Tíminn - 01.05.1963, Síða 1

Tíminn - 01.05.1963, Síða 1
 TVOFALT EINANGRUNAR - 20ára reynslaER hérlendis SÍMM140Ö jahwaéwaac-wai^tmaiia 98. tbl. — Miðvikudagur 1. maí 1963 — 47. árg. Auglýsingar á bfla Utanhúss-auglýsingar allskonarskilti ofl. AUGLYSINGAeSKILTAGERÐINisf Bergþórugötu 19 Simi 23442 Ávarp frá verkalý&smálanefnd Framsóknarflokksins SAMEINUÐ GEGN SKERTUM KJORUM Á 40 ÁRA AFMÆLI hátíðisdags verkamanna í Reykjavík, 1. maí, flytur verkalýðsmálanefnd Framsóknarflokks ins verkalýðsstéttunum hugheilar hamingjuóskir og hvetur til öflugrar og einhuga baráttu um hagsmuna- og réttindamál þessara stétta. 0 Fylkjum liði gegn kjaraskerðingarstefnu núverandi ríkisstjórnar, sem birzt hefur í stórauknum neyzlusköttum, gengislækkunum, óðadýrtíð, okurvöxtum, kjararýrnun meö lögþvingun og beinum ofsóknum gegn frjálsum samn- ingum launþega og vinnuveitenda. Allt þetta hefur míöaö að því, að verkalýðsstéftirnar hafa fjarlægzt óðfluga það mark að geta i'rfað af átta stunda vinnudegí en orðið að lengja vinnudag sinn æ meira með hverju mlssiri, svo að bein hætta stafar af og nálgast vinnuþrælkun. 0 Þessi kjaraskerðing á sér stað á sama tíma og þjóðarfekjur stóraukast vegna metafla, svo að ranglætið í tekju- skiptingunni hefur farið sívaxandi, en auður og afrakstur safnast æ meira til einstakra manna og gróðafélaga. Fylkjum í dag liði gegn þessari öfugþróun og krefjumst stefnubreytingar, sem færi meiri kaupmátt launa og launahækkanir, sem dugí til þess að kaup venjulegs vinnudags nægi til framfæris. Slíkt er lágmarkskrafa í nú- tíma þjóðfélagi. Krefjumst fulls samningsréttar um kjör án afskipta rikisins og hefndarráðstafana af hendi rík- isvaldsins. Afnemum smán vinnuþrælkunarinnar og verndum félagsfrelsi okkar. Stefnum að raunverulegri kaup- hækkun og styttingu vinnutímans. Fylkjum liði gegn innlimun í Efnahagsbandalag Evrópu og hverfum ekki í þjóðasamsteypu, heldur stöndum trúan vörð um sjálfstæði landsins og ástundum góða sambúð við aðrar þjóðir en tryggjum hag okkar og samskipti við þær með samningum frjálsborinna manna. Stöndum einhuga gegn ásælni erlendra aðila í fiskiðnað okkar og aðrar atvinnugreinar og ásókn í íslenzka fiskveiðilandhelgi og Ijáum ekkí máls á framlengingum undanþáganna í nauðungarsamningnum við Breta. Verkalýðsnefnd Framsóknarflokksins telur, að þetta séu brýnustu baráttumálin á þessum hátíðisdegi verkamanna og skorar á alla launþega að sameinast um þau og beina baráttu dagsins gegn kjaraskerðingarstefnu ríkis- stjórnarinnar og stefnu innlimunar í EBE, Þess vegna hvetur hún alla til þess að sækja hátíðahöldin og mótmæla- fundinn gegn stefnu ríkisstjórnarinnar í Lækjargötu við Miðbæjarbarnaskólann í dag, þó að í ávarp fund- arboðenda sé blandað málum, sem eru óskyld raunhæfri og samstilltri verkalýðsbaráttu. Jón D. Guðmundsson Ásbjörn Pálsson Péfur Matthíasson Óðinn Rögnvaldsson Kristinn Gunnlaugsson Einar Eysteinsson Markús Stefánsson Stefán Jónsson Ásgeir Sigurðsson Jóhann P. Einarsson Alda Þórðardóttir

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.