Tíminn - 14.01.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.01.1964, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR, 13. janúar. NTB-London- — Bretland og meðlimaríki Efnahagsbandalags Evrópu hafa komið sér saman um málamiðlunartillögu um fiskveiðilögsöguna á fiskveiði- ráðstefnunni í London. Talið er, að tillagan hafi að geyma einhvern meðalveg á milli til- lögu Breta um 6 plús 6 mílur, og tillögur Belgíu um 9 plús 3 mflur. NTB-Moskva. — Fidel Cast- ro, forsætisráðherra Kúpu, — kom í morgun í óvænta heim- 1 sókn til Moskvu, og átti þeg- j ar fund með Krústjoff forsætis- ráðherra. Blaðið New York Times telur, að Krústjoff hafi boðið Castro til Bfoskvu, til þess að sj.á um, að hann gerði ekk- ert í fljótfærni í sambandi við Panamaóeirðirnar. NTB-Helsingfors. — Fundur fræðslumálaráðherra Norður- landa samþykkti í dag í Helsing fors ósk Norrænu menningar- nefndarinnar um stofnun nor- rænna tónskáldaverðlauna að upphæð 50 þúsund danskra kr. Gylfi Þ. Gíslason sat fundinn að íslands hálfu, þar sem einn- Ig var samþykkt að háskóla- próf í einu lagi fengi gildi í hinum Norðurlöndunum. NTB-Stokkhqlmi. — Sænsk- ar verzlanir segja búðarþjófum stríð á hendur, og hafa þegar gert hernaðaráætlun. Búðanþjóf ar stela vörum árlega í Svíþjóð fyrir minnst 480 milljónir ísl. kr. Þriðjungur þjófanna er und ir 15 ára aldri. NTB-Strasbourg. — Allir f'ull- trúar sósíalista í Evrópuiráðinu, sem hefur fundi sína á morg- un, hafa ákveðið að styðja fram boð belgíska þingmannsins Fernand DeHousses sem aðal- ritara ráðsins. Frambjóðendur eru þrír. NTB-Tokio. — Forseti Indó- nesíu, Ahmed Sukarno, kom í óopinbera heimsókn til Japans í dag. Hann mun ræða við ýmsa helstu ráðamenn landsins. NTB-Brussel. — Umræður milli Bretlands og Efnahags- bandalags Evrópu munu hefj- ast að nýju 23. janúar n. k. — og eru þær innan ramma Vest- ur-Evrópusambandsins. Mun meðal annars rætt um stofnun stjórnmálabandalags innan Evr ópu, afstöðuna til kommúnista- landanna og undirbúnina að framkvæmd Kennedyáætlunar- innar. NTB-Berlín. — Stjórn social- demókrataflokks Vestur-Þýzka- <lands úkvað í dag framboð Willy Brandts sem formanns flokksins. Ef flokksþingið sam- þykkir framboðið, mun Brandt verða forsætisráðherraefni so- cial-demokrata við kosningarn- ar 1965. NTB-London. — Fjöldi verð- mikilla málverka eyðilögðust, er listaverzlun brann í London í morgun. Meðal málverkanna, var eitt eftir Canaletto, og ann- að eftir Van Dyk. Tjónið er metið á 30 milljónir ísl. kr. | 2 HIDSAMT í PANAMA EJ Reykjavík, 13. janúar öeirðunum við Panamaskurðinn, sem geisað hafa af heift mikilli síðustu daga, er nú að mestu lokið, eftir að deiluaðiiar samþykktu tillögu þá um vopnahlé, er fullirúi Bólivíu hjá Öryggisráði Sameinuðu bjóðanna lagði fram um helgina. Enn eru þó óleyst ýmis vanda- mál í sambandi við skipaskurðarsvæðið og rekstur skurðsins. Fullarúi Panaina hjá Sameinuðu þjóðunum hefur fyrir hönd stjórn ar sinnar krafist þess, að hinn 50 ára gamli samningur Panama og Bandaríkjanna um Panamaskurð- inn verði numinn úr gildi, og að annað hvort muni Panamastjórn þjóðnýta skurðmn, eða fá hann í her.dur alþjóðiegri eftirlitsnefnd. Bandaríkjastjórr lýsir því yfir, að hún muni ekki láta yfirráð sín yf- ir skurðinum af hendi, en að hún sé fús að vinna að friðsamlegri lausn deilunnar. Upphaf óeirðanna er rakið til ‘ánamálsins svonefnda. Sam- kvæmt samningnum, sem gerður var 1903 fengu Bandaríkin yfirráð yfir 16 km. breiðu svæði meðfram skurðinum, og var svæðið talið eign þeirra. ÁC.ð 1959 urðu upp- þot. í Panama, og kröfðust Pan- amabúar þess, að fáni Panama skyldi blakta viS hlið bandaríska Framhald á 15. sf5u. A myndinni sjáum við hóp Pan- ama stúdenta með kröfuspjald á milli sin. Á því stendur: „Panama er engin nýlenda — það er frjálst Iand.“ Til hægri og vinstri eru bandarískir lögreglumenn. LOFTLEIDIR LÆKKA FARGJÖLDIN UM 15% K.H.-Reykjavík, 13. janúar Stjórn Loftleiða hefur set- ið á stöðuaum fundum að und anförnu og r*tt fargjaldamál og flugvélakaup. Seint á laug nrdag sendi stjórnin frá sér fréttatilkynningu, þar sem sagt er, að hún hafi ákveðið að lækka fargjöld milli Amer- fku og Evrópu um nálægt 15% frá 1. apríl n.k., þannig að IATA félögin verða enn rrteð hlutfalleiega hærri gjöld brátt fyrir sínar lækkanir. í tiíkynningunni segir einnig, að verið sé að athuga um kaup á skrúfuþotum. Stjórn Loftleiða tók endanlega STJÓRNARKJÖR í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur hófst kl. 13,00 þann 25 nóv. s. I. og lauk kl. 22,00 12. þ. m. 7 Kosið var um tvo lista. A-lista borinn fram af trúnaðarmannaráði félagsins og B-lista borinn fram af Sigurði Breiðfjörð Þorsteinssyni o. fl. — Atkvæði greiddu 1074 fé- lagsmenn og urðu úrslit þau, að A-listi h\aut 668 atkv. og alla menn ákvörðun um aætlun og fargjöld á laugardaginn. Verður sumaráætl un með svipuðu sniði og s.l. sum- ar og ferðafjölai sá sami. Þá hef- ur -tjórnin sótt um leyfi til við- komandi landa til þess að lækka farg’öld á milli Ameríku og Evrópu frá 1. apríl n.k. um nálega 15 af húndraði. Með því vill stjórn ir. enn halda þeirri samkeppnisað stcðu að vera með lægri fargjöld en önnur félög. sem fljúga á Norð ur-Atlantshafskiðunum. Fargjalda lækkunin verður aðeins á milli Evrópu og Ameríku, en ekki á milli landa inian Evrópu. Blaðið álti tal við Martin Peter sen hjá Loftleiðum um ýms at- riði varðandi Jækkunina, og lét hanr. eftirfarandi upplýsingar í té: kjörna, B-listi hlaut 355 atkv. 13 seðlar voru auðir og 6 ógildir. — Kjörnir voru í stjórn fyrir árið 1964: Formaður: Jón Sigurðsson, Kvisthaga 1. Varaformaður: Sigfús Bjarnason, Sjafnargötu 10. Ritari: Pétur Sigurðsson, Tómasarhaga 19. Gjaldkeri: Hilmar Jónsson, Nes vegi 37. Varagjaldkeri: Kristján Jóhannsson, Njálsgötu 32. Meöstj.: Pétur Thorarensen, Laugalæk 6. Far með Loftlciðum aðra leiðina mtPi Reykjavíkur og New York kostar nú 160 dollara en því til samanburðar kostar nú 195 dollara far með Pan American aðra leið milli Keflavíkur og New York. 1. apríl lækkar gjaldið með Pan American niður í 150 dollara, en þá lækkar gjald Loftleiða niður u. þ. b. 130 doliara, ef samþykki fæst til lækkunarinnar hjá við- komandi löndum, sem verður vafa laust. Fargjöld milli Ameríku og meginlands Evrópu munu lækka hjá Loftleiðum um 53 dollara aðra leiðina, eins og hjá IATA félögun um, eða þá að Loftleiðir búa til vetrarfargjald sem gildir 10V2 mán á ári, og er 53 dollurum ’ægra en sumaríargjald aðra leið Karl E. Karlsson, Skipholti 6. Varastjórn:: Óli Barðdal, Rauða- læk 59. Jón Helgason, Hörpugötu 7. Sigurður Si.gurðsson. Gnoðar- •vogi 66. Á s. 1. ári fór stjórnarkosning sem hér segir: 1110 félagsmenn greiddu atkvæði. A-listi, að mestu skipaður sömu mönnum og nú, hlaut 698 atkv. B-listi 393 atkv. 13 seðlar voru auð ir og ógildir. ina eg 107 dollurum lægra en sum aiíargjaldið fram og til baka. Loft leiðir halda áfvam með fargjald, sem gildir í 21 dag fram og til baka, og verðrn það 5 dollurum lægra en IATA fargjaldið til Norð urlandanna og 15 dollurum lægra til 3retlands. B’aðið ræddi einnig við Sigurð Magnússon fulitrúa. Varðandi kaup á skrúfuþotum, sem Loftleið- Framhald á 15. sISu. ÁREKSTRAR Á AKRANESI KJ-Reykjavík, 13. janúar. Aðfaranótt sunnudagsins ók ölvaður ökumaður utan í bíl á Akranesi, og skemmdust báðir I bílarnir töluvert. Sá ölvaði ók i á brott, og ætlaði að flýja upp j í sveit, en lögreglan fann bíl- | inn við bæinn Lambhaga rétt austan við Akranesvegamótin. Var maðurinn færður til blóð- rannsóknar, og viðurkenndi hann brot sitt. Mikið hefur verið um á- rekstra á götum Akraness und- anfarið. Bæði er, að bílaeign Akurnesinga hefur aukizt mjög, svo og, að steyptu göturnar á Akranesi verða mjög hálar þegar þannig viðrar. Stjórnarkjör í Sjómannafélaginu __________________________________________ TÍMINNi þriðjudaginn 14. janúar 1964 —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.