaður og uppihald er að
mörgu leyti mjög svipað og á
Norðurlöndum, þótt taka verði til-
lit til þess að ferðar að og frá eru
mun lengri og þess vegna dýrari.
Hins vegar býður Intourist upp á
mjög hagstæð fargjöld innan lands,
hvaða farartæki sem notað er.
Er ekki að efa, að margir muni
vilja nota sér tækifærið til þess að
kanna þessar slóðir, sem allflestum
fslendingum eru ókunnar.
V-Þjóöverjar
á móti SAS
NTB—Khöfn, 1. marz.
Umræður um loftferðir milli
Vestur-Þýzkalands og Skandinavíu
voru teknar upp að nýju. síðdegis í
dag í utanríkisráðuneytinu í
Khöfn. Endalok þessara viðræðna
munu verða mjög mikilvæg fyrir
framtíð SAS-flugfélagsins.
Fram eru komnar óskir af hálfu
V-Þjóðverja um að draga verði
verulega úr rétti SAS til flugs á
fiugsvæði V-Þýzkalands með tilliti
til þátttöku Vestur-Þjóðverja í
fiugi í Evrópu. Sams konar fundir
hafa verið haldnir í Bonn og Oslo.
Talið er að þessum fundarhöldum
ljúki á fimmtudag og að þá verði
ákvörðun tekin.
(Framhald af 8. síðu).
af þeim 19, sem sluppu lifandi
úr Saada-hótelmu. En þar fórst
mjög margt fólk. Þá er kunnugt,
að sænski rithöfundurinn Lund-
quist og kona hans Maria Wines,
sem einnig er rithöfundur, komust
ómeidd úr rústum annars hótels.
Frá því er m. a. sagt, að utar-
lega í borginni hafi staðið hæli fyr
ir munaðarlaus börn — 100 börn.
Húsið hrundi og börnin öll nema
fimm létu lífið. Eitt barnið fannst
í rústunum og var að biðja grát-
andi um morgiunmatinn sinn.
Hjálpin streymir að
Fyrstir til að veita bágstöddum
í Agadir aðstoð voru franskir sjó-
liðar frá flotastöð skammt suður
af Agadir. Þar varð ekkert tjón.
Er rómuð framganga þessara
fyrstu björgunarmanna, en þeir
máttu sín lítils. Rauði krossinn
sendi þegar út áskorun um hjálp.
Ríkisarfinn Moulay Hassan stjórn
ar björgunarstarfinu í eigin per-
sónu. Hann rómar mjög hversu
tekizt hafi á ótrúlega skömmum
túna að skipuleggja aðstoð erlend
is frá.
Loftbrú
Loftbrú hefur verið komið á
frá Agadir. Eru það stórar flutn-
ingaflugvélar frá flota- og flugher
Bandaríkjanna og einnig frá Frakk
landi og Spáni. Frá birgðastöðvum
herjanna eru fluttar birgðir af
matvælum, teppum, fötum og
tjöldum, auk lyfja og margs ann-
ars. Bráðabirgðaskýlum er verið
að koma upp fyrir fólkið, sena
bíður úrvinda af þreytu og harmi
í eða umhverfis borgarrústirnar.
Flugvélarnar flytja það brott frá
þessum skelfingarstað eins hratt
og unnt er, fyrst særða og sjúka.
Að minnsta kosti 35 flugvélar eru
nú í stöðugum flutningum. Búizt
er við að 15 skipum, flest herskip-
um, til Agadir á morgun. Flytja
þau vistir, tæki og starfsfólk.
Læknar og hjúkrunarlið
Frá París komu i dag 80 læknar
og lijúkrunarkonur með flugvél.
Fiugvélar komu einnig frá Portu-
gal, Hollandi, Spáni, Bretlandi o.
fl. löndum, allar með lyf og vistir,
Á almennum fundi háskóla-
stúdenta s 1. laugardag um
beiðni Njasalandsmanna að
íslendingar veiti fulltingi sitt
til þess aS mannréttnidanefnd
Evrópuráðsins fjalli um mál
dr. Hastings Banda, var sam-
þykkt í einu hljóði áskorun til
ríkisstjórnarinnar um að
verða við beiðni Njasalands-
manna.
f upphafi fundarins flutti Thor-
olf Smith fróðlegt erindi um þróun
og ástand mála í Njasalandi og
rakti þá atburði, sem leiddu til
handtöku dr. Hastings Banda, for-
ystumanns í þjóðfrelsishreyfingu
Njasalands.
í fundarlok voru lagðar fram
tvær tillögur frá Stúdentaráði og
voru þær samþykktar einróma.
Önnur tillagan var áskorun til
ríkisstjórnarmnar um að verða við
Skautamót
Knattspyrnufélagið Þróttur hef-
ur ákveðið að gangast fyrir skauta
imóti á Tjörninni um næstu helgi,
ef veður leyfir. Reppni hefst kl. 2
báða dagana. Á laugardag verður
keppt í 500 m. og 3000 m. fyrir
fullorðna og í 500 m. fyrir ungl-
inga, en á sunnudag í 1500 og 5000
m. og 1000 im. fyrir unglinga. Þátt
taka er öllum heimil, og tilRynn-
ist þátttaka til Ólafs Jóhannsson-
ar í síma 18946 eða 34020.
en sumar einnig með lækna og
hjúkrunarlið. Norðurlöndin sendu
einnig flugvél og voru með henni
læknar og mikið af lyfjum.
Unnið er af ofurkappi að björg-
unarstarfinu. Stórvirkar jarðýtur
eru komnar til borgarinnar. Enn
er von til þess að takast megi að
bjarga einhverjum af þeim, sem
liggja grafnir í rústunum, en sú
von minnkar eftir því, sem lengra
líður.
Borgin varð að sjálfsögðu vatns-
laus og vatnið í þeim vatnsbólum,
sem til næst er mengað og stór-
hættulegt. Vatn er nú flutt flug-
leiðis til borgarinnar, en mikil
hætta er talin á að pestir gjósi
upp, einkum taugaveiki. Er bólu-
setning hafin gegn henni.
Þá má loks geta þess, að stjórn-
arblaðið í Kairó hélt því fram í
morgun, að jarðskjálftinn stafaði
af kjarnasprengju Frakka í Sa-
hara, en ekki hefur heyrzt hvort
aðrir taka undir þá fullyrðingu.
beiðni Chiume þingmanns og hin
um að athugaðir verði möguleikar
á því, að stúdent frá Njasalandi
Iverði veittur styrkur til náms við
Háskóla íslands.
BúnaíSarfélagshúsitJ
(Framh at 1 síðu)
.sambandsins þarna nokkru hærri
en því bar að leggja fram.
Framkvæmdir á þessu ári
Sótt hefur verið um leyfi til að
steypa húsið allt í ár. Einnig múr-
húða það, sem hægt er og byrja
á miðstöð. Áætlaður kostnaður við
þetta er 4,5 millj. miðað við gamla
verðlagið en hækkar við efnahags
aðgerðirnar um ca. 1 millj. Æski-
legt væri að geta- einnig keypt
meginið af miðstöðvarefni og eitt-
hvað af gluggarömmum, en þeir
kosta í tvær neðstu hæðirnar á
3. millj. kr.
Sennilegt er að frá Búnaðar-
málasjóði komi um 2 millj. á ár-
inu, Stéttarsambandið ætti að geta
lagt fram 1,5 millj. og á móti
þessu þyrfti Búnaðarfélagið að
leggja um 3 millj.
Notkun hússins
Ekki er enn fullráðið hvernig
húsið verður notað. Ráðgert er að
2 neðstu hæðirnar verði fyrir veit-
ingahús og verzlanir, 2 þær næstu
fyrir skrifstofur og hinar efstu
fyrir gistihús. Leitað hefur verið
eftir við ákveðinn mann að taka
á leigu gistihúsnæðið, en svax ekki
borizt. Einn leigjandi, Grænmetis-
verzlunin er þegar komin í húsið-
Erindi Hjalta Gestssonar var
stórfróðlegt. Sökum rúmleysis í
blaðinu er ekki unnt að birta neitt
úr því í dag en verður gert sfðar.
Tvö nefndarálit
Lögð var fram ályktun aUsherj-
arnefndar um erindi dómsmála-
ráðuneytisins varðandi breytingu
á umferðarlögunum, framsögumað
ur Siggeir Björnsson. Málinu vís-
að til 2. umræðu með 22 samhlj.
atkvæðum.
Ennfremur ályktun búfjárrækt-
arnefndar um erindi hreppsnefnd
ar Dyrhólahrepps varðandi sjóð
fóðurbirgðafélags hreppsins, fram
sögumaður Jóhannes Davíðsson.
Vísað til 2. umræðu með 22 sam-
hljóða atkvæðum.
Næsti fundur Búnaðarþings verð
ur á morgun á sama stað kl. 9,30
f. h. Þá flytur Páll Zóphóníasson
erindi um fóðurbirgðafélög.
Fræðsluerindi F.U.F.
Fræðsluerindaflokkur F. U. F. í Reykjavík hefst á föstu-
dagskvöld f Framsóknarhúsinu. Ólafur Jóhannesson prófessor
mun flytja fyrsta erindið og fjallar þaS um Stjórnarskrána og
helztu þætti löggjafar og framkvæmdavalds.
Allt Framsóknarfóik er velkomið á fundinn, sem hefst
kl. 8.30.
Frá fulltrúaráði Framsóknar-
félaganna í Reykjavík:
Framvegis verður skrifstofa fulltrúaráðs opin sem hér
segir: Mánudaga og fimmtudaga trá kl. 9,30—17,30.
Þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 9,30—
19,00. Laugardaga frá kl. 9,30—12.
Stjórnin.