Tíminn - 01.05.1963, Síða 16
SKIPSTJORANUM VERDUR
SLEPPT TIL BRETLANDS!
98. fbl. 47. árg.
Miðvikudagur 1. maí 1963
Horfur á að Smith skipstjóri sé genginn landhelgisgæzl
unni úr greipum fyrir fullt og allt. - Hver ber ábyrgðina
á því, að ekki fékkst að skjóta föstum skotum og taka
togarann áður en Palliser gat komið við ofbeldisaðgerð
um sínum?
MILWOOD FÆRÐUR TIL HAFNAR
MB-Reykjavik, 30. apríl.
Allar horfur eru nú á því, aS
Smith skipstjéri á togaranum. Mil-
wood sé igenginn íslenzkum yfir-
völdum úr greipum. Brezk stjórn-
arvöld hafa látið þá skoðun í ljósi,
að þar sem Smith hafi ekki brot-
ið brezk lög, sé hann frjáls ferða
sinna, ef hann kemur á brezka
grund og herskipið Palliser mun
nú komið til Orkneyja.
Orðsendingar hafa farið á milli
íslenzku og ensku ríkisstjórnanna
í dag vegna þessa máls. íslenzka
ríkisstjórnin hefur mótmælt fram
’komu Bretanna og krafizt þess að
Smith skipstjóri verði framseld-
ur, en Bretar biðjast mikillega af-
•sökunar á þessu máli öllu. Bretar
halda því fratn, að þar eð Smith
skipstjóri á Milwood hafi ekki
■gerzt brotlegur við ensk lög, sé
hann frjáls ferða sinna ef hann
kemst á brezka grund. Herskipið
Palliser'muin nú komið til Orkn-
eyja „til þess að taka olíu“ og
eftir fyrri framkomu skipherrans
þar, er ólíklegt að Smith þurfi „að
fleygja sér í sjóinn“ til þe^s að
ná þar landi.
Eins og sagt var frá í blaðinu
í dag, kom varðskipið Óðinn með
togarann Milwood til Reykjavík-
ur í gærkvöldi. En það er að sjálf
sögðu skipstjóri hans, sem ber
alla ábyrgð á landhelgisbrotinu og
tilrauninni til að sigla varðskipið
niður. Verði Smith ekki framseld-
ur, sem nú eru engar horfur á,
verður því ekki unnt að koma lög-
um yfir hann, nema að honum
fjarverandi, og þá ekki annað fyr-
Leon Karlsson, 2. stýrlmaSur á
Óðnl, tók við stjórn á togaranum
Mllwood, eftlr aS varSsklpsmenn
fóru þar um borð. Myndina tók SB
af Leon I brúnni, þegar togarinn
lagðlst að bryggju á mánudags-
kvöld.
MB-Reykjavík, 30. apríl
Hlutafélagið Kaldbaksvík í
Reykjavík, hefur nú nýlega keypt
tvær jarðir í Kaldbaksvík á strönd
um, Kleifar og Kaldbak, og er ætl
unin að setja þar á stofn fiskrækt-
arstöð. Kaupverð mun hafa verið
hátt, hefur blaðið hlerað, að það
muni vera eitt hæsta jarðarverð
sem goldið hefur verið hérlendis
upp á síðkastið.
Hlutafélagið Kaldbaksvík er
ungt félag og eru stofnendur þess
17 menn úr Reykjavík og ná-
grenni. Þeir hyggjast stunda fisk-
rækt í Kaldbaksvatni, sem er í
landi áðurnefndra jarða. Úr vatn-
inu rennur Kaldbaksá í sjó fram.
Kaldbaksvík er allstórt, mun vera
nálægt 100 hekturum að stæið.
Kaldbaksá er 3—400 metrar á
lengd og talsvert vatnsmikil, mun
vera heldur vatnsmeiri en Elliða-
árnar. í Kaldbaksvatni eru heitar
lindir, og heitar laugar eru með-
fram ánni, allt upp í 96 gráðu
heitar.
í vatninu er mikil silungsveiði
og mun vatnið vera með betri sil-
ungsveiðivötnum landsins.. Ætlun
þeirra félaga er að rækta silung
i vatninu og einnig að gera til-
raunir með laxarækt og verður
í sumar unnið að rannsóknum í
pví efni. Ætlunin er að framleiða
þarna fisk til manneldis; þetta er
fyrirtæki, en ekki sport.
Þeir félagar munu hafa goldið
mjög hátt verð fyrir jarðirnar og
hefu blaðið fregnað, að þar sé um
að geta einhver hæstu jarðarkaup
miðað við fasteignamat, sem-gerð
hafa verið hérlendis. Önnur jörð-
in, Kleifar, var að fara í eyði, en
ábúandinn á Kaldbak fær lífstíð-
arábúð á jörð sinni og mun nýta
Kieifar. Jarðir þessar eru í vega
sambandi og standa samgöngur
þar enn til bóta.
fir útgerðina að gera en að setja
tryggmgu fyrir hugsanlegri sekt
og togaranum verður siglt út aft-
ur, þar sem Smith getur síðan
tekið við stjóm hans að nýju!
Eftir að varðskipið Óðinn hafði
siglt brott frá Palliser á eftir tog-
' rranum, en hætt að eltast við hinn
| raunverulega sökudólg, fór Palli-
ser af stað til Bretlandseyja. Er
ekki ósennilegt, að Smith skip-
stjóri og Hunt skipherra hafi í
;aumi brosað að viðskiptum þeirra
við fslendinga, en auðséð er nú,
að samstarf þeirra hefur verið
þaulhugsað og flutningur skip-
stjórans um borð í Juniper og síð-
an Palliser engin tilviljun.
Smith hafur áður komizt í kast
við íslenzku landhelgisgæzluna, eft
ír frásögnum skipverja hans að
dæma, en þeir segja, að íslenzkt
varðskip haíi komið að togaranum
Framhald á 15. síðu.
KH-Reykjavík, 30. apríl.
Ýmsir lögðu undrandi við hlust
irnar í dag, þegtar þeir heyrðu
Landssamband íslenzkna verzlun-
armanna og Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur auglýsa sitt á hvað í
útvarpinu frí og ekki frí 1. maí.
L.Í.V. auiglýsti frí, en V.R. ekki
frí.
f kvöld fengu svo verzlunar-
menn að vita vissu sína: þeir fá
ekkert frí á morgun.
— Það liggur ljóst fyrir, að
verzlunarmenn eiga að hafa frí á
morgum, eins og önnur félög í
A.S.Í., sagði _Sverrir Hermannsson,
Jormaður L.Í.V., þegar blaðið átti
j tal við hann í kvöld. — Að þessu
sinni hefur þó orðið samkomulag
um, að þeir skuli ekki eiga frí á
morgun, en það sikal verða í síð-
asta skipti.
Frekari upplýsingar var ekki að
fá um málið, og itrekaðar tilraun-
ir blaðsins til að ná tali af Guð-
mundi Garðarssyni, formanni V.R.
báru engan árangur.
Hannibal Valdimarsson, forseti
A.S.Í., sagði, að A.S.Í. hefði eng-
in afskipti af þessu haft og sér
væri ókunmugt um, hvað hefði
valdið þessu misræmi í auglýsing-
um L.Í.V. og V.R.