Tíminn - 11.12.1962, Side 1
TOTALIA
reiknivélan
OtSó A Mlchelsen
klapparstfg 25-7
Sfml 20560
24 SIÐUR
(Husqprairní tíuíWtuMc a 11
OUNNAR ASGEIRSSON HF SI III KI áMISHK XII I 1 fi S 1 M 1 11 5 2 0 0
HÆTT KOMINN
SJ—PatreksfirCi, 10. des. — Allir bátarnir komust klakklaust heim
úr óveðrinu á dögunum, en eins og áður hefur verið skýrt frá fengu
þeir aftakaveður á leið sinni upp að Látrabjargi. Einn báturinn héðan
fékk til dæmis á sig þrjá brotsjói og lagSist á hliðina um tíma. Má af
því sjá, að bilið' hefur þarna verig mjótt, eins og oft vill verða hjá
íslenzkum sjómönnum í vetrarveðrum. Bátarnir hjálpuðust að við’ að
miSa hvern annan upp undir bjargið og þar lá fjöldi báta um nóttina
og einnig margir erlendir togarar í vari.
Meistaramót Reykjavíkur í handknattleik lauk um
helgina — og voru úrslitaleikirnir mjög f jölsóttir. Aldrei
þessu vant urðu hvorki Gunnlaugur Hjálmarsson eða
Hermann Samúelsson markhæstir hjá ÍR-liðinu, heldur
ungur drengur, Þórður Tyrfingsson, sem skoraði fjögur
mörk. Hér sést hann skora eitt þeirra. (Ljósm.: RE)
GS-Isafirði, 10. des.
Á miðvikudaginn fóru tveir
menn héðan frá ísafirSi á vél-
bátnum Heklutindi, sem er
fimm lesta bátur, til Jökul-
fjarða og ætluðu að huga að
refum. Þetta voru þeir Kjart-
an Sæmundsson, eigandi báts
ins, og Bjarni Pétursson.
Þeir komu til Grunnavíkur á
miðvikudag, en fóru í Lónafjörð I
á fimmtudag og lögðust svo á leg-!
una við Hesteyri klukkan 9 á
fimmtudagskvöldið. Kjartan segir,
að veðurspáin hafi þá verið suð- j
austan gola, og fyrir laugardag
inn hafi verið spáð suðlægri átt f
með rigningu. Gislu þeir áhyggju i
lausir um nóttina í húsi Bjarna á ,
Hesteyri.
Klukkan sex á föstudagsmorg-
unnn skall svo skyndilega á iðu-
laus stórhríð af norðaustri. Telja
þeir veðurhæð hafa verið 8—10
stig, og stóð veðrið á land. Gátu
þeir félagar ekkert aðhafzt í landi
Framhald á 23. síðu.
ÞÆR FARAIÍR
VEGNA LÁGRA
KH-Reykjavík, 10. des.
Sú staðreynd, að 60—70 ís-
lenzkar hjúkrunarkonur
stunda nú störf erlendis með-
an svo alvarlegur skortur á
hjúkrunarkonum ríkir hér
heima fyrir, að heita má, að
ekki eitt einasta sjúkrahús á
landinu hafi tilskilinn fjölda
í þjónustu sinni, sýnir okkur
glöggt, hversu mjög á skortir,
að kjör íslenzkra hjúkrunar-
kvenna séu viðunandi.
Nýlega var auglýst í útvarpinu
eftir yfirhjúkrunarkonu og tveim-
ur aðstoðarhjúkrunarkonum til
siaifa við sjúkrahúsið á ísafirði,
iaun samkvæmt launataxta eða
samkomulagi. Af því tilefni sneri
blaðið sér til Georgs Lúðvíkssonar,
framkvæmdastjóra rikisspítalanna
og spurðist fyrir um, hvort algengt
væri að yfirborga hjúkrunarkon-
um til ag fá þær til starfa á
sjúkrahúsum útj á landi. Georg
kvaðst ekki geta sagt um það með
neinni vissu, en hann grunaði þó,
að svo hefði verið lengi, enda væri
svo alvarlegur skortur á hjúkrunar
konum úti á landi, að varla nokk-
urt sjúkrahús hefði tilskilinn
fjölda þeirra í sinni þjónustu.
Sagðist hann jafnvel vita til þess,
að sjúkrahús úti á landi hefðu
ráðið til sín stúlkur, nýkomnar úr
Framhald á 23. síðu.
Lézt við
sjópróf
MB-Reykjavík, 10. des.
Sjópróf hófust að nýju
vegna Esjustrandsins í morg
un, en þeim lauk með svip-
legum hætti. Einn skipverja
var kallaður fyrir rétinn,
en hinir biðu fyrir utan.
Meðal þeirra var Sverrir
Smith, loftskeytamaður á
Esju, en hann hefur starfað
lengi hjá Skipaútgerð ríkis-
ins.
Þegar skipverjinn var ný-
genginn inn í réttarsalinn,
hneig Sverrir fram úr sæti
sínu. Félagar hans brugðu
fljótt við og reistu hann á
fætur. Sverrir kom fljótlega
til meðvitundar, en allmik
ið blæddi úr vitum hans.
Virtist hann hafa fulla rænu
og studdu skipsfélagar hann
til hreinlætisherbergja, svo
hann gæti þvegið sér. 'Er
þangað kom hneig Sverrir
aftur niður. Var þá sam-
stundis hringt á sjúkrabif-
reið og Sverrir fluttur á
Slysavarðstofuna. Er þangað
kom var hann látinn.-
Sverrir var sextugur að
áldri og lætur eftir sig upp
komin börn.
!■ —,i ■■■ ■„ — -1
SJÁ LEIÐARA
■o . . .*•
Fyrirsögnin, sem mynd er birt
af ,hér til hliðar, var á forsíðu
Morgunblaðsins á sunnudag, en
inni í blaðinu heil síða, skrifuð
í sama tón með þrælabúða-
mynd. Segir, að á þingi komm
únista hafi verið samþykkt mik
il ályktun um „leið íslands til
kommúnisma", og er sagt að
þetta sé að visu ,,leyniplagg“,
en Mbl. hafi komizt yfir það, og
það sanni ,,þjóðfylkingaráform“
kommúnista og Framsóknar-
manna. Er þessi herferð gegn
Framsóknarmönnum orðin svo
vitlaus og botnlaus, að hún vek
ur aðeins athlægi þeirra, sem
ekki hrista höfuðið í orðlausri
forundran.
Leyniáætlun
kommúnista
■B iiw'ijctoi ii'iiinnr ■■■■BHMiawggwawBWMBBi
— nieð tilstyrk
Framsóknarmanna