Tíminn - 25.01.1961, Síða 3

Tíminn - 25.01.1961, Síða 3
TÍMINN, migyikudaglnn 25. janúar 1961. 3 Þrír handteknir í haust sem leið, tók maður nokkur ávísanahefti ófrjáisri hendi í skrifstofu, þar sem hann vann um stundarsakir. Hafa nokkrar ávísanir úr þessu hefti verið gefnar út, og sitja nú þrír menn í varð- haldi í Reykjavík, sakaðir um ávísanafals. Umrætt ávísanahefti hafði verið giatað eigendunum í tvö eða þrjú ár, en áðurnefndur maður mun hafa fundið það í rusli eða ein- hveijum plöggum í skrifstofunni. Fjórar komu fram Um mánaðamótin nóvember— desember í haust komu fram fjór- ar ávísanir úr þessu hefti, að upp- hæð samtals um 4000 krónur. Voru ýmis nöfn skrifuð á ávísanir þessar, og höfðu þær mestmegnis verið seldar í söluturnum hér í bæ. Var kært yfir þessu til rann- sóknarlögregíunnar. Rétt fyrir síðustu helgi komu enn fram tvær ávísanir úr hefti' þessu, að upphæð um 3.300 krón- ur, og náðust þá haldgóðar upp- lýsingar, sem urðu til þess, að þrír menn voru handteknir. Auk þess, sem upphaflega stal ávís- anaheftinu, voru tveir félagar hans, sem aðstoðuðu hann við falsið, einnig handteknir. Ekki öll kurl til grafar komin Mennirnir þrír meðgengu að hafa gefið út sex ávísanir til við- bótar þeim, sem að framan grein- ir. Komu tvær þeirra fram í gær, önnur á kr. 1.500 og hin kr. 2.100. Fjórum hefur enn ekki verið á- vísað til greiðslu, og eru þær því ekki komnar í hendur lögreglunn- ar. Falsararnir segja þær vera um kr. 1000 hverja. Þá er þess að geta að fjögur eyðublöð vantar í heftið og segja sökudólgamir að þeir hafi eyðilagt þau. Málið er enn í rannsókn og sitja þremenningarnir sem fastast í Hegnihgarhúsinu við Skóla- vörðustíg. D I/ IZ Leikfélag Reykjavíkur hefur um nokkurt skelð sýnt * skopleikinn Pókók við ágætar undirtektir. Hér birtist mynd af Guðrúnu S'fephensen í hlutverki sínu í leiknum, en hún leikur Elínu Tyrfingsdóttur, heimasætu frá Hreggnasastöðum, og hefur hlotið einróma viðurkenningu gagnrýnenda. Bjarni Benediktsson frá Hofteigl segir um leik hennar: „Önnur leikkona, sem vinnur ótvíræðan sigur i leiknum, er Guðrún Stephensen, sveifastúikan. Hún er ágæt persóna af hálfu höfundar, og Guðrún skilar henni með þrótti, blæbrigðarikum leik og auðugri gamansemi." Næsta sýning á leiknum er í kvöld kl. 8.30. Sjóræningjar á 20. öld: Uppreisn gerð um borð á Santa María á Karíbahafi New York og London 24.1. (NTB) Sá atburður gerðist að- faranótt s.l. mánudags, að uppreisn var gerð um borð í portúgalska farþegaskipinu Santa Maria, þar sem það var statt á Karíbahafi. Brezk, bandarísk og hoilenzk her- skip leita nú farþegaskipsins, en það mun vera á leið til hafnar í Brasilíu. Santa Maria er 20 þúsund smá- lestii' að stærð. Það er hið glæsi- legasta farþegaskip, enda einkum ætlað auðkýfingum. Áhöfn þess er um 370 manns, og að þessu sinni voru nær 500 farþegar með skip- inu. Uppreisnin um borð var með þeim hætti, að 70 vopnaðir menn undir forystu Henriques Galvaos höfðu komið um borð í Venezúela og villt á sér heimildir — þóttust þeir vera óbreyttir farþegar. En þegar myikrið skall á, gripu menn þessir til vopna sinna og þvinguðu stjórnendur skipsins tii þess að láta þeim öll yfirráð í hendur. Kom til nokkurra átaka, og er talið, að a.m.k. einn maður af á- höfn skipsins hafi fallið. Galvaos er 65 ára að aldr'i og hefur verið harður andstæðingur stjórnar Salazar í Portúgal. Hefur hann hvað eftir annað á undan- förnum árum setið í fangelsi vegna þessarar andstöðu sinnar. Humberto Delgado herforingi, sem var í framboði gegn Salazar við síðustu forsetakosningar í Portúgal og nú er landflótta í Brasilíu, sagði í Sao Paulo í dag, að uppreisnin um borð í Santa Maria væri liður í áætlun um að steypa Salazars úr stóli. Hann sagði, að Galavaos myndi nú reyna að ná til hafnar' í Brasilíu. Þá hefur heyrzt til Galavos sjálfs, og staðfestir hann þetta og segist vera reiðubúinn að taka land hvar sem er, ef því verði heitið, að ekki verði hreyft við honum og mönn- um hans né heldur s-kipinu sjálfu. Galvous segist hafa tekið skipið í nafni andstöðuhreyfingarinnar togi þeirrar hreyfingar. Hreyfing togi þeirrar hmreyfingar. Hreyfing þessi sé í fullum rétti til þess að hefna hvers kyns svika og ofbeldis Salazars einræðisherra heima í Portúgal. Fyrirfram ákveðið Eins og fyrr getur, leita nú brezk, bandarísk og hollenzk her- skip Santa Maríu. Talið var, að skipinu yrði siglt til Kúbu, en nú viiðast allar líkur benda til þess, að því verði haldið til Brasilíu. Galvaos upreisnarforingi er sagð- ur hafa hótað að sökkva skipinu með manni og mús, verði gerð nokkur minnsta titraun til þess að hafa hendur í hári hans. Stjórn Portúgals hefur leitað til stjórna Breta og Bandaríkjanná um hjálp við að ná skipinu aftur. Talsmaður andstöðuhreyfingarinn- ar' gegn Salazar einræðisherra í London sagði þar í dag ,að taka skipsins hefði verið gerð í fullu samráði við Belgado herforingja. Ætlunin væri að taka fleiri skip, en þau yrðu síðar notuð til þess að flytja innrásarmenn til Poi’tú- gals. Samkvæmt réttarreglum verðúr litið á Galvaos og menn hans sem hverja aðra sjóræningja, og biður þeiri'a því dauðadómur, ef þeir nást, rétt eins og í gamla daga, en menn hafa talið sjóræningja úr sögunni um langt skeið. Af þessari ástæðu m.a- er talið senni- legt, að Galvaos leiti til hafnar í Brasilíu, þvi að lög þar' í landi gera ráð fyrir, að ekki skuli fram- selja menn, sem brotið hafa það af sér, að varði dauðarefsingu í heimalandinu. Dauðaslys á togara: Ólag tók mann út af Sléttbak Um klukkan eitt aðfaranótt mánudagsíns varð það slys á togaranum Sléttbak frá Akur- eyri, að mann tók út af hon- um, þar sem hann var að veið um úti fyrir Vestfjörðum, og drukknaði hann. Maðurinn hét John Peter- sen, 28 ára gamall og ókvænt ur Færeyingur, sem um mörg undanfarin ár hefur verið á togurum Útgerðarfélags Akur eyinga. John var að vinna, þegar slysið vildi til. Var hann að slá úr trollblökkinni, þegar ólag gekk yfir skipið og færði stjórnborðsganginn í kaf. Eft ir á kom i ljós, að John hafði tekið út. Björgunartilraun mistókst Annar Færeyingur, Einar Muller, kastaði sér þegar á sund til þess að reyna að bjarga félaga sínum, en það tókst ekki. Hann hafði bund ið um sig línu, áður en hann stakk sér, og var illa farinn og meðvitundarlaus, er skip- veq'ar drógu hann um borð aftur. Johns Petersen var leit að um hrið, en það varð ár- angurslaust. Eftir bað sigldi Svalbakur inn til ísafjarðar, og fóru sjópróf í máli þessu fram i fyrradag. Togarinn er nú farinn út aftur til veiða. ED. Plastverksmiðja tekin til starfa á Akureyri Hin fyrsta sinnar tegundar norðanlands og sjötta í röðinni á íandinu öllu. Framleiðsla á einangrunar plasti er hafin á Akureyri, og varan er nú farin að koma á markaðinn, og er þegar eftir sótt, þar sem hún er til muna ódýrari en sams konar fram- leiðsla, sem áður hefur þurft að flytja Norðlendingum frá Suðurlandi. Þetta er fyrsta plastverk- verksmiðjan á Norðurlandi og hin sjötta hér á landi. Fyrir- tækið nefnist Plasteinangrun h.f., og buðu forráðamenn þess fréttamönnum að skoða fyrir tækið og framleiðsluna, sem er til húsa þar, sem áður var út gerðarstöð Guðmunrlar Jör- undssonar við Sjávargötu á Oddeyri. Vélar þær, sem til fram- Farþegum líður vel Santa María var í föi'um milli Brasilíu og Portúgal. Að þessu sinni var skipið á leið til Florída og 'hafði skipið viðkomu á tveimur höfnum í Venezúela. Þar munu uppresnarmenn hafa komið um borð. Eftir að uppreisnin var gerð kom skipið við á Santa Lusíu-eyju. Þar voru þeir þessir í land, sem særzt höfðu í uppreisninni, auk nokkurra fleiri af áhöfn skipsins, sem leyft var að hverfa af því. Einn þessara skipverja sagðist ekki vera í minnsta vafa um, að Galvaos myndi sökkva skipinu, ef reynt yrði að taka það af honum. Margar klukkustundir liðu frá því, að uppreisnin var gerð, þar til vitneskja um hana barst til portú- galskra yfirvalda. Seinna í dag heyrðist í talstöð Santa Maríu. Þar var sagt, að far- þegum liði ölum vel, og þeir væru frjálsir ferða sinna um borð. Hins vegar væru skipverjar flestir í jáirnum og skipiS öruggleglu á valdi uppdeisnarmanna- Var sagt, að farþegar yrðu e.t.v. látnir í land á ákveðnum stað, áður en skipið kæmi til Brasilíu. Farþegar leiðslunnar eru notáðar, eru nýjar frá Vestur-Þýzkalandi og hinar fullkomnustu, sem völ er á. Framleiðslan hefur þegar verið falboðin í nokkra daga, og eftirspurn eftir henni verið mikil. Einangrun arplastið er 200 krónum ódýr ara hver rúmmetri en sams konar aðflutt vara, og nemur sá verðmunur flutningskostn aði. Hráefnið er keypt frá Vestur-Þýzkalandi, og er 1/50 af rúmm. vörunnar fullgerðr- ar, en hún fæst í plötum, 50x100 sm. að stærð, en þykkt ir eru allt frá 1 upp í 25 sm. Stjórn fyrirtækisins skipa Óskar Sveinbjörnsson Reykja vik; Ágúst Steinsson og Mikael Jóhannesson, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri. Verkstjóri er Páll A. Pálsson. með skipinu eru m.a. frá Bret- landi, Bandaríkjunum og Venezú- ela, auk Poitúgala. Galvaos talaði sjálfur um loft- skeytastöð skipsins. Hann sagði, að skipið væri tekið í nafni and- spyrnuhreyfingarinnar gegn Sal- azar einræðisherra. Leiðtogi okkar er Delgado. Hann er rétt kjörinn forseti Portúgals, þótt Salazar hindraði það á sínum tíma með kosningasvikum. Uppreisnin á Santa Maríu kom til umræðu í neðri málstofu brezka þingsins í dag. Það kom fram við þær umræður, að brezka tflotiaforingjanum á Karíbahafi hefur verið skipað að taka Santa Mariu, ef það gerist á opnu hafi og án blóðsúthellinga. Jafnframt var upplýst, að ekki lægi Ijóst fyrir um öll atvik í sambandi við uppi'eisnina og væri því rétt, að fara að öllu með gát. Portúgalska stjórnin leitar á- kaft aðstoðar við að ná skipinu aftur. Hún heldur því fram, að skipið muni fara Li F'úbu. Það sé gert til þess að villa mönnum sýn að halda því fram að farið verði til Brassöía.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.