Tíminn - 03.03.1960, Page 8

Tíminn - 03.03.1960, Page 8
Ofært milli Reykja- víkur og Akureyrar M. Waí. Ffimntadagnin 3. marz 1960. Áskriftarverð kr. 35.00. Akureyri, 2. marz. — Ófærð er nú að verða mikil á vegum í Eyjafirði. Hefur bætt þar á Datt nið- ur um ís Akureyri, 2. marz. Fyrir nokkrum dögum fundu tveir drengir upp á því, að fara könnunarferð út á ísinn á Akur eyrarpolli. Lögðu þeir upp úr Sandgerðisbót í Glerárhverfi og komust allt út að Krossanesi. Þar vildi það til nálægt bryggj- unni, að ísinn brast undan öðrum þeirra og féll liann í sjóinn. Hinn var léttari og bjargaðist í land. Þaut hann þegar til og náði í mannhjálp. Reyndist ísinn ekki manngengur og tókst að kasta kaðli tn drengsins, sem hélt sér í ísbrúnina, og draga hann þann- ig til lands. Má segja að þarna hafi hurð skollið nærri hælum og auðvitað var það tilviljun ein, að ekki skyldu báðir drengirnir fara í sjóinn og liefði þá verið óvíst um leikslokin. Er fullkom- in ástæða til að taka börnum vara fyrir því að hætta sér ekki út á ísinn. E.D. BINGÚ! Vegna geysilegrar aðsóknar að Bingói Félags ungra Fram- sóknarmanna í Framsóknarhús- inu n. k. sunnudagskvöld, og lík- nr fyrir að tugir manna verði frá að hverfa, verður ekki hægt að geyma pantanir Iengur en til kl. 6 í kvöld og verða þær að sækj- ast fyrir þann tíma í Framsókn arhúsið eða á flokksskrifstofuna í Edduhúsinu. Aðalvinningur er eins og kunnugt er 7 daga páska- ferð til Mallorca ásamt einum degi í London. Kaldi í dag er spóð minnkandi norðanátt, en lítið sem ekkert dregur úr frostl. Spáð er 5—10 stigum og ský|uðu. Norðankald- inn er þrálátur og ekkert útllt fyrir að honum aetli að tlnna. í hverjum sólarhring undan- farið.BíIar, sem komu að sunn- an í gærkvöldi voru 12—14 klst. frá Bakkaseli til Akur- evrar. Poilurinn er ísi lagður og fjörðurinn út að Krossa- nesi. Ófært er nú milli Reykja- víkur og Akureyrar. Mjög er nú að verða þungfært á vegum í Eyjafirði. Mjólkurbílamir hafa þó brotizt áfram til þessa. í dag er norðaustan átt en ekki hvöss. Mikii snjókoma öðru hverju c-g 12 stiga frost. Togandi frá Bakkaseli í fyrrakvöld komu hingað til bæjarins 5 vöruflutningabílar. Höfðu þeir farið 6 úr Reykjavík en cinn ók út af á Vatnsskarði, eins og frá hefur verið skýrt í fréttum. Mátti heita að algerlega væri ó- fært í Öxnadalnum. Voru bílarnir 12—14 klst. frá Bakkaseli til Ak- ureyrar. Fór jarðýta fyrir þeim en trukkur dró þá þar sem á því þufti að halda. Pollurinn ísi lagður Akueyrai'pollur er nú allur und- ir ís og nær hellan út á fjörð, allt til Krossaness. Tréskip komast vart lengur leiðar sinnar en þau sem eru úr harðari efnum gjörð, brjót- ast enn í gegn. Fór Drangur t. d. héðan í fyrrakvöld. Er farið eftir rennu, sem tekizt hefur að halda nokkurn veginn opinni til þessa enda fellur snjór alltaf á ísinn, svo seinna frýs. En ef frostharka heldur áfram er viðbúið að leiðin Iokist alveg Stöðugar ógæftir hafa þriðju verið viku. Látlausax ógæftir fyrir Norðurlandi á F.ru alltaf hamfarir úti fyrir og fer því lítið fvrir fiskvinnu nú um stund. E. D. AGADIR: borgin á Atlantshafsströnd Marokko, liggur nú í rústum. Aðeins veggir standa hér og þar á stangli og einstaka bygging — hitt eru rústír. Borgin sem dó 3—6 þús, taldir hafa farizt í Agadir, 5—6 þús. meiddir. 95% borgarinnar í rústum. Öflugt björgunar- og liknarstarf frá mörgum löndum. Allir íbúar fluttir brott. MúhammeÖ V. segir borgarrústirnar vertSa jafna'ðar viÖ jörtSu, en borgina eindurbyggía á einu ári. NTB—Agadir, Marokko, 2. marz. — Jarðskjálftakippirnir tveir, sem á þriðjudag skullu yfir borgina Agadir á vesturströnd Marokko, lögðu 95% allra bygginga í borginni í rústir, í fyrstu var tala dáinna áætluð um eitt þúsund, en hún er nú talin vera á milli 3 þús. og 6 þús. Tala særðra og limlestra er áætluð 5—6 þús. Hörmungar þeirra, sem lifðu ósköpin af, eru ólýsanlegar. Hjálp streymir nú að frá flestum löndum V-Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Jarðskjálftakippirnir eru taldir svipaðir að styrkleika og þeir, sem urðu í Lissabon 1906, en þá fórust þar 15 þús. manns. Húsin hrundu jarðsprungur harðir, að Kippirnir voru svo víða rifnuðu sprungur og gjár í jörðina, en húsin hrundu eins og spilaborgir niður í þær víðast hvar. Nýtízku hús í nýja borgarhlutan- um stóðust hamfarirnar litlu betur en kumbaldarnir í gömlu hverfun- um. Agadir var mikill ferðamanna bær og þar voru nokkur nýtízku hótel. Sum þeirra hrundox að mestu eða öllu leyti og mjög marg ir erlendir ferðainenn munu hafa farizt eða meiðzt. í Agadir bjuggu um 50 þús. manna. Af þeim eru nær 40 þús. heimilislausir. Þreyft og harmþrungið fólk reikar nú um rústirnar í Agadir. Fólk, sem lifði af hamfarirnar og sem komið er til Casablanca eða annarra borga í Marokkó hef ur gefið hroðalegar lýsingar á aí- burðunum. Jarðskjálftakippirnir stóðu aðeins í 25 sekúndur. Hjón, sem komust brott í bifreið sinni og óku í gegnum borgina rétt þeg ar jarðskjálftanum var að ljúka, segjast hafa horft á húsin hrynja að baki sér, séð fólk látið liggjandi í rústunum — margir létust í svefni. Ljósin slokknuðu og nær samtímis gaus upp eldur hér og hvar í rústunum út frá rafmagns- þráðum. Og svo flóðbylgjan, sem fyllti hverja smugu næst sjónum. Þar hafa vafalaust margir drukkn að af þeim, sem grófust lifandi eða limlestir i rústunum. Mohammeð V. konungur í Marokkó fyrirskipaði þegar, að allir eftirlifandi borgarbúar skyldu fluttir brott lil annarra borga. Er sá brottflutningur í fullum gangi. Konungurinn lýsti einnig yfir að Agadir yrði jöfnuð við jörðu, það sem efíir er af henni. En samstundis yrði byrjað að reisa nýja Agadir og skyldi sú nýja borg fullgerð að ári. 19 sluppu frá Saada-hóteli Margir kunnir erlendir ferða- menn voru í Agadir. Þess er getið að Maugham lávarðog rithöf- undur, systur.sonur Somerset Maughams skálds, hafi verið einn (Framhald á 2. síöu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.