Tíminn - 05.12.1964, Blaðsíða 16
furðuljósið liklega loftsteinn
SlUiHÍMÍ.
Laugardagur 5. desember 1964
249. tbl.
48. árg.
MB—Reykjavík, 4 des.
Furðuljós sást á lofti I nótt og
bendir allt til þess að þar hafi
stór loftsteinn verið á ferð, elleg-
ar hluti af stóru gerfitungli, sem
komið hafi inn í gufuhvolfið. Svo
mikil birta var af fyrirbæri þessu,
að lesbjart vairð í Hornafirðinum
og stjórnklefa Loftleiðaflugvélar,
sem var stödd 95 sjómílur vestur
af Færeyjum á leið til fslands.
Þeir aðilar, sem blaðið veit til
að bezt hafi séð fyrirbæri þetta
eru Þorleifur Hjaltason á Hólum
í Hornafirði, Arnkell Jónas Einars
son frá Vegagerðinni, sem stadd
ur var á MývatnSöræfum, Hákon
Pálsson, rafstöðvarstjóri á Sauðár
króki og svo flugmenn Loftleiða
flugvélarinnar.
Þorleifi Hjaltasyni sagðist svo
frá: — Eg var á leið heim frá
Höfn í Hornafirði í jeppa við
annan mann klukkan 23.05. Vegur
32 milljón króna gjald-
eyris- og bókhaldssvik
KJ-Reykjavík, 4. des.
Svo sem sagt var frá í Tímanum
fyrir nokkrum dögum, þá hefur
saksóknari ríkisins höfðað mál á
hendur Harald Faaberg skipamiðl-
ara, Laufásvegi 66, og Óskari
Aðalsteini Gíslasyni, skrifstofu-
stjóra hjá Harald Faaber h.f.,
Hávallagötu 45. Er ákæruskjalið
alls 11 vélritaðar síður og þar er
þeim m. a. gefið að sök að hafa
framið gjaldeyris- og bókhaldssvik
samtals að upphæð 269.280 sterl-
ingspund eða um 32,2 milljónir
islenzkra króna, reiknað eftir nú-
verandi gengi.
Það var um miðjan marz árið
1961, sem öll bókhaldsgögn fyrir-
tækjanna Eimskipafélags Reykja-
víkur og Harald Faaberg h.f. voru
gerð upptæk og Ragnarí Ólafssyni
hæstaréttarlögmanni var falin end
urskoðun bókhaldsins. Stóð endur
AKRANES
Framsóknarfélag Akraness held
ur sbemimtisamfcomu í félagsheim-
i!i sínu að Sunnuoraut 21 næst
komandi sunnudag kl. 8.30. Spiluð
verður Framsóknarvist og sýndar
fevikmyndir. Öllum heimill aðgang
ur
FUF í Hafnarfirði
Aðalfundur FUF . Haínarfirði
verður haldinn að Norðurb,'aut
19 sunnudaginn 6. des. kl. 16.
Venjuleg aðalfundarstörf. —
St.jórnin
skoðunin yfir þar til í september
1963, en áður hafði Þórði Björns-
syni núverandi yfirsakadómara
verið falin rannsókn málsíns. Unn
ið hefur verið að rannsókninni síð
an og nú nýlega hefur saksóknari
ríkisins höfðað mál á hendur fyrr-
greindum tveim mönnum, þeim
þriðja fyrir að hafa notið persónu-
legs ávinnings, og einnig eru tveir
meðstjórnarmenn fyrrgreindra fyr
irtækja sóttir til ábyrgðar.
Öll svikin fóru fram á árunum
1955—60 og skal nú getið þelrra
helztu. 14.440 sterlingspund inn-
heimtu þeir á sviksamlegan hátt í
hærri farmgjöldum en samið hafði
verið um. Eru þetta talin vera
fjársvik. Þeir vanræktu að standa
gjaldeyrísyfirvöldunum skil á
48.929 sterlingspundum, sem voru
gjaldeyristekjur fyrirtækisins Har-
ald Faaberg h.f. vegna afgreiðslu
Framh. á bls. 2.
Hamrafellið látið
sigla út í óvissuna
IGÞ.—Reykjavík 4. des.
Það er nú i algjörri óvissu hvað
verður um Hamrafellið, stærsta
skip íslendinga, ern það er komið
til landsins úr síðustu ferð sinni
eftir olíu. Lokíð verður Við að
losa skipið á sunnudagsmorgun.
Þegar Tíminn sneri sér til Hjart-
ar Hjartar, forstjóra Skipadeildar
SÍS og spurði hvað gert yrði
við skipið, sagði hann, að enn
hefði ekkert verkefni fengizt fyrir
það
Eins og kunnugt er, þá tók ríkis
stjórnin á sínum tíma ,,dumping‘‘
tilboði Rússa um olíuflutninga
hingað og komu þar með í veg
fyrir að Hamrafellið hefði áfram
olíuflutningana til landsins. Sagði
Hjörtur, að þrátt fyrir daglegar
tilraunir frá því 14. nóvember við
að fá eitthvert verkefni handa
Hamrafellinu, hefði ekkert fengizt
handa því að gera.
Þegai Tíminn spurði Hjört að
því. hvað gert yrði við skipið,
þegar losun væri lokið á sunnu
dagsmorguninn, svaraði hann því
til, að það hefði orðið að ráði að
láta skipið sigla í áttina til lík-
legra verzlunarhafna, en þó í al-
gerri óvissu. Þetta væri gert þar
sem mönnum ægði það eðlilega að
binda skipið.
Síldveiði fyrir suðvestan
iandið hefur hraðminnkað
Skyndi-
happ-
dræfti
FramsóKnarflokkui inn
vinnur fyrir fólkið og fóJkið
fyrir hann og nú keppist
allt frjálslynt t'ólk um að
styrkja hann Ijárhagslega
með því að saupa ru/kkra
miða í happdrættinu Það
er heldur ekki til lítiis að
vinna því þegar dregið ' erð
ur þ. 23. þ. m. hlýtur sá
sem heppnastur verður
sjálfan óskabil fólksins að
launum, Opel Rekord, L-
gerð 1965. Að auki eru
líka í þessu ágæta napp-
drætti tólf aðrir stórglærileg
ir vinningar svo þeir eru
allt í allt um 400.000.00 kr.
virði. Þó kostar hver happ
drættisimiði ekki nema 50
krónur og eru þeir ti) sölu
í bílnum, Austurstræti 1
og á sferifstotu flokfe.sins
Tjarnargötu 26. sími- 15564.
E.J.-Reykjavík, 4. desember
Engin síld hefur veiðzt undan
farið á Faxaflóamiðunum, og eru
uppmældar tunnur, og nú hafa
þeir veitt tæplega < 40 þúsund
tunnur, eins og áður segir.
Blaðið hefur frétt, að nokkrir
bátar séu þegar lagðir af stað
Framh. á bls. ^
en eins og kunnugt er hófst '<eiðin
i Jökuldýpinu óvenju snemma í
ár. Má búast við, að veiðzt hafi
rm margir bátar að búa sig undir! í allt miðað við daginn í dag, tæp
síldveiðar eystra. Haustsíldveiðin i lega 140 þúsund tunuur.
hér fyrir sunnan heíur farið hrað J Ef litið er á þróun síðari ara í
minnkandi undanfarín ár, allt frá! sambandi við haustsíldveiðar hér
því 1961, en þá höfðu veiðzt 380. | fyrir sunnan, kemur í ljós, að síld
600 uppmældar ún. á sama tíma; armagnið fer hraðminnkandi. í
og nú hafa veiðzt tæpar 140 þús. ] Þann 8. desember 1961 rafði1 Klúbbfundur Framsóknarmanna
tunnur. Vitað er um mikla síld j veiðzt um 380.000 uppmælc'ar:, Reykjavík Verður haldinn í
fyrir austan, en síðastu daga hef-jtunnur. Árið 1962 hoist siid^eið 1 Tjarnargötu 26, mánudag 7 des-
Klúbbfundur
næstkomandi. Hefst iann klufefean
8.30. Frummælandi á fundinum
ui ekkert veiðiveður verið þnr. | in ekki fyrr en 14. nóvember en
Samkvæmt uppiýsingum frá 8 desember höfðu s ldarbátatnir
Fiskifélagi íslands, höfðu bátarn-lsamt sém áður veicí 234.000 *unn : ve~rgur~ Þórarinn' '>ói-avinssön al-
ir veitt hér fyrir sunnan 21. nóv. lur. í fyrra höfðu bátarnir veitt, j h, - A]lt r,'ram,Sr>kT'a.-tblk
s. 1. 133.000 uppmæJdar tunnur, I miðað við 14. nóvember, *■. 000 | SŒ meðan húsvúm lé^r
inn stefnir til n.-usturs og þegar
ég átti eftir nálega tveggja kíló
metra akstur heim kom einhver
bjarmi á eftir mér og fannst mér
bíll vera að aka fram á mig. En
svo birti smátt og smátt og það
varð albjart í kringum mig. Fjöll,
sem eru í um fimm kílómetra fjar
lægð frá veginum urðu uppljómuð
og það var ábyggilega vel les-
bjart. Eg veit ekki nákvæmlega
hve lengi þetta stóð, líklega um
hálfa mínútu. Eg fór ekki út úr
bílnum og sá ekki ljósgjafann.
Birtan hvarf mjög snöggt, má
segja allt í einu. Mér fannst litur
birtunnar vera líkari rafljósa
birtu en tunglsbirtu, en þetta var
miklu meiri birta en sést af tungl
skini.
Blaðið talaði við Skúla Stein
þórsson, flugstjóra og Daníel Pét
ursson flugmann, sem sáu fyrir-
bærið úr Loftleiðaflugvél, er var
á leið til íslands. Skúli sagði þá
hafa verið stadda um 95 sjómílur
vestan við Færeyjar á leið til fs-
lands klukkan 23.05, er hann
hefði skyndilega séð bláhvítan
bjarma framundan. — Eg hélt að
þetta væri elding og beygði mig
niður til þess að blindast ekki og
sá því ekki fyrirbærið eins
vel og Daníel.
Daníel sagði: — Mér fannst
þetta vera blys. Við vorum í 12
þúsund feta hæð og skýjaþykkn
ið var um 2 þúsund fet fyrir neð
an okkur. Ljósið lýsti skýin upp
og það varð albjart í stjórnklefan
um okkar. Þetta virtist hækka á
lofti og svo allt í einu splundraðist
það, rétt eins og eldflaug. Það virt
ist fljóta andartak, svo hvarf það
og okkur fannst við sjá rák eftir
það. Við gizkuðum á að það hefði
verið í 13 þúsund feta hæð, miðað
við það að það væri blys í ná
grenni við okkur, en við höfðum
ekkert við að miða og hafi ljós
gjafinn verið mjög sterkur gat
hann verið miklu lengra í burtu
og miklu hærra. Þetta var í stefnu
norð-norð-vestur. Við töldum fyrst
víst að þetta væri blys og settum
ratsjána í gang og flugum tvo eða
þrjá hringi til að aðgæta, hvort
við sæjum eitthvað, en urðum
einskis varir.
Arnkell Jónas Einarsson frá
Vegagerðinni var á leið austur úr
Mývatnssveit. Hann sagði Erlingi
Davíðssyni. ritstjóra á Akureyri.
svo frá: — Við vorum á leið aust-
ur um og vorum við Nýja Hraun
á móts við sæluhúsið, klukkan 23.
05. Þá sáum við i suðurátt. aðeins
austan við suður en rétt vestan
við Herðubreið. líkt og ijósblys
eða sól hátt á lofti ívið hærra en
topp Herðubreiðar Þetta sást i
10—20 sekúndur og lýsti upp
stórt svæði á sjóndeildarhringnum
Svo hvarf það allt i einu. Eg hafði
samband við Gufunesradíó gegn
um talstöðina og tilkynnti um
þetta og beið ef ég sæi meira og
beindi bílljósunum í suðurátt. En
meira sást ekki
Framh. á bls. 2.
Cieymdu að sækja um fjárveitingu
Aðils-Khöfn, 4. des.
Lögfræðinefndin við Árósarhá-
skóla mun nú á næstunni gefa end-
anlegt svar sitt í handritamálinu,
að því er handritanefnd Þjóðþings
ins var tilkynnt í gær. Handrita-
nefndin fékk einnig að vita, að
stjórn Árnasafns hafði „gleymt“
að sækja um endurnýjun á fjár-
veitingunum vegna útgáfu forn-
íslenzku orðabókarlnnar og
„Bihliotccka Arnamagnaeana". ag
_ að handritin í Árnasafni voru
9 mjög illa geymd þar til 1956, að
fyrst var farið að ræða um afhend
ingu handritanna.
Handritanefnd Þjóðþingsins
danska fékk í dag að vita, að
stjórn Árnasafns hefur „gleymt“
að sækja um endurnýjun fjárvelt-
inga til útgáfu forníslenzku orða-
bókarinnar og Bibliotecka Arna-
magnaeana, svo aÖ fjárveitingin
átti að leggjast niður eftir fjár-
lagaárið 1964—’65. Kennslumála-
ráðherrann benti stjórninni á
þetta, en hún kom fyrst með
beiðni um endurnýjun þegar
stjórnin var kölluð á fund í ráðu-
neytinu 16. október s. 1.
Jafnframt fékk nefndin að vita,
að fram til 1956 voru handritin
mjög illa geymd i Árnasafni, og
að fyrst var beðið um breytíngar
á því ástandi, þegar fyrstu umræð-
urnar um handritaafhendinguna
átti sér stað, og þá að frumkvæði
þáverandi kennslumálaráðherra,
Bomholt. í skýrslu frá mörgum
vísindamönnum, m. a. prófessor
Bröndum-Nielsen, sagði m. a.: —
„Aðstæðurnar í Árnasafni eru
mjög slæmar. Þetta safn, sem hef-
ur að geyma um 2800 handrit, auk
nokkurra þúsunda skjala og skjala
afskrifta, er geymt í lítlu her-
bergi, 3x15 metrar, í nyrðri enda
Háskólabókasafnsins. Handritun-
um er raðað upp á tréhillum og er
tréveggur milli beirra og bókhlöð
unnar. Byggingin er alls ekki var-
in gegn eldi, og hingað til hefur
ekkert verið gert til bess að út-
vega sérstaka tryggingu fyrir bá
óborganlegu fjársjóði, sem í safn-
ínu eru“.