Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 14.04.1935, Page 6
6
Elnkennilegur tann-
lœknir.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þjóðvierji einn hefir reiknað pað
mjög nákvæmlega, hvernig hann
hafi eytt æfi sinni, en hann er nú
80 ára gamall. Hiann hefir sofið
í 26 ár 312 daga 18 tíma og 20
mínútur. Unnið hefir hann í 21
ár, 95 daga, 14 tíma og 40 mín.
Hann hefir borðað og drukkið í 5
ár, 346 daga, 16 tíma og 45 mín.
í rúmlega 4 ár hefir hann verið í
leyfi. 3 árum 234 dögum heflr
hann eytt í að fara til og frá
vinnu sinni, og blöð og bækur
hefir hann lesiðj í 1 ár, 243 daga
og 7 tíma. 28 dögum hefir hann
eytt í að loka dyrum, 39 dögum
og 18 mínútum í að taka af sér
skóna og fara í pá, og loks hefir
hann eytt töluverðum tíma í að
neikna petta alt út.
Einkennilegasti tannlæknir
heimsins er nýlega látinn. „Se-
guah“, sem var mjög þektur
„læknir“ fyrir 30—40 árum, dó
fátækur og yfirgefinn. Hið rétta
nafn hans var Hannaway Rowe.
1.916 var skýrt frá því opinber-
lega, að „Seguah" væri dáinn, en
hann mótmælti fregninni sjálfur.
Þegar Seguah" var á tindi
frægðar sinnar, ferðaðist hann
hringinn í kring um hnöttinn með
stóra hljómsveit nokkurra oow-
boys og Indíána. Hann var mjög
ríkur í þann tíð og vann sér
aðallega auð með því að draga
tennur úr fólki. 1 þeim bæjum,
borgum og þorpum, sem hann
kom til, setti hann upp tannlækn-
ingastofu í tjaldi sínu á torginu,
og þar gátu menn með tannpínu
fengið dregnar tennurnar út, og
til þess að draga úr sársaukanum,
eftir því sem hann sjálfur sagði,
lét hann hljómsveitina leika há-
vaðasöm lög! Meðan ófriðurinn
mikli geysaði átti hann mjög
erfitt með að komast af. Hann
varð næturvörður í Southampton,
og hið eina sem hann að síðustu
hafði eftir til minningar um frægð
sína og mikilleik var gullfesti, er
hánn bar um hálsinn!
Suartar miðaldir
Nýlega bar það við í borginni
Iluioe í Tjekkósióvakíu, að komið
var með 18 ára gamla stúlku,
Maríu að nafni, á sjúkrahúsið þar,
og var hún mjög illa til reika.
Við læknisskoðun kom í Ijós, að
hún var með djúp og mikil bruna-
sár víða á líkamanum. Stúlkan
var yfirheyrð og skýrði hún þá
frá því, að fóstra sín og mágur
hennar hefðu brent sig með glóð-
rauðri járnstöng til þess að hún
gæfi upp nafnið á elskhuga sín-
um, en frændi fóstrunnar vildi
óður giftast henni. Frændinn hefir
nú verið dæmdur til langrar fang-
elsisvistar.
Um daginn, þegar NaziSta-
stjórnin þýzka ákvað að slíta
Versalasamningunum og lögleiða
almenna herskyldu í Þýzkalandi,
kallaði Hitler alla útlenda blaða-
menn í Berlín á sinn fund og
skýrði þeim frá sínu sjónarmiði
í þessum málum. Sést Hitler á
myndinni, sem tekin var við þetta
tækifæri, og er hann í miðið.
Göbbels er þar og staddur, og er
hnakkinn á honum auðþektur og
hinn þvengmjói háls hans.
Síðasta skotið í heims-
styrjöldinni
Nýlega er látinn í sjúkrahúsi í
Englandi maður að nafni William
Arthur Whitting. — 11. nóvember
1918 lá hann í fœmstu vígvallar-
línu. Aljt í ei'nu heyrði hann kvein
frá særðum manni, er lá einhvers
staðar úti á vígvellinum. Whitt-
ing þaut upp og hljóp af stað í
þá átt, er hanm hafði heyrt veinið
úr. Yfirforingi hans hrópaði á
eftir honum: „Bíddu að eins
nokkrar mínútur — þá er stríðið
útí og engin hætta að hlaupa
fram.“ En í því reið skot af og
Whitting féll tii jarðar. —, Þetta
var síðasta skotið, sem skotið var
í heimsstyrjöldinni, því að á sömu
mínútu kom hraðboði með til-
kynningu um að ófriðnum væri
lokið. Whitting beið þess aldrei
fullar bætur, að hafa ekki viljað
bíða.
Góð laun.
Busby Berkley heitir sá, sem
samdi lögin, sem leikin voru í
kvikmyndunum „42. gata“, „Allir
leiðir liggja til Róm“, „Gullgraf-
arar“ og „Undrabarinn". Busby
Berkley fékk 100 þúsund dollara
fyiir hvert lag.
Þcegileg deyfing.
Enskt vikubiað skýrir frá þvi,
að þýzkir og enskir læknar séu
nú farnir að nota nýtt deyfingar-
lyf í staðinn fyrir „ether" og
„klóröform". Heitir þetta nýja lyf
„Ehripan“. Áhrif lyfsins koma
þegar í ljós eftir 30 sekúndur, og
er þá hægt að byrja á aðgerðinni.
Þegar sjúklingurinn vaknar finn-
ur hann engin áhrif af lyfinu.
Hvernig notar pú
tímann?
Alexandrina drotning.
Alexandrina drotning veiktist
eins og kunnugt er mjög snögg-
lega í Stokkhólmi, þar sem hún
var í trúlofunargildi Friðriks son-
ar' síns og Ingrid prinzessu.
Drotningin var skorin upp, og er
hún nú í þann veginn að verða
albata. Á fimtudaginn fór hún
heim til Danmerkur.
Rðií d yðar á silfurpSðtnniiL
Skemtilegasta raýnngin.
Leitið upplýsinga i