Tíminn - 03.01.1964, Qupperneq 7

Tíminn - 03.01.1964, Qupperneq 7
Útgefcndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritatjómar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, simar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán, innan. lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Tannlæknirinn Ólafs Thors verður sennilega iengst minnst í stjórn- málasögunni, sem mannsins með blýantinn. Þegar hann myndaði fyrstu stjórn sína með aðstoð kommúnista og hleypti því dýrtíðarflóði af stað, er síðan hefur ekki raðizt við og aldrei hefur verið meii'a en þegar hann hljóp frá borði á stjórnarskútunni, íullvissaði hann þjóð- ina um, að ekki væri nein hætta á íerðum, því að verð- bólguna mætti lækna „með einu pennastriki”. Þessi eina setning lýsir betur stjórnmálamanninum Ólafi Thors enn nokkuð annað. Hinn nýi forsætisráðherra virðist ætla að láta nafn sitt geymast sem mannsins með töngina. í nýársboðskap sínum á dögunum, laldi hann verðbólguna ekki svo alvarlegt vandamál og vitnaði því til sönnunar í látinn enskan fræðimann, er taldi hana fyrst og fremst viðfangsefni sérfræðinga, er færu líkt að og tannlæknir. Hinn nýi forsætisráðherra ætlar sér sem sagt að verða tannlæknir þjóðarinnar — maðuvinr með töngina. Það er þegar Ijóst, að sérfræði hins nýja forsætis- ráðherra, sem hagfræðilegs tannlæknis er harla breyti- leg og tilviljanakennd. Nú heldu/ hann því t. d. fram, þegar kaupgjald er hér um þriðjungi íægra en víðast annars staðar í Vestur-Evrópu að of hátt kaupgjald alþýðustéttanna sé skemmda tönnin i íslenzku efna- hagslífi. Árið 1958 var sérfræði hans önnur. Þá var kaupgjald hér einna hæst í Ves*ur-Evrópu. Þá taldi þessi tannsérfræðingur, að of lágt kaupgjald væri hin skemmda tönn efnahagsmálanna. Til þess að bæta þessa skemmdu tönn, gerði hann bandalag við annan pólitískan tannlækni, Einar Olgeirsson. Þeir hófust sameiginlega handa um stórfelld verkföll og knúðu fram kauphækkun, sem þá átti að vera hin eina rétta tannlækning. Hinn nýi forsætisráðherra sagði það réttilega í nýárs- ræðu sinni að stefna beri að pví að verkamenn fái viðunanlega afkomu, sem eftirtekju átta stunda vinnu- dags. Eftir seinustu kauphækkun. tær Dagsbrúnarmað- ur um 77 þús. kr. í árslaun, miðað við átta stunda vinnu- dag. Til þess að láta þá fyrirætlur. rætast, að átta stunda vinnudagurinn nægi, ber nú öðru úremur að stefna að því, að þessi lágu árslaun verkamanpsins verði ekki rýrð með nýjum, óþörfum álögum. En hinn nýi forsætisráðherra var bins vegar ekki á þvi máli. Hann boðaði nýjar, opinberar áiögur. Ef hann heldur fast við þá fyrirætlun, spáir það ekki góðu um, að hann verði eitthvað iansamari með töng- ina en Ólafur með blýantinn. Skemmda tönnin Það er alls ekki ósnjöll samlíking hjá hinum nýja for- sætisráðherra að tala um skemmdh rönn í íslenzku efna- hagslífi. Það er hins vegar rangt hjá forsætisráðherr- anum, að þessi skemmda tönn sé of hátt kaup verka- manna og láglaunafóiks, er þurfi i..ð skerða með nýjum óþörfum álögum, eins og t. d. hækkun söluskattsins. Hin skemmda tönn íslénzkra efnahagsmála er fyrst og fremst sjálf stjórnarstefnan — sú s+efna, sem miðar að því að draga þjóðarauðinn og þjóðartekjurnar á fáar hendur — sú stefna, sem krefst fuils frjálsræðis stór- gróðamannsins meðan þrengt er að hinum efnaminni — sú stefna auðvalds og íhalds, sem hlýtur að valda vax- andi deilum hjá þjóð, sem nauðsynlegt er að geti staðið sem bezt saman. ÞR0STUR ðLAFSSON: BERLIN ARBREF Berlín á jóladag 1963. Það eru komin jól hér í Ber- línarborg. Þetta þykir sjálfsagt ekki há- fleyg speki, en ef við athugum nánar, hvað raunverulega felast ætti í orðinu jól, þá sjáum við, að þau hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá Berlínarbúum undan- farin tvö ár. Jól eru hátíð, sem einkum er tengd friði og innri gl'eði. Þau eru hátíð friðarins, sem helzt vart án innri gleði mannanna. Þau eru hátíð gleðinnar, sem grundvallast á friði í hvaða mynd sem er. Okkur mönnunum er það mjög misvel gefið að varðveita þessa tvo hornsteina mannlegrar tilveru, enda skortir flesta okkar bæði vit og vilja þar til. Sennilega eru þessi sannindi hvergi jafnvel opinberuð og hér í þessari skiptu borg, sem búin er að ganga í gegnum allar þær þrengingar, sem yfir eina borg geta dunið. El'dri Berlínarbúar muna borg- ina sem eina fegurstu og glæsi- legustu höfuðborg heims. Þeir muna hana síðan lagða í rústir, rænda og skipta, sem ránsfeng •milli hinna hreifu sigurvegara, síðan afgirta og einangraða eins og hvert annað pestarbæli. Síðan kom aðflutningsbannið og hungr- ið, sem því fylgdi 1948 og þá lokasundrunin, sem fylgdi með byggingu hins alræmda múrs 1961. Og það er einmitt múrinn, — þetta einstaka minnismerki úr- kynjaðrar pólitíkur, — sem er til- efni þeirrar sönnu jólagleði, sem hér rikir. Þetta hljómar að vísu fáránlega, en við getum sett þetta upp í aðra jöfnu og sagt, að myrkrið kenni okkur að meta ljósið. Tvenn undanfarin jól hefur múrinn hindrað samgang og sam- neyti íbúa hinna tveggja borgar- hluta. En þessa dagana gleðjast hundruð þúsunda Berlínarbúa, yfir þeirri mannlegu tilfinningu að fá að sjá bræður sína og syst- ur eftir tveggja og hálfs árs skiln að. Þetta var ávöxtur þess sam- komulags, sem náðist hér fyrir jólin milli stjórnar austursvæðis- ins og Vestur-Berlínar. Fyrir okkur íslendinga er það svo sjálfsagður og eðlilegur hlut- Mannfjöldinn bíður eftir vega- bréfum. ur, að mega sjá systur okkar og bræður, feður og mæður, að við myndum ekki eyða tíma okkar í að ræða slíkt mál. En ég dreg í efa, að þeir, sem ekki þekkja þetta ástand skilji fyllilega, hvað hér er um að vera, því það einfaldasta og það sjálfsagðasta er oft erfiðast að skilja. Sú hugsun, að fjölskyldum sé stíað svo ómannúðlega og svo grimmdarlega í sundur eingöngu til að fullnægja pólitískri valda- græðgi, er okkur íslendingum svo fráhverft og svo fjarstætt, að við veigrum okkur við að reyna að skilja það. — — Miklu bleki hefur verið eytt undanfarin ár, í að reyna að sann færa stjórnendur heimsins um nauðsyn friðsamlegrar sambúðar þjóða millum. Berlínarbúar hafa hlustað á þenna hoðskap með þolinmæði og þrautseigju. Þeir eru honum að vísu sammála, en þeir hafa því miður ekkert séð móta fyrir framkvæmd hans. Þeir hafa lifað langan harðindavetur án þíðu eða vorkomu. En í blotanum, sem fylgdi á eftir fyrrnefndu samkomulagi, voru þeir skjótir til að gera sitt til framkvæmdar þessa drauma mannkynsins. Og stórkostlegt var að sjá við- brögð þeirra þegar búið var að undirrita samkomulagið um leyfi þeim til handa, að heimsækja ætt ingja sína austantjalds. Margir þeirra stóðu og biðu í yfir fimmtán klukkutíma í hörku- frosti og snjó til þess að fá að útfylla fararleyfin. Biðraðirnar byrjuðu að myndast milli klukk- an þrjú og fjögúr á nætumar. Fólkið streymdi að úr öllum átt- um, eins og það ætlaði sér að kaupa aðgöngumiða að eilífðar- dvöl á himnum uppi. Aldraðar konur, jafnt sem ung- ar húsmæður, stóðu þar í frost- inu stjarfar í andliti og þrjózkar á svip og biðu eftir að röðin kæmi að þeim. Þær biðu eftir að fá uppfylltar tveggja ára vonir og þrár. Fyrstu dagarnir liðu svo, að þeir höfðu á sér meiri einkenni eymdar og þjáningar þessa vesal- ings fólks, en gleði þess og vona. Hundruð þeirra þoldu ekki vos- búðina, og voru flutt í sjúkrahús, en allmörg gamalmenni létust, skömmu eftir að hafa fengið leyf- in, oftast nýkomin heim í hlýj- una. ' Hvað gerðist hér í Berlín um þessi jól, er ævarandi minnis- merki um mannlegan sorgarleik, sem verður að mannlegum hetju- skap, sprottnum af fórnfýsi og voninni um betri og bjartari framtíð. - eramhaje a 13. siðu Fyrsta raufin höggvin f múrlnn. T í M I N N, föstudaginn 3. janúar 1964. — z

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.