Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 16.04.1939, Page 3

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 16.04.1939, Page 3
ESSI saga er ástasaga, og hún gerðist á einu af strand- ferðaskipunum okkar, Söguhetjan hét Jón, eins og gengur, og ætlaði suður í Reykjavík — svona rétt eins og gengur, Jóni hafði aldrei skilist það, hvernig menn færu að því, að rata í ástaræfintýri á strand- ferðaskipunum, og hafði hann f>ó heyrt margar tröllasögur af slíku. — Ekki svo að skilja, að ekki væri bæði andinn reiðubúinn og holdið veikt hjá honum — og stúlkunum líka, að honum virtist. Þegar sjóveikin var ekki, þá var hvorki hann né þær, frekar þar en annars staðar sjálfhaldinn af neinni þeirri ónáttúru, sem mein- aði þeim að njótast. Síður en svo. En hér var annað að. — Það er ekki gott að maðurinn sé einn, og þess vegna fær hann sér konu. Og Jón var svo gerður, að það þurfti minna en þrengslin, sem vön eru að vera á strand- ferðaskipunum, til þess að hon- um væru allar bjargir bannaðar. Ástir Jóns voru hvorki færri né smærri en annara, en þær voru innilega ómannblendnar, og áttu því heima á þurru landi og helzt í fámenni. Hann hafði sund- riðið Dalsá í vorflóði, þar sem hann kom að henni, til þess að hafa tai af stúlku, sem vakti yfir vellinum hinum megin, og ekki séð eftir lungnabólgunni, sem hann fékk eftir það kaldabað, — af því að enginn vissi um or- sökina. Hann hefði heldur viljað fá það bað aftur með öllum af- leiðingum, en að eiga það á hættu, að einhver hásetinn kældi á milli sín og einhverrar á öðru fari með einni bunu úr þilfars- slöngunni, eins og ekki kvað vera dæmalaust. — Honum hafði líka þótt mei a gaman að því forðum daga, að elta dóttur prestsins, en ærnar hans, þegar hann týndi þeim öllum úr hjásetunni og hafði þá æru, að prestur flengdi hann með eigin hendi. Þau högg hafði hann látið eins og vind um endann þjóta, — af því að það lá svo beint við, að hann hefði svikist um og sofið. Jón var góð- ur, þegar lygin barst upp í hend- umar á honum. Hins vegar hefði hann hvorld haft snarræði né á- ræði til þess, að láta skipsjóm- frúna kyssa sig í dimmum káetu- gangi, fullum af fólki, í misgrip- um fyrir stýrimanninn, eins og sumir hafa gert. Svona var Jón; og Þegar þessi saga byrjar, stóð hann úti við borðstokkinn . og vissi ekki til þess, að hann væri neitt nær æfintýrinu en vant var á þeim stað. Farþegar voru margir, eins og vant var, en ekki þekti hann margt af þeim og langaði ekki einu sinni til aö þekkja þá. Hann hélt því mest til niðri í þriðja klefanum á fyrsta fari, þar sem hann bjó með Sigurði, félaga sín- um, og þangað ætlaði hann nú alfarið þetta síðasta kvöld. Hann vissi hvað Sigga greyinu leið; hann var ekki vanur að hafa mikið um sig milli hafna, og ínorguninn eftir áttu þeir að vera komnir á Reykjavíkurhöfn. En 'það' átti nú ekki fyrir Jóni að liggja, að ganga til hvílu kl. 9 síðdegis þetta kvöldið. Á leið- inni niður skaut einhver þrem- illinn því að honum, að líta inn í reykingaklefann og sjá hverjir þar væru að spila. Og það fyrsta sem hann sá, var ljóshærð stúlka, sem brosti og blasti við honum þar sem hann stóð á þröskuldin- um. Það datt alveg ofan yfir Jón, því að þessa stúlku hafði hann ekki séð áður á skipinu. Hún hlaut að hafa komið á síð- ustu höfn og verið niðri síðan. Það er fleira fallegt af dökk- hærðu kvenfólki en ljóshærðu. — Það er með öðrum orðum minni vandi, að sóma sér nokkurn veg- inn, ef hárið er dökkt. En ef ljóshærð stúlka er falleg á annað borð, þá er flestum þeim dökk- hærðu óhætt að draga sig í hlé, eða svo þótti Jóni. — Og þessi stúlka var falleg — eða svo þótíi Jóni. Vöxturinn sýndi það, að hún var ein af þeim stúlkum, sem þola að tekið sé á þeim, og sem geta jafnvel tekið svo á manni sjálfar, að honum þætti nóg um, ef það væri karlmað- ur, sem gerði það; — og Jón vildi einmitt hafa það svo. And- Iitið var opinskátt og fjörlegt, hárið glóbjart og þétt, en bezt voru þó augun. Þau voru stór og blá og altalandi. Þegar Jón kom í dyrnar, sögðu þau stax: „Komdu sæll, manni, og vertu velkominn, ef þú ert nokkuð skemtilegur, því að, þér að segja, er þetta fólk hérna ekki á marga fiska.“ Jón leit á það og sá að þetta var satt. Næst henni sat tólf ára telputryppi, kaupmannsdóttir úr höfuðstaðnum, sem líka var ný- komin á skipið, og Jón þóttist óðar sjá, að hún væri eitthvað áhangandi þeirri ljóshærðu. Þá var náunginn, sem hafði orðið Jóni samnátía á gistihússhoíunni, þar sem hann beið eftir skipinu. Hann var sá Ijótasti maður, sem Jón hafði séð, þeirra sem ekki erú vanskapaðir, bæði ófríðastur og þó einkum illmannlegastur, enda hafði hann einu sinni Verið í tukthúsinu fyrir eitthvert óvana- legt óþokkabragð, að sagt var. Hann kallaði sig „agent“, og var það „ferðalangur“ á máli þeirra Jóns og Sigurðar. — Loks var þar smákaupmaður einn, bezti karl, sem Jón þekti vel, og bezt að því, hvernig hann gaf í staup- inu. Nú var hann með fyllsta móti; það heyrði Jón á því, hve hátt og títt hann blés úr vinstri nösinni. Þegar hann hafði eitt- hvað í kollinum, var eins og hann þyrfti alt af að vera að blása ’ourt einhverri stýflu úr henni. „Gott hvöldið! Hvað spilið þið, með leyfi?“ „Og það er nú bara Gosi, karl minn,“ sagði kaupmaðurinn, hálf- súr á svipinn. „Ja, hvað er þetta! Það hefði ég hugsað að þér þætti magurt. Mig minnir, að þú viljir þó helzt halda þér við Vistina, eins og ég og fleiri góðir menn.“ „Það vildum við nú líka helzt, en hún kann ekki vel Vist, litla stúlkan," sagði Ferðalangur og gaut illu hornauga til Jóns, sem þýddi eitthvað þessu líkt: „Vertu ekki að sletta þér fram í það, sem þér kemur ekki við, drengur íhinn! Það er ég, sem hefi fengið þessa stúlku í spil við mig, og er nú á góðum vegi að vinna hylli hennar, þótt ljótur sé.“ „En ef þér vilduð nú gera svo vel og líta á spilin hjá henni og segja henni dálítið til, þá gætum við spilað Vist,“ sagði sú ljóshærða blíðlega og blátt á- fram, og augun bættu við, eins og þau væru að tala við sjálf sig að gamni sínu, svo hátt, að Jón heyrði: „Hann er bara laglegur, þessi!“ „Það er svo sem velkomið, ef henni leiðist það ekki,“ sagði Jón. „Ég afsegi nú fyrir mitt leyti að spila Vist á þessi spil, það þekkjast svo mörg af þeim,“ sagði Ferðalangur, eitraður af fólsku. „Það gerir ekkert til,“ sagði sú Ijóshærða og snéri sér að trypp- inu. „Skreptu ofan og náðu í spilin mín. þú þekkir þau!“ „Þarna sér maður að þær búa í sama klefanum niðri," hugsaði Jón. Tryppið fór og kom aftur með spilin, og áður en langt um leið var Jón seztur inn í horn á milli þess og þeirrar ljóshærðu. Nú kom töluverð breyting á alt saman. Það glaðnaði yör kaupmanninum við vistin*. Reyndar talaði hann ékki orð — var of drukkinn til þess, en hana spilaði eins og engill, svona I hálfgerðri leiðslu, og blés úr nös við og við. — Tryppið misti smám saman áhugann fyrir spil- unum, þegar hún réð ekki lengur yfir þeim sjálf. Hana fór að syfja og hún fór að geyspa meira og meira, þangað til það varð að samkomulagi með henni og þeirri ljóshærðu, að hún skyldi fara of- an að hátta, og þá tók Jón við spilunum hennar fyrir fult og alt. Hann lék á alsoddi. Bláu augun þeirrar ljóshærðu voru farin að segja honum sitt af hverju, þeg- ar leið á kvöldið. Og það var ekki nóg með það. Aldrei hafðl Jón verið troðinn um tær svo, að honum þætti þá betur en áð- ur, — fyr en nú. Auðviíað var hún líka spilandi kát. Aftur á móti var Ferðalangur þá tekinn fast að ógleðjast. Það var ekki nóg með það, að kaupmaðurinn og Jón ynnu af honum hvert spil og léki hann sem háðulegast, heldur var Jón búinn að vinna af honum stúlkuna líka. Það var ekki um það að villast, að hann átti hvert bein í henni, nú orðið. Eitthvað um kl. 12 var hætt að spila. Ferðalangur var þá búinn að fá nóg af svo góðu og fór oían, troðinn upp með fúss og fýlu, og varð fátt um kveðjur. Hinum kom saman um að koma snöggvast út á þilfar í góða veðrið, áður en þau færu að hátta. Það var blíðalogn og glaðatunglskyn, — eitt af þessum dásamlegu íslenzku haustkvöld- um, sem allir þekkja. — Einstöku farþegar voru enn á slæðingi uppi við, en flestir voru nú í þann veginn að hverfa niður undir þiljur, og þangað fór kaup- maðurinn von bráðar. Honum var orðið mál á hvíldinni. Veðrið var gott, en það var orðið framorðið. En nú var Jón kominn í; það sálarástand, að hann vissi hvorki hvaðan á sig stóð veðrið, né hvað klukkan sló. Það er ekki gott að lýsa því, hvernig hon- um var innanbrjósts. Tilfinninga- ríkir skáldsagnahöfundar kynnu að hafa sagt, að þar hefði ekkert verið, nema ein einasta.hamslaus þrá eftir þvi, að þrýsta þessari hinmesku veru — þeirri ljós- hærðu — upp að brjósti sínu, o. frv. En þetta er ekki alls kostar nákvæmt, því að einhvers staðar langt niðri í undirmeðvitund Jóns vakti þó hans ódrepandi ó- beit á vitundarvottum, þegar svona stöð á, og knúði hann til þess að fara varlega, — knúði (Frh. á 8. síðu.)

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.