Tíminn - 06.12.1961, Blaðsíða 7
TIM I N
''rd'ínii (». *!?'C"'bnr
7
ViðaukasöBuskatturínn
samþykktur í nd. í gær
f gær fór fram framh. 2.
umr. og 3. umr. um frumv.
ríkisstjórnarinnar um bráða-
birgðabreytingu og framleng-
ingu nokkurra laga. Skúli Gu3
mundsson, T. minnihl. fjár-
hagsnefndar, bar fram breyt-
ingatillögu við frumvarpið.
Lagði hann til að 5. gr. þess,
er fjallar um framlengingu
8% viðaukasöluskattsins í
tolli, yrði felld niður en til
vara, að innflutningssöluskatt-
ur á hjóladráttarvélum og hlut
um til þeirra yrði felldur nið-
ur. Þessar tillögur Skúa voru
felldar af stjórnarliðinu. Sam-
þykkt var minni háttar breyt-
ing á 4. gr. frumvarpsins að
tilögu meirihluta fjárhags-
nefndar og fer frumv. þannig
breytt til neðri deildar aftur.
Hér fer á eftir nefndarálit
Skúla Guðmundssonar um
frumvarpið:
Ríkisstjórnm flytur þetta frv.
í 1.—4. grein þess eru gamalkunn
ar heimildir um innheimtu ýmissa
gjalda«tii ríkissjóðs með viðaúka.
og um niðurfellingu aðflutnings-
gjalda af nokkrum nauðsynjavöru
tegundum.
Lög um þetta efni hafa verið í
gildi allmörg undanfarin ár. Má
því telja, að viðaukalögin, sem þar
eru ákveðin, séu orðin fastur tekju
stofn fyrir rikissjóð, þó að lögio
hafi ekki verið látin gilda nema
eitt ár í senn. Eg get fallizt á og
mælt með því, að framannefnd
lagaákvæði verði einnig látin
gilda árið 1962.
Eitt er nýtt í þessu frv. Það
er 5. greinin. Ríkisstjórnin hefur
skotið þar inn viðbótarsöluskatt-
inum sinum. Hann er 8% af verði
innfluttrar vöru, ag viðúættum að-
flutningsgjöldum og áætlaðri 10%
álagningu, svo að raunverulega er
skattgreiðslan 8.8% af vöruverð-
inu.
í tilefní af þvi, að ríkisstjórnin i
hefur gripið til þessa ráðs, er á-1
stæða til að rekja sögu viðbótar- j
söluskattsins frá upphafi, en hún.
er einn þáttur i sögu núverandi j
ríkisstjórnar: 1 j
Það var 28. janúar 1960, sem j
rikisstjómin lagði fyrir Alþingi;
frv. til fjárlaga fyrir árig 1960.]
í athugasemdum með frumvarp-
inu sagði ríkisstjórnin-
„Ekki er áformað að breyta nú-
gildandi söluskatti á innflutningi.“
Ha*dlitlar upnlýsingar
ríþjcctj^rnarinnar
Þessi yfirlýsing ríkisstjómarinn-
ar reyndist lítils virði. Sex vikum
eftir að hún var birt, lagð'i stjóm
in fyrir þingið tillögur sinar um
meira en tvöföldun söluskattsms
Það var 9 marz 1960, sem hún
lagði fram frumvarp sinn um sölu
skatt I því voru ákvæði um, að
á árinu 1960 skyldi greiða til við-
bótar 7% söluskatt 8%i af toll-
verði innfluttrar vöru, að viðbætt
um aðflutningsgjöldum og áætl-
aðri álagningu 10%. Viðbótarskatt
urinn var innheimtur frá 1. apríl
Felld tillaga um aS afnema skattinn af hjóla-
dráttarvélum og hlutum til þeirra
1960, og frá þeim tíma til ársloka
vora tekjur af honum um þag bil
125 milljónir kr. samkv. ríkis-
reikningi 1960.
Þegar leið að lokum ársins 1960,
kom ríkisstjómin til þingsins með
tillögu um framlengingu á við-
bótarskattinum. Þessa tillögu
flutti hún í sérstöku frumvarpi
um breytingu á söluskattslögun-
um. Framvarpið var samþykkt, og
með því var viðbótarskatturinn
lögfestur „til bráðabirgða“ fyrir
árið 1961.
Samkvæmt fjárlögum fyrir árið
1961 er gert ráð fyrir, ag viðbótar-
söluskatturinn nemi 168 millj. kr.
á því ári.
Enn er svo ríkisstjórnin á ferð
með viðbótarskattinn, setur hann
nú inn í það frv., sem hér liggur
fyrir. Og í fjárlagafrumvarpinu á-
ætlar stjómin, að tekjur af hon-
um muni nema 188 millj. kr. á
næsta ári.
Breytt um form
Hvag sem Segja má um viðbót-
arsöluskattinn, tel ég, að á síðasta
þingi hafi stjórnin haft áð form-
inu til- rétta..aðferð við framleng
ingu hans. &katturinn var þá fram
lengdur meg. breytingu á sjálfum
söluskattslögunum. Þá aðferð ætti
stjómin einnig að nota nú, ef hún
telur óhjákvæmilegt að heimta fé
inn með þessum hætti á næsta ári.
Það stóra mál kæmi þá til athug
unar þingsins út af fyrir sig, en
söluskattslögin í heild þarf að
taka til endurskoðunar og lagfær
ingar. Hinu er ég mótfallinn, að
skattinum verði skotið inn í fram
varpið, sem hér liggur fyrir, við
hliðina á öðrum gjöldum, sem þar
eru ákveðin og segja má að séu
orðin fastir tekjustofnar fyrir rík
issjóð. Eg legg því til, að 5. gr,
verði felld úr frumvarpinu.
Auk þessarar aðaltillögu minn-
ar flýt ég varatillögu um, að heim
ilisdráttarvélar verði undanþegn-
ar öllum söluskatti. Vitanlega
þarf að gera margar fleiri breyt-
ingar á söluskattslögunum, en hér
er byrjað á því að reyna að fá
þessa sjálfsögðu lagfæringu á
þeim. í nefndarliti á þingskjali
125 er skýrt frá því, að af rúml.
105 þús. kr., sem nú þarf til að
greiða fyrir dráttarvél, fari 26850
kr. í tolla og söluskatt. Þetta eru
bneykslanlega miklar ál'ögur á
svo nauðsynleg tæki.
Við afgreiðslu frv. um lækkun
aðflutningsgjalda á ýmsum vör-
um, 20. þ. m., var felld breyting-
artillaga mín um að gera dráttar-
vélar tollfrjálsar. Af framan-
greindri heildarupphæð tolla og
söluskatts, sem borga þarf af
einni dráttrvél, er söluskatturinn
16377 kr. Hann þarf að fella nið-
ur. Til samanburðar má geta þess,
að af innfluttum skipum og bát-
um, sem eru 10 tonn eða stærri,
og af ýmsum nauðsynlegum tækj-
um til útgerðar, svo sem radar-
tækjum, dýptarmætum og fisk-
sjám. er ekki greiddur söluskattur.
Samkvæmt framansögðu flyt ég
við framvarpið eftirfarandi
- - -.' t
BREYTINGARTILLÖGU:
5. gr. falli burt.
Varatillaga:
Við 5. gr. bætist:
Af hjóládráttarvélum og hlut-
um til þeirra, nr. 12a og 12b í
tollskrárkafla, greið'ist enginn sölu
skattur.
Alþingi, 26. nóv. 1961
Skúli Guðmundsson.
Lúðvik Jóscpsson skilaði sér
nefndaráliti við framv. Lagðist
hann gegn frumv. í heild og lagði
til ag það yrði fellt. —
Islandskv
vekur athygli úti
Meðaí þeirra hópa erlendra
ferðaskrifstofumanna, sem
Flugfélag íslands bauð hingað
til landsins s.l. sumar voru
menn frá ýmsum stöðum í
Danmörku utan Kaupmanna-
hafnar.
Einn þátttakenda, Jörgen Peter
sen, forstjóri og eigandi ferða-
skrifstofu í Horsens, sem er slyng
ur myndatökumaður tók hér mik
ið af l'itmyndum og auk þess all-
langa kvikmynd. Samkvæmt frétt
um í dönskum blöðúm, hefur kvik
myndin nú verið framsýnd í Hor-
sens og í sambandi við sýninguna
var efnt til íslandskvölds þar, og
á eftir var stofnað íslendingafélag
á staðnum.
Hangikjöt og skyr
í bréfum, sem Jörgen Petersen
hefur skrifað Flugfélaginu, segizt
sens og nágrannabæjum. Þessu
fólki ásamt blaðamöiínum og fleiri
gesturn bauð hann til frumsýning-
arinnar, en áður sama dag hafði
hann miðdegisverðarboð fyrir
blaðamenn staðarins, þar sem
fram vora bortiir íslenzkir réttir,
hangikjöt, skyr og brennivín. Með
al gesta frá Kaupmannahöfn voru,
Páll Ásgeir Tryggvason, sendiráðs
ritari, Birgir Þorgilsson, forstjóri
Fulgfélags íslands í Kaupm.höfn
og Ove Merlung, sölustjóri.
Hyggja á íslandsferðir
í umsógn um kvikmynditia seg
ir meðal annars, að hún hafi gef
ið viðstöddum, sem ekki þekktu
áður, hugmyndir um hina stór-
fenglegu náttúrufegurð íslands. f
blaðas'krifum kemur fram, að slík
upplýsingastarfsemi um nágranna
landið fsland sé vel þegin. Nú er
í ráði að sýna þessa kvikmynd
Jörgen Petersen í fleiri bæjum í
Danmörku, og segja dönsku blöð
hann hafa fengið vitneskju um j in fjölmarga hyggja á fslandsferð
marga fslendinga, sem búa í Hor! eftir að hafa ség myndina.
Dregið í S.Í.B.S.
í gæ‘r var dregið í 12. flokki
Vöruhappdrættis S.Í.B.S. um
1515 vinninga að fjárhæð kr.
2.112.000.00. Eftirtalin númer
hlutu hæstu vinninga:
500.000.00 kr. nr 18069, umboð
Stykkisihólmur, —
100.000.00 kr. á nr. 29403, Vestur-
ver, 31755, Kristnes, og 62700,
Vesturver.
50.000.00 kr. á nr. 38149, Kópa-
sker, 57662 Vesturver, 58950, Vest
urver.
10.000.00 kr. á nr. 2646 Akur-
eyri, 2952 Vestmeyjar, 5130 Bol-
ungai’vík, 6929 Siglufj., 15537 Vest
Þeir riku verða ríkari
og þeir fátæku fátækari
Á kvöldfundi í neðri deild í
fyrrakvöld hélt Þórarinn Þór-
arinsson ræðu við 1. umr. um
frumvarp ríkisstjórnarinnar
um staSfesHnau á bráðabirgða
lögunum um ráðstafanir
vegna gengislækkunarinnar.
Þórarinn sagði, að sér fyndist
ag inn í þetta frumvarp vantaði
merg málsins í sambandi við ráð-
stafanir vegna gengislækkunarinn
ar, en það væri að gera ráðstaf-
anir til að draga úr áföllum þeirra
sem mest yrðu fyrir barðinu á
gengislækkuninni. 01] slík ákvæði
vantar í þetta frumvarp. Þeir, sem
harðast verða úti vegna gengis-
lækkunarinnar og sérstaka þörf
hafa fyrií gagnráðstafanir vegna
hennar eru launþegar og þeir, sem
minn^t bera úr býtum.
Viðskiptamálaráðherra hefur
upplýst í umræðum hér á Alþingi,
að vísitala framfærslukostnaðar
muni hækka um 15 stig vegna
gengislækkunarinnar. Daglauna-
menn fengu hins vegar ekki nema
10% kauphæl^kun i sumar og hlut
ur þeirra er því miklum mun lak-
ari nú. en hann var fyrir kaup-
hækkanirnar og treysti sér þó
enginn þá að halda því fram, að
unnt væri að iifa mannsæmandi
lifi af þeim launum. — Eitt af
helztu atriðunum i frumvarpi um
ráðstafanir vegna gengislækkun-
arinnar ætti því að vera að mínu
áliti ákvæði um að bæta upp að
nokkru hag þeirra. sem harðast
verða úti vegna gengislækkunar
innar.
Þá minnti Þórarinn á það, hve
grálega þeir, sem í byggingum
standa eða eiga eftir að eignast
þak yfir höfuðið, eru leiknir með
þessum ráðstöfunum ríkisstjórnar
innar, en það er fyrst og fremst
unga fólkið, sem á sína uppbygg
ingu eftir eða stendur í miðjum
klíðum með hana Ríkisstjórnin
sýnir vel hug sinn til þessa unga
fólks meg þessu frumvarpi, því
að í því er ekki eitt einasta á-
kvæði til að draga úr högginu,
sem þetta fólk verður fyrir með
géngislækkuninni. Hefði þó ver-
ið auðvelt að gera það, ef hugui;
hefði fylgt máli hjá stjómarflokk
unum.
Gengislækkunin er liður í þeirri
heildarstefnu stjórnarflokkanna,
að láta fáa einstaklinga og útvalda
taka við af fjöldanum í uppbygg
ingu og atvinnurekstri, þvi að
gengislækkunin gerir þá ríku rík-
ari og þá fátæku enn fátækari.
urver, 17000 Laugarás, 19681 Vest
urver, 20939 Vestmeyjar, 23122
Vesturver, 23580 Vesturver, 25844
Reykjalundur, 28457 Sauðárkrók-
ur, 35876 Vesturver, 36527 Vest-
urver, 48268 Vesturver, 48979
Vesturver, 50642 Vesturver, 51229
ísafjörður, 57312 Vesturver, 61810
Vesturver.
5.000.00 kr. hlutu eftirfarandi
númer: 304 Vesturver, 2534
Bakkafjörður, 3498 Vesturv, 5400
Vesturver, 9391 Neskaupst., 12829
Vesturver, 12835 Vesturver, Í4003
Vesturver, 16520 Stöðvarfjörður,
21065 Vesturver, 23313 Hafnarfj.,
23794 Vesturver, 24772 Keflavík,
23984 Siglufjörður, 29379 Vestur
ver, 30847 Mýrartunga, 32193
Þykvabær, 32582 Vestmeyjar,
34743 Vesturver, 42628 ísafjörður,
43178 Roði, 44550 Vesturver,
44835 Vesturver, 46094 Vesturver,
47118, 52890, 56456, 56601, 57527,
58957, 59320, 60766, 62055, 62987,
63418, 63725, 64678.
(Birt án ábirgðar.)
Ævisaga Hann
esar Hafstein
Ut er komin desemberbók Alm.
bókafélagsins, Hannes Hafstein —
ævisaga — fyrra bindi, eftir Kristj
án Albertsson. Er bókin gefin út
í tilefni af aldarafmæli Hannesar
Hafsteins, hinn 4. þ. m.
Bók Kristjáns Albertssonar fjall
ar um foreldra Hannesar Haf-
steins og bernsku hans, skólaár í
Reykjavík og Kaupmannahöfn,
skáldskap hans, embættisár í
Reykjavík og á ísafirði og stjórn-
málaferil hans til ársins 1904, en
við þag ár lýkur þessu bindi Gerð
er rækileg grein íyrir sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar frá láti Jóns
Sigurðssonar og til heimastjórnar-
innar.
Bókin er prýdd mörgum mynd-
um af fólki, sem kemur við sögu
Hannesar Hafsteins Auk þess er
litprentun af olíumálverki eftir
Ilannes Hafstein.