Tíminn - 25.01.1961, Qupperneq 12
TÍMINN, miðvikudag'inn 25. janúar 19C1.
12
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
íslenzkir þjálfarar á
námskeiði í Danmörku
Blaðamenn ræddu í gær við
Óla B. Jónsson, landsliðsþjálf
ara í knattspyrnu, og Guð-
björn Jónsson, þjálfara hjá
KR, en þeir eru nýkomnir
heim af þjálfaranámskeiði,
sem haldið var I Vejle í Dan
mörku. Þriðji íslendin^urinn
á námskeiðinu var Albert
Sanders, knattspyrnumaður
og þjálfari frá ísafirði.
Slík námskeið eru haldin
annað hvert ár í Danmörku
fyrir knattspyrnuþjálfara en
ÓLI B. JÓNSSON
ekki hafa íslendingar fyrr ver
ið á slíku námskeiði. F'R v0st
aði Óla og Guðbjörn á nám-
skeiðið, en ísfirðingar Albert
Nýr Sailer
vekur athygli
^Sanders. Að þessu sinni var
námskeiðið undir stjórn Arne
Sörensen, landsliðsþjálfara
Dana í knattspyrnu.
j Þeir félagar héldu utan til
' Danmerkur 14. janúar s.l. og
var komið til Vejle daginn
eftir. Móttökuhóf var fyrsta
kvöldið, en námskeiðið hófst
daginn eftir og stóð alla vik-
una. Dagskráin var mjög
ströng, eins og sjá má af því,
að fyrirlestrar og æfingar hóf
ust kl. 8 á hverjum morgni, og
stóðu fram á kvöld, og síðustu
tvo tímana fyrir miðnætti var
leikinn innan hússknatt-
spyrna. Eingöngu var um út-
haldsnámskeið að ræða og
fengu þjálfararnir mjög at-
hyglisverðar æfingar í sam-
bandi við þær. Margir kunnir
þjálfarar héldu og fyrirlestra
á námskeiðinu, og læknir
ræddi um meiðsl leikmanna
og fleira.
ÓIi B. Jónsson skýrði blaða
mönnum frá því í gær, að
hann teldi að þeir félagar
hafi haft mjög gott af að
sækja þetta námskeið. Þeir
fengu á því f jölmargar nýjar
hugmyndir, sem þeir geta
hagnýtt sér við kennslu —
æfingarnar ættu að geta orð
ið mun fjölbreyttari og þar
með um leið skemmtilegri
fyrir knattspyrnumennina.
í því sambandi má geta þess,
að á fyrstu æfingu hjá KR
í fyrrakvöld, sem ÓIi hafði
eftir að hanh kom heim,
fannst knattspyrnumönnun
um æfingarnar mun fjöl-
breyttari og skemmtilegri
en áður.
Um 30 knattspyrnubjálfar-
ar sóttu námskeiðið að bessu
sinni^ flest Danir, en einnig
þrír íslendingar, einn Ung-
verji, einn Finni og tvéir
Austurríkismenn. Danska
knattspyrnusambandið hefur
gengist fyrir slíkum námskeið
um síðan 1942 og útskrifað
íá þeim tíma um 4000 knatt-
i spyrnuþjálfara. Kostar sam-
! bandið til þess um 80 þús. kr.
í danskar á ári.
Þessa glæsilegu handknaitleiksmynd tók Ingimundur Magnússon á afmælismóti Vals á laugardaginn. Hún er frá
leik ÍR og Vals, og sést hinn ágæti handknattleiksmaSur, Gunnlaugur Hjálmarsson svífa inn í markteig Vals-
manna með öruggt tak á knettinum og skora. Gunnlaugur er að margra áliti fremsti handknattleiksmaður'okkar
nú og skotharka hans er geysileg. Hann hefur það fram yfir flesta leikmenn hér, að geta beðið augnsblik með
knöttinn í skotstöðu — elns og myndin sýnir — og það kemur flestum markmönnum úr jafnvægi, þar sem svo
erfift er fyrir þá að reikna út hvenær knötturinn kemur á markið. Þá má geta þess, að Gunnlaugur var einnig
varamarkmaður íslenzka landsiiðsins í knattspyrnu sl. sumar.
Svíar unnu Marteinn Guðjónsson sigraði
Dani
í firmakeppni Skíðaráðs R.
Nafnið Sailer kom aftur
fram nýlega á skíðamöti í
Austurríki — og nýr Sailer
stóð sem sigurvegari á pall-
inum, og þó voru margir
heimskunnir skíðakappar
meðal keppenda á mótinu.
Hér er um að ræða Rudi
Sailer, sem er 16 ára að aldri,
yngri bróðir hins margfalda
Ólympíu- og heimsmeistara,
Tony Sailer. Rudi vann keppn
ina, sem nefnist „Austurríski
-bikarinn" á ágætum tíma.
Hann fór brautina, sem var
2.7 km að lengd á 2.18 mín.
Fallhæð var 695 metrar og
hlið 18.
Toni Sailer sagði eitt sinn
um bróður sinn: Fylgizt með
honum — hanri verður betri
en ég.
Keppt var í innanhúss-
knattspyrnu meðan nám-
skeiðið stóð yfir og var skipt
í átta lið. íslendingarnir þrír
voru saman, og fengu einn
Dana, hinn kunna þjálfara
Jack Johnson, til að fylla
töluna. Báru þeir si~ur úr
býtum í keppninni, léku úr-
slitaleik við lið, þar sem
meðal annars Arne Sören-
sen og hinn kunni landsliðs
maður Tommy Troelsen léku
í, og sigruðu með 1—0 4'bert
lék í marki, og sövðu beir
bræður að hann hefði staðið
sig mjög vel. Voru þetta
skemmtileg lok á ánægju-
legri dvöl i Vejle.
! Á laugardaginn fór fram
i landsleikur í handknattleik
i Kaupmannahöfn milli Dana
og Svia. Svíar unnu öruggan
sigur með 18 mörkum gegn
14 og gefur sú markatala
varla rétta hugmynd um gang
leiksins. í hálfleik var stað- 1
an 7—6 fyrir Svía, en þeir
skoruðu þrjú fyrstu mörkin,
í síðari hálfleik og gerðu þar j
með út um leikinn. Þess má
geta til marks um heldur lé-
j legt sóknarspfl Dana, að átta
af 14 mörkum þeirra voru
skoruð út vítaköstum. Jöns-
son var markhæstur af Sví;
um með fimm mörk, en Dani
elsen næstur með þrjú mörk.
Egon Jensen skoraði helming
af mörkum Dana, þar af 5 úr
vítaköstum. Mogens Olsen
skoraði þrjú mörk, öll úr víta
köstum. I
Firmakeppni Skíðaráðs
Reykjavíkur 1961, fór fram
sl. sunnudag 22. janúar í
Hamragili við Skíðaskála Í.R.
100 firmu tóku þátt í mótinu
að þessu sinni. Mótið hófst kl.
11 f.h. og Var keppni lokið kl.
4 e.h. 10 fyrstu firmun hlutu
silfurbikara sem eru far\nd
gripir.
Úrslit í keppninni sem er
forgjafarkeppni urðu þessi:
1. Heildverzlun Sveins Helga
sonar( kepp. Marteinn
Guðjónsson) 41.0 sek.
2. Verzlunin Vísir (kepp. Þor
kell Þorkelsson) 41.5 sek.
3. Brunabótaf. íslands (kepp.
Haraldur Pálsson) 42.4 sek.
4. Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
rnundssonar kepp. Sigurður
R Guðjónsson) 42.5 sek.
5. Gullsm.vinnustofa Þórar-
ins og Bjarna (kepp. Úlfar
J. Andrés'son) 42.7 sek.
6. Trésmiðja Birgis Ágústsson
ar (kepp. Svanberg Þórð-
arson) 42.8 sek.
7. Verzlunin Eygló (kepp. Ás
grímur Ingólfsson) 43.9 sek.
8. Ræsir h/f (kepp. Bogi Níls
j son) 43.9 sek.
9. Sjóvátryggingarfél. íslands
(kepp. Guðni Sigfússon))
' 44.1 sek.
10. Verzlunin Vaðnes( kepp.
Hinrik Herm.son 44.4 sek.
í
I Að keppni lokinni var sam
eiginleg kaffidrykkja og verð
launaafhending í Skíðaskál-
anum. Mótsstjóri, Bjarni Ein
arsson þakkaði firmunum,
. képpendum og starfsfólki fyr
ir alla fyrirgreiðslu í sam-
bandi við keppniiia.