Tíminn - 06.10.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.10.1964, Blaðsíða 8
 Fjárráð banda- rískra unglinga í Chicago, USA. Bandarísk börn og unglingar á skólaaldri eru annaðhvort rétt að byrja skólagöngu á ný eða í óða önn að búa sig undir langan og strangan skólabóka- vetur. Menntun er tvímælalaust stærsti iðnaður Bandaríkja- manna í dag. Síðastliðin fimmtán árin hafa bætzt við ein milljón barna í almennings skólum og á þessu hausti bætist enn ein milljónin við hinn stóra nemendahóp. Bandaríska þjóðin rekur hvorki meira né minna en 125. 000 skóla fyrir 48 milljónir barna- og gagnfræðaskólanem- endur og 4.5 milljónir háskóla- nema. Við þessa skóla starfa tvær milljónir kennara og um hundrað þúsund skrifstofufólk. Allir þessir skólar skiptast nið ur á fjörutíu þúsund skóla- bverfi og hinn árlegi rekstur kostar um 32.000.000.000. 00 dollara. Þetta risavaxna kennslukerfi krefst árlega meiri skatta, stærri skóla, fleiri kennara og betri kennslu. Á sama tíma og skólarnir fara fram á meiri peninga og eiga oft í örðugleikum með að fá þá, hafa engin skólabörn í heiminum eins mikið fé á milli handa og bandarísk böm. Sam kvæmt skýrslu frá eínni kennslumálastofnun hér í landi, linga hafa leitt af sér, að hér í landi hefur risíð upp stór iðnaður og verzlun, sem þrífst á þessum kaupendahópi. Það er stanzlaust unnið að því að finna upp og setja á markaðinn ýms- ar nýjungar fyrir þennan unga viðskiptahóp. Flestir af þess um þjóðfélagsþegnum geta eytt vasapeningum sínum í hvað sem er, þar sem foreldrar borga fyrir þau fæði og uppi- hald. Það er mjög algengt að ung lingar í gagnfræðaskólum og háskólum vinni „part-time“ með skólagöngunni í nokkra tíma á viku. Eins er það mjög algengt hér að nemendur vinni sér inn nógu mikið fé til að borga fyrir skóla- og bókagjökL Þeir nemendur, sem vinna með skólanum vinna við alls konar störf, þar á meðal í verzlun- um, í veitingahúsum, iðnaði og sjúkrahúsum, og vinnuvik an er allt frá nokkrum tímum upp í fjörutíu tíma á viku. En þar sem það vill samt oft bregða við að skólafólk hef- ur meíri áhuga á að kaupa sér bíl eða annað þess háttar, en að borga fyrir skólakostnað, þá er mikið farið að ræða um það, hvemig hægt sé að kenna þeim betri meðferð á peningum. Hagfræðingar, kennarar, og Bandarískir unglingar eyddu tugmilljónum dollara í sambandi við Liverpool-bitlana. Hér sjást þeir við komuna til New York. — Frá vinstri, John, Ringo og Poul, en George vantar á myndina. þá höfðu táningar í Bandaríkj unum 489 dollara árstekjur að meðaltali á s. 1. ári, eða því sem svarar 9.45 dollurum á viku. Á sama tíma eyddu 22.5 milljónir unglinga á aldrinum 13 til 19 ára eða nánar 12 prósent, af landsmönnum, hvorki fleiri né færri en 11.000. 000.000.00 dölum af eigin fé í varning og þjónustu fyrir sjálfa sig. Hagfræðingar segja að þessí upphæð njegi til að festa kaup á tvö þusund far- þegaþotum, eða þá fyrir rekstr arkostnaði á öllum bókasöfnum í Bandaríkjunum og Kanada næstu hundrað og ellefu árin. Vasapeningar hjá bandarísk um unglingum hafa aukizt um- þrjú hundruð prósent síðan 1945 og um 1970 er álitið að þessi hópur muni eyða um 21. 000.000.000 dollara á ári fyrir eigin þarfir. Öll þessi fjárráð meðal ung- jafnvel foreldrar eru nú farn- ir að hvetja til meiri samvinnu á milli skóla og foreldra í þess um málum. Stór hópur manna vill að skólarnir leggi meiri áherzlu á að kenna þessum yngri borgurum betri meðferð á fé og eins kenna þeim að skapa sér sitt eigið sparifé. Bankar eru farnir að auka það mikið að kenna unglingum að leggja meiri peninga inn á bankabækur og sýna þeím um leið fram á það hversu mikils meira virði það sé að eiga fé á bók heldur en að eyða því í einhvern óþarfa. Foreldrum er mikið kennt um eyðslusemi barna, enda ólust þeir upp á krepputímabilinu og sáu þá lít- ið af peningum. Einn banka- stjóri sagði nýlega að það gerð ist of oft nú á dögum að barníð og foreldrið lifi „í tveim algjörlega frábrugðnum pen- ingaheimum". b Myndin er af Haraldi f Hólum, sem er með höndina í fatla eftir slysið, sem hann varð fyrir í leitunum, Ólafi í Meiritungu og Magnúsi f Mykjunesi, og svo er þarna líka sonur Magnúsar, Guðmundur að nafni. (Tímaanynd, KJ). Smalað á afréttum Nú líður senn að því, að Ás- hreppingar og Djúphreppingar fari í eftirleitir, en þeir fóru í göngur í fyrri viku. Þeir leita milli Köldukvíslar og Þjórsár norður í Innra Hreysi og allt aust ur í Svörtubotna, og fengu að þessu sinni ágætis veður. Áður en þeir lögðu af stað í leitirnar höfðu þeir fengið flug vél til þes að fljúga yfir afréttinn, og auðveldaði það þeim mjög leit ina. Þeir komu vitanlega í Þúfuver nú eins og éndranær, en þar er nú allt rótnagað eftir gæs, að sögn Ölvers í Þjórsártúni, en gæs- in er að verða plága þar sem og í heimalöndum. Áshreppingar og Djúphreppingar búast við að fara í eftirleit 3. — 4. október. Að þessu sinni var féð flutt yfir Tungná á hinum nýja kláfi, sem settur var upp í sumar. Þótti bændum hann ekki sem stöðugast ur, en töldu auðveldara að láta bíl draga kláfinn yfir heldur en snúa honum áfram, eins og á að gera, en með því að láta bílinn draga hann veltur hann minna. Fimmtudaginn 24. september var réttað við Áshól, en fjallkóngur var Sigurður Jónsson Kastala- brekku. í leitunum voru 18 hest ar og einn bíll og urðu heimtur góðar, en um 4000 fjár smalaðist. Bændur töluðu um að auðveldara væri að rata á Búðarhálsi, nú eftir að Sigurjón Rist hefur merkt þar leiðina. Holtamenn og Landmenn smala Landmannaafrétt og þar eru fjall kóngamir tveir, Karl Pétursson á Skammbeinsstöðum yfir austuraf- réttinum, en Ásgeir Auðunsson á Minnivöllum á vesturafréttinum. Fréttamaður blaðsins náði tali af Karli Péturssyni, og sagði hann, að smalazt hefði nokkuð vel. en syðstu og lengstu leitir eru suð- ur undir Torfajökul og austur á Kýlinga Af Kýlingum kom ekk ert fé, og þykir bændum það und arlegt, að sögn Karls, því það eru einhverjar mestu . kindastöðvar austurafréttarins. Elztu menn vita ekki til þess að Kýlingar hafi nokkru sinni verið sauðlausir fyrr í fyrstu leit. Átján menn smöluðu Jökulgilið og voru þeir með tal- stöðvarbíl, sem þykir nú orðið mikið öryggi. Á mánudaginn, 21. sept. gerði hörku þorraveður og urðu leitar menn á útfjallinu að liggja inni. Austurafréttarmenn fengu vont færi út Dómadalshraun, og urðu að moka þó nokkuð. Karl sagði að nokkurn skugga hefði borið á, því síðasta daginn slasaðist maður, þ.e. hinn kunni og duglegi fjallamaður Haraldur Runólfsson bóndi í Hólum slas- aðist illa í leit á Hrauneyjum. Slysið vildi þannig til, að Har- aldur var á hesti og teymdi annan, Myndin er tekin í Landréttum. en hann kippti svo illilega í taum inn, að baugfingur vinstri hand ar brotnaði. Filipus á Hellu var með bíl og ók hann hinum slasaða til byggða, og þar tók annar bíll við og flutti Harald á sjúkrahúsið á Selfossi. Karl lét þess getið, að rekstur fjárins síðasta daginn sé of erfið ur, en hann tekur 12 tíma úr Sölva hrauni að Réttarnesi, og er rétt sloppið við myrkur. — Þetta er of langur rekstur fyrir féð á einum degi, segir Karl. Hann segir enn- fremur, að innan tíðar verði að endurbyggja réttirnar og telur sjálfsagt, að færa þær eitthvað ofar, að Leirubakka eða að Galta læk, en við það myndi leiðin stytt ast um 3—4 stundir. (Tímamynd KJi. TfMINN , þriSjudaglnn 6. október 1964 —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.