Tíminn - 28.05.1964, Blaðsíða 3
L
rrarr?
OG HEIMAN
Fyrir miðjum sai hanga fánar Frakklands og íslands, en á milli þeirra sér í mynd Mayers af leiðangurssfjór-
anum Paul Gaimard. Þar fyrir neðan sérprentun á „Þú stóðst á tindi Hekl hám", sem Jónas Hallgríms-
son orti tii hans. Einnig er sérprentun á kvæði frá fslendingum i Höfn, sem héldu hinum franska vísinda-
manni veizlu. Óvíst er um höfund þess kvæðis, en átitilblaði stendur: „Heimboð frá Frans til Fróns. Til
herra Páls Gaimard frá ungum íslenzkum bókmennta-iðkendum í Kaupmannahöfn þann lóda Janúari 1839."
TfMA-mynd-GB.
Frá Frans til Fróns
Hinn mikli bókasafnari Gunnar
Hall efnir til einstæðrar sýning-
ar í Bogasalnum þessa dagana,
sýningar á rúmlega tvö hundru'ð
steinprentuðum myndum úr ís-
landsleiðangri Paul Gaimard ár-
ið 1836. Hefur Gunnar safnað þes,s
um myndum með aðstoð fornbóka
sala og myndakaupmanna í ýms-
um löndum, og hefur það tekið
hann mörg ár að eignast safnið
allt. Nú hefur hann ákveðið að
selja myndirnar og kosta þær eitt
þúsund 'krónur hver allar nema
mannamyndirnar, sem kosta þrjú
þúsund krónur. Sýndi Gunnar
blaðamönnum safnið daginn fyrir
opnun, og gerir hann svofellda
grein fyrir myndunum:
„Öldum saman sóttu franskir
sjómenn frá Bretagne og ýmsum
bæjuim á Frakklands strönd norð-
an skagans á seglskútum sínum
fiskimið norður undir íslands
strendur. Hafa margir þeirra bor
ið beinin hér.. Höfðu þessir menn
margvísleg skipti við íslendinga
fyrr og síðar.
Það mun hafa verið snemma,
sem franska stjórnin sendi her-
skip hingað til lands á sumrin til
eftirlits og aðstoðar við fiskimenn
ina frönsku, enda hefur svo haldizt
til skamms tíma.
Sumarið 1833 sendi franska
stjórnin „La Lilloise" hingað í
slíkuim erindum. Hafði skipið
reynt að komast til Grænlands, en
orðið frá að hverfa vegna hafísa.
Aðra tilraun átti að gera til a'ð
komast þangað, og um miðjan
ágúst sást til skipsins út af Vest-
fjörðum, en síðan hefur ekki til
þess spurzt.
Stjórn Frakklands lét sér mjög
annt um að leita skipsins og áhafn
arinnar og sendi skip hingað
næsta ár í því skyni, en án árang
urst. Sumarið eftir, 1835, kom
bingað „La Recherche" og leitaði
í ísnum en árangurslaust. Á skipi
þesu var jarðfræðingur, að nafi
Louis Eugéne Robert. Auk þeirrn
Xavier Marmier, sem síðar var
gerður að meðlimi frönsku aka
demíunnar. Með bókum sínura
„Lettres sur l‘Islande“, „Historic
de L‘Islande“ og „Littérature Is-
landaise" jók hann mjög þekkingu
manna á meginlandi Evrópu á
sígildum bókmenntum íslendinga.
Meðan „La Recherche" var á
ferðum sínum hér við land og til
Grænlands, urðu þeir Gaimard og
Robert eftir í Reykjavík og ferð-
[ uðust um landið. Á þessu ferða-
lagi söfnuðu þeir alls konar nátt
úrugripum, sem þeir eftir heim-
| komuna sýndu í Paris. Vakti þessi
sýning svo altnenna athygli, að
Gaimard tókst að fá frönsku stjórn
ina til þess að 1 eggja af moikum
geysistór framlög til vísindaleið-
angurs til íslands, sem í og með
átti að leita að „La Lilloise” og
áhöfn hennar. Þegar þetta gerðist,
var Lúðvík Filippus konungur í
Frakklandi, og mun aldrei hvonki
fyrr né síðar, hafa verið lagt eins
ríflega til íslandsleiðangurs, eins
og að þessu sinni. Til þessa leið-
angurs var ekkert sparað.
Þegar leiðangurinn kom hingað
1836, tóku landsmenn honum með
kostum og kynjum. Hann vakti
fádæma athygli og jafnframt að-
dáun. Ekki sízt vegna þess, hve
hann fór fram með mikilli rausn
og leiðangursmenn voru alúðleg
ir við landsmenn, sem voru litlu
góðu vanir í þeim efnum. Mark-
verðir leiðangrar höfðu aldrei korn
ið hingað aðrir en Sir Joseph
Banks og Sir Georges Stuart Mac
kenzies. Þótt gott leiddi af þeim
báðum, voru þeir miklu fyrirferð
arminni og langtum óglæsilegri.
Þegar leiðangur Gaimards kom
hingað voru íslendingar búnir að
koma auga á hverja þýðingu hann
gæti haft fyrir ísland og óbeinlín
is fyrir sjálfstæði þess. Júlibylt-
ingin í Frakklandi 1830 kom hreyf
ingu á íslendinga til þess að afla
sér sjálfstjórnar, sern leiddi af
sér endurreisn Alþingis. Það er
engum efa undirorpið, að leiðang
ur þessi var íslendingum mikill
styrkur, að landi þeirra var slík-
ur gaumur gefinn, sem leiðangur
þessi bar vott um.
Árið 1842 birtist sá hluti Gaim-
ards-leiðangursins, sem lengst
mun halda nafni hans á lofti. Eru
það tvö bindi í gríðarstóru arkar-
broti er nefnast „Atlas-Historiq-
ue“. Eru í því riti 150 mynda-
spjöld með steinprentuðum mynd
um af ýmsutn stöðum og mann-
virkjum hér á landi, sem og ýms-
um þjóðháttum vorum, en örfáar
myndanna eru frá Grænlandi. Sam
tímis kom út þriðja bindið með
Framhald á 13. síðu.
I Reykjavík:
uste Mayer.
Götuhús, grasbýli
og víjrjóta.
Myndin er eftir
Aug-
Á yÍDAVANGI
Verðtrygging
sparifjár
Vísir segir í gær:
„Hugmyndin um verðtrygg-
ingu sparifjár vekur æ meiiri
athygli hér á landi. Sú leið er
talin eitt áhrifaríkasta ráðig í
baráttunni við verðbó'lguna."
Þessu fylgiir svo langur pistill
um ágæti verðtryggiivgarinnar
og í niðurlagi hans- segir:
„Ölafur Björnsson bar fyriir
nokkrum árum fram þings-
ályktunartillögu um má'lið og
rannsókn hefur fairið fram á
því nú þegar. Væri fróðlegt að
heyra opinberlega, hverjar nið-
urstöðuir hennar hafa verið.“
Blaðamennska Vísis
Það er rétt hjá Vísi, að hug-
myndin um verðtryggingu
sparifjár hefur vakið mikla at-
hygli hér á Iandi, og það eru
oirðin mörg ár síðan. En þótt
almenni.ngur hafi haft mikinn
áhuga á má'linu, þá hefur nú-
verandi þingmeirihluti ekki
haft hann — heldur þvert á
móti haft engan áhuga og skellt
við skollaeyrum. Það má því
segja um leiðara Vísis í gær,
að það sé eins og ritstjóirn
blaðsins sé að vakna af svefni.
En ritstjórinn vei.t að ríkis-
stjórnin hefur sofið, og því
reynir hann að fara með vís-
vitandi ósannindi um málið.
Ölafu.r Björnsson hefur aldrei
borið fram neina þingsályktun-
artillögu um verðtryggingu
s.parifjár og engln rannsókn
hefur farið firam á því máli, og
engar niðurstöður um málið
liggja fyrir. — Af þessu geta
menn séð, hvers konar blaða-
mennska er rekin á ritstjórn
Vísis. Ef menn trúa ekki, þá
er hér með sborað á Vísi að
birta tillögu Ölafg Björnsson-
ar og greina frá samþykkt
hennair. Ætli verði ekki bið á
því? Ólafur Björivsson hefur
reyndar borið fram tillögu um
verðtryggingu lífeyris, en það
or allt annað mál, en vísitölu-
trygging inn- og útlána.
Upphaf málsins
En í tilefni af þessum skrif-
um Vísis er rétt að rifja upp
aðdraganda málsins og gang
þess, en hann sýnir vel „áhuga“
ríkisstjórnari.nnar og stjórnar-
flokkanna á málinu. Jafnframt
sýnir hann hina ábyrgu og já-
kvæðu stjórnarandstöðu Fram-
sóknarflokksins og hvarnig
hún ber nokkurn árangur þrátt
fyrir allt, þótt um síðir verði
en fyrstu merki jákvæðs árang-
urs má lesa úr ritstjórnargrein
Vísis í gær, bví að það er rétt
hjá Vis-i, að hér yrði um eitt
áhrifaríkasta ráðið gegn verð-
bólgunni að ræða.
Sanrvleikurinn í þessu máli eir
þessi: Á aukaþinginu 1959,
flutti Ólafur Jóhannesson, þá-
verandi þingmaðuir Skagfirð-
inga, tillögu til þingsályktunar
um verðtryggingu sparifjár.
Tillögu þessa dagaði uppi. Á
aðalþinglnu 1959 endurflutti
Ólafur svo þessa tillögu. Stjórn
arliðið vildi engan áhuga sýna
henni. Á síðastliðnu þingi vair
svo enn flutt tillaga um þetta
mál af þeim Jóni Skaftasyni,
Olafi Jóhannessyni og Karli
Kristjánssyni. Enn skeilti
stjórnarliðið við skollaeyrum,
vildi enga rannsókn á málinu,
og enn dagaði ti'llöguna uppi
Framh á Dls 15
Kvöldvaka
nálægt Reykjavik. Myndin
Auguste Mayer.
T í M l N N, fimmtudaginn, 28. maí 1964.