Tíminn - 29.06.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.06.1960, Blaðsíða 2
2 Dagana 27. og 28. maí var haldlnn í Reykjavík fundur allra verkstjóra í frystihósunum á vegum S.Í.S. Fundurinn var mjög vel sóttur og er sýnilegt, a5 fundir sem þessir eina rétt á sér. Slíkur fundur var í fyrsta slnn haldinn 1959. Voru mörg mál raedd, skuggamyndir og kvikmyndir sýndar, farið í helmsókn í Fiskiðjuver Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og að lokum setlnn kvöldverður í boðl S.Í.S. Margir fyrirlesarar og gestlr komu þarna og má þar nefna Gísla Guðmundsson, alþingismann, sem ræddi um frumvarpiðum dragnótaveiði, Stefán Jónsson, fréttamann, sem gerði grein fyrir út varpsþættinum „Um fiskinn". Reinholt Greve, vélfræðingur frá Baader-umboðinu ræddi um viðhald og viðgerðir á roðflettivélum. Nokkrir yfir- fiskimatsmenn sátu og fundinn ásamt fleiri gestum. Myndin er af þátttakendum í verkstjórafundinum. Talið frá vlnstri: Barði Benedlktsson, Reykjavík, Sigurjón Jónsson, Reykjavík; Þórir S. Gröndal, Reykjavík; Stefán Kemp, Suðárkróki; Arnlaugur Sigurjónsson, Reykjavík; Guðjón B. Ólafsson, Reykjavlk; Árnl Andrésson, Hólmavík; Jón Mýrdal Jónsson, Reykjavík; Svelnberg Hannesson, Hrisey; Gunnlaugur Sigurjónsson, Fáskrúðsfirði; Björn Björnsson, Hofsósl; Karl Ágústsson, Raufarhöfn; Ólafur Magnússon, Svelnseyrl; Gunnar Valgeirsson, Reykjavík; Jóhannes Bergsveinsson, Þorlákshöfn; Haraldur ísleifsson, Stykkishólmi; Pétur Sig- urðsson, Grafarnesl; Jón Hilmar Jónsson, Ólafsvík; Ingimundur Guðmunds-son, Djúpavogi; Aðalsteinn Halldórsson, Húsavik; Tryggvi Jónsson, Dalvik; Árni Þ. Árnason, Þórshöfn; Snorri Sveinsson, Grafarnesi; Valgarð J. Ólafsson, Reykjavík. — Sitjandi á hækujm, frá vlnstri: Elías Kristjánsson, Reykjavík; Hrólfur Jakobsson, Skagaströnd; Pétur Einarsson, Reykjavík; Elnar M. Jóhannsson, Reykjavík; Gestur Guðjónsson, Patreksfirði; Þorfinn- ur ísaksson, Norðfirði; Hannes Óli Jóhannsson, Borgarfirði Eystra; Logi Runólfsson, Reykjavik; Gísll Pétursson, Reykjavík. — Á myndina vantar Torfa Guðmundsson, Drangsnesi; Karl Sigtryggsson, Innrl-Njarðvík, og Jónas Guðmundsson, Reykjavík. Uthlutun úr Raunvísinda- deild Vísindasj. árið 1960 Stjórn Raunvísindadeildar Vísindasjóðs hefur lokið út- hlutun stvrkja fyrir árið 1960. Alls bárust að þessu sinni 36 umsóknir, að upphæð nálægt i'álfri annarri milljón króna samtals. Veittir voru 20 styrk ir og nema þeir alls 649 þús- und krónum. Styrkjunum má skipta í þrjá aðalflokka: A. Dvalarstyrkir til vísinda- legs sérnáms og rann- sókna. Þessir styrkir eru ætlaðir ung- um og efniiegum vísindamönnum t.il vísindaiðkana og þjálfunar við viíindastof.nanir, erlendar eða inn- lendar. Hæstu styrkirnir miðast við það að styrkþegi helgi sig því verkefni, er hann hlýtur styrk til, d m. k. eitt ár. Styrkur fil árs- dvalar var 60 þúsund krónur fyrir gengisbreytingu en er nú 80 þús- und krónur Að þessu sinni voru einungis veittir þrír heilir dvalar- siyrkir en f'mm hálfir. 80 þúsund krónur hlutu: l.Sig. Jónsson licencie es lettres til rannsókna í líffræði og frumufræði þörunga við Sor- bonne-háskólann í París. 2. Þorleifur Einarsson cand. geol. til frjórannsókna (pollenana- lysc) á ísl. mómýrum. Þorleif- ur er í þann veginn að ljúka doktorsprófi í jarðfræði í Þýzkalandi, en frjórannsókn- irmar mun hann stunda í Björgvin. S. Þorsteinn Sæmundsson B. Sc. Hons. fil stjarnfræðilegra rannsókna á áhrifum sólar á jörðu, eínkum með tilliti til breytinga á jarðsegulsviði. Þor steinn lauk háskólaprófi í Skot landi fyr'ir tæpum þremur ár- um en hefur síðan unnið að þessum rannsóknum í London. 40 þúsund krónur hlutu: 4 Einar Tjörvi Elíasson verk- fræðingur til rannsókna á sliti í legum véla við tæknihá- skólann í Glasgow. Guðmundur Ragnar Ingimars- son verkfræðingur til rann- sókna á vegagerð við háskól- ann í Michigan. Kjördæmaþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum haldið 23. julí ÁkveSiS hefur verið, a3 kjördæmaþing Framsóknar- manna í Vestfjarðakjördæmi verði haldið aS Vogalandi í Króksfjarðarnesi og hefjist kl. 3 þann 23. júlí. Þingmenn- irnir Hermann Jónasson og Sigurvin Einarsson mæta á þing- inu. ÁríSandi er, aS flokksfélögin hraSi kjöri fulltrúa sinna á þingiS og láti flokksskrifstofuna þegar vita um þátttöku. Þann 24. iúlí verSur haldin árshátíS Framsóknarfélaganna í VestfjarSakjördæmi og hefst hún kl, 3. VerSur þaS nánar auglýst síSar. I 6. Sigmundur Magnússon læknir til sérnáms í blóðsjúkdómum og nofkun geislavirkra efna í I læknisfræði. Námið er stund- I að í Bandarikjunum. j 7. Tómas Helgason læknir til framhalds rannsókna sinna á tíðni geð- og tauga-sjúkdóma. Tómas hefur unnið að þessum rannsóknum um alllangt skeið og tvívegis áður hlotið styrk til þeirra frá Vísindasjóði. 8. Þorkell Jóhannesson læknir til sérnáms í lyfhrifafræði (farmakologi)Sivið vísindastofn un Hafnarháskóla í þessari grein. D Styrkir vegna rannsóknar- verkefna einstaklinga. f. Baldur Johnsen héraðslæknir. Til næringárrannsókna og til þess að gera yftrlit um ástand manneldismála hérlendis kr, 15.000. 10. Friðrik Einarsson dr. med. Til eftirrannsókna á sjúklingum, er skornir hafa verið vegna skjaldkirtilsjúkdóma kr 15.000 l . Gunnlaugur Snædal læknir. j Til eftirrannsókna á sjúkling-1 um, er verið hafa til meðferð- ar á Landsspítalanum vegna krabbameins í brjósti kr. 15.000. 12. Björn Sigurbjörnsson M Sc. til að ljúka rannsóknum sínum á íslenzku melgresí. Björn hefur tvívegis fyrr fengið styrk til þessa verkefnis. Hann vinnur að því við Cornell-háskóla kr. 10.000. 13 Guðmundur Örn Árnasoú skóg fræðingui og Páll Bergþórs- son veðurfræðingur. Til lofts- lagsran.nsókna með sérstöku tilliti til skógræktar kr. 19.000 (Að því tilskildu að a. m. k. jafnhátt framlag fáist frá öðr- um aðilum.) 14. Ingimar Óskarsson grasafræð- ingur. Vegna starfa við Evr- ópuflóruna kr. 8.000. 15. Jens Pálsson mannfræðingur. Til manneldisfræðirannsókna í Dalasýslu kr. 15.000. C. Styrkir til stofnana og félaga 10. Bændaskólinn á Hvanneyri. Til kaupa á efnarannsókna- tækjum kr. 20.0U0. I: Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans. Til kaupa á mæli- (>Tamftaid a lö síðu i TÍMINN, mlðvikudaginn 29, júni 19gp,- Samið á Siglufirði Ekki kom til verkfalls síldar- stúlkna á Siglufirði eins og útlit var fyrir á tíma. í vikulokin náðist samikomulag milli verkakvennafé- lagsins Brvnju og Vinnuveitenda- félags Siglufjarðar. Mikilvægust atriði í samkomuLaginu eru að síld- arstúlkur fá bættan söltunartaxta fyrir millisíld, sem mikið gengur úr og karlmannskaup fyrir alla tímavinnu. Söltunartaxtinn hækk- ar um 10.3%, úr 29 krónum á tunnu í 32. Hingað til hafa verka- konur fengið greitt karlmanns- fcaup fyrir sum síldarstörf, en kvenmannskaup fyrir önnur. Nú verður þetta samræmt þannig að konurnar fái eftirleiðis sama kaup og karlar við öll verkin. Ársíondiir sunn- lenzkra kvenna 32. ársfundur sambands sunnenzkra kvenna var hald inn að Selfossi dagana 8.—9. júní 1960. — Auk venjulegra aðalfundastarfa voru rædd ýmis framfara og menning- armál sambandssvæðisins. — Gerðar voru ályktanir um áfengisvarnarmál og lög- gæzlu á samkomum. — Lýst var ánægju yfir samstarfi Búnaðarfélags íslands og Kvenfélagasambands íslands. — Mikla ánægju vakti sam- þykkt laganna um orlof hús mæðra. — Sambandið hefur varið sjúkrasjóði sínum til áhaldakaupa fyrir sjúkrahús Selfoss. Að aðalfundi loknum bauð Húsmæðraskóli Suðurlands fundarkonum til veizlu, var setið þar í góðum fagnaði fram á nótt. Mættir voru sem gestir fundarins allar konur úr stjórn K.í. auk fleiri gesta. Stjórn félagsins skipa þess ar konur: Halldóra Guð- mundsdóttir, Miðengi, form.; Anna Sigurkarlsdóttir, Eyrar bakka, ritari; Halldóra Bjarnadóttir, Selfossi, gjald- keri. Pöstmenn óánægðir með aðgerðir stjórnarinnar Aðalfundur Póstmannafé- lags íslands, var haldinn dag- ana 30. marz og 3. maí þ.á. Auk venjulegra aðalfundar- starfa voru rædd ýms hags- munamál póstmannastéttarinn ar, og ríkti mikill einhugur meSal fundarmanna um þau 811. Á fundinum kom fram til- laga, sem fól í sér megna óánægju með aðgerðir ríkis stjómarinnar í efnahagsmál um, svo sem afnám vísitölu- uppbóta á laun, og taldi að ríkisvaldið hefði nú með skömmu núllibili skert svo freklega kjör opinberra starfs manna, að ekki verði við unað. Einnig komu fram í til- lögunni vítur á formann Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, fyrir framkomu hans, sem þingmanns i frarn angreindu máli, og að hann hefði freklega brugðizt um- bjóðendum sínum. Tillagan var samþykkt með öllum þorra atkvæða. Tryggvi Haraldsson, sem verið hafði formaður undan farin ár, baðst eindregið undan endurkosningu. Stjóm félagsins skipa nú: Ari Jóhannesson, formaður; Grétar Jónsson, varaform. — Meðstjómendur: Dýrmundur Ólafsson, Sigurjón Bjömsson og Pétur Guðmundsson. — Varastjórn: Kristján Jakobs son, Guðfreður Guðjónsson, Ólafur Timóteusson, Guð- mundur Þórðarson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.