Tíminn - 28.05.1964, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.05.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur f Eddu-húsinu, síraar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., simi 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan- lands. — I lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Fráfall Nehrus Þegar Indland varð sjálfstætt fyrir 17 árum, var aldrei neinn vafi um það, hver myndi verða æðsti valdamaður þess. Gandhi hafði dregið sig í hlé. Þótt hann ætti marga snjalla lærisveina, var einn þeirra óumdeilanlega arf- taki hans sem leiðtogi Indverja. Slíkt álit hafði hann unn- ið sér í sjálfstæðisbaráttunni. Þessi maður var Pandit Nehru. Þótt margt hafi breytzt síðan hefur það ekki breytzt, að Nehru væri sjálfsagður leiðtogi Indverja. Það hefur verið vandasamt verk að veita þessu nýja ríki forustu. Erfitt er að hugsa sér sundurleitari ríki er Indland. Stéttaskipting er mikil, mállýzkpr margar, trúarbragðadeilur miklar og keppni milli landshluta. Þessi ágreiningsefni var hægt að leggja til hliðar meðan barizt var við Breta um sjálfstæði landsins, en þau hlutu að koma í sívaxandi mæli til sögunnar eftir að þjóðin réði ein málum sínum. Það hefur verið hið mikla hlutverk Nehrus að halda þessu stóra og sundurleita ríki saman meðan það var að komast á legg og festa að skapast 1 stjórn þess. Ýms- ir kunnugir munu telja, að Indland hefði getað sundrazt í mörg ríki eða allt logað í innbyrðisdeilum, ef forustu Nehrus hefði ekki notið við. Persóna hans sameinaði þjóðina meira en nokkuð annað. Út á við hefur Nehru unnið Indlandi miklu meira álit og viðurkenningu en svaraði hernaðarlegum styrk þess eða efnahag, en í alþjóðamálum vill þetta tvennt oft verða þyngst á rhetunum. . Við fráfall Nehrus vaknar sú spurning fyrst, hvað verður nú um Indland. Hann á engan sjálfkjörinn eft- irmann. Deilur fara vaxandi í flokki hans, keppni eykst milli landshluta og átök stétta eru líkleg til að harðna. En við landamæri Indlands að austan og norð- an eflist kínverski risinn óðfluga. Það er ófyrirsjáanlegt, hvaða áhrif eða afleiðingar frá- fall Nehrus getur haft. Ólíkleg spá er það ekki, að það muni auka óvissuna og viðsjárnar í Asíu, en það er skoðun margra sögumanna, að framtíð mannkynsins í náinni framtíð verði ráðin í þessari fjölmennustu og stærstu álfu heimsins. Það hefði því verið gott, að geta notið leiðsagnar Nehrus lengur. Þess vegna saknar nú mannkyn allt eins hins mesta manns, sem hefur verfö uppi. Ofgamenn Vegna baráttu stjórnarandstæðinga á seinasta þingi fór ríkisstjórnin að lokum inn á þá braut að leita sam- komulags við verkalýðssamtökin um þróun kaupgjalds- mála í stað þess að reyna að beita lögþvingunum. Mikil ástæða er til að fagna þessu. Það skyggir hins vegar nokkuð á þessar viðræður, að meðan þær standa yfir, láta öfgamenn í stjórnarflokkun- um talsvert á sér bera, og halda enn fram lögþvingunar- leiðinni. Vilji þeirra er sá, að ríkisstjórnin leiti samkomu- lags við launþegasamtökin aðeins til málamyndar, en grípi síðan til lögþvingunar. Það væri vissulega illt, ef ríkisstjórnin léti þessa öfga- menn hafa áhrif á gerðir sínar. Því er henni hollt að gera sér Ijóst, að lögþvingunarleiðin mun ekki reynast nein sældauganga. Frá sjónarmiði einsýnna öfgámanna getur hún virzt einföld og auðveld. Ríkisstjórnin ætti að hugsa sig um oftar en tvisvar, ef hún lætur slíka ósk- hyggju enn einu sinni villa sér sýn. T í M I N N, fimmtudaginn, 28. maí 1964. — WaHer Lippmann rifar um alfijéðamál:-“,*"*a“"— Hugmyndirnar um Evrópu hafa breytzt mikið seinustu árin Gefur de Gaulle helzf ruft járntjaldinu úr vegi? í SÍÐUSTU grein lýsti ég hléi því, sem nú stendur yfir í stjórnmálum í Evrópu og staf ar af kosninguhum, sem fyrir dyrum standa í Stóra-Bretlandi, Þýzkalandi óg Bandaríkjunum. Þetta þýðir þó ekki að um kyrr stöðu sé að ræða. Síður en svo. í öllum helztu Evrópuríkjum er að gerast og þegar vel á veg komin mikil breyting á því sem menn ganga út frá sem gefnu í utanríkismálum. Ástand ið er breytt, viðhorfin ný, hlut verk herafla annag og mark- mið ríkisstjórna mjög frábrugð in því, sem var á eftirstríðs árunum, eða síðari hluta fimmta tugsins og mestan hluta þess sjötta. Þungamiðjan í mál- efnum Evrópu er að færást í hendur ríkjanna á meginland inu. NOKKURT bil er milli þró unarinnar í Evrópu og hinnar viðurkenndu stefnu allra aðal ríkisstjórnanna, sem hlut eiga að máli, þar á meðal ríkisstjórn ar okkar Bandaríkjamanna. Þetta bil stafar að nokkru leyti af því, að engri ríkisstjórnanna að undantekinni þeirri frönsku, finnst hún hafa pólitískt vald heima fyrir til þess að breyta svo nokkru nemi út áf hinni troðnu braut, sem þrædd var undangenginn áratug. En bilið stafar einnig að nokkru af þeirri staðreynd, að tilfærsla þungamiðju stjórnmálanna er ný, framandi og ótrygg og því þykir öruggara að halda sig við þekktar uppskriftir og hin gömlu slagorð. Engu að síður er sú stað- reynd áberandi í Evrópu, að orðin er á mjög veruleg breyt ing, borið saman við áratug- inn milli 1950 og 1960. Af þeim ástæðum er Atlantshafs- bandalagið jafnvanmáttugt og raun ber vitni. Af þeim sökum hafa fyrri vonir um evrópskt samfélag ekki rætzt. Eg er sannfærður um að meginorsök þessa er, að hug- myndir Evrópumanna um Evr- ópu eru allt aðrar en þær voru upp úr 1950. Þennan megin- mun er ekki auðvelt að skýra og mér er ljóst, að í augum margra muni hann vera lítt sannfærandi og harla mótsagna kenndur. En ég ætla að reyna að lýsa honum, þar sem skiln ingur á honum er skilyrði til skilnings á viðhorfum milli Vestur-Evrópu, Austur-Evrópu Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna. VIÐ verðum að byrja á þvi að minnast þess, að þegar vopnaviðskiptum lauk í styrj- öldinni var Evrópu skipt eftir vopnahléslínunni, þar sem her- ir Bandamanna og Rauði Her inn voru staddir. Þarna varð jámtjaldifs til. Fyrsta stefna vesturveldanna eftir stríðið var mótuð í tví- þættum tilgangi: Annars veg ar varð að koma í veg fyrir endurreisn óháðs og vopnaðs Þýzkalands og hins vegar þurfti að stöðva framgang rauða hersins og koma í veg nWMmtMMMMI De Gaulle — getur hann sannfært Þjóðverja? fyrir að hann héldi áfram yfir Vestur-Þýzkaland og allt til Parísar. Stefna í stjórnmálum og her búnaði var mótuð með þessi markmið fyrir augum. Þýzka- land átti að halda áfram að vera kiofið í tvennt. og vestur hluta þess átti að sameina •kerfi Vestur-Evrópuríkja. Þetta átti að veita Vestur-Þýzkalandi vernd fyrir Sovétríkjunum og tryggja um leið, að Bandamenn þyrftu ekki að óttast það. Þegar tilfinningaöldur stríðs ins tók að lægja var farið að ræða um þetta allt með meiri varúð en áður. En mér er kunn ugt af mörgum viðtölum, sem ég hefi átt við menn í París, London og jafnvel Bonn, að þetta var aðalundirstaða þess sem síðar var nefnt ,,Evrópu- hreyfing“. MEÐ orðinu ,,Evrópa“ var fyrst eftir stríðið átt við Evr- ópu og Þýzkaland, klofið með járntjaldinu. Mótendur hug- myndarinnai um „Evrópusam- félag'" gerðu enga áætlun um og höfðu enga löngun til að glíma við hin miklu vandkvæði á að sameina Þýzkaland á ný og mynda samfélag allrar Evr- ópu. Þa?; virtist alltof fjarstætt og vonlaust. Sennilega hafa þessir menn mótað rétt hervarnir þess svæð is, sem þeir réðu yfir. Áratug inn frá einangrun Berlínar og loftbrúnni 1948 og til þess er fyrsta spútniknum var skotið á loft 1958 mátti heita að ó- gerningur væri að ná nokkru samkomulagi við Sovétríkin. En þegar borið er saman á- standið til dæmis 1954 og 1964, verður mjög vel ljóst, að með orðinu ,,Evrópu“ var fyrst eft ir stríðið aðeins átt við Vest- ur-Evrópu og Vestur-Þýzkaland en orðið Evrópa nær í dag i vaxandi mæli einnig til fylgi- ríkjanna í Austur-Evrópu og jafnvel Sovétríkjanna sjálfra sem veldis : vestrænum heimi. Þarna er komið að megin þættinum í þróun utanríkis- stefnu Vestur-Þýzkalands, eða eða upptöku verzlunar- og menningarlegra skipta við Austur-Evrópuríkin, að undan teknu Austur-Þýzkalandi auð- vitað. Þetta var hafið á síðustu valdaárum dr. Adenauers, en Erhard og Schroeder hafa hald ið því ófram af auknum krafti Þeir stofna viðskiptanefndir í höfuðborgum Austur-Evrópu- ríkjanna og reyndir menn í utanríkisþjónustunni veita þess um nefndum forstöðu. Þetta nálgast að vera viður- kenning í reynd án þess að vera nefnt því nafni. Viðræður eru þegar hafnar við valda- menn íiJMoskvu og það er ekki framar spurning, hvort Erhard kanslari og Krustjoff mæli sér mót, heldur aðeins hvenær. ENDURSAMEINING Þýzka- lands var aðeins játuð með vör unum fyrst eftir stríðið, en vegna þeirrar þróunar, sem hér hefir verið lýst, er hún orðin að raunverulegum mögu- leika pólitískt. Þegar Sam- bandslýðveldið Þýzkaland hef- ir á ný tekið upp samskipti við má gera ráð fyrir að Sovétrík in telji sig hafa minnkandi hagsmuna að gæta i Austur- Þýzkalandi. Þegar Ulbricht hverfur af sjónarsviðinu. sem vonandi verður einhvern tíma á næstunni, mun þýzk þjóðern iskennd þrýsta ærið fast á um endursameiningu. En hvað er þá orðið um hið sérstaka samband, sem þeir de Gaulle og Adenauer gerðu sér far um að koma á milli Frakk lands og Þýzkalands? Að mínu viti hefir gersamlega brugðizt sá tilgangur þess, að valda samstöðu í málefnum Evrópu og heimsmálunum yfirleitt. Stjórnin í Bonn mun elcki standa við hlið Frakklands- stjórnar ef til ágreinings kem- ur við valdhafana í Washing- ton. SAMT sem áður væri alrangt að telja sambandið milli de Gaulle hershöfðingja og Sam- bandslýðveldisins Þýzkalands þýðingarlaust. Hershöfðinginn skilur sýnilega mætavel að framtíðarþróunin stefnir að samkomulagi við Austur-Evr- ópu og Sovétríkin, en það leiðir aftur til endursameiningar Þýzkalands. Það hefir ávallt verið ætlun hans að sjá um, að Evrópumaður —þag er að segja Frakki - - gengi frá þessu sam- komulagi þegar þar að kæmi, — en ekki Bandaríkjamaður, eins og í Teheran, Yalta og Potsdam. Það liggur í augum uppi að samkomulagið kemur til með að kosta verulegar fórnir af hálfu Þjóðverja. Þeir verða til dæmis að afsala sér fyrri lands svæðum sínum handan Oder- Neisse-línunnar. í Bonn heyrði ég það af vörum þýzkra blaða manna. sem ekki eru hrifnir af de Gaulle en þekkja vel þýzk viðhorf, að hershöfðing- inn væri eini maðurinn, sem væri nægilega áhrifamikill til þess að fá þýzku þjóðina til að sætta sig við slíka fórn. 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.