Tíminn - 10.08.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.08.1962, Blaðsíða 1
I AFGLAPAVERKIÐl SJA LEIÐARA DAUÐAKLEFINN SJA 2. SIÐU Auglýsing í Tímanum kemur daglegá fyrir augu vandláfra blaða- lesenda um allf land. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 180. tbl. — Föstudagur 10. ágúst 1962 — 46. árg DAGATAL MONROE! Þegar Marilyn Monroe andaSist, rifjaSist þaS upp fyrir mörgum aS frægS hennar hófst meS mynd af henni, sem birtist á dagatali. Hún var þá til þess aS gera lítt þekkt, en byrjuS aS leika í kvikmyndum. Lfósmyndari fékk hana til aS sitja fyrir klæSlausa, og seldi myndina síSan á dagatal. — Myndin er tekin skömmu eftir dauSa Monroe, þegar kaupahéSinn viS Broadway í New York hafSi hafiS úísölu á dagatalinu, er gerSi hana fræga. Geislasjúk síld veidd við Noreg? NTB — Álasundi, 9. ágúst. Þess hefur áður verið getið í fréttum, að í Sunnmære og Romsdal hefur orðið vart við einkennilegan sjúkdóm í smá- síld, sem þangað hefur bor- itz með öðrum afla. Sunnmærposten skýrir frá því í dag, að nú hafi niðurlagningar- verksmiðja ein neitað að taka á móti síldinni, þar sem hún sé óhæf til niðurlagningar. í afla margra skipa hafa fund- izt smásíldar með einkennilegum sárum á stærð við nögl. Á sumum síldanna hafa sárin verið svo djúp, að stórt gat hefur ginið við á baki síldarinnar. Sár þessi eru með nokkuð mis- munandi litbrigðum, en oftast rauð leit eða gul. Þá hafa einnig fundizt síldar, Samveldið úr sögunni gangi Bretiand í EBE NTB — Canberra, 9. ágúst. Ef Bretland gerist aö- ili að Efnahagsbandalagi Evrópu, hverfur brezka samveldiö úr sögunní sem samfélag frjálsra og sjálf- stæðra rikja. Þessa yfir- lýsingu gaf forsætisráð- herra Ástraiíu, Róbert Menzies, í ástralska þing* inu i dag, þar sem hann fluifi langa ræðu og gerði grein fyrir fjögurra víkna ferðalagi sínu til Bret- lands, nokkurra annarra Evrépulanda og Banda- ríkjanna. Menzies sagði méðal annars, að það væri skoðun sín, að Bretar óskuðu ekki eftir allsherjar sam- ,fiteypu Evrópulanda með einni yfirstjórn, en hins Tegar væri engum blöðum ucn það að fletta, að pólitískar afleiðingar aðildar að EBE yrðu þær, að öll þjóða- mörk þurrkuðust út. Brezka stjórain einblínir á þau hagstæðu áhrif, sem hún álítur að aðildin að EBE muni hafa á efnahag og stjórnmál í Bretla'ndi sjálfu, öðrum Evrópulöndum og á Vesturlöndum yfirleitt. Men- zies sagði einnig, ag ef Bretar gerðust aðilar að bandalaginu, yrði ekki lengur hægt að tala um brezkt samveldi. Efnahagslega samstaðan, sem EBE miðar að, myndi brátt ná til stjórnmálanna einnig, og þegar svo er komið, er hætt við, að greinir verði milli samveldislandanna og Breta sjálfra. Þá neitaði forsætisráðherrann þeim fullyrðmgum, að of mikið væri gert úr þeim hættum, sem Ástralíu stafaði af aðild Breta að EBE. Ekki væri hægt að gera sér Framh. á 15. síðu sem augu og ugga vantaði á. Sér- fræðingar hafa aldrei séð annað Framh. á 15. síðu. Ljómaöi af fjotu Fréttirnar, sem hafa birzt í Tímanum fyrir stuttu, um cldhnctti, sem menu hafa talið sig sjá austur í sveitum, hafa orðið til þess, að ýmsir hafa hringt til blaðsins og talið sig hafa séð svipað í austri frá Reykjavík, og það kvöld eft- ir kvöld. Einn mældi hraða Ijós- depils, sem hann sá þrjú kvöld í röð, rétt fyrir mið- nættið, hreyfast suður og upp í austurátt. Taldist hon- um til að hann hreyfðist um þrjár gráður á 2% mínútu. Páll Bergþórsson veður- fræðingur fór að athuga þetta fyrir blaðið. Kom þá í ljós, að þotur frá Keflavík- urflugvelli höfðu einmitt verið á ferli á þessum slóð- um þessi kvöld. Þær fljúga um miðnættið í sólskini, þvi þær eru í 10 kílómetra hæð og getur því glampað af þeim eins og af stjörnu. Hins vegar telur Páll, að eldhnötturinn, sem menn sáu springa austanfjalls, hafi verið loftsteinn eða vígahnöttur. 4 fórust Fjórir létu lífiö f hörðum árekstri, sem varð á þjóðveginum við Tjæreby skammt frá Korsör í Danmörku síðastliðinn mánudag. Þetta er með hroðalegri bilslysum sem gerzt tiafa í Danmörku. Báðir bílarnir köstuð- ust í loft upp við áreksturinn og allir sem í bílunum voru, sjö að tölu, köstuðust út. í öðrum þeirra var fimm manna fjölskylda. — Eins og myndin ber með sér þá eru bílarnlr gjörónýtir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.