Tíminn - 11.08.1961, Blaðsíða 13

Tíminn - 11.08.1961, Blaðsíða 13
> TÍMINN, föstudaginn 11. ágúst 1961. 13 ins, myndi þá hestur lakari barn- inu til skemmtunar en margt ann að, þar sem sýnt er, að hægt er að' temja hesta á svo margan hátt börnum til unaðar og íþrótta? Hins vegar er rétt að gera sér grein fyrir því, að uppeldi og eink um þó tamning hesta kostar tals- vert, aðallega þó fyrirhöfn. Enn fremur má gera sér það ljóst ,að mörg hross borga aldrei þá fyrir- höfn, vegna þess að þau vantar þá hæfileika, sem í þeim þurfa að búa. Með ræktun hestsins er verið að útrýma ókostunum, og allir vita, að þetta er hægt, en tekur sinn tíma og hefur óhjákvæmileg- an kostnað í för með sér. Fjöldi bæjarmanna þrá að eignast vel- tamda hesta, þæga gæðinga. Þá snilld og það vit, sem alhliða góð- hestur hefur að geyma, kunna ekki allir menn að meta til fulls og það af þeirri einföldu ástæðu, að örfáir menn sýna hestum sín- um þann sóma, atlæti og tamn- ingu, að þeir leggi fram nema hluta af kostum sínum og hæfi- leikum. Fæstir bæidur hafa tíma ti.l að gera unghes.ta sína nema band- v'ana. Þess vegna hafa hestamanna félögin komið á fót tamningastöðv um, skólum fyrir ótamin hross. Pil slíkrar vetrarstarfsemi þarf vönduð hesthús og úrvals kennara (tanmingamenn). Frá þessum hestaskólum, sem jru mjög margir í landinu, koma árlega mörg ungvið'i, sem hlotið hafa byrjunarþjólfun. Eigandan- um ber svo að halda áfram að temja, en hvernig það tekst er ætíð borin von. Eigandinn verð- ur að vera laginn réiðmaður, til þess að framhaldstamning beri sæmilegan árangur og kunnáttu- samur til þess að gera sér gæðing. i’. Sennilegt má telja, að' einn þátt 'ur kynbótastarfsins verði með' tímanum s'á, að altemja, þannig að„ fullséð verði á tamningastöð- i.nni hvers konar hest sé um að ræð'a. Hitt yrði svo að vera eig- andans verk, að veita hesti sín- um frekari þjálfun, s.em kæmi með tíð og tírna. Það er svo sérstakt mál, að kenna fólkinu reiðmennsku, þó að mörgum mönnum sé þegar ljóst, að einnig það á að koma í kjölfar ræktunar hestsi.ns, er sú framk'væmd enn ekki tímabær, meðal annars vegna þess, að for- ustumennirnir eru smeykir við orðið reiðskóli, en þetta tvennt, að temja hesta og kenna áhuga- fólki að ríða hesti, er nátengt hvort öðru. Hvað sem öllu þessu Iíður, er augljóst, að á bak við það hesta ræktarstarf, sem þegar hefur unn izt og sýnt var nú síðast á Rangár- bökkum, liggur mikið starf. Starf reist á mikilli trúmennsku og á- huga nokkiuTa manna, ýmist sem trúverðug þjónusta og sjálfboða- vinna jafnframt eða eingöngu s.em sjálfboðavinna í ótal myndum. Margir menn vilja ófúsir una því, að blöð og útvarp sýni þeim áhuga skort í sambandi við þau störf, er ég hef hér farið um nokkrum orðum. Að lokum legg ég til að stjórn ýmissa móta, sem haldin eru í sveitum, leggi til glöggan, smekk legan leiðbeinanda-, en blöðin og útvarpið, fréttamenn og Ijósmynd ara, Þannig væri tryggt svo vel sem hægt væri, að framreitt yrði fréttaefni, kærkomið öllu fjar- stöddu sveitafólki og fjölda bæjar manna. Þess háttar vinnubrögð my/idu jafnframt fullnægja þeim tilgangi blaða og útvarps að gera sitt bezta fyrir alla lesendur og hlust endur. Ats. ritstjóra. Rétt er að geta þess sem athugasemdar við grein Bjarna á augarvatni, að Tíminn sendi til landsmóts ungmennafélag anna að Laugum þrjá menn, blaða mann, íþróttafréttaritara og ljós- myndara. Lýstu þeir síðan mótinu Jóhannes Ásgeirsson: Ævintýri ofan skýja og neðan Þegar ég var unglingur, las ég mjög tröllasögur og alls konar ævintýri — og þar á meðal ævintýrið um klæðið, sem leið um loftið — klæðið, sem flaug. Þá þurfti ekki ann- að en stíga á klæðið og segja: „Fljúgðu, fljúgðu, klæði". Þá hófst það á loft og flaug til óskalandsins með farþegann eða farþegana. Á þeim árum hef ég víst lítt hugsað um það, hvernig slíkt mætti eiga sér stað á raunhæfan hátt. Nú skilst mér, að slíkar frá- sagnir séu táknrænar fyrir þá þrá og ósk mannsins að geta flogið eins og fuglainir, áður en flugvél- ar komu til sögu. Svo var það fimmtudaginn 13. júlí 1961, að mér datt í hug að stíga á klæðið eins og í gömlum ævintýrum. Klukkan 2,15 eftir hádegi á ég að koma suður á Reykjavíkurflugvöll. Eg lét ekki standa á mér, en það dróst, að lagt væri af stað. Eg sat í afgreiðslu- salnum ásamt Kjartani Hjálmars- syni, kennara. Birtist þá allt í einu mikill maður að vallarsýn — Láius Salómonsson hinn sterki — og ! býður okkur að setjast við borð : sitt og drekka með sér kaffi. Var það böð með þökkum þegið. Gerðist nú stundin stutt, áður en kallað væri til brottfarar, og jskyldu þeir, sem hefðu töluna 3 á spjaldi sinu ganga út að flug- vélinni. Þessi flugvél var raunar ekkert klæði, heldur ferlíki mikið, sem að skapnaði var hvorki fugl né fiskur, en hafði þó svip hvors tveggja. i Eftir stunur miklar og þrumur i hófst ferlíkið á loft og yfirgaf jörðina. Eftir stutta stund var j sólskinið horfið ásamt jörðinni, og 1 umhverfis ekkert nema úrg þoka. 1 Stundum sást þó upp í heiðan , himin, en neðan við okkur sáust ' aðeins hvítir skýjabólstrar. Ein- staka sinnum sáum við þó niður um skýjaþykknið til jarðar, en I þar voru allir hlutir orðnir smáir 1 í fjarlægðinni, jafnvel fjöllin orðin lágkúruleg og byggingar mann- anna eins og barnaleikföng. Ekki leið þó á mjög löngu, áður en flugvélin lækkaði flugið og við stóðum aftur á jörðinni — austur á Héraði hjá Egilsstöðum, þeim landskunna stað. En hér var ekkert sólskin og kuldinn napur sem á þorra. Eg var svo heppinn að ná þá þegar í bílstjóra, Har- ald Magnússon að nafni, á Vík- ingsstöðum í Vallahreppi, og ók hann mér þegar um kvöldið fram að Þingmúla í Skriðdal. Þar var til forna þingstaður fyrir fjórð- unginn, og draga sýslurnar báðar nafn af honum — Múlaþing. Þarna var lengi prestssetur, og þar er j enn gömul kirkja og grafreitur í Skriðdæla. 1 Fögur er fjallasýn í Skriðdal og víða vinalegt að líta heim til bæja, þótt aðeins séu nokkur skref frá sumum bæjum upp að neðstu snjósköflunum í fjallshlíðum. Kalt er hér í klettasal, . kulda slær að mönnum. Skúmhöttur í Skriðudal, skjöldóttur af fönnum. í fjarska blámaði fyrir Breiðdals heiði, þar sem daladrögin enduðu. Eftir góðar veitingar og viðtök- í frásögn og myndum, og birtust frá mótinu 17 myndir hér í blað- inu, og a.m.k. lesmálsfrásögn á fjórum síðum. Var þar í senn heildarlýsing á mótinu og öll úr- sl.it í fr>':„um íþróttum, sundi og starfsíþróttum. X ur í Þingmúla, ókum við í Hall- ormsstaðaskóg. Þar inni í skóg- inum ,er eyðibýlið Ormsstaðir. Guttormslundur er sérkennilegasti staðurinn í skóginum. Laufskrúð trjánna er svo þétt, að skuggsýnt er í lundinum og trjástofnarnir svo sléttir og jafngildir, að þeir minna á súlur, er bera uppi víð- áttumikið hvolfþak á stórri bygg- ingu. Svipur Atlavíkur er sér- kennilegur og hlýlegur. En bragg- ar — eða byggingar í braggastíl — stóðu þar í útjaðri eins og líkamslýti á fagurri ásjónu. Eg skil ekki, hvers vegna Atli gamli landnámsmaður er að þola þetta í landi sínu. Daginn eftir er ég á leiðinni til Akureyrar. Þokan — þessi gamli óvinur ferðamannsins ligg- ur enn yfir öllum fjöllum og byrg- Jökuldalurinn er mjög langur og vart meira en hálfnaður, þar sem vegurinn beygir upp á Jökul- dalsheiði. Heldur er hún kuldaleg og hrjóstrug heiðin sú í augum ferðamannsins, sem kemur frá gróðursælum sveitum og héruðum. Hún mun vera hæsta og víðáttu- mesta háslétta landsins, þar sem byggð hefur verið. Þarna ber mest á gróðursnauðum sandöldum og grýttum ásum, en inni á milli þeirra munu þó leynast á stöku stað lífgrös þessarar víðáttumiklu lieiðar, þar sem byggð hélzt þó í rúma öld. Fyrsta býlið mun hafa verið reist þar 1841, og hið síðasta fór í eyði 1943—4. Svo langt var þar yfir’leitt á milli bæja, að svaraði 2—3 Mukku stunda göngu, og fram til 1875 voru fjarlægðirnar svo miklar til í uppeldisstöð í Atlavík. ir alla útsýn. Við höldum yfir Lagarfljótsbrú og upp í Fellin, en sjáum aðeins nokkra metra frá bílnum. Þegar komið er að Hró- arstungu, fer þokunni að létta, og sér þá til Héraðsflóa og Hlíðar- fjalla. Hróarstunga hefur greini- legan heiðasvip, en gróin er hún vel og grösug að sjá. En ekki gat ég komið auga á þá miklu fegurð þar, sem Páll Ólafsson yrkir svo um: Við mér hlógu hlíð og grund, hvellan spóar sungu. Enn var þó til yndisstund í henni Hróarstungu. En brátt hverfur Hróarstunga einnig að baki, en Jökuldalurinn kemur í framsýn ásamt Jöklu gömlu, sem brýzt áfram öskugrá og reiðileg yfir ófrelsi sínu milli þröngra bergveggja. Lengi hefur hún reynt að sprengja þetta gamla fangelsi, þessa fjötra, til þess að öðlast meira svigrúm og frelsi, en bergrisarnir eru sterkir og láta Jöklu ekki ganga sér úr greipum, þótt átök hennar og umbrot verði stundum tröllsleg og æðisgengin. Mikið er um grávíði og önnur gæðagrös á Jökuldal, og mun þar vera sauðland ósvikið. Ekki undr- ar mig heldur, þótt Benedikt minn Gíslason frá Hofteigi sé þrekinn um herðar og þéttur á v’elli að hafa alizt upp á því kjarnmikla sauðakjöti, sem þarna er framleitt. Við komum við á Skjöldólfsstöð- um, þeim gamla landnámsbæ: „Skjöldólfur Vémundarson, bróðir Berlu-Kára, nam Jökuldal fyrir austan Jökulsá upp frá Hnefils- dalsá og bjó á Skjöldólfsstöðum." aðdrátta úr næsta kaupstað, að svara mundi til 16—18 stunda lestaferðar. Sá hluti heiðarinnar, sem vegurinn liggur um, heitir Miðbunga. Á þeirri leið sá ég rúst ir tveggja eyðibýla. Þær voru sagnafáar, en gáfu þó grun um það, að frá ýmsu hefðu þær að segja um lífsbaráttuna, sem þar ( var háð á sinni tíð, og þá ódrep- andi seiglu og kjark þessa fólks, sem háði styrjöldina við æðis- i gengna stórbylji hásléttunnar, sam gönguleysi og öryggisleysi á öll- um sviðum. Mér varð hugsað til gamla dals- ins heima, þar sem ég ólst upp. Þar var talið afskekkt og erfitt til aðdrátta, og finnst mér þó, að það hafi verið leikur hjá því að búa uppi á Jökuldalsheiði, því að í kaupstað þaðan var álíka langt og til næsta bæjar á heiðinni. Þegar yfir Jökuldalsheiði kem- ur, tekur við íslenzk eyðimörk — Möðrudals- og Mývatnsöræfi. Þar sést varla stingandi strá á tugum kílómetra. Möðrudalur er eins og vin í eyðimörk þessari. Þar er fag- ur fjallahringur og litir furðulegir : í fjöllum, svo að ég hef ekki séð ! þá annars staðar fíngerðari að ' blæbrigðum. Þeim verður ekki lýst svo að gagni verði. Ferðamað- urinn verður að sjá það sjálfur. Á Grímsstöðum drukkum við kaffi. ! Mikið hefur verið byggt í Reykja hlíð við Mývatn- síðan ég kom þar síðast árið 1937. Þar er í smíðum ný kirkja. Gamfi bærinn er að gef ast upp fyrir nýja tímanum. Hann er að falla og einmanalegur í hópi þessara nýju bygginga. Framsóknarfundurinn (Framhatd a.t 9 siðu I voru þjóðhollir, hóflegir og sann gjarnir samningar, sem voru svo | vel úr garði gerðir, að þeir áttu að \geta orðið grundvöllur varan- i legra kjarabóta og vinnufriðs í landinu næstu ár. Samvinnufélög in leystu þann hnút, sem ríkis- stjórnin var búin að koma kjara málunum í. Samningarnir voru gerðir til langs tíma og segir það nokkuð til um vinnubrögðin. Það var farið öðru vísi að en þegar Bjarni Ben. lét atvinnurekendur bjóða fram kauphækkanir sum- arið 1958, eftir að launin höfðu verið hækkuð með lögum og vitað var, að kauphækkun umfram það myndi setja efnahagsaðgerðir vinstri stjórnarinnar úr böndun- um. Samkomulag samvinnufélag- anna og verkalýðsfélaganna var gert til eins árs og var ekki upp- segjanlegt, nema ef gengislækkun yrði eðá vísitalan hækkaði um 5 stig. Eftir ár skyldi kaup svo hækka um 4% og samningarnir framlengjast, ef báðir aðilar sættu sig við það. Voru þeir þá ekki upp segjanlegir, nema vísitalan hækk að'i um 7%. Eftir tvö ár akyldu samningarnir svo framlengjast enn, ef báðir aðilar sættu sig við. Eftir allt sem á undan var gengið déttur engum í hug að 10% kaup hækkun hafi verið meira en hugs- anlegt var að ná samkomulagi um við verkalýðsfélögin. En ef þessir samningar samvinnufélaganna og verkalýðsfélaganna voru gerðir til þess að sprengja ríkisstjórnina í loft upp eins og Mbl. og Alþbl. segja, dettur þá nokkrum í hug að halda, að eytt hefð'i verið í það 4 nóttum og 4 dögum til að ná slíkum atrið'um inn í samninga, sem þessum, er stuðla áttu að var anlegum vinnufriði? Menn skulu athuga það, að 5 vísitölustig nú svara til 10 stiga í tíð vinstri stjórnarinnar og 7 stig ti:l 15 stiga 1958. Vinstri stjórninni var hins vegar neitað um eitt einasta stig, en það var vegna þess, að Moskvu- kommúnistar og kratar vildu vinstri stjórnina feiga. Ef vinstri stjórnin hefði fengið slíka samn- inga og þessa, þá sæti hún eflaust. enn við völd og þá hefðu menn ekki fengið það yfir sig, sem þeir hafa orðið að þola og það ætti að vera ýmsum holl lexía. Að loknum ræðum framsögu- manna töluðu þeir Hannes Páls- son, Einar Ágústsson, Óskar Jóns,- son frá Vík og Þórarinn Þórarins son. Úr þessu mun ég fara fljótt yfir sögu. Sunnudaginn 16. júlí fórum við í glampandi sólskini frá Akur- eyri. Kaldbakur var kuldalegur en tignarhár til að sjá, þar sem hann stóð sem útvörður Eyjafjarðar á yzta nesi. Þegar við komum inn í Oxnadalinn, hvolfdi gamli þoku- óvætturinn sér yfir fjöllin, svo að ég sá aðeins móta fyrir Hraun- dranga eins og tröllkarli. Sjö eða átta eyðibýli taldi ég í dalnum, og þar á meðal Bakkasel, sem eitt sinn var gestahæli allan ársins hring að heita mátti. Mér fannst Blöndu hafa farið illa aftur síðan ég sá hana síðast fyrir 3—4 árum. Hún bældi sig niður milli lágra steina og læddist fram. En einhvern veginn grunaði mig það samt, að enn ætti hún það til að skvetta úr sér, þótt göm- ul sé að árum. Á Blönduósi hafa litlar breyting ar orðið síðustu tuttugu árin finnst mér. Þegar ég kom í Hrútafjörð, fannst mér þar svo kuldalegt um að litast, að mér datt í hug gömul vísa um einhvern stútabjóð, sem þar hafði átt heima og ýmsum þótti gott að hitta, og mundi enn gott ef hann væri uppi. En vísan er svona: Þú ert Hrútafirði frá frægur stútabjóður. Mjaðarkútum aðeins á elur klútatróður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.