Tíminn - 25.01.1961, Blaðsíða 16
Miðvtkudaginn 25. janúar 1961.
20. blað.
Einnf sem tekur fast í spottann
Verður skalli grædd-
ur með uppskurði?
Upphafsmaðurinn austurrískur — tilraunir
gertiar á Nor'Surlöndum
Sumir segja, að nú séu
horfur á, að sænsk kýr, sem
var í blóma lífsins fyrir tutt-
ugu árum, komist inn í sögu
læknavísindanna. Þessi
sænska kýr vann sér þó ekki
annað til ágætis, svo að getið
sé, en að hún sparkaði rösk-
lega í höfuðið á sköllóttum
fjósamanni og fletti í sundur
á honum höfuðleðrinu. Sárið
greri, og nokkru síðar gerðist
undrið: Hár tók að vaxa að
nýju á skalla fjósamannsins.
Kýrin er fyrir löngu geng-
in fyrir ætternisstapann, en
fjósamaðurinn lifir enn,
minnugur þess, hvernig hann
losnaði við skallann. Og þeg-
ar hann las um það í blöðun-
um fyrir skemmstu, að sænsk
ir læknar væru farnir að gera
tilraunir til þess að lækna
Skalla með skurði, varð hon-
um hugsað til kýrinnar, sem
fyrst allra framkvæmdi slíka
aðgerð með árangri.
Höfuðleðrið of strítt
Það var austurrískur lækn-
ir, sem fyrstur manna fram-
kvæmdi skurðaðgerðir vegna
skalla. Hann telur, að orsök
skalla sé að jafnaði sú, að höf
uðleðrið er of strítt þanið um
höfuðið — eða þó öllu heldur
sinar þær undir húðinni,
er þekja höfuðkúpuna eins og
hjálmur. Þetta torveldi blóð-
rás að rótum höfuðháranna,
svo að þau deyi og detti af.
Við aðgerðir vegna þessa
ágalla er beitt staðdeyfingu,
og sjúklingarnir þurfa ekki að
vera í sjúkrahúsi á eftir. Skurð
ur er gerður þvert yfir höfuðið
og fylgt er hrukku á húðinni,
svo að ör sjáist ekki, þótt að-
gerðin misheppnist. Síðan er
skálpurinn losaður að fram-
an, áður en gert er að skurð-
inum.
Tilraunir í Danmörku
Austurríski læknirinn hef-
ur gert slíkar aðgerðir hundr
að sinnum, meðal annars á
mörgum útlendingum, er kom
ið hafa til Austurríkis. í lok
síðasta árs sagði t.d. danskur
maður, sem handtekinn var
þar, sakaður um rán, að hann
hefði notað peningana, sem
hann stal, til þess að leita sér
slíkrar lækningar við skalla.
Aftur á móti er rétt að geta
þess, að margir eru vantrúaðri
(Framhald á 2. síðu.)
Fyrr meir voru hákarlalegur
einn þátturinn í lífsbaráttu ís-
lendinga, til dæmis Eyfirðinga,
Iljótamanna og Strandamanna.
Þeir reru á opið haf á hákarla-
skipum sínum og höfðu þar oft
margra daga setur í kulda og á-
gjöf að vetrarlagi, lengi framan
af án annars skjóls en þess, sem
kiæðnaðurinn og borðstokkar báts-
ins veittu.
Eigi að siður fóru konur stund-
um í hákarialegur, og eitt dæmi
er um það, að kona hafi alið barn
í hákarlalegu. Þær kveinkuðu sér
nefnilega ekki við að fara slíkar
ferðir, þótt þær væru komnar að
falli, formæður okkar. Það gerö-
ist um miðbik nítjándu aldar, að
kona af Ströndum fæddi barn við
slíkt tækifæri. Til lands var að
visu snúið, þegar hún tók létta-
sóttina, en barnið leit ljós heims-
ins á hafi úti í kalsaveðri og sjó-
gangi. Einn skipverja fór úr ull-
arpeysu, sem síðan var vafið um
hmn unga Strandamann — og öllu
famaðist vel, bæði móður og
barni.
Myndin hér að ofan er ekki
tekin úti á Strandagrunni, þótt
það sé hákarl, er bitið hefur á
krókinn, heldur suður á miklu
hlýrri og mildari slóðum — sem
sé suður við Flórídaskaga. Sæ-
dýrasafnið í Miami er að láta
veiða hákarl handa sér. En fast
tekur hann í, sá grái, þótt í suð-
rænum höfum sé. Og svipaður er
umbúnaðurinn hákarlasóknunum
íslenzku.
12 milljónir lítra
vatns frá Höfn
Á elleftu siðu blaðsins i dag er grein eftir Baldur Óskarsson blaðamann
um Sigurjón Ólafsson myndhöggvara og starfskilyrði þau, sem við íslend-
ingar búum honum. Myndin hér að ofan er af styftunni, sem Sigurjón
terðl af séra Friðrikl Frlðrikssyní og nú stendur við Lækjargötu.
Nú er farið að flytja drykkj
arvatn yfir Atlantshafið. Fyrir
skömmu sigldi skip frá Kaup-
mannahöfn með tólf milljón
lítra af vatni, sem átti að fara
til Curacao í hollenzku Vest-
ur-lndíum.
Til þessa flutnings var feng-
ið norskt tankskip. Þetta er óneit-
anlega laglegur sopi, en samt er
þetta aðeins fjórtándi hluti af dag-
legri vatnsnotkun í Kaupmanna-
höfn. En félagið, sem annast þessa
vatnsflutninga, hefur aldrei fyrr
í sögu sinnj verið beðið um jafn- j
rnikið vatn.
Drykkjarvatn á hollenzku . Vest- j
ur-Indíum, Curaeao og olíueynni
Aruba, er mjög dýrt. Þar rignir
oft ekki árum saman, og vatns-
geymar á eyjunum eru að jafnaði
fylKir með vatni frá meginlandi
Ameríku.
Nazistaóeirðir
vestan hafs
Óeirðir miklar hafa orðið af
völdum nazista í íveimur
um Bandaríkjanna, Boston og
Chicago, í sambandi við sýningu
á kvikmyndinni Exodus, er fjall-
ar um flutning Gyðinga til Palest-
ínu, landnám þeirra þar og stofn-
un Ísraelsríkis. Er mynd þessi
gerð eftir skáldsögu, sem ber
sama nafn.
í þessum uppþotum hafa hinir
bandarísku nazistar klæðzt brún-
(Framhald á 2. síðu.)
í Kaupmannahöfn kostar hver
lest af vatni, er skip fá, þrjár
krónur danskar. En þegar þetta
vatn er koinið vestur yfir Atlants-
hafið, verður hver lest seld á tíu
dollara. Það er betra að fara spar-
lega með vatn á hollenzku Vestur-
Indíum.
Kom af f jalli
Þau óvenjulegu tíðindi urðu
fyrir viku siðan austur í Loð-
mundarfirði, að óþekktur lamb-
hrútur var allt í einu kominn
saman við heimaféð í Stakkahlíð.
Hann reyndist vera frá Ána-
stöðum { Hjaltastaðaþinghá og
hefur gengið úti allan veturinn
fram að þessu, einn að því er
virðist, og hefur vel' kunnað að
bjarga sér, því að hann var vel
fram genginn og sprækur vel.
Hefði hann þó varla mátt koma
öllu síðar til að ná i tilhleypingar
þeirra Loðmfirðinga. I.H.
F ramsóknarfélags-
fundur í kvöld
Umræðuefni: Erlent fjármagn
Fi'amsóknarfélag Reykjavíkur
heldur fund í Framsóknarhúsinu
í kvöld, og hefst hann klukkan
hálf-níu.
Þar mun Jón Skaftason alþingis-
maður flytja framsöguerindi, er
hann nefnir Uppbyggingu íslenzkra
atvinnuvega og erlent fjármagn.
Þetta er1 mál, sem nú er mjög
til umræðu manna á meðal, og má
því ætla, að marga fýsi að heyra,
hvað Jón hefur um það að segja,
og jafnvel ekki ósennilegt*, að
ýmsir vilji leggja þar orð í belg.
Þess er vænzt, að félagar fjöl-
menni á fundinn og taki með sér
gesti.
JON SKAFTASON