Tíminn - 05.01.1962, Síða 12

Tíminn - 05.01.1962, Síða 12
Myndirnar tvær hér að ofan eru af teikningum sem nefn- ast Galdrakarlinn, og Sund í himinblámanum, eftir 12—13 ára stúlkur frá Austurríki og Hollandi. Hvað dreymir fólk — í svefni og vöku? Austurrískum kvikmyndaframleiðanda, dr. Ervin Alberti, hugkvæmdist það eina andvökumótt að snúa sér til barna frá mörgum löndum heims og biðja þau að teikna fyrir sig úr draumum sínum myndir. Með því hugðist hann skyggnast inn í hug- arheim þeirra. 8500 börn urðu við tilmælum hans. Þau voru frá Svíþjóð, Þýzkalandi, Frakiklandi, Englandi, Indlandi, ítalíu, Japan, Hollandi, Belgíu, Austurríki, Tyrklandi og Bandaríkjunum. (Framhaid á 11 síðu) ÓLYMPÍULEIKVANGUR- INN í INNSBRUCK ’62 Þótt Austurríkismenn hafi ávallt staðið í fremstu röð skíðaiðkenda heimsins — og átt beztu og frægustu skíða- menn í alpagreinum —, hef- ur það þó ekki fallið í hlut landsins að halda Vetrar- Ólympíuleika, hver sem ástæð an kann að vera, en hins veg- a r hafa vetrarleikirnir tví- vegis verið háðir í nágranna- landinu Sviss, 1928 og 1948 í St. Moritz, En nú er röðin komin að Austurríkismönn- um, og eftir rúm tvö ár verða níundu vetrarleikirnir háðir í Innbrucks, glæsilegri íþrótta- miðstöð í þessu mikla íþrótt- anna landi. Austurríkismenn hafa fyrir löngu hafið undirbúning til að geta tekið sem bezt á móti þeim mikla fjölda, sem sækja mun leik- I Frc m k» I rt a < •• í A i. 170 ára Súdan- bú3 lézt í gær í Reykjavík dó fyrir skömmu kona, sem var meira en hundr að ára. En þetta þætti ekki hár aldur í Súdan, því að það- an barst sú fregn í gær, að látinn væri þar 170 ára gam- all maður. Það þykir ekki með ólíkindum, að hann hafi ver- ið elzti maður heimsins. Þessi aldurhnigni maður hét Ablúlla Súliman. Hann hefur fæðzt um það bil einum áratug eftir að Móðuharðindin gengu yfir ísland. Hann var liðþjálfi í tyrkneska hernum, þegar Súdan var hluti af ríki soldánsins. Hann tók sér fyrstu konuna árið 1811, fáum misserum eftir að Jöiundur hunda dagakonungur ríkti hér á landi, en alls eignaðist hann sjö konur. Dó hin síðasta þeirra rétt fyrir aldamótin síðustu, og hugði Súli- man þá ekki framar á kvonfang, enda var hann þá orðinn meira en hunclrað ára. Abdúlla Súliman var blessaður með mörgum niðjum. Meðal þeirra eru fimmtíu barnabörn hans, sem öll hafa eignazt afkomendur. Hann var Múhammeðstrúarmað- ur, og Allah og spámaðurinn voru leiðarstjörnur hans. Stórmannleg gjöf Hallgrímur Finnsson, veggfóðr- arameistari, Brekkustíg 14 Reykja vík, sean verður 70 ára í dag, hef ur afihent Slysavamafélagi íslands kr. 10.000.00, — tíu þúsund krón- ur, í tilefni af afmælinu, og þá sérstaklega til minningar um son smn, Andrés, sem var bátsmaður á b.v. Júlí og fórst með skipinu í ofviðrinu á Nýfundnalandsmiðum 7. febrúar 1959, og er það ósk gef andans, að þessu fé verði varið til aukinna slysavarna. Hallgrímur Finnsson er kunnur og mætur borgari í Reykjavík. hann hefur verið formaður í Meist arafélagi veggfóðrara og dúklagn ingarmanna, undanfarin 21 ár, og frá upphafi hefur hann átt sæti í stjóm þessara samtaka og jafn framt stjórnað verzltan fyrirtækja þeirra, Veggfóðraranum h.f. Hverf isgötu 34. Stjórn Slysavarnarfélags íslands og starfsfólk félagsins árnar Hall grími og konu hans, Sesselju Þórð ardóttur allra heilla í sambandi við þessi merku tímamót og flyt ur þeim innilegar þaikklr fyrir þetta ráusnarlega framlag ^peirra til aukinna sjysavarna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.