Tíminn - 22.06.1960, Qupperneq 7

Tíminn - 22.06.1960, Qupperneq 7
TÍ'M IN'N, mlgvikudaginn 22. iúní 1960. 7 Nokkru fyrir þinglokin, samþykkti Alþingi tillögu þess efnis frá Sigurvin Einarssyni, að ríkisstjórnin léti athuga, hvort henta myndi íslenzkum staðháttum að fá hingað far- þegaflugvélar, sem framleidd- ar eru í Kanada og sérstaklega eru miðaðar við stutta flug- velli. Allsherjarnefnd samein- aðs þings fjallaði um tillöguna og samþykkti að mæla með henni. Gísli Guðmundsson var framsögumaður nefndarinnar oa fer framsöguræða hans hér á eftir. Samkomulag í allsherjar- nefnd Herra forseti. Till. sú sem fyrir liggur og flutt var á þskj. 363 er þess efnis a3 skora á rikisstj. að leitast við að fá fullnægjandi upplýsing ar um það þegar á þessu ári hvort De Haviland Caribou- flugvélar, sem framleiddar hafa verið í Kanada á undan förnum árum, henti ísending um til innanlandsflugs bet- ur en aðrar flugvélar, m. a. hvort þær geti oröið til al- mennari nota og sparað fjár magn í byggingu flugvalla. Segja má aö flutningur þessarar till. sé framhald af áyktun sem Alþ. gerði hinn 5. maí 1959, þar sem skorað var á rikisstj. að láta fara fram athugun á nýjungum og framförum í smíði far- þegaflugvéla, sérstaklega að því leyti er^ hentar innan- landsflugi á íslondi og sparað getur fé við byggingu flug- valla. Munurinn er einkum sá, að hér er gert ráð fyrir að í þeirri tiIL, sem fyrir ligg ur, að athugun beinist að á- kveðinni flugvélategund, þ.e. Skapar ný flugvélategund þátta skil í flugmálum lslendinga? a.s. þeim kanadisku flugvél- um, sem hér eru nefndar, og sem menn hafa haft nokkur kynni af í seinni tíð- Aukin reynsla Nú bar svo til um það leyti sem altshn. tók þessa till. til meðferðar, að hingað kom til íslands ein af þeim flugvél- um af þessari' tegund og um það leyti sem nefndin tók málið tii meðferðar, þá haföi þessi flugvél haft hér dvöl og farið í eina reynsluferð, að ég ætla, og að nokkrir nefndarmenn hafi tekið sér far með henni, eða þeim var gefinn kostur að taka sér far með flugvélinni til þess að sjá hvernig hún reyndist í þeirri ferð. Og, eins og segir hér í nál. á þskj. 536, þá sann- færðust nefndarmenn um það, er vélina skoðuðu og sáu hana hefja sig til flugs og lenda á sandskeiði, að ekki hefur verið ofsögum af henni sagt. Nefndin var sam mála um að leggja til að till. yrði samþ., eins og segir á þskj. 536, með þeirrl breyt- ingu að í henni væri rætt um de Havilland-flugvélar al- mennt. Þ-essar verksmiðjur. kanadisku, þær hafa sem sé frameitt fleiri tegundir held ur en .þá, sem hér var á ferð inni, þær hafa" framleitt minni vélar, og einnig er hugsanlegt að þær í framtíð- inni framleiði eða framleiði einnig aðrar gerðir, þannig BæSi flugmálastjóri og Björn Pálsson mæltu metS tillögu Sigurvins Einarssonar að þetta er — það varð niður staðan í nefndinni að tengja till. við þessa verksmiðju al- mennt og án nánari' tilgrein ingar. Nú má segja það, að siðan að þetta gerðist, síðan allshn. ákvað að mæla með þessari tiU., þá hefur enn fengizt aukin reynsla af þessari flug vél, þessari raribou-flugvél, sem hér var, en er nú farin héðan. Véin fór þarna rétt á eftir reynsluför til Vest- fjarða og kom við þar á tveim ur stöðum á ísafirði og í Dýra firði og á báðum þessum stöð um lenti flugvélin á gömlum flugvöllum, sem þar hafa ver ið notaðir sem sjúkraflug- vellir, og eru ekki taldir hæf ir til lendingar, eða hafa ekki verið taldir hæfir til lend- ingar fyrir stærri flugvélar. Og það er víst ekki vafi á því, að það hefur vakið mikla athygli, hvað þessi stóra vél, sem rúmar um 30 farþega, j gat lent á stuttum flugbraut um við þær aðstæður, sem har eru. Og nú held ég að það hafi í raun og veru, það sem þar gerðist, hafi verið umfram það sem menn höfðu búizt við, sem hafa verið bjartsýn- ir á þessa hluti. Styrkir veittir af Menntamálaráði Gísli J. Alfreðsson, leiklist, Þýzkal. Guðbergur H. Auðunss., auglýs.teikn., Danm. Guðmundur Arason, byggingaverkfr.. Nor. Guðmundur Ágústsson, hagfræði, Þýzkal. Guðmundur Ólafson, rafm.tækni, Þýzkal. Guðmundur S. Thorgrímss., rafm.fr., Nor. Guðmundur Þorsteinsson, eðlisfræði, Þýzkal. Guðrún Blöndal, ramisóknarstörf, Bandar. Guðnin Einarsdóttir, franska, Prakkl. Guðnin Sveinbjarnard., hagfræöi, Bretl. Gunnar Jónsson. tannlækningar, Þýzkal. Gunnar Þ. Ólafsson, hagfræði, Þýzkal. Halfreður Ö. Eiriksson, þjóðfræði, Tékk. Halldór Jónsson, byggingaverkfr., Þýzkal. Hallveig S. Thorlacius, slavnesk mál, Sviþ. Haraldur Antonsson, búvisindi, . .oregur I-íaukur Jóhannsson, verkfræði, Tékk. Helga G. Eysteinsdóttir, danska, Danm. Helga H. Hannesdóttir, balletdans, Þýzkal. Helgi G. Samúelsson, bygg.verkfr., Þýzkal. Hildegunn Bieltvedt, híbýlafræði, Danm. Hilmar Sigurösson, bygg.verkfr., Danm. Hjálmar Vilhjálmsson, dýrafræði, Bretl. Hróbjartur Hróbjartsson, húsag.list, Þýsal. Huldar Smári Ásmundsson, sálarfr., Frakl. Ingimar Jónsson, íþróttafræði. Þýzkal. Ingólfur Helgason, húsagerðarlist, Bretl. Ingólfur Kristjánsson, vélfræði, Bandar. Ingólfur Majasson, húsg.teik.nun, Danm. Ingvar Hallsteinsson, prentverkfr.. Bandar. Jón E. Böðvarsson, iðnaðarverkfr., aBndar. Jón Gamalíelsson, raffræði, Noregur Jón B. Hannibalsson, hagfræði. Bretl. Jón B. Jónson, byggingaverkfr., Danm. Jón Ölafsson, tannlækningar, ÞýzkfcS. Jón Rögnvaldsson, verkfræði, Þýzkal. Jón Þ. Þbrhallsson, eðlisfræði, Þýzkal. Jónas Elíasson. verkfræði, Danm. Jónas Kristjánsson, mannfélagsfr., Þýzkal. Jósef Magnússon, flautuleikur, Bret) Jörgen I Hansen, byggingafr., Danm. Kjartan G. Jóhannsson, bygg.verkfr., Svíþ. Kolbnin Ragnarsd., húsagerðarlist, Noregur Kristbjörg Þ. Kjeld, leiklist, Danm. Kristin Halldórsd. Eyfells. sálarfr., Bandar. % 1 1 1 ’æ 1 1 1 1 1 1 1 1 % 1 1 % 1 Kristján Jónsson, rafmagnsverkfr., Þýzkal. , Kristmundur Æ. Halldórss., stærðfr., Þýzkal. Krisbófer Magnússon, iðnfræði, Danm. Líney Skúladóttir, rússneska Rússl. Magni Guömundsson, byggingafr., Svíþjóð Markús Á. Einarsson, veðurfræði, Noregur Ólafur Gíslason, byggingaverkfr.. Danm. Ólafur Á. Stefánsson, garðyrkjufr., Þýzkal. Ólafur P. Þórhallsson, radiotækni, Bandar. Páll Pálss. (Pampichler), hljómsv.stj., Þýzkal. Pálmar Á. Sigurbergss., hljóðfærasmíði, Sviþ. Pétur Bjarnason, efnaverkfr., Þýzkal. Pétur Ö. Sigtryggsson, búfjárfræði, Noregur Rafn Fr. Johnson, verzlunarhægfr.. Bandar. Ragnar Arnalds. heimspeki, Sviþjóð Ragnar Á. Ragnarsson, lótelreéstur, Sviss Samúel Ásgeirsson, byggingaverkfr., Þýzkal. Elísab. Sibyl Urbancic, kirkjutónlist, Austurr. Sigfús Thorarensen, byggingaverkfr., Danm. Signý Thoroddsen, sálarfræði, Danm. Sighvatur Snæbjörnsson, dýral., Noregur Sigríður Pálmad., tónlistakennsla, Þýzkal. Sigríður Þorvaldsd., leiklist, Bandar. Sigurjón Jóhannsson, húsagerðarlist, Ítalía Sdgurveig Hjaltested, söngur, Austurríki Skúli Magnússon, kinversk heimspeki, Kína Snorri S. Friöriksson, myndlist, Svíþjóð Snæbjörg Snæbjörnsd., söngur, Austurríki Stefán Briem, eölisfræði, Danm. Steinarr Jaéobsson, rafmagnsverkfr., Þýzkal. Steinunn Stefánsd., listasaga, Þýzkal. Svanbjörn Sisurðsson, rafmagnsfr., Danm. Sveinbiörn Biömsson. eðlisfræði, Þýzkal. Sveinbjöm Sisurðsson. byggingafr., Noregur Sverrir G. W. Schopka, efnafræði, Þýzkal. TJnnur Skúladóttir, fiskifræði, Bretl. Úlfur Hjörvar. franska. Frakkl. Valgarður Stefánsson, eðlisfræði, Svíþjóð Viðar Garðarsson, mjólkurfræði. Noregur Vilhjálmur Hjálmarsosn, húsag.list. Bretl. norsteinn G Þorsteinss.. bygg.verkfr.. Danm. ^ór Evfeld Maenússon. fomleifafr.. Svíþjóð ^óra Gís’nson, listasaga. Svíbjóð bórður H. Ólafsson. húsaeerðarlist, Þýzkal. ^órólfur S Sigurðsson. húsagerðarlist, Finnl. Örn Helgason, eðlisfræði, Danm. % 1 % 1 % 1 Álit flugmálastjóra Eg hef núna fyrir umr. spurt flugmálastjóra um þetta mál, og mér var for- vitni á að heyra hans álit, eftir að þessar tvær reynslu ferðir höfðu verið farnar, og það var tvennt, sem flugmála stjórnin sagði við mig, sem mér þótti mjög athyglisvert og vil gjarnan nota tækifær- ið til þess að láta það koma hérna fram, enda hef ég leyfi til þess að hafa það eftir hon um, það er í fyrsta lagi það að hann segir að verð þess- arar flugvélar, sem hér var á ferðinni, eða samskonar flugvéla, það sé ekki hærra heldur en gerist í öðrum nýj um flugvélum af sömu stærö, annarrar tegundar. En eins og eðlilegt er, þá hefur mikið verið að því hugað, hvernig verðið væri. Hann sagði það i öðru lagi, að hann hygði að það væri ekki ofmælt, að flugvélar af þessari gerð, sem hér er um að ræða, geti kom- izt af með helmi’ngi styttri fluebrautir í innanlandsflugi en þær vélar sem í notkun hafa verið hingas tií, áííka stórar. Þetta þótti mér merki legar upplýsingar og vildi nota tækifærið til að láta þær koma hér fram. Ái:* niörns Pálssonar í öðru lagi finnst mér á- stæða til þess að vekja at- hygli á því að einn af þeim, sem fóru með flugvélinni til Vestfjarðar, þegar hún lenti á ísafirði og Dýrafirði á sjúkraflugvöllunum þar, var hinn þjóðkunni flugmaður Björn Pálsson, sem allir þekkja. Bjöm Pálsson, sem eins og aliir vita er mikill áhugamaður um þessa hulti og hefur unnið afrek mikil, hann hefur átt viðtal við eitt af dagblöðunum hér í bænum, eftir Vestfjarðarförina, og þetta viðtal var ég að kynna mér, hann segir þar m.a. með leyfi hæstv. forseta: „Karbou-flugvélin er merki legt fyrirbrigði. Eg var stór- hrifinn af vélinni og hæfni hennar.“ Svo segir hann: „Við flugum inn í langan og þröngan dal og fannst mér með ólíkindum hvað vélin gat tekið krappan sveig við að snúa við.“ Hann segir síðan, hvað lent hafi verið þama á stuttri braut og segir í viðtalinu: „Eg hefi lengi haft áhuga á að fá slíka vél hingað og þótt ist vita margt um hæfni henn ar, en samt varð ég furðu lost inn, þegar ég sá þetta með eigin augum.“ Þetta segir Bjöm Pálsson og um lendinguna á Þing- eyri segir hann: „Við not- uðum ekki nema 150 metra í lendingu og 100 metra við flugtak. Þó var vindur lítill og óhagstæður, þar sem hann var allur á hlið.“ Og í lok viðtalsins þá tek- ur hann það fram, að hann álíti að þessi flugvél geti lent á 100 m. flugvölum hér á landi, þ.e.a.s. ölum þeim fugvöllum, sem sjúkraflugvél in notar og svo á hinum stærri flugvöllum. Þetta er álit Björns Páls- sonar. Mér finnst það næsta athyglisvert. Nú, um þetta skal ég svo ekki hafa fleiri orð, en mér sýnist að þessar upplýsinaar, sem fyrir liggja vegna þeirra kynna, sem menn hafa nú af dvöl flu"- vélarinnar hér að hún gr/ enn aukna ástæðu til þess að athuga þetta mál gaumgæfi lega, og að full ástæða sé til að ætla það, að hér sé ef til vill um stórmál að ræða í okka.r samgöngumálum. Byggingaverkfræðingar Staða bæjarverkfræðings Akureyrar er laus til umsóknar frá 1. ágúst n. k. Umsóknarfrestur er til 15. júlí. BÆJARSTJÓRINN Á AKUREYRI 14. júni 1960 Magnús E. Guðjónsson Nauðungaruppboð verður haldið að Efstasundi 99, héi í baenurn, fimmtudaginn 30. b m kl, 4 e h Seld verða áhöld o. fl. tilheyranai þrotabúi Vogakjötbúðarinnar. svo sem kæliborðr kjötsög, búðarvog, áleggshnífm hrærivél, kæliskápar og borðpeningakassi. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetinn í Reyk|avík. .»V»V*V*V*-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.