Tíminn - 25.01.1961, Page 1

Tíminn - 25.01.1961, Page 1
Áskriftarsíminn er 1 2323 20. tbl. — 45. árgangur. Miðvikudagsgreit bls. 8 og 9. ÉiaÉiáafM Miðvikudagur 25. jamiar 1961. Kvikmynd um fund Vínlands Tekin í mörgum löndum, þar á meðal á íslandi, sumarið 1962, ef af verður. Tíminn hefur fregnað, að ameríska kvikmyndafélagið United Artists hafi uppi ráða- gerðir um að gera kvikmynd, er sýni fund Vínlands. Það fylgir sögunni, að myndina eigi í höfuðdráttum að byggja á íslenzkum fornsögum um sæ farir Leifs heppna og Þorfinns karlsefnis, ef af myndatök unni verður, en að sjálfsögðu verður þar vafið inn í margs konar atriðum öðrum. og söguþræðinum á ýmsan hátt hnikað' til. Brotinn í tvennt Stormur var í gær í Vest- mannaeyjum og brim við hafnargarðinn, þar sem belg- íski togarinn strandaði fyrir hálfum mánuði og sjórinn heldur áfram að brjóta mann- virkið. Höfnin, og þar með bátarnir, eru í veði. Togarinn er kominn í tvennt, bvotinn am hvalbakinn. Hann ligg ur á hliðinni, og framstafninn upp við garðinn. Verkfræðingur frá vitamálaskrifstofunni var hér um daginn, og nú er kominn belg- ískur maður frá tryggingafélagi togarans á vettvang. Enda þótt togarinn sé tryggður gegn skemmd um hjá þriðja aðila, hefði verið fall ástæða til að reyna að fjar- lægja flakið í tíma vegna þeirrar hættu, sem vofir yfir höfninni. SK Gert er ráð fyrir því, að slík mynd muni kosta hvorki meira né minna en átta milljónir dollara, svo að margs þarf sýnilega við til þess, að hún verði svo úr garði gerð sem vera á. Myndatakan á að fara fram sumarið 1962, ef til kemur, en áður þarf að fram- kvæma margháttaðar rannsóknir og undirbúningsvinnu. Tíminn hefur það fyrir satt, að fyrirspurnum hafi verið beint til íslenzkra manna am þátttöku við samningu kvikmyndahandritsins, en sagnfræðingar á Norðurlönd- um og í Bandaríkjunum munu þegar vera farnir að draga saman efni, í samvinnu við kvikmynda- handritahöfunda. Gert er ráð fyrir, að Leifur heppni verði aðalhetja myndarinn ar, en í frumuppástungunni er ætl- azt til þess, að Þorfinnur karls- efni verði' látinn fylgjast með honum á ferðinni til hins ókunna lands, að minnsta kosti að ein- hverju leyti. Myndin verður tekin, ef ekki verður fallið frá þeirri ráðagerð, sem nú er uppi, í Noregi, á ís- londi, Grænlandi og meginlandi Norður-Ameríku. Sjálfsagt verða fengnir ein- hverjir statistar til þess að fylla hópinn við myndatökuna hér, og þá standa þeir, sem láta sér vaxa skegg, vel að vígi, því að vikinga LEIFUR HEPPNI — skyldi hann finna vínberin sín aftur? og fornkappa getur enginn hugs- að sér skegglausa. Verkfall - vinnustöðvun Á miðnætti síðast liðna nótt hafði landverkafólk í Eyjum ákveðið að hefja verkfall, ef ekki hefði samizt um kjara- bætur. Fundur var með full- trúum útvegsmanna og verka- fólks í gær, en þar varð eng- inn árangur. Útvegsbændafélagið hélt einnig fund í gær. Sá fundur féllst á samkomulag það, sem náðst hafði (Framhald á 2. síðu.; Það er eins og þeir séu orðnir langeygðir eftir matnum sínum, þessir. Kannske fólkið hafí komið í seinna lagi heim af þorrablótinu eða einhverjar annir valdið töfum. Samningar í sjómannadeilunni: Kjarabætur báta- sjðmanna 15-25% Kjarabæturnar mismunandi eftir stöðum Samkomulag varð með full- trúum sjómanna og útgerðar- manna um tvöleytið í fyrri- nótt um kjör bátasjómanna. Samkomufagið var undirritað með fyrirvara um samþykki viðkomandi sjómannafélaga. Sjómönnum tókst að ná samn ingum um verulegar kjara- bætur, sem nema frá 15— 25%, en eru nokkuð mismun- andi eftir hinum einstöku stöð um, þar sem sérsamningar giltu áður. Höfuðatriði kjar'asamningsins er, að sjómenn fá 29,5% af heild- arverðmæti báts í sinn hlut á línu- og netaveiðum. — Á togveiðum verður skiptaprósentan 31,5% og á dragnóta- og humarveiðum 37%. í samningunum er gert ráð fyrir sama fiskverði og útvegsmenn fá. Það er í höfuðatriðum þetta: 1. Fyrir bezta línufisk, slægð- an, kr. 3,11 pr. kíló, en óslægðan 2,78 kr. 2. Fyrir annan línufisk allt að 4 daga gamlan, slægðan, kr. 2.97 pr. kg. 3. Fyrir línufisk ísaðan um borð 4—7 daga gamlan kr. 2,70 pr. kg. Sama verð greiðist fyrir netafisk blóðgaðan lifandi (þorsk og ýsu) og slægðan, en óslægðan kr. 2,41 pr. kíló. Taka ekki þátt í útgerð- arkostnaði Þá fellur niður öll þátttaka sjó- manna í útgerðarkostnaði, eins og t.d. olíu og beitukostnaði, en hann hefur sums staðar verið allt að 40% í frádrátt, og hefur auk þess torveldað uppgjör við sjómenn og dregið á langinn. (Framhald á 2. síðu.) r Arlegur viðburður á Grænlandi: Stórslys af völdum hunda Á Grænlandi hefur börnum löngum stafað hætta af soltn- um hundum, sem flækjast um byggðir og víðavang í leit að æti. Þeir verða börnum oft að bana, og stöku sinnum ber einnig við, að þeir granda fullorðnu fólki. Danskur maður, sem var á Græn landi, sagði einu sinni, að hund- arnir væru svo nærgöngulir, að hann hefði orðið að hafa stöng ji höndunum til þess að halda þeim frá sér, þegar hann gekk örna sinna úti við. Þegar hundar drepa börn, éta þeir oft líkin að meira eða minna leyti, og getið er um fjögurra ára dreng, er hundar drápu og höfðu etið af höfuðið og nokkuð af brjóstinu, þegar að var komið. Grænlendingar klippa vígtenn- ur úr hundunum í því skyni að draga úr hættu á þvílíkum slys- um, en eígi að síður geta hundar leikið börn mjög illa. Myndin sýnir lítinn dreng, er bitinn var af hundum, er vígtennur höfðu verið klipptar úr. Hún er tekin úr búnaðarritinu Frey, en birtist fyrst í tímariti danska læknafé- lagsins. ________________________ ■ ' : Sjóræningjar á 20. öld — bls. 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.