Tíminn - 22.06.1960, Síða 5
TfMIWN, nrfðvikiKÍagmn 38. júní 1960.
5
.............. — 1— ----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 111 ^
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj.: Egill Bjamason. Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusimi:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Slíkar eru efndirnar
Fyrir kosningarnar á síðastl. hausti lofuSu stjórnar-
flokkarnir að vinna að stoðvun dýrtíðar og bættum kjör-
um almennings. Leiðin til bættra lífskjara er að efla okk-
ur, sögðu þeir.
í eldhúsumræðunum brá Jón Skaptason upp nokkurri
mynd af því, hvernig stjórnarflokkarnir hefðu efnt þessi
fyrirheit sín. Jón nefndi eftirfarandi dæmi um verðhækk-
anir af völdum efnahagsráðstafananna:
„Magn af hveiti, sem áður kostaði 100 kr. kostar nú
kr. 152,97.
Búsáhöld úr leir, sem áður kostuðu 100 kr„ kosta nú
kr. 141,62.
Bómullarefni, mislitt; sem áður kostaði 100 kr„ kostar
nú kr. 184.51.
Gúmmískótau, sem áður kostaði 100 kr. kostar nú
kr. 186.51.
Timbur, sem áður kostaði kr. 100 kostar nú kr. 157.96.
Þakjárn, sem áður kostaði 100 kr kostar nú 158.78.
Kol, sem áður kostuðu 100 kr. kosta nú kr. 146.25.
Dráttarvélar hafa hæKkað í verði um 66%.
Vörubifreiðir um rúm 62%.
Nýr 75 rúmlesta vélbátur úr eik kostaði áður um 3
millj. en nú um 4,5 millj. kr. eða hækkun um 50%.“
Slíkar eru efndir stjórnarflokkanna á kosningaloforð-
uhum um stöðvun dýrtíðarinnar og Dætt lífskjör.
Bótunum misskipt
Jón Skaptason gat þess í áðurnefndri ræðu sinni, að
stjórnin teldi sig hafa bætt láglaunafólki og millistéttum
upp hina nýju dýrtíð með auknum fjölskyldubótum og
skattalækkun.
Jón sýndi síðan fram á, að fjölskyldubæturnar kæmu
fátækum og ríkum að sömu notum, og til fjölmargs efna-
lítils fólks næðu þær alls ekki. Um lækkun tekjuskatts og
útsvars væri það hins vegar að segja. að hún yrði fyrst og
fremst hátekjumönnum til hagnaðar. en yrði láglauna-
fólki og millistéttum að litlum notum Jón nefndi síðan
dæmi þess, að í fjölmörgum tilfellum fengi hálaunamað-
urinn frá tífalt til tuttugfalt hærri upphæð 1 skattalækkun
en lágtekjumaðurinn.
Slíkt er réttlæti ríkisstjórnarinnar. Vissulega hrökkva
þessar bætur skammt tíl að bæta 'ágtekjumönnum og
millistéttum hinar gífurlegu verðhækkanir Öðru máli
gegnir um hátekjumenn Breytingarnar á skatta- og út-
svarslögunum sýna vel víðhorf stjórnarinnar til stéttanna
í landinu.
„Alvarlegt áfall“
Mbl. heldur enn áfram að tönnlast á því að það hafi
verið mjög klókt af Bjarna Benediktssyni og Guðmundi
í. Guðmundssyni að láta kolfella tillögu um sérstöðu ís-
lands á Genfarráðstefnunni
John Hare, sjávarútvegsmálaráðherra Breta, lítur hins
vegar öðrum augum á þetta. í viðtali, sem Mbl birti ný-
lega við hann, sagði hann m. a.:
„Þið áttuð undir högg að sækja i Genf Það var al-
varlegt áfall, er tillaga yKkar var felld“
Bersýnilegt er á þessu, að Hare telur þessi klaufalegu
vinnubrögð Bjarna og Guðmundar hafa verið Bretum
heppileg. Sá vitnisburður Hare ætti r.ð nægja til þess að
Mbl. og Alþbl. hættu að grobba af framgöngu þeirra
félaga.
/
'/
'/
)
/
'/
'/
)
'/
'/
'/
)
/
/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
)
'/
)
'/
'/
'/
)
/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
)
)
)
)
'/
'/
'/
'/
/
'/
)
'/
)
)
)
)
'/
'/
'/
'/
)
)
/
)
'/
)
'/
'/
'/
)
)
'/
'/
)
'/
)
'/
'/
'/
)
)
)
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
-----------------ERLENT YFIRLÍT -----------------
Erf ið stjórnarf æðing í Kongo
Hætta á borgarastyrjöld, ef samvinna Lumumbu og Kasavubu mistekst?
HINN 1. jú'lí næstkomandi
hlýtur belgiska Kongo sjálf-
stæði sitt og kemur þá nýkjör-
ið þing landsins saman til
fyrsta fundar í Luluaborg. Und-
anfarið hefur verið unnið að
stjórnarmyndun og eru horfur
mjög tvísýnar um, hvort hún
muni takast. Jafnvel er óttast,
að komið geti til borgarastyrj-
aldar og klofnings landsins í
fleiri ríki áður en sjálfstæðis-
dagurinn rennur upp.
Að miklu leyti má rekja þær
ískyggilegu deilur, sem nú eiga
sér stað í Kongo, til lélegrar
og skilningslítillar nýlendu-
stjórnar Belgíumanna. Belgíu-
menn hafa staðið fyrir miklum
verklegum framkvæmdum í
Kongo, Dyggt þar stórar borgir
og hagnýtt ýms auðæfi landsins
á myndarlegan hátt. Þeir hafa
látið sv°rtingja, sem hafa verið
í þjónustu þeirra, fá öllu hærra
kaup og betri kjör en víðast
annars staðar í Afríku. Hins
vegar hafa þeir vanrækt þar
alla alþýðumenntun og að búa
svertingja undir það aih taka
við stjórn landsins Aðeins ör-
fáir innfæddir Kongomenn
hafa hlotið háskólamenntun.
Trú Belgíumanna var sú, að
þeir gætu tryggt sér völd í
Kongo um langa framtíð með
því að.búa sæmilega að svert-
ingjum efnalega, en halda þeim
hins vegar fáfróðum og áhuga-
lausum um stjórnmál Þeir litu
svo á, að það hefði verið mennt-
un svertingja, er hefði átt
mestan þátt í að ýta undir
sjálfstæðisvakningu þeirra í
öðrum nýlendum Afríku, t. d.
brezku nýlendunum. Um nokk-
urt skeið virtist eins og Belgíu-
mönnum ætlaði að verða að
trú sinni því að til skamms
tíma hefur lítið borið á sjálf-
stæðisvakningu í Kongo. Fyrir
fáum misserum stakk hún þó
upp kolli og hefur síðan aukizt
með öllu meiri hraða en annars
staðar í Afríku. Belgíumenn
hafa séð þann kosf vænstan að
láta stöðugt meira og hraðara
undan en búizt hafði verið við,
unz þeir féllust á það að veita
Kongo fullt sjálfstæði 1. júlí
næstk., eins og áður segir.
SJÁLFSTÆÐISTAKAN virð-
ist ætla að verða miklu örðugri
í Kongo en víðast annars staðar
í Afríku vegna þess, hve al-
þýðumenntun er þar takmörk-
uð og landsmenn hafa fengið
litla æfingu í stjóm eigin mála.
Þar er því líka vöntun vel
menntra forustumanna Margir
hafa hins vegar. gerzt til þess
að reyna að gerast þar stjórn-
málaforingjar og skipta þeir
flokkar mörgum tugum er tóku
þátt í þingkosningunum þar á
dögunum Við þetta bætist svo,
að landið er mjög stórt og þjóð-
flokkar því margir og þeir
aldrei titið á landið sem eina
heild fyrr en Belgíumenn sam-
einuðu bað smátt og smátt
seinustu áratugina. Þegar
stjórn Belgíumanna hefur
slappast. hafa því risið upp
sjálfstjórnarhreyfingar víða í
landinu, og í ýmsum landshlut-
um er meiri áhugi fyrir því að
sameinast r.ágrannaríkjunum
en að vera áfram í Kongorík-
inu. Þannig er það allsterk
hreyfing í Neðri-Kongo að sam-
einasr frönsku nýlendunni
Angola og frönsku Kongo og
mynda á þann hátt stort ríki
meðfram strönd Afríku, en slík
ríkisheild var til fyrr á öldum.
Þannig renna margar stoðir
undir það upplausnarástand,
sem nú virðist ríkja í Kongo.
Að sjálfsögðu hefur það ekki
bætt úr skák, að enginn flokk-
ur komst nálægt því að fá
meirihluta í hinum nýloknu
þingkosningum, og verður því
engin ríkisstjórn mynduð þar,
án samstarfs margra flokka.
ÞÓTT margir hafi gerzt til
þess í Kongo að gerast flokks-
foringjar að undanförnu, ber
þó langmest þar á tveimur
mönnum Annar þeirra er
Lumumba, 34 ára gamall fyrrv.
póstmaður, sem er foringi þess
flokks, sem fékk mest fylgi í
kosningunum, og er líka eini
flokkurinn, sem hefur fylgi um
land allt, þó'tt öflugastur sé
hann í Ffri-Kongo, í kringum
Stanleyville. Lumumba vill láta
Kongo vera eina samstæða
ríkisheild og tryggja ríkinu
sterka stjóm. Hann er sagður
taka Nkrumah í Ghana sér til
fyrirmyndar, en virðist þó vera
meiri æsinga- og áróðursmaður.
Hinn er Joseph Kasavubu, sem
er 44 ára gamall, kínverskur í
aðra ættina og hefur hlotið all-
góða menntun á vegum kat-
ólskra. Hann á mest fylgi í
Neðri-Kongo, í kringum Leo-
poldville, og er eindregið fylgj-
andi því, að Kongo skiptist í
sambandsríki með allvíðtækri
sjálfstjórn. Hann er talinn
hóglegri og hyggnari en Lum-
umba, en ekki eins snjall áróð-
ursmaður Belgíumenn virðast
hafa meiri mætur á honum og
draga meira faum hans.
STRAX EFTIIt að kosningar
höfðu farið fram í Kongo, hóf
sá ráðherra Belgíustjórnar, sem
fer með mál Kongos, umleitan-
ir um stjórnarmyndun og fól
hann Lumumba, sem formanni
stærsta flokksins að gera fyrstu
tilraunina. Sú tilraun fór út
um þúfur, því Lumumba vildi
ekki viðurkenna það. og var
Kasavubu þá falið að gera
næstu tilraunina. Sú tilraun
s'tendur yfir enn, og er ekki
talið með öllu útilokað. að hún
heppnist á þeim grundvelli, að
Kasavubu verði forseti, en
Lumumba forsætisráðherra, en
þá greinir þó enn á um vald-
skiptinguna milli forseta og
(Framhald á 15 siðu)
Kongó verður a3 flatarmáli annað stærsta ríki Afríku, næst á eftir
Sudan, 905 þús. ferkm. Landið er auðugt af náttúrugæðum. íbúar
eru um 14 milli.
/
)
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
/
'/
)
)
)
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
)
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
)
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
)
'/
)
)
'/
'/
'/
'/
'/
)
'/
'/
'/
)
'/
)
)
)
)
)
■V..VVX-VW-V-V.VV.V.-V4VV "V.V.VV V.VV