Tíminn - 06.12.1961, Blaðsíða 1
Áskriftarsími Tímans er
1 -23 23
WaSfL- 45. árgangur.
Miðvikudagsgreinin:
íslenzkt sjónvarp
bls. 8.
d
Miðvikudagur 6. desember 1961.
Engin minkaskot
síðan í fyrravor
Þessi mynd var tekin i Gufu-
nesl í gær, þar sem stærsti krani
á íslandi var notaSur við bygg-
ingu stærstu skemmu landsins.
Maðurinn uppi á þaklnu varð að
tala við þá, sem niðri á jörðu
voru, f gegnum síma. — (Ljós-
mynd: TÍMINN — G. E.).
Hér er starfandi veiðimála-
stjóri, sem sjá skal um eyð-
x ingu minka og refa. í hverri
sveit hefur verið valinn sér-
stakur maður, sem á að starfa
að minkaeyðingu, og um
grenjatímann, fyrri hluta
sumars, mega ekki aðrir fást
við þetta. Loks eru tvö hundr-
uð krónur greiddar í verðlaun
fyrir hvert minkaskott, sem
framvísað er. Aftur á móti
hafa minkaskot verið harla
torfengin í landinu um langt
skeið. Hér er þess vegna mis-
ræmi á kappi því, sem lagt er
á að útrýma þessu skaðræðis-
dýri, og þeim tökum, sem ver-
ið hafa á því að afla þess, sem
til þess þarf.
Við minkaveiðar eru notaðar sér
stakar byssur, sem fluttar voru
inn fyrir nokkrum árum að til-
hlutan veiðimálastjóra, og kom
þá meg þeim nokkuð af skotfær-
um af þeirri gerð, sem hæfa þeim.
Síðan hafa tékknesk skot verið
flutt inn í þessar byssur, og mun
ein verzlun í Reykjavík hafa ann
azt þann innflutning að mestu eða
öllu leyti. x
Nú hafa þessi skot ekki fengizt
í hálft ár, og mun stranda á því,
að hin tékkneska verksmiðja fram
leiðir verulegar birgðir af þessum
(Framhald á 15. síðu).
Enginn nagli
er notaður í stærstu
*
vöruskemmu Islands
Það var stolt útflytjandans í
Strompleiknum, að pakkhús
hans hafði stærsta gólfpláss á
landinu. Nú hlýtur honum að
vera brugðið, því að í gær
komumst við að snoðir um, að
uppi í Gufunesi væri að rísa
skemma, sem ætti sér engan
líka hérlendis, enda reyndist
það rétt vera. Svo stórt stein-
hús hefur ekki fyrr verið
byggt hér á landi, án þess að
það væri styrkt með súlum. í
áburðargeymslunni í Gufunesi
er engin styrktarsúla og eng-
inn stálbiti, og það hefur held-
ur enginn nagli verið rekinn í
uppsláttinn.
Það var verkfræðistofa Stefáns
Ólafssonar og Gunnars B. Guð-
mundssonar, sem teiknaði þessa
geymsluskemmu, en Birgir G. Fri-
mannsson verkfræðingqr sér um
verkið á vegum fyrirtækis, sem
hann og Kjartan Blöndal eiga, og
kallað er Verk h/f.
Stærsta steinhús landsins
án súlna
Áburðargeymslan, sem hér er
um að ræða, mun vera stærsta
steinhús iandsins, sem ekki er
styrkt með súlum. í stað þeirra eru
reistir steinbogar. 371/2 meter á
(Framhalð a 2 síðu. >
Sóttu reka-
viö norður
á Langanes
Það má teljast frásagnarvert,
að ungur piltur úr Lundar-
reykjadal fór í haust norður á
Langanes til þess að sækja
rekavið. Var það Friðjón Árna-
son á Kistufelli í Lundarreykja-
dal, og var faðir hans, Árni
Kristjánsson, með í förinni.
Friðjón þurfti að fara norður
á Húsavík til þess að sækja hús
á Vbrabíl, sem hann á. Tii þess
að fá eitthvað út úr ferðinni,
skrapp hann norður á Langanes
og keypti þar rekaviðarhlass til
að fara með suður. Rekaviður-
inn var niðursagaður í hæfilega
girðingarstaura, og seldi Frið-
jón þá bændum í Borgarfirði,
er hcim kom.
Ekki taldi hann þó förina til
fjár, því honum þótti Langnes-
ingar dýrseldir á rekaviðinn, og
auk þess varð hann að fara um
Möðrudalsöræfi og Vopnafjörð
heim, því að olíubíll var bilaður
á hinni leiðinni og lagði Frið-
Framhald á 15. siðu.
Aðeins tíu hjöla
trukkar hreyfðir
Ófærí um allt NortSurland
Slapp með
naumindum
Borgarfirði eýstra í gær.
Á bænum Hofströnd vildi það
óhapp til í illviðrinu fyrir viku síð
an, að lítill tr'illubátur brotnaði
i spón. Hafði hann ekki verið dreg-
inn upp fyrir kambinn, þegar brim
ið, sem er eitt hið mesta árum sam
an, tók hann út og skilaði honum
ekki aftur. Eigendur bátsins ætl-
uðu að bjarga úr honum vélinni,
og var Ingibjörn Kristinsson að
rogast með stykki úr honum upp
á bakkann, þegar bátinn tók út,
og má því segja, að mjóu munaði,
(Framh. á 15. siðu.)
lAkureyri, 5. des.
Hér hefur verið hríð í marga
jdaga og hlaðið niður snjó, og
eru nú allar leiðir ófærar á
Norðurlandi. Mjólk hefur þó
borizt til Akureyrar, og raf-
magn hefur verið óskammtað.
í Húnavatnssýslu er þung færð
og margar leiðir alófærar, vegir
á láglendi í Skagafirði eru lokað
ir, í Eyjafirði er enginn vegur
fær og allt á kafi í snjó í Þing-
eyjarsýslum.
Ökutími tvítugfaldast
Enu bilarnir, sem hreyfðir eru
þessa dágana, eru 10 hjóla trukk-
ar með drifi á öllum hjólum, og
eru þeir 10—20 klukkutíma þá leið
sem venjulega er farin á einni
klukkustund. Þessir bílar hafa
brotizt meg mjólk til Akureyrar,
svo að ekki hefur enn orðið mjólk
urþurrð, hvað sem verður.
Öxnadalsheiði farin á
laugardag
Öxnadalsheiði var síðast farin á
laugardaginn var, þá fóru þar um
tveir jeppar. Síðan hefur hrann-
að þar niður snjó og engiinn reynt
að brjótast þá leið. Holtavörðu-
heiði er einnig í þann veginn að
teppast.
Laxá er lögð
Rafmagn er hér eins og hver
vill, og helgast það af því, að
Laxá er nú lögð, og því setjast
ekki í hana krapastíflur, þótt mik
ið snjói. ED.