Tíminn - 03.03.1960, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, fimmtndaginn S. man 1360.
Minningarorð:
Svafar Guðmundsson
fyrrv. bankastjóri á Akureyri
TIL SÖLU
tvö einbýlishús í Kópavogi. Félagsmenn, sem óska
að nota forkaupsrétt sinn að húsunum, snúi sér til
skrifstofunnar, Hafnarstræti, fyrir 8. marz.
Nýlega lézt á ferSaiagi úti 1
Danmörku Svafar Guömundsson
fyrrverandi bankastjóri á Akur-
eyri.
Foreldrar Svafars voru þau hjón
in Karólína ísleifsdóttix og Guð-
mundur Hannesson prófessor. —
Svafar var fæddur á Akureyri 17.
febrúar 1898, og var hann því að
verða 62 ára þegar hann lézt
Hann var elstur af fjórum efni-
legum sonum Karólínu og Guð-
mundar, en þeir eru nú allir látn-
ir á góðum aldri. Ein systir lifir
enn. Það er Anna, myndar og
ágætis kona, sem var gift Jóni
Sigurðssyni frá Kaldaðarnesi.
Kona Svafars var Siignín Þor-
móðs, kjördóttir Guðrúnar Björns
dóttur og Þormóðs Eyólfssonar á
Siglufirð'i. Hún lifir mann sinn
eftir ástrikt hjónaband, ásamt
fjórum börnum þeirra, sem enn
eru í æsku, eða á unga aldri.
Eftir að Svafar hafði lokið
stúdenteprófi við Menntaskólann
í Reykjavík stundaði hann urn
skeis nám í viðskiptafræðum við
Hafnarháskóla og vann síðan um
stund í banka í Þýzkalandi. Gekk
hann síðan í þjónustu Sambands
ífflenzkra mvinnufélaga og starf
aði fyrir það m.a. suður um Mið-
Evrópu. Gg vann hann sér brátt
mikið traust í störfum sínum hjá
Sambandinu.
Þegar Kaupfélag Borgfirðinga
vantaði kaupfélagsstjóra upp úr
1920, eftir að hafa liðið efnalegt
skipbrot, var litast um eftir lík-
legum framtíðar forustumanni
fyrir félagið og jafnframt fyrir
héi’aðið. Þá var leitað til Svafare,
og hann tók boði Borgfiiðinga og
kom til Borgarness.
Gerðist hann þá forstjóri fyrir
félagið um tveggja ára skeið. En
betur að það hefði orðið lengur.
Aðkoman var fremur kaldrana-
leg, þar sem efnahagurinn var
slæmur hjá félaginu og braskhug-
sjónin í hávegum hjá mörgum
þeim, sem mest voru þar ráðandi.
En Svafar tók strax til starfa
með miklum dugnaði og festu.
f>g vonim við margir félagsmenn,
sem hrifnastir voru af samvinnu
hugsjóninni, mjög glaðir að vera
búnir að fá ötulan og staifs’glað-
an forustumann fyrir félagið og
við vonuðum forustumann fyrir
fjölda héraðsmála.
Aftur á móti voru margir
skammsýnii' bændur í héraðinu
með ýmsa efnuðustu og afturhalds
sömiwrtu þeirra í fararbroddi, er
risu upp á móti hinum djarfa og
ákveðna umbótamanni, sem kom-
inn var til trúnaðarstarfa í félags
málum héraðsbúa.
í félaginu hafði ráðið mjög
braskhyggja einstaklingsgróða-
byggjumanna og slíkir menn stóðu
sem veggur á móti því að félagið
gerðist samvinnufélag og hefði
samstöðu með öðrum samvinnufé-
lógum, sem voru byrjuð að mynda
sterka heild samvinnumanna um
allt land.
Kváðu þessir einstaklingshyggju
inenn mjög ákveðið a?j orði (út
af samábyrgð o.fl.) að þeir Borg
firðingar væru svo vel stæðir efna
lega, að það kæmi ekki ttl mála
að fara að standa saman með mönn-
um t.d. norður á Homströndum
eða Laniganesi.
Svafar barðist sem hetja á móti
þe.s<S!um einangrunar hugsunar-
hætti, og fyrir samvinnuhugsjón
inni. Og í þeim bardaga gerði
hann Borgfirðingum þá úrslita-
kosti, að annað hvoit gerðu þeir
kaupfélagið að samvinnufélagi
eða að hann færi í burtu. Og við
þau orð sín stóð hann og fór. En
þótt svona færi sigraði hugsjón
Svafars í héraðinu nokkru síðar.
En þá var hann farinn. En eftir
Svafari sáu sárf allir mestu og |
beztu félagshyggjumenn héraðs-;
in.s.
Þeim var ljóst að vandfundinn
var slíkur festu-, framfara- og.
drengskaparmaður sem hinn ungi'
kaupfélagsstjóri, er var um
tveggja ára skeið í fylkingar-
brjósti félagishyggjumanna Borg-
arfjarðarhéraðs.
í hinni stuttu, en göfugu sögu
Svafars í Borgarfirði, verður hans
jafnan minnzt þar sem eins hins
bezta vormanns á miklum breyt-
ingatímum I héraðinu
Lengst af starfsævi sinni varði
Svafar í þjónustu Útvegsbankans
á Akureyri. Bankastjóm hans ein-
kenndist þar af festu traustleika
og reglusemi eins og öll hans störf
hvar og hver sem þau voru.
Sá, sem þessar línur skrifar,
átti þess kost að kynnast Svafari
vél í nánu samstarfi og samvinnu,
þau tvö ár, sem hann starfaði í
Borgarfirði. Hef ég aldrei þekkt
traustari né tryggari mann en
Svafar af öUum þeim ágætu mönn-
um, sem ég hef kynnzt um dagana.
Við Svafar vorum báðir nokkuð
stífir. En þótt við værum oft sinn
á hvorri skoðun í einstökum mál,-
um, þá sló aldrei skugga á hans
órofa tryggð og hlýleika í minn
garð. Þeir, sem þekktu Svafar bezt,
þekktu líka hve traust og hlýtt
hans skap var á bak við það sem
almenningur skildi oft ekki.
Ég ber innilegan samhuga með
konu Svafars, systur og börnum,
sem nú verða um skeið að horfa
á eftir honum, sem sjáanlegs ná-
komins félaga.
En minningin um göfugan dreng
í nánu samstarfi er ein hugljúfasta
eign hvers manns og þá því dýr-
mætari, sem kynnin hafa verið
nánari. Þess nýtur nú frú Sigrún,
börnin hennar og éinkasystir hins
látna-
Vigfús Guðmundsson.
*
Áttræður: Halldór Sigfússon,
smiður á Dalvík
Hann er fæddur að Brekku í
Svarfaðardal 3. marz 1880, sonur
búandi hjóna þar. Önnu S. Björns-
dóttur og Sigfúsar Jónssonar, er
bæði létust á unglingsái-um Hall-
dórs. Dvaldi hann víða á yngri ár-
um og var mjög eftirsóttur starfs-
maður, enda þótti hann þegar á
unga aldri frábær að dugnaði og
trúmennsku við hvert það verk er
hann skyldi af höndum inna.
Árið 190ð kvæntist Halldór Guð-
rúnu Júlíusdóttur frá S.-Garðs-
horni, hinni beztu konu og dug-
mikilli húsfreyju, og hafa þau bú-
ið á Dalvík lengst af hjúskapar-
árum sínum, þar sem Halldór hef-
ur stundað smíðar og smáútgerð
á eigin spýtur, ræktað land og
haft búfjárnytjar.
Þeim hjónum hefur orðið 5
barna auðið og eru öll á lífi.
Július, vélstj., kvæntur Kristínu
Sigmarsdóttur.
Maríanna, gift Ögmundi Frið-
finnssyni, útgm., Dalvík.
Jófríður, hjúkrunarkona Rvík.
Sigfús umsjónarm., Rvík, kvænt
ur Sigurborgu Helgadóttur.
Björn hárskeri í Rvík, kvæntur
Eiínu Guðbjörnsdóttur.
Halldór Sigfússon er maður vin-
sæll og vel látinn. Hann var orð-
lagður ákafa og dugnaðarmaður
og hefur mörgum rétt hjálpar-
hönd um dagana, og mundi enn
gera ef heilsan leyfi. Hann er enn
glaður og reifur, en kraftar á þrot-
um, enda ekki vonum fyrr, svo
mjög sem hann hefur á þá reynt
um langa ævi — sá mikli dugnaðar
forkur og drengskaparmaður.
í dag munu margir hugsa hlýtt
til þessa heiðursmanns og þeirra
hjóna og þeim óska báðum heilla
og blessunar. Gamall vinur.
G. M. C.
mótor til sölu.
VERKLEGAR
FRAMKVÆMDIR
Brautarhoiti 20. Símar 10161
og 19620
B. S.S.R. Sími 23873.
Þakka innilega mikla vinsemd og góðar gjafir á
fimmtugsafmæli mínu 17. febrúar s.l. —
Bið ykkur öllum mikillar blessunar um
ókomin ár.
Ámi Kjartansson,
Seli.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim er heiðruðu
mig með heimsóknum, skeytum og gjöfum á 75
ára afmæli mínu, 23. febr. s. 1.
Bjðrn Guðmundsson,
Reynihólum, MiðfirðL
ElglnmaBur mlnn og taClr okksr,
Svafar GuSmundsson,
fyrrv. bankastjórl,
andaSlst I Esbjerg 16. fv-brúar 1960.
Útf6rln hefur farlS fram I kyrrþey.
Þökkum samúS.
Slgrón ÞormóSt,
GuSrún, GuBmundvr,
ÞormóSur, Margrót.
MóSlr mln og amma
frú Anna E. Friðriksson
lézt þann 27. febrúar.
Útförin fer fram fró Fossvogskirkju laugardaglnn 5. marz kt 10^0
fyrlr hádegL
Attl óhrfsson
Dfs AfladMHr.
Þökkum Innllega vlnum og vandamönnum fyrlr auSsýnda samúS
viS fráfall og jarSarför
Guðbjargar Hreinsdótfur,
Lltlu Tungu.
Slgurbjörn GuSmundsson.
Hildur J. Thorarensen
lézt að Hrafnistu 2. marz.
Fésturbörn.
Hughellar þakkir færum við öllum þeim mörgu, nær og fjaer,
sem auðsýndu okkur ógleymanlega hjálp I veikindum og vináttu
og samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns og bróður
Guðmundar Jónssonar
Ytrl-HÓI.
Guð blessl ykkur öll.
Margrét Ketllsdótttr,
Helga Jónsdóttlr.
MóSir okkar
Gróh Erlendsdóttir,
lézt 8. þ. m.
JarSarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju 7. þ. m. kl. 2 slSdegls.
Blóm afbeðin.
Börnln.
Kvöldskemmtun í Austurbæjarbíói í kvöld Id. 23,15. - SíSasta siun.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói
Karlakórinn