Tíminn - 06.12.1961, Side 12
X
, ’ý; • ’ •
íí’-x-< ¥ <
Wií-tívX?
mánudagskvöldlð fóru fram tveir úrsliialeikir I Körfuknattlelksmóti Reykjavíkut. I meistaraflokki karla léku
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Óvænt úrslit í
meistaraflokki
- Ármann vann KR met! eins marks mun, en
Valur vann Víking met5 6 mörkum gegn engu
tll úrslita ÍR og KFR, eins og svo oft áður, og sigraði ÍR með 79 stigum gegn 60. Myndina hér að ofan tók
Bjarnleifur af meisturum ÍR. í öðrum flokkl karla léku ÍR og KR til úrslita og sigruðu KR-ingar með 31 stigi
gegn 26 Á myndinni eru talið frá vinstrl. Efri röð: Haulcur Hannesson, Þorsteinn Hallgrímsson, Helgi Jóhanns-
son og Ólafur Geirsson. Fremri röð: Einar Ólafsson, Hólmsteinn Sigurðsson, Guðmundur Þorsteinsson og Sig-
urður Gíslason.
Tekst pressuliðunum að veita
landsliðunum keppni í kvöld?
Handknattleikssamband íslands
efnir til keppni í kvöld í íþrótta
húsinu að Hálogalandi til ágóða
fyrir væntanlega Danmerkurför ís-
lenzka unglingalandsliðsins. Er
mjög til keppninnar vandað og
ættu áhuigasamir handknattleiks-
unnendur að fá eitthvað fyrir pen
ing sinn, því segja má, að allir
beztu handknattleiksmenn okkar
og konur keppi i leikjunum í
kvöld.
Þrír leikir verða háðir og mæt-
ast fyrst landslið og pressulig í
kvennaílokki, síðan verður leikur
milli tveggja úrvalsliða, þar sem
væntanlegir Danmerkurfarar verða
i miklum meirihluta, og að lokum
verður leikur milli landsliðs og
pressuliðs í karlaflokki.
KVENNALIÐIN
Kveunaliðin eru þannig skipuð-
Landsliðið. sem landsliðsnefnd
kvenna valdi, en þá var miðað
við, að nefndin veldi fyrst 7 kon-
ur, en síðan fjórar, eftir að íþrótta
Bezta handknattleiksfólk landsins leikur
að Hálogalandi í kvöld
fréttaritarar höfðu valið sitt lið:
Herdís Jónsdóttir, Víkingi, Gerða
Jónsdóttir, KR, Sigríður Sigurðar
dóttir, Val, Helga Emilsdóttir,
Þrótti, Margrét Jónsdóttir, Vík-
ingi, Sylvía Hallsteinsdóttir, FH,
Sigurlína Björgvinsdóttir, FH Jó-
hanna Sigsteinsdóttir, Fram, Erla
Franklin. KR. Erla Magnúsdóttir,
Val, og Unnur Hermannsdóttir,
Val.
Lig íþróttafréttaritara er þaan
ig, en liðið valdi Valgeir Ársæls-
son: Margrét Hjálmarsdóttir,
Þrótti, Svanhildur SigurðaVdóttir.
Val. Valgerður Guðmundsdóttir.
FH, Inger Þorvaldsson. Fram. Lise
lotte Oddsdóttir. Ármanni. fyrir-
liði. Kristín Harðardóttir Breiða
bliki. Unnur Færseth. Fram Guð-
rún Jóhannsdóttir. Víkingi Þor-
björg Valdimarsdóttir, KR, Bára
Guðjónsdóttir, Val og Jónína Jóns
dóttir, FH.
KARLALIÐIN
Úrval landsliðsnefndar er þann-
ig: Hjalti Einarsson, Pétur Antons
son, Einar Sigurðsson, Birgir
Björnsson, Ragnar Jónsson og
Kristján Stefánsson, allir ú_r FH,
Karl Jóhannsson, Sigurður Óskars
son, KR, Gunnlaugur Hjálmars-
son, ÍR og Sigurður Einarsson
Fram
Lið íþróttafréttamanna er þann
ig: Guðjón Ólafsson, KR og Egill
Árnason, Val, Ifilmar Ólafsson,
Fram, Pétur Bjarnason, Víkingi,
Rósmundur Jónsson, Víkingi. Matt
hías Ásgeirsson, ÍR. Reynir Ólafs
son. KR og Hermann Samúelsson,
ÍR. B-línan. Ingólfur Óskarsson.
Fram. Árni Samúelsson Ármanni
og Örn Hallsteinsson FH
Eftirtaldir piltar eru byrjaðir
æfingar vegna Danmerkurfararinn
ar, en þeir voru valdir af lands-
liðsnefnd HSÍ. Valið er þó ekki
Á laugardaginn fóru fram nokkr
ir leikir í meistaraflokki kvenna
og yngri flokkunum 'á Handknatt
leiksmeistaramóti Reykjavíkur.
Úrslit urðu talsvert óvænt í nokkr
um flokkum, einkum þó í leikjum
meistaraflokksins.
Fyrsti leikurinn í þeim flokki
var milli Ármanns og KR og sigr
uðu Ármanns-stúlkumar með 6—5
(3—2) Leikurinn var jafn og
skemmtilegur, en ekki sérlega vel
leikinn. Mikið var um ónákvæmar
sendingar, og línuspil lítið, en mik
ið um langskot, sem fóru fyrir
ofan garð og neðan. Bæði liðin
hafa á að skipa ungum stúlkum,
en þær vantar flestar reynslu á
við þær eldri, sem enn þá leika
með liðunum, og ei.nnig knattmeð
ferð og leikni á við þær. En þetta
verður jákvæðara hjá þeim með
hverjum leik.
Valur—Víkingur
Leikur Vals og Víkings í sama
fl. auðkenndi'St af mikilli heppni
Vals, en óskiljanlegri óheppni Vík
ings. Að eitt bezta liðið skuli ekki
iskora mark í 2x10 mínútna leik
er óskiljanlegt, en leiknum lauk
með sigri Vals. Að vísu varði
’iiarkvörður Vals prýðilega, en
vörnin hjá liðinu var alls ekki góð
og því síður ólek. Lið Víkings er
skipað ungum og kröftugum stúlk
um og samspU þeirra er oft mjög
gott. en þeim hættir samt oft við
að leika utarlega og veldur því
hraði þeirra engri hættu við vörn
andstæðinganna. Lig Vals er vel
leikandi og líklega jafnbezti flokk
urinn á þessy móti Aðalstoð þess
og stytta er Sigríður Sigurðardótt
ir, sem er áberandi bezta hand-
knattleikskona okkar í dag.
Fram—Þróttur
Leikur Fram og Þróttar í meist
araflokki kvenna var Ieikur katt-
arins að músinni. og honum lauk
meg sigri Fram, 11—1, og hefði
sá sigur getað orðið stærri. Það
er ekki úr vegi fyrir Þrótt. að
fara að athuga þessa tvo kvenna
flokka sína. Þeir þurfa ag breyt-
ast mjög til hins betra, ef þeir
eiga ekki að vera til stórskammar
fyrir félag sitt. Og undarlegast er,
að árig ’58 varð Þróttur meistari
bæði í meistara-, fyrsta og öðrum
flokki kvénna, og liðum félagsins
endanlegt, og hægt að bæta við
piltum, sem þykja sýna góða leiki.
Árni Samúelsson. Hans Guð-
mundsson, Lúðvik Lúðvíksson,
Hörður Kristinsson. allir úr Ár-
manni — Kristján Stefánsson.
Sverrir Sigurðsson. Guðlaugur
Gíslason Henning Sigvaldason og
Auðun Hafnfjörg úr Fimleika-
fél. Hafnarfjarðar — Sigurður
Einarsson, Þorgeir Lúðvíksson,
Tómas Tómasson, úr Fram. —
Herbert Harðarson. Þráinn Gísla
son og Guðmundur Haraldsson
úr K.R — Rósmundur Jónsson. I
Steirrr Halldórsson. og Sigurður
Hauksson úr Víkingi -f Þórður
Ásgeirsson og Axe) Axelsson úr
Þrótti. — Gylfi Hjálmarsson. Gylfi
Jónsson og Sigurður Dagsson, úr
Val .
var spáð glæsilegri framtíð. Annar
flokkurinn þá hefði átt að vera
orðinn kjarni meistaraflokksins
núna, svo að greinilegt er, ag eitt
hvað hefur farið úr skorðum.
Annars er útkoma Þróttar-flokk-
ana þannig: Meistaraflokkur hef-
ur leikið fjóra lei'ki, gert 10 mörk
fengið á sig 34 (einn leikur eftir).
Annar flokkur hefur lokig keppni
gert 10 mörk, en fengið á sig 70
mörk í fimm leikjum.
Fyrsti flokkur karla.
í fyrsta flokki karla sigraði Vik
ingur ÍR með 7—6 í skemmtileg-
um leik, þar sem liðin skiptust á
að hafa forustuna. Bæði lið'in eru
sterk og Ieika með góðum hraða. .
Þegar flautað var í leikslok höfðu
Víkingar mark yfir, en ÍR-ingar
höfðu knöttinn og áttu bara eftir
að koma honum í markið. Og jafn
tefli hefði verið sanngjömustu úr
slitin.
KR sigraði Fram í sama flokki
með 6—5 í .frekar slökurn leik, •
sem auðkenndist af áberandi á-
hugaleysi Framara, og þá sérstak
lega markvarðarins, sem nennti
ekki að hreyfa sig í fyrri hálfleik, ,\r
og fumkenndum leik KR-inga, sem
þó sigruðu. í liði KR kom Ifrautyárf
nýr maður, sem margir þekkja
þó úr skemmtanalífi Reykjavíkur, '
en það er hinn þekkti heildsali
og tízkukóngur Guðlaugur Berg-
mann og stóð hann sig með stakri
prýði og skoraði meðal annars
þrjú mörk fyrir lið sitt. — kid.
WiíSvikudlajprstgreinin
- Framhald af 9 síðu.
uð ljóst fyrir: Sjónvarpið af Kefla-
víkurflugvelli . má ekki vera eina
sjónvarpið á fslandi um ófyrirsjá-
anlega framtíð , enda ekki til slíks
stofnað í upphafi fslenzkt sjón-
varp hlýtur að koma fyrr eða síðar.
Sjónvarp, sem stjórnað er af fs-
lendingum og er miðað við íslenzk-
ar aðstæður og íslenzka fjárhags-
getu f samtölum okkar fjórmenn-
inganna við forráðamenn brezka
sjónvarpsins kom það skýrt fram,
að þeir eru meira en viljugir að
miðta okkur af aldarfjórðungs ■
reynslu. Þeir tóku beinlínis fram,
að BBC gæti látið okkur i té mjög '
aðgengilegt efni, fréttafilmur og ' -
annað slíkt gegn lágu verði. Auð-
velt er síðan að bæta ísl. texta
inn á slíkar filmur Þætti islenzk-'
um íþróttamönnum t.d. ekki feng-'
ur í því, að fylgjast með næstu
Olympíuleikjum í stofunni heima
hjá sér? BBC undirbýr það nú af
fullum krafti að sjónvarpa þeim
beint frá Tokio tii Bretlands
Það. sem við eigum að gera er, ;
að byrja sem fyrst. byrja smátt, en
vanda allt frá upphafi Við eigum
frekar að kjósa autt tjaldið en lé- _
legt rusl til uppfyllingar Dagskrá-
in yrði fyrst i stað ekki nema ein
til tvær klukkustundir á dag. Bret-
ar hafa k-omizt langt á 25 árum í
sjónvarpsmálum sínum. en hver
veit. nema að okkur takist með
hjálp tækninnar að koma islenzku
sjónvarpi á öruggan grundvöll á
10 árum? Vili ekki okkar ágæta
Ríkisútvarp teggja spilin á borðið
fyrir þjóð og þing hið fyrsta — og
siðan skulum við byrja.
h.h. í‘
T í M I N N, miðvikudaginn 6. desember 1961.