Tíminn - 18.08.1964, Page 2
Tuomioja þungt haldinn eftir uppskurð
MÁNUDAGUR, 17. ágúst.
Tyrkneska stjórinin hefur sent
S.þ. mótmælaorðsendingu
vegna hafnbannsins, sem Kýp-
urstjórn hefur sett til höfuSs
tyrkneska minnihlutanum á
eynni.
Biður stjómin S.þ. að sjá
um, að hafnbanninu verði af-
létt, að öðrum kosti geti það
leitt til hungursneyðar meðal
hinna tyrknesku íbúa, sem nú
hafa matvæli til einnar viku
eða tíu daga, að því er talsmað
ur tyrknesku stjómarinnar
sagði í dag. Enda þótt nú sé
ekki barizt á Kýpur, er beitt
öðrum aðferðum, sem miða að
algerri uppgjöf hins tyrkneska
minnihluta, sagði talsmaður-
inn. Þá sagði talsmaðurinn, að
Kýpur-Grikkir hefðu gert vatns
ból tyrkneskra íbúa í Nicosíu
ónothæf. Annað hefði verið
fyllt með grjóti, en benzini
hellt í hitt. Þá sagði hann, að
Grikkir kæmu í veg fyrir, að
tyrkneskumælandi menn gætu
leitað aðstoðar gæzlusveita S.
þ. og Rauðakrossins.
NTB-Saigon. — Khanh hinn
nýi forseti Suður-Vietnam fór í
dag flugleiðis til Djlat, skammt
fyrir norð-austan Saigon til
að ganga frá myndun nýrrar
stjórnar í landinu, en núver-
andi starfsstjóm baðst lausn-
ar sfðast liðinn laugardag.
Búizt er við að það taki um
þrjá daga að ganga frá nýrri
stlórnarmyndun. í Saigon og
Hue hafa þegar verið skipulagð
ar miklar mótmælaaðgerðir af
hálfu stúdenda vegna myndun
ar hinnar nýju stjómar, sem
herráðið stendur að, og yfir-
leitt hefur aðgerðum þess verið
fálega tekið. Stúdentamir
hyggjast og mótmæla ýmsum
elnstökum aðgerðum herráðs-
Ins, svo sem útgöngubanninu,
sem ríkt hefur um allt landið
sfliast liðna tfu daga.
Duong Finh Minh, hershöfð
Ingi, sem stjómaði byltingu
gegn Ngo Dinh Diem, forseta
f fyrra, nýtur enn mikillar hilli
f landinu, en ótrúlegt er, að
hann leggist einarðlega gegn
Khanh.
NTB-Frankfurt. — Tveir
sovézkir hljómlistarmenn, sem
yflrgáfu ferðahóp í Japan ný
lega komu í dag til Frankfurt
í V-Þýzkalandi og voru sam-
stundis fluttir á stað, sem ekki
er gefin upp.
Hljómlistarmennirnir, sem
heita Boris Midney, 27 ára og
Igor Berechts, komu við á Kast
rup flugvelli áður en flugvél
þeirra lenti í Frankfurt, og
sögðu þeir dönskum blaðamönn
um, að þeir hefðu ákveðið að
flýja frá Sovétríkjunum fyrir
tveim árum.
Tækifæri gafst þó ekki fyrr
en í Japan, eins og áður segir.
Sögðust hljómlistarmennirnir
vilja helzt komazt til Bandaríkj
anna og halda þar áfram hljóm
leikum eða nema meira í tón-
mennt. Fulltrúi frá bandarísk-
um yfirvöldum, sem mættur
var á flugvellinum fyrir utan
Frankfurt sagðist ekki geta
sagt neitt um, hvert ungu menn
irnir hefðu verið fluttir, en
vel gæti verið, að þeir héldu
áfram til Bandaríkjanna.
NTB-Genf, 17. ágúst. I tappa í heilanum, og er ástand
Sáttasemjarir.'á í Kýpurdeilunni,'hans nú mjög alvarlegt. Er sagt,
Finninn, Sakari Tuomioja, var
morgun skorinn up,p við blóð-
að næstu 24—36 klukkustundir
muni skera úr um það, hvort
hann lifir uppskurðinn af.
Tuomioja veiktist mjög skyndi-
lega og í nótt versnaði honum,
svo mjög, að ákveðið var að skera
hann upp. Átti hann mjög erfitt
um andardrátt vegna þrýstings
á heilann. Settu læknar þess
vegna rör niður í háls hans tii að
auka súrefnisinngjöfina. Eru
menn nú mjög uggandi um líf
hins 52 ára gamla stjórnmálB-
mapns og telja stjórnmálafrétta-
ritarar, að veikindi hans geti haft
hinar uggvænlegustu afleiðingar
varðandi Kýpurmálið og dragi
stórlega úr möguleikanum fyrir
lausn þess. Eins og kunnugt er,
bar þarátta Tuomioja fyrir því,
að grískir og tyrkneskir fulltrúar
ræddust við, loks árangur á laug-
ardag, og bundu menn miklar
vonir við áframhaldandi viðræð-
ur. Hafði Tuomioja oft látið svo
ummælt, að slíkar viðræður væru
eina leiðin til að finna lausn á
deilunni.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í New York í kvöld,
að U Thant, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, muni ef til
vill nú þegar skipa nýjan sátta-
semjara í stað Tuomioja, en jafn-
framt er tekið fram, að U Thant
sjálfur hugsi sér ekki að taka að
sér sáttasemjarastörfin.
KAPPREIÐAR HARDAR -
GNÝFARI STÓÐ SIG VEL
Sakari Tuomloja
GÞ-Seljabrekku, 17. ágúst.
Hestamannafélagið Hörður í
Kjósarsýslu hélt sínar árlegu
kaippreiðar síðastliðinn sunnudag.
Kappreiðarnar voru mjög vel sótt-
ar euida veður ágætt. Um fjöru-
tíu hestar voru skráðir til keppni
«g yfir tuttugu góðhestar.
Úrslit urðu þessi: f skeiði náði
LUTHERSKA HEIMSSAM6AND-
IÐ ÞINGAR HÉR BRÁÐLEGA
EJ-Reykjavík, 17. ágúst.
Dagana 30. ágúst til 6. septem-
ber, heldur Lútherska heimssam-
bandið stjórnarfund hér á landi.
Koma á þann fund margir helztu
leiðtogar Lúthersku kirkjunnar,
en eininig munu ýmsar erlendar
fréttastofur senda hingað fulltrúa
sína.
Þingið hefst með guðsþjónustu
í Dómkirkjunni kl. 16. Mun dr.
Franklin Clark Fry, forseti „The
Lutherian Church in America" og
fyrrverandi forseti Lútherska
heimssambandsins prédika. Hann
hefur verið hér áður, þar sem
hann var fulltrúi Lútherska heims
sambandsins við biskupsvígslu
herra Sigurbjörns Einarssonar ár-
ið 1959. Að guðsþjónustu lokinni
býður kirkjumálaráðherra, Jó-
hann Hafstein, til veizlu í ráð-
herrabústaðnum.
Daginn eftir, þann 31. ágúst,
verður þingið sett í Neskirkju kl.
9 árdegis. Þar prédikar dr. Fred-
rik A Schiötz, forseti Lútherska
heimssambandsins, en ávörp
flytja biskup og kirkjumálaráð-
herra. Strax á eftir hefjast fundir
að Hótel Sögu, en þar munu gest-
irnir dvelja meðan þingið stend-
ur. Fimmtudaginn 3. september
verður almenn samkomu í Þjóð-
leikhúsinu. Þar flytja biskup ís-
lands og forseti Heimssambands-
ins, stutt ávörp, en ræður flytja
dr. Rajah B. Manikam, biskup á
Fegurðardísir
Myndin er frá Langasandi og í miðj
unni er „Miss International 1965",
sem valin var þar á föstudagskvöld
ið. Hún heitir Gemma Teresa Cruz
og er frá Phillippseyjum. í kringum
Gemmu eru ef taiið er sólarslnnis:
ungfrú Ameríka, Linda Ann Taylor,
ungfrú Brazilia, Lucla Coutos dos
Santos, ungfrú England, Tracy Ingr
am og ungfrú Flnnland, Malia Marin
Ostring. Eins og vlð sögðum frá á
sunnudaginn gaf Gemma öil verð-
laun sín, 420 þúsund krónur til bygg
ingar barnaheimilis I heimalandi
sínu.
Indlandi og dr. Sigurd Áske, út-
varpsstjóri við útvarpsstöðina í
Addis Abeba, Ethíópíu, sem Lút-
herska heimssambandið rekur og
nær til milljóna manna í Afríku
og Asíu. Auk þess flytja inn-
lendir listamenn tónlist. Laugar-
daginn 5. september verður þing-
inu slitið í Skálholti og þar verður
guðsþjónusta kl. 15 síðdegis.
enginn hestur tilskildum tíma till
fyrstu verðlauna, en önnur verð-
laun hlaut Blesi, Kristjáns Finns-
sonar á Grjóteyri á 26,4 sek. Ný-
liðahlaup 250 (m) fyrstu verðlaun
Funi, Aðalsteins Aðalsteinssonar,
Korpúlfsstöðum, á 19.7 sek. og
önnur verðlaun Drottning, Hildar
Axelsdóttur á sama tíma ,aðeins
sjónarmunur, og þriðju verðlaun
. Framh. á 15. síðu
Utanríkisráðherra
heimsækir Finnland
EJ-Reykjavík, 17. ágúst.
Eins og kunnugt er af fréttum,
hefur Guðmundur í. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, verið í
opinberri heimsókn í Noregi und-
anfarið. Á föstudaginn dvaldist
hann í Bergen, en fór til Stav-
anger á laugardag. Það kvöld
flaug hann til Stokkhólms, en fer
á morgun í opinbera heimsókn til
Finnlands. Koná hans, Rósa Ing-
ólfsdóttir, er með í förinni.
SllDAR-
AFUNN
Sun-nudaginn 16. ágúst:
Bræla var á miðunum s.l. sólar-
hring, og voru flest skipanna í
landvari.
Síldarleitinni var aðeins kunn-
ugt um, að eitt skip hefði tilkynnt
um afla; Sif IS 100 mál.
Mánudaginn 17. ágúst:
Engin veiði var sl. sólarhring.
Bræla var á miðunum, og voru
skipin inni á höfnum eða í land-
vari.
.......................•
TÍMINN, þriðjudaginn 18. ágúst 1W4