Tíminn - 25.10.1961, Page 16

Tíminn - 25.10.1961, Page 16
MiðVikudaginn 25. október 1961. 273. blað. Vetrardagskrá vérður lengri Rjúpa háftið úr hafi Dagskrá Ríkisútvarpsins verður lengd í vetur, þannig, að fyllt verð ur í eyðuna, sem hefur verið í sfð'- degisdagskránni. Verður útvarpað ósíitið frá hádegi til kvölds. r Breyttar fréttir Préttatúni verður áfram klukk- an hálfátta á kvöldin. Fyrir þá, sem telja sér þann tíma óhentug- an, verður útvarpað greinilegu fréttayfirliti klukkan átta. Frétta- aukar verða að jafnaði fleiri og styttri en nú og í nánu sambandi við nýjustu atburði. Innlendum fréttum verður bætt við þær et- lendu í morgunfréttunum klukkan Auglýsingar á staurum og biðskýlum Að undanförnu hafa verið nokkur brögð að því, ag auglýs- ingar væru festar, negldar eða lírndar, á staura, hús og strætís- vagnabiðskýli hér í Reykjavík. Þetta mun vera bannað í lögreglu samþykkt Reykjavíkur og því gjör samlega óheimilt, nema leyfi lög- reglustjóra komi til. Stjórnmála- , flokkarnir hafa gefið fordæmi að þessum óþrifnað'i fyrir kosningar, svo segja má um hina smærri auglýsendur: „Hvað höfðingjamir hafast að, hinir ætla sér leyfist það“. hálf níu. Þingfréttir verða teknar upp í almennar fréttir, en gamla þingfréttatímanum verður einnig haldið áfram. Svipuð dagskrá Meginatriði vetrardagskrárinnar eru annars svipuð því, sem verið hefur. Sunnudagsþættir verða þrír, sem skiptast á, á þriggja vikna fresti. Það er samsettur gamanþáttur, spurningakeppni- þáttur í nýju formi og umræðu- þáttur um ýmis þjóðinál, eins og verið hefur. Um þessa þætti sja Sigurður Magnússon, Flosi Ólafs- son, Jónas Jónasson, Gestur Þor- grímsson og Guðni Guðmundsson.! „Því gleymi ég aldrei" Sú nýbreytni verður tekin upp, að leita sérstaks sambands við hlustendur um nýtt efni. Ætlun- in er að bjóða til verðlaunakeppni um frásagnir af minnisstæðustu atburðum úr lífi manna og nefna þáttinn: Því gleymi ég aldrei. — Verða veitt rífleg verðlaun fyrir beztu erindin, en áskilinn flutn- ingsréttur á sem flestu góðu efni, sem býðst á þennan hátt. Af samfelldum erindaflokkum má nefna: Erindaflokk dr. Sturlu Friðrikssonar um erfðafræði, flokk dr. Brodda Jóhannessonar um sögu framtíðarinnar, flokk Bjöms Bjarnasonar um stærð- fræði og flokk um evrópiskar nú- tímabókmenntir. Haldið mun vera áfram kynningar og fræðsluerind um um þjóðir og ríki, í svipuðu formi og í fyrra vetur. Húsavík, 23. okt. Þegar skipverjar á m.b. Sæborgu frá Húsavík'voiu að draga net sín vestur undir Kinnarfjöllum á Skjálfanda s.l. laugardag, vissu þeir eigi fyrr til en rjúpa skall utan á bátinn og féll síðan í sjóinn við netin, sem þeir voru að dragá. Rjúpan festist ekki í netunum, en gat enga björg sér veitt. Skip- verjar brugðu við skjótt og veiddu hana upp með háfi. Rjúpan brölti um, en skipverjar tóku hana til sín og losuðu hana úr háfnum. Vildu þeir sleppa henni strax, en hún virtist ekki geta flogið og féll aftur í sjóinn, en aftur veiddu þeir hana upp með háfnum. Borin til káetu Vildu þeir umfram allt bjarga rjúpunni og báiu hana til káetu, og höfðu hana með sér til lands. Þeir höfðu hana í bátnum hjá sér, meðan þeir voru að landa fiskin-, I um, en þegar þeir ætluðu að ná í 1 hana, var hún orðin hin sprækasta og flaug fram og aftur um káet- Picasso áttræður í dag er málarinn heimsfrægi, Picasso, áttræSur. Hann var spurSur aS þvi um daginn, hvort list hans væri meira skilin nú, en þegar hann byrjaði að máia kúbistískt, fyrir áratugum. „Nei, alls ekki", svaraði sá gamii, „þvert á móti. Nú er ég orðinn frægur. Af öllu illu er frægðln verst. Hún vanar listamanninn. Það er grátlegt". una. Eftir nokkurt þóf tókst að handsama hana, og hafði skipstjór- inn, Karl Aðalsteinsson, þennan skjólstæðing sinn heim með sér, því hann vildi ekki gera endasleppt við hana. Þegar rjúpan hafði verið nokkra stund í góðri hlýju, sendi Karl stráka með hana upp á tún, og þar greip hún strax flugið og hvarf. Eins og sagt var frá í Tímanum í sumar átti hryssa á Tindum á Skarðsströnd í júlí siðást liðnum tvo folöld, sem er ákaflega sjald- Fyrsti fiskfarmurinn frá Kópavogsbryggju Á laugardaginn lagðist Helga RE 49 að bryggjunni í Kópa- vogi til þess að lesta ísaðan fisk, sem skipið sigldi með til Englands í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn, að skipað er .út frá Fiskverkunar- stöðinni h. f. í Kópavogi. Helga mun vera fyrsta skipið, sem kemur þar að bryggju. Hún er um 190 lestir að stærð. Fiskverkunarstöðin tók til starfa fyrir hálfum mánuði. Þá var byrjað að salta þar fisk. Nokkrir snurvoðabátar hafa lagt þar upp afla sinn. Byrjað var að ísa í kassa og skipa um borð í Helgu á laug- ardaginn. Skipið lét úr höfn í gærkvöldi með 60 lestir af ís- i fiski, mest kola, en nokkuð af ýsu og þorski, og siglir emð það tilEnglands. í fiskverkunarstöðinni vinna nú um 20—30 manns. Húsin eru í eign Kópavogskaupstaðar, en leigð af Fiskverkun h. f. Frá gangi á húsunum er ekki lok- ið, en smíðavinna stendur enn yfir. Þau eru um 1400 fermetr- ar. Á myndinni hér til hliðar er Helga við bryggjuna í Kópa- vogi. Staur brotinn - hesti iógað Akureyri, 23. okt. — Rétt fyrir helgina bar það til, að ekið var á steinsteyptan ljósastaur i Hafnarstræti og hann mölbrotinn. Bíllinn, 6 manna fólksbíll ,stór- skemmdist, en ökumaðurinn, sem var einn í honum, slapp ómeidd- ur. Þá bar það til hjá Dvergasteini í Glæsibæjarhreppi, að bfll frá Akureyri ók á hest á vegmum og þríbraut annan framfót hans, auk fleiri meiðsla. Lögregla var kvödd á staðinn ásamt dýralækni, og hestinum lógað. Eigandi hans var Akureyringur. ED. Biðskylda Bæjarráð hefur samþykkt til- lögu umferðarnefndar um bið- skyldu á Lokastíg gegnt Njarðar- götu og á Múlavegi gegnt Laugarásvegi. gæfur viðburður Hér erum við komnir með mynd af hryssunm og folöldunum tveimur, og verður ekki annað séð, en hvoru tveggja vegni ágætlega.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.