Tíminn - 21.01.1961, Qupperneq 8

Tíminn - 21.01.1961, Qupperneq 8
fl Tlfjlfelj JVwráOamenn Eattpffflags Arnes- inga Ibafa mælist tii þess vlð mig, að ég ritaði grein um hinn látna leiðtóga þeirra, Egil Thorarensen. Meðan ég var ritstjóri Samvinmmn ar birti ég í því tímariti ítarlega ritgerð um Kaupfélag Árnesinga og þréun þess undir forystu Egils Thor'arensen. Má segja, að ég hafi þar lýst hug mínum til manna og málefna á samvinnuleiðum manna austan fjalls. En þar sem gott er góðs að minnast bæði Iífs og liðins vil ég nú bæta við hina fyrri minn- ingai'grein nokkrum orðum, helzt í sambandi við samvinnuþróxm austan fjails eins og hún hefur komið mér fyrir augu undan- gengin ár. Ef forráðamenn kaup- félagsins á Selfossi telja sér henta að birta á prenti þessa kve.ðjugrein mína, þá er þeim það heimilt hvort sem er í blöðum eða tímaritum. Sennilega hefur það orðið Suður landi til gagns og gæfu, að um aldamótin síðustu var þekking manna á heilbrigðismálum svo ó- fullkomin að menn kunnu ekki að verja heilbrigt fólk smithættu af brjóstveiki. Kirkjubær á Rangár- völlum var þá eitthvert stærsta og myndarlegasta heimili á landinu en hvítj dauðinn teygði þangað arma sína og sýkti sum af börnum Gríms bónda Thorarensen. Egill vaið brjóstveikur og skildi til fulls að hann mundi æfilangt vera merktur þessum hættulega sjúk- dómi, en svo var orka hans mikil, andleg og líkamleg, að hann glímdi í áratugi við þessa ósýnilegu hættu og varð ekki sigraður fyrr en lokið var dagsverki, sem Iengi mun verða minnzt í sögu héraðsins og lands- ins alls. Egill hafði ætlað að verða sjómaður og skipstjóri, en nú leyfði heilsan ekki það starf, en á öðrum vettvangi vann hann marga sigra eins og síðar kom í Ijós. Verk efnj hans varð að grundvalla nýj- an höfuðstað Sunnlendinga á bökk um Ölfusár. Áður höfðu öldum saman verið tveir höfðustaðir í Árnessýslu, Þingvellir og Eyrar- bakki. Öldum saman höfðu íslend- ingar starfað að andlegri iðju á fögrum völlum undir hömrum Al- mannagjár. Síðar komu dimmar áþjánaraldir. Þingvöllur varð fög- ur sveit, en mannlaus að kalla M I N N I N G: Gr. kaupfélagsstjóri á SeBfossS ingur, Egill Thoranensen, I leit að, verkefni, sem hæfði heilsufari hans og andlegri oriru. Hann varð Úlfljótur Selfossíbongar, þar hefur gerst að verulegu leyti mikið land- nám. Þangað hafa sótt margir vask ir menn, karlar og konur, til byggð ; ar og bólfestu. Sélfoss varð enn-1 fremui*, sem viðskiptastöð, með j nokkrum hætti þáttur í heimilis-j. heldi tnanna á.hverju byggðu býli, á milli Ingóífsfjalls og Lúma- i gnúps. Þannig aukast áhrif sann- nefndra höfðustaða. Þáttur Egils Thorai'ensen í landnámi við Ölfus- á er þó að mestu leyti andlegs eðl- is. Það, sem hér er kallað landnám við Ölfusá er sunnlenzk vaxtar- hreyfing, þar sem margar kynsléð- ir hafa verið að verki. Áhrifamik- ill þáttur í þessari þróun er i'étti- lega kenndur við Hlíðarenda í Fljótsh'líð. Fyrir hálfri annarri öld kom sýslumannssonur fi'á Hlíðar- enda, Bjarni Thorarensen, til náms í Danmörku. Þar orti hann rúmlega tvítugur kvæðið Eldgamla ísafold, en það er forystukvæði í íslenzkum hókmenntum. Slðar á ævinni oiti Bjarni Thorarensen mörg önnur stórkvæði. Með Ijóð- ( um sínum 'hefur hanh brúað í ís- lenzkum bókmenntum bilið frá rústum Skaftárelda yfir _ margar aldir til Egils og Snor'ra. í fótspor hans hafa síðan fetað mörg ’skáld og listsnillingar. En þessi sonur Fljótshlíðarinnar gerði tvennt í senn: Grundvallaði sígildar nú- tímabókmenntir og tengdi saman fortíð og nútíð í andlegu lífi ís- lendinga. En Bjarni Thor'arensen var meira en skáld. Hann var dóm ari í Reykjavík og bóndi í Gufu- nesi og fór á hesti í kaupstaðinn. Á bújörð sinni lét hann slétta tún I Kveðja til sunnlenzkra samvinnumanna mátti. En á lónum í skerjagarði Eyrarbakka flutu á vorin og sumr in erlendar skútur, sem fluttu sunnlenzku fólki nokkurn forða af erlendum varningi. Hundruð lítilla tjalda stóðu saman að vorlagi á grónum og hlýlegum bökkum veizl unarlóðarinnar á Eyrarbakka. Þar gistu sveitamenn, sem sóttu þang- að verzlun yfir óbrúuð vötn og veg leysur. Stundum tók það bóndann þrjár vikur að fara í þessa einu kaupstaðarferð alla leið austan úr Síðu og Fljótshverfi. Erlend verzl- unarstétt var að kalla má einráð um verðlagið á erlendr'i og út- fluttri vöru. Búðunum var lokað um hádegisbdið, lika í mestu önn- unum. Starfslið einokunarinnar þurfti að fá sér hádegishvíld og hirti lítið um aðstöðu langferða- fólksins. Nú er þetta verzlunar- skipulag löngu breytt. Erlendar duggur bíða nú ekki lengur af- greiðslu á lónum Eyrarbakka. Nýr ihöfðustoður hefur myndazt við þrenslin í Ölfusá hjá Selfossi. Þar hafði aldraður norðlenzkur bóndi, Tryggvi Gunnarsson, spent brú milli kletta yfir Ölfusá, þar sem að- staða var bezt. Fyrr hafði Tryggvi búið 14 ár á harðbalajörð í Fnjóska dal, en á efri árum tók hann í hönd sunnlenzku bændanna og átti með þeim þátt í að leggja grund- völl að þriðja höfðustað Suður- lands. Báðum .megip við Ölfusár- brú hefur myndazt stærsta sveita- borg á íslandi, arftaki Þingvalla og Eyrarbakka um málefni suður- sléttunnar. Eftir fyrra stríð flutti að Selfossi rúmlega tvítugur ungl- ið með hinni fábrotnu tækni þeira ar aldar, en þess_ háttar jarðabót var þá óþekkt á íslandi. Eitt sinn var hann um stund sýslumaður Árnesinga og þurfti oft að fara yfir Hellisheiði, bæði sumar og vetur. Stundum kól hann á þessum vetrai'ferðum, en skáldið kunni þar líka til virkra úrræða. Hann kom á fót félagi til að ryðja fjall- vegi í landinu, reisa sæluhús og vörður tl bjargar ferðamönnum á hættulegum leiðúm. Landnám Bjarna Thorarensen er mikið bæði í Ijóðum og hagnýtum framkvæmd um við að gera landið betra en það var áður. Bjarni skáld hné til moldar norður á Möðruvöllum, en neistar lifðu víða um land úr glóðum frá Hlíðarenda. Um síðustu aldamót fædd- ist í Hreppum í Árnessýslu Gestur Einarsson á Hæli, frændi Bjarna Thorai'ensen. Gestur var undarlegur maður, bóndi, gekk aldrei í skóla en vissi meira en flestir bóknámsmenn um i bókmenntir, listir, félagsmál og! háar hugsjónir. í andlegum efnum; virtist hann oft sjá í gegnum holt og hæðir. Gestur unni mjög ætt- leifð sinni, Hæli, Hreppunum, Ár- nessýslu, Suðurlandi og allri byggð á íslandi. Bóndi vildi hann vera og lyfta bændastéttinni til vegs og áhrifa. Mannþekking hans var al- veg óvenjuleg. Þó að hann væri mjög bundinn við störf heimilis og ættbyggðar sinnar, var hann manna mest á ferðalagi og fyrstur Sunnlendinga til að nota bíla eins og hann ætti þá alla. Gestur Ein- arsson var ótrúlega kunnugur í Reykjavík, öllum manngerðum. Hann þekkti vel drýldna og grá- lynda fésýslumenn, skáld, lista- menn, rithöfunda, lögfræðinga, lækna, verkfræðinga, framkvæmda menn á sjó og landi, verkalýðsfor- ingja og byltingarfólk. Flestum, sem kynntust Gesti, fannst hann skilja flestum betur hugarfar, hugð armál og viðfangsefni hvar sem á reyndi. Starfsdagur Gests á Hæli utan heimilis og byggðar var ekki nema í fáein ár. Hann andaðist á morgni lífsins úr drepsóttinni miklu 1918, en mörg af þeim fræjum, sem hann sáði, festu rætur og urðu lífvæn. Gestur kenndi sunnlenzk- um bændum að vinna saman og stofnaði með þeim flokk óháðra bænda við Þjórsárbrú 1916. Af þeim grunni reis Framsóknarflokk uiinn. Gestur lagði þeim flokki til hugsjón heilbrigðra bankamála, þar sem bændastéttin væri full- gildur aðili- Hann valdi þjóðinni áhrifamesta bankastjórann, sem hún hefur eignazt, Magnús Sigurðs son. Síðan útvegað'i Magnús Sigurðs- son fé til að framkvæma Flóaáveit una og í minningu Gests á Hæli var reistur banki við Ölfusárbrú. Gestur hafði mörg járn í eldinum, blað á Eyrarbakka, járnbraut aust ur yfir fjall, hafnargerð í Þoi'láks höfn, virkjun fossa og rafmagn inn á hvert heimili í sveitinni. Gestur kenndi samtíð sinni að meta orku- lindir, auð andans, mátt samtaka, fjármagn og fossa. Gestur á Hæli féll í valinn sömu dagana og fyira stríðinu lauk á vígvöllunum. Ný öld hófst með friðnum. Hverri stór styrjöld fylgir upplausn. Um þess- ar mundir var hörmulegt ástand á íslandi og víða um heim. Bænd- ur í Árnesþingi voru mitt í þess- ari upplausn. Reykjavík vildi hafa sér í höndum verzlunina austan fjalls og ágóðann ef nokkur væri af mjólkurvinnslu í héraðinu. Úti- búið var tekið til starfa með litl- um peningum fyrst um sinn. Flóa áveitan var á leiðinni en Tiyggvi Þórhallsson hafði um 1930 byggt við Ölfusá fullkomið mjólkurbú og fengið því til framdráttar er- lenda kunnáttumenn- Sunnlending ar þráðu framfarir og voiu reiðu búnir til að leggja mikið á sig í þeim efnum en margir fundu, að samtengingarband vantaði milli þess sem var og þess, sem átti að! koma. Nýskipunin byrjaði að lok- um á verzlunai'sviðinu. Reyndir og framsýnir bændur eins og Ágúst Helgason í Birtingarholti og Gísli Jónsson á Reykjum og margir þeirra samherjar vildu leggja inn á nýja vegi, stofna kaupfélag og mjólkui’bú við Ölfusá og að þessi fyrirtæki yrðu tvö i'íki í persónu- sambandi. Þar vildu þeir hafa til forystu Egil Thorarensen. Hann tók boðinu. Sjálfsagt hefur hann haft hugboð um að verkefnið væri eif- itt en treyst á orku sína og góða giftu um að honum mundi takast að ráða fram úr vandamálinu. Síðan þetta gerðist eru liðin 30 ár. Hlíðarendaneistinn hafði bor- izt vestur á bóginn. Aldamótahug- ur bjó í brjóstum flestra þroskaðra manna í landinu. Djarfar hugsjón ir Gests á Hæli höfðu örfað sam- ferðamenn hans til að gera miklar kröfur um framtíðarmálin. Ef Gestur á Hæli mætti nú hverfa úr öðrum heimi og fara hraðferð um Suðurland eins og hann var vanur á hérvistardögunum myndi hann sjá að mikið hefur áunnizt á þess- um tfma, sem liðinn er. Hann myndi sjá um allt Suðurland mynd arleg, vel húsuð, litsterk sveita- býli. Tún, sem virtust hafa verið stækkuð með töfrakrafti og bú- stofn meiri en nokkru sinni fyrr í þessum byggðum. Hann mundi sjá Ihr'aðvirkár vélar að verki við að auka framleiðsluna og létta störfin. Hann mundi, sjá,; að buið' var að beizla mörg.af fallvötnum þeim, sem honum höfðu' verið hug stæð á asskuárum hans. Hann myndi sjá áð frá'iþessum aflstöðv- um'streymir Ijós og hiti um breið ar byggðir héraðanna. Hann mundi eflaust sjá, ^að hið mikla' hús' kaup félags Árnésinga er eitthvert veg- legasta og vandaðasta hus sinnar tegundar á öllu landinu. Hann mundi sjá fjölmarga bíla streyma um allar sveitir flýtjandi vörur á milli heúnila, vinnustöðva og mankaða. Hánn myndi fagna að sjá MjóMmrbú Flóamanna, verk- smiðju allra sunnlenrfcra bænda, svo fulliomna og vel gerða, að ekki finnst annað mjólkurbú því fremra á öllum Norðurlöhdum. Hann mundi koma að Laugardæl- um, sem kaupfélagið hefur keypt, hafið þar stórmikla ræktun og stofnsett fyrirmyndar bú. Siðan hefur kaupfélagið leigt jörð og búpening Búnaðai'sanibandi Suður lands, til að rækta þar kynbezta og arðsamasta búpening, sem kost ur er á að eignast hér á landi. Áreiðanlega myndi Gesti þykja mehkilegt að sjá þá framkvæmd Kaupfélags Árnesinga að bora eft ir heitu vatni í Laugaidælum, leiða það síðan inn í kaupstaðihn og hita þar öll hiús og suridlaug bæjar- búa. Því meira mundi Gestur meta þessa framkvæmd, þar sem jarð- hitamálið var eitt af þeim fram- tíðarmálum, sem hann hafði ekki sinnt til muna, þegar hann taldi auðlindir Árnessýslu. Sízt mundi Gestur gleyma að horfa til Þor- lákshafnar. Þar sæi hann mikil mannvirkí þess eðlis, sem liann hafði haft mestan trúnað á. Rang- æingar og Árnesingar eiga nú í félági land og mannvirki. Miklir skjólgaiðar og bryggjur hafa ver- ið reistar þar vegna útgerðarinn- ar og millilandasiglinga. Þar hafa verið byggð vöruhús, eitt hið mesta sem til er hér á landi og fullkom- in vinnslustöð til að gera fiskinn fiá Selvogsgrunni að heimsmarkaðs vöru í útlöndum. Ekkert mundi gleðja G-est á Hæli meira en að fá áreiðanlegar heimildir um það, að nú væru fullgerðar teikningar af miklum hafnarmannvirkjum í Þorlákshöfn og handbærir pening ar til að Ijúka verkinu á tveimur árum. Þá munu 30 bátar geta átt þar heimahöfn og úthafsskip leg- ið við bryggjur hvernig sem viðr- ar. Suðurland hefur eftir 1000 ára byggð í landinu eignazt höfn og leið út á hafið. í lygnu Þorláks- hafnar verður bylgja Atlantshafs- ins, sem hefur frá upphafi vega háð þar „heimsins langa s'tríð“, brotin. Að lokinni yfirreið um Suður- land mundi Gestur Einarsson spyrja: „Hvernig urðu til hinar miklu félagsframkvæmdir austan fjalls 1930—1960“? Þá yrði hér svarað á þann veg: Egill Thorar- ensen kom þar víða við sögu. Ekki vegna líkamlegrar orku, því að (Framhald á 11. síðu).

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.