Tíminn - 11.03.1964, Blaðsíða 16
HfWvflrndagur 11. marz 1964
S9. tbl. 48. árg.
ReiBingshryssan hans
Sigurjóns er ferðbúin
BÓ-Reykjavík, 10. marz.
Reiðingshryssan hans Sigur-
jóns Ólafssonar stendur ferðhú-
in í Laugarnesi og biður þess
að verða flutt á skipsfjöl til
Kaupmannahafnar, þar sem
hún verður steypt í eir.
Einhvern næstu daga verður
tekið ofan af hryssunni, klyfj-
arnar sagaðar af henni. Að svo
búnu verður hún sett í kassa
og færð um borð í Gullfoss, áð
ur en hann leggur' í næstu ferð
til Hafnar, en þar tekur steyp-
arinn Rasmusen við gripnum,
sagar hann í marga parta, steyp
ir þá og skeytir saman.
En hryssa Sigurjóns á aftur-
kvæmt til íslands, öfugt við
önnur hross, sem fara héðan
með skipum. Þegar Rasmussen
hefur steypt hana í eir, verður
hún aftur flutt með Gullfossi
til Reykjavíkur og færð á stall
á Hlemmtorgi.
Þetta er hálf önnur hryssa
að stærð, sniðin með tilHti til
þess, að áhorfandinn geti skoð
að hana sem nálæga mynd i
eðlilegri stærð, úr nokkurri
fjarlægð.
— Hún virðist ekki stór, þeg
ar hún er komin undir bert
loft, sagði Sigurjón, þegar við
komum til að skoða hrossið í
dag.
— Hvers vegna gerðirðu
hryssu en ekki hest?
Framhald á 15. sf8u.
Hjónln Birgitta og Sigurjón Ólafsson og þrír synlr ofan í mllfi á
hryssunnl. (Ljósmynd: Tíminti, GE).
Ægir erfiður
í Slippnum
KJ-Reykjavík, 10. marz.
Varðskipið Ægir, sem fór á
hliðina í gær, er verið var að
taka það upp í Slippinn, komst
þangað loks í nótt.
Er sett hafði verið fyrir götin
tvö, sem mynduðust, var Ægi
rennt úr Slippnum aftur, þar
sem hann mun ekki hafa verið
réttur í dráttarsleðanum. í dag
var skipið svo tekið aftur upp,
og hófst hin fyrirhugaða viðgerð
á því seinnipart dagsins. Eftir
því sem varðskipsmenn og starfs-
menn Slippsins tjáðu blaðinu, er
erfitt að taka Ægi upp í Slipp.
Bolur hans er ekki eins belglaga
og annarra skipa og erfitt að
koma skorðum undir bolinn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
mistekst að taka Ægi upp í Slipp.
Dr. Kutchuk, varaforseti Kýpur, lætur í Ijós ótta um framtíð Tyrkja á eyjunni
Tyrkjum útrýmtá Kýpur?
NTB-NICOSIA, 10. marz.
— Tyrkneskir menn á Kýpur
eiga á hættu að verða algjörlcga
]>urrkaðir út, cf friðarherlið Sam
cinuðu þjóðanna kemur ekki fljótt
til cyjarinnar — sagði dr. Kut-
chuk, varaforseti Kýpur, í orðsend
ingu til U Thants, framkvæmda-
Stórhækkun
farmgjalda í
strandferðum
Rikisstjórnin hefur skellt á
nýjum stórhækkunum farmgjalda
með strandferðaskipum ríkisins,
og eru þessar hækkanir veruleg-
ur byrðarauki fyrir þá, sem mjiig
verða að treysta á strandferðaskip-
in til flutninga og ferða. Hækkan'.r
þessar eru 5—24%. Hækkanir a
mjög stórum flutningaflokkum eru
24% og 10%, en minnsta hækkun
in er 5%.
stjóra Sameinuðu þjóðanna, og rifc
isstjórna Bretlands, Tyrklands og
Grikklands í dag. Hann sagði, að
SÞ-herliðið yrði að koma fljótt t.ií
þess að koma í veg fyrir skipulagt
fjöldamorð á tyrkneskum mönn
um á Kýpur og vísaði til yfirlýsiug
ar brezka herliðsins, þar sem seg
ir, að Grikkir hafi gert árásir á
tyrkneska menn án þess, að þeir
hefðu gert neitt af sér.
Að minnsta kosti 3 Grikkir og
14 Tyrkir létu lífið í bardögunum
í bænum Ktima í gær og fjöldi
manns særðist. í morgun geisuðu
bardagar í bænum Malia á Suður-
Kýpur, en seinna í dag gáfust
tyrkneskir menn þar upp og létu
vopn sín af hendi. Voru það bæði
rifflar, haglabyssur og hand-
sprengjur. Venjulega búa í bæn-
um um 600 manns, þai af 80 GrikK
ir, en mikili straumur flóttamanua
Framhald á 15. sí'ðu.
Einhver mistök munu hafa átt
sér stað við upptöku hans fyrir
nokkrum árum, en ekki eins al-
varlegs eðlis og nú.
Ljóst er, að orsök óhappsins
eru einhver mistök í sambandi
við upptöku skipsins, getgátur eru
Framhald á 15. siðu.
Skaftá var um
þús. tenings-
metrar á sek.
HF, Reykjavíki 10. marz.
í dag hafði blaðamaður Tím-
ans samband við Sigurjón Rist,
vatnamælingamann, en hann er
nýkominn austan úr Skafta-
fellssýslum, þar sem hann
fylgdist með Skaftárhlaupinu.
Sagði Sigurjón. að flóðið væri
nú mjög í rénum. og hefði geng
ið alvcg eðlilega fyrir sig. Sig-
urjón getur ekki skýrt frá nið-
urstöðum af rannsóknum sín-
um á hlaupinu, fyrr en eftir
svona viku en hann sagði okk-
ur, að Skaftá hefð' í hlaupinu
rutt fram um 1000 tenings-
metrun. af vatni á sekúndu, en
til samanburðar má' geta þess
að Þjórsá fleytir um 400 ten-
ingsmetrum á sekúndu.
FYGL0, SIGURVEIG 0G TVEIR GIIÐMUNDAR A LETTUM 0PERUT0NLEIKUM I KV0LD
í kvöld halda Sinfóníuhljómsveitin og Ríkisútvarpið létta óperutónloika i Háskólabói. Þar koma fram fjórir þekktir söngvarar, og á efnisskránni
eru verk eftir Strauss, Rossini, Mascagnl, Gounod og Verdi. Söngvararnir fjórir, Eygló Viktorsdóttir, Sigurveig Hjaltested, Guðmundur Guðjóns-
son og Guðmundur Jónsson, eru á miðri myndinni, lengst til hægri er stjórnandinn Proinnsías O'Dulnn, en í baksýn er Sinfóníuhljómsveitin.
(Ljósm. Tíminn GE).