Tíminn - 28.05.1964, Síða 2
Miðvikudagur, 27. maí.
NTB-Stokkhólmi. — Á morg-
un hefjast umræður í sænska
þinginu um afskipti sænsku
stjórnarinnar af Wennerström
málinu, og er taiið, að það
verði hörðustu stjórnmáladeii-
ur landsins um árabil.
NTB-Vientiane. — Herlið hlut
lausra í Laos hefur yfirgefið
bæinn Muong Kheung, um 25
km fyrir norðan Krukkusléttu,
vegna framrásar Pathet Lao-
kommúnista. Hlutlausir náðu
bænum á sitt vald s. L mánu-
dag.
NTB-New York. — Apartheid-
nefnd Sameinuðu þjóðanna ráð
lagði Öryggisráðinu í dag að
hefja efnahagslegar refsiað-
gerðir gegn Suður-Afríku.
NTB-Nicosíu. — Brezkur her-
maður í liði Sameinuðu þjóð-
anna á Kýpur hefur játað að
hafa framið hryðjuverk og flutt
vopn til tyrkneskra manna,
sagði Kýpurstjórn í dag. Málið
er í rannsókn.
NTB-Vínarborg. — Leiðtogi al-
banskra kommúnista, Enver
Hoxha, sagði í dag, að Krúst-
joff’' fórsætisráðherra væri
mesti og skítugasti svikarinn í
sögu lcommúnismans.
NTB-Berlín. — Ulbricht, leið-
togi a-þýzkra kommúnista, lagði
til í dag, að skipuð skyldi
nefnd til þess að ræða aukna
samvinnu milii Austur- og Vest
ur-Þýzkalands í framtíðinni.
NTB-Aberdeen. — Rúmlcga
100 hafa veikzt af taugaveiki-
bróður í bænum Aberdeen i
Skotlandi síðustu dagana.
NTB-Amman. — Fornleifafræð
ingar, sem vinna við gröft í
bænum Dotman fyrir norðan
Jerúsalem, hafa fundið um
2.400 hluti í gröf, sem talin er
vera um 3.000 ára gömul.. Dot
man var mikill bær á dögum
Abrahams, fsaks og Jakobs.
NTB-Bonn. — Elizabeth
Englandsdrottning og hertog-
inn af Edinburgh koma í opin-
bera heimsókn tii»Vestur-Þýzka
lands í maí 1965.
NTB-Durban. — Fyrrverandi
hæstaréttardcmari í Suðuv-
Afríku, hinn 73 ára gamli
Francis N. Broome, sagði í
ræðu í dag, að hugmyndir
manna um jafnrétti kynþátt-
anna og um mannréttindi væru
algjörlega rangar.
NTB-Washington. — Johnson
Bandaríkjaforseti tók í dag á
móti forseta írlands, Eamon dc
Valera, sem er í heimsókn í
Bandaríkjunum.
NTB-London. — Flokksþingi
bre7.ka Verkamannaflokksin=
verður frestað þar til eftir kosn
ingarnar í haust-
NTB-London. — Sovétríkin
sendu í dag áskorun til Bret-
lands um að fallast á að hald
in yrði ný alþjóðleg ráðstefna
um hlutleysi Kambodsíu.
Katanga logar enn á ný
NTB-Elisabethville, 27. maí
Uppreisnarmenn undir stjórn
Pierre Muelele, sem er róttækur
Lumumba-sinni, hafa náð á silt
vald tveim bæjum í Norður-Kat-
anga, Albertville og Baudouin-
ville, og bendir allt til þess að
Stöðugir fundir
EJ-Reykjavík, 27. maí
Viðræðufundur milli samninga-
nefndar 24 verkalýðsfélaga á Norð
ur- og Austurlandi og fulltrúa
vinnuveitenda hófst í kvöld kl.
8,30 og var honum ólokið, þegar
blaðið fór í prentun.
Sáttasemjari hefur haldið fund
með þessum aðilum bæði nótt og
dag undanfarið og mun aðallcga
fjallað um ýmsar breytingar á
samningunum sjálfum, en ekki um
beinar kauphækkanir, enda verð-
ur ekki hægt að segja til um þær
Skógræktarferð
Árnesingafélags
Ámesingafélagið í Reykjavík
fer í sína árlegu skógræktarferð
til gróðursetningar á Þingvöllum
og í Áshildarmýri á laugardaginn.
Lagt verður af stað frá Búnað-
arfélagshúsinu kl. 14. Stjóm fé-
lagsins væntir þess að félagar fjöl-
menni í ferð þessa, sem jafnframt
er kynningar- og skemmtiferð um
átthagana. Þeir sem ætla að taka
þátt í ferðinni eru vinsamlegast
beðnir að láta vita fyrir föstudags
kvöld í síma 24737 eða 15354, og
í þessum $ímum er jafnframt hægt
að fá allar hánari upplýsingar um
ferðina.
SEINNISLÁTTUR
FB-Reykjavík, 27. maí
Á sunnudaginn sögðum við frá
tilraunum á Hvanneyri, sem sýnt
höfðu fram á, að seinni sláttur
gæti verið hættulegur, ef of seint
væri slegið á haustin, og túnin
fengju ekki að búa sig undir vet-
urinn. Nú befur sá leiði misskiln
ingur slæðzt inn hjá ýmsum, að
alls ekki megi slá nema einu sinni
á sumri, og seinni sláttur sem
slíkur sé óleyfilegur, ef ekki eigi
að eyðileggja túnin, eða nýrækt-
irnar, sem hættast er við kali á
veturna. Við viljum því enn einu
sinni benda á að búvísindamenn-
imir íslenzku hafa ekkert á móti
seinni slætti, ef ekki er slegið of
seint á haustin, eins og greinilega
kom fram í greininni.
Trésmíða-
vélasýning
HF-Reykjavík 27. maí
WMW-Export, útflutningsfyrir-
tæki fyrir trésmíðavélar í Berlín
heidur þessa dagana sýningu hér
á ýmsum trésmíðavélum í vélasal
Ilúsasmiðjunnar við Súðavog. —
S.l. ár hefur mikið af þessum vél-
um verið flutt til landsins, en á
sýningunni eru um 20 véiar af
ýmsum nýjustu gerðum.
Þessar austur-þýzku vélar eru
tiltölulega ódýrar og hefur feng
izt af þeim góð reynsla. Nýjustu
vélarnar eru útbúnar ýmsum
tækninýjungum og miklar örygg-
isráðstafanir eru viðhafðar á þeim
í septemberlok er fyrirhugað að
halda aðra sýningu, sem verð-
umfangsmeiri og sýndar verða
þá stærri vélar.
Framhald á 15. siðu.
fyrr en niðurstöður viðræðna rík-
isstjórnarinnar og Alþýðusam-
bands íslands liggja fyrir.
þeir hafi hertekið bæina án þess
að hleypa af einu einasta skoti.
Albertville er höfuðborg Norður-
Katanga.
Forseti Norður-Katanga, Jason
Sendwe, og ráðherrar hans hafa
verið handteknir af uppreisnar-
mönnum og eru í ströngu
varðhaldi í aðalstöð uppreisnar-
manna. Michel Kitenta er eini
ráðherrann, sem sloppið hefur við
handtöku, en hann dvaldi í Elisa-
bethville.
Yfirmaður Kongóhersins í Elisa
bethville hefur fengið skipun um
að láta herlið sitt vera við öllu
búið. Einnig skulu allir útlend-
ingar, sem fara til Albertville,
rannsakaðir nákvæmlega.
Ekki er enn vitað, hversu marg-
ir uppreisnarmennirnir eru, en
þessi þróun mála í Norður-Kat-
anga hefur vakið alvarlegar áhyggj
ur í Elisabethville og hefur ríkis-
stjómin rætt málið á aukafund-
um í uág.
Gera við „milljóna“-blakkirnar
Þær eru mikiS þarfaþing kraft-
blakkirnar, sem nú eru komnar á
svo mörg íslenzku fiskiskipanna, og
margar eru þær milljónir sem þær
hafa dregið í þjóðarbúlð. Tímlnn
lelt í dag inn hjá Vélsmiðjunni
Þrym h. f. í Borgartúnl 25, en
þar eru einmitt farið yfir og gert
vlð flestar kraftblakkirnar sem til
eru hér á landi. Þeir hjá Þrym
bjuggust við að taka i gegn um
áttatíu blakkir fyrir síldveiðarnar i
sumar, og veitti ekki af að gera
við þær margar hverjar, ef köstin
yrðu stór hjá síldarbátunum. Á
myndinni sést hlutl af kraftblökk-
unum sem hér eru í viðgerð, og
þeirra á meðal er ,,milljónablökk-
in1' af Sigurpáll lengst tll vlnstri.
Mennirnir á myndinni eru f. v. Ant
on Guðmundsson, verkstjórl, og eig-
endurnir Jóhannes Eiríksson og
Björn Gíslason. Þriðji elgandinn Jón
Bergsson var fjarverandi þegar
myndin var tekin. (Tímamynd-KJ).
100 þús. kr. nafnlaus gjöf
Heimflissjóði taugaveiklaðra
barna bar&t rétt fyrir hvítasunn-
una 100 þúsund króna gjöf frá
lijónum, sem óska að láta nafna
sinna ekki getið. Stjórn Heimilis-
sjóðs þakkar þessa stórmannlegu
gjöf.
Einnig síðastliðið ár bárust Heim
ilissjóði margar stórar gjafir, og
eru nú í sjóði 555 þúsund krónur.
Heitir sjóðsstjórn á góðviljað fólk
að leggja saman og fylla milljón-
ina fyrir áramót, en milljón telst
nú sú lágmarksupphæð, að fært
sé að byrja byggingu. Dropinn
fyllir mælinn. Ef margir leggja
fram skerf sinn eftir efnum og
ástæðum, næst markið fljótt.
Sjóður þessi var stofnaður fyr-
ir 3 árum. Forseti íslands stað-
festi skipulagsskrá hans 28. febr.
1961. Ríkisendurskoðandi annast
endurskoðun sjóðsreikninga.
iMarkmið sjóðsins er að reisa
lækningastöð fyrir taugaveikluð
börn, sem þarfnast sérfræðilegrar I Auk hans eru í sjóðstjórn dr.
meðferðar. Matthías Jónasson, form., Jónas
Gjaldkeri sjóðsins er séra Ing- B. Jónsson, fræðslustjóri og Sig-
ólfur Ástmarsson biskupsritari. I urjón Björnsson sálfræðingur.
SNYRTISTOFAISÖGU
Fiskileiðangur
Á tímabilinu 15. apríl til 20.
maí var farinn á vegum Fiskideild
ar þorsk- og síldax-merkingaleið-
angur á v.b. Auðbjörgu RE 266.
Merktir voru 648 þorskar úr nót,
og er slíkt nýmæli við þorskmerk-
ingar. Þá voru einnig merktar í
leiðangrinum 5300 síldar.
Leiðangursstjóri var Sverrir
Guðmundsson, starfsmaður Fiski-
deildar, en skipstjóri á Auðbjörgu
er Ásmundur Jakobsson.
(Frá Fiskideild)
Nú hefur verið opnuð í Hótel
Sögu ný hand-, fót- og andlits-
snyrtingastofa. Stofa þessi er búin
öllum fullkomnustu tækjum, en
henni veitir forstöðu Fjóla Gunn-
laugsdóttir Þarna verður opið dag
lega frá klukkan 9—6, og þá bæði
fyrir konur og karla.
Á stofunni vinnur einnig Sól-
veig Theódórsdóttir, sem aðallega
mun annast hand- og andlitssnyrt
ingu. Sérgrein Fjólu er aftur á
móti fótaaðgerð og fótsnyrting.
Fjarlægir hún m. a. líkþorn, lag
ar niðurgrónar neglur og fleira.
Til þess notar hún fullkomin og
góð tæki, og eru þessar aðgerðir
alveg sársaukalausar.
Sólveig tekur einnig að sér að
fjarlægja vörtur, eyða hárum og
brúnum flekkjum af hörundinu.
þá gefur hún „maska“, hreinsar
BLAÐAMENN
ALMENNUR FUNDUR í
Blaðamannafélagi íslands verður
haldinn næstkomandi miðvikudag
ki. 2.30 í Naustinu uppi. Dag-
skrá: 1. Codex Ethicus. 2- Kosn-
ing pressuballsnefndar og laga-
nefndar. 3. Önnur mál.
húðina og nuddar. Allt á þetta við
jafnt um karla sem konur. Báðar
eru konurnar vel menntaðar i
sinni grein. Fjóla frá skóla í Kaup
mannahöfn og Sólveig frá Svíþjóð.
Þessi nýja snyrtistofa er mjög
vistleg og þægileg, en hún er á
neðstu hæð Hótel Sögu, við hlið
hinnar nýju gufubaðstofu. Er geng
ið inn um aðal-inngang hótelsins.
Er ekki að efa að hin nýja stofa
á eftir að njóta vinsælda, enda er
boðið þarna upp á allt það bezta,
sem þarf að tilheyra slíkri stofn-
un. Tíma er hægt að panta í síma
23166.
RÁÐSTEFNAN
Á AKUREYRI
Þeir, sem ætla norður tii Akur-
eyrar á verkalýðsráðstefnuna,
þurfa sem fyrst að tryggja sér
farseðla með bflnum, sem fer frá
Tjarnargötu 26 kl. 10 f.h. á föstu-
fiag. Komið verður aftur frá Ak-
ureyrj aðfaranótt mánudags. —
Allair upplýsingar er hægt að fá
á skifstofu flokksins í Reykjavík
símum 160 66 og 19613.
2
T í M I N N, fimmfudaglnn, 28. mal 1964.