Vísir - 19.03.1911, Blaðsíða 1
ia-
Kemur út virka daga kl. 11 árdegis,
nema laugardaga kl. 6 síðd.
Sunnud. 19. mars 1911.
Sól í hádegisstað kl. 1&35'
Háflóð kl. 7,57' árd. og kl. 8,15 síðd.
Háfjara kl. 2,9 síðd.
Póstar.
E/s Ingólfur til Garðs.
E/s Botnia frá útlöndum.
E/s Vesta frá útl. norðan um land,-
Afmæli.
Frú Steinunn Hjartardóttir 42 ára.
Ekkja Sigþrúður Friðriksdóttir 81 árs.
Veðráita í dag.
M s
> ¦+-> é l^.
* I ~t •a O
o a
_l > >
Reykjavík 768,2 + 1,0 A 1 Skýjað
ísafj. 768,7 - 6,4 0 Heiðsk.
Bl.ós 769,6 — 5.2 S 3 Ljettsk.
Akureýri 769,8 - 7,0 sv 1 Heiðsk.
Orímsst. 733,5 — 8,0 ssv 2 Heiðsk.
Seyðisfj. Þorshöfn 771,2 - 5,1 0 Heiðsk.
771,9 2,2 0 Skýjaö
Skýringar:
N — norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Næsta blað á morgun.
Úr bænum.
Skipafrjettir.
Jón Forseti botnvörpungur kom
inn í gærkveldi hlaðinn af fiski, voru
30 þúsundir undir þiljum og 10-15
þúsundir á þilfari.
E/s Botnia kom í gærkveldi
með fjölda farþegja. Meðal þeirra
voru frá útlöndum Einar skáld Bene-
diktsson og frakkneski ræðismaður-
inn nýi Blanche með konu og börn.
Frá Vestmannaeyum komu mjög
margir.
Síðustu blöðin.
lngólfur 16. mars: Bankamál-
ið á mánudaginn. — Trúfrelsi. —
Fylgi bannlaganna.
Þjóðviljinn 18 mars: Ráðherra-
tilnefningin, þingræði traðkað. —
Hr. Pjetur Zophoniasson! —
25 blöð (að mirssta kosti) til marzloka.
Eintakið kostar 3 au.
ísafold i8 mars.
Þingræðis brotið — Endurreisn
gæslustjóranna. — Eljá óg atorka
gðmlu bankastjórnarinnar. — Sýn-
ing Ásgríms. — Aðflutningsbann
áfengis. —
"Mtati aj tatvdx.
Frá Miðnesi að frjetta landburð
af fiski veiddan í lóðir.
í Garðlnum byrjað að fiskast
net.
Frá alþihgi.
Loftskeytasamband við Vest-
mannaeyar samþykt í neðri deild í
gær með 14 : 10.
HáskóTnn. Samþykt í gær í
neðri deild fjárveiting til hans svo
að hann geti tekið til starfa í haust.
Vantraustið í neðri deild
í gær.
Það var 7. málið á dagskrá þar.
Framtögumaður var Skúli Thorodd-
sen og er hjer ágrip af ræðu hans
frá þingfrjettaritara Vísis.
Vantrauststillöguna má lesa í síð-
asta blaði.
Skúli Thoroddsen: Sagði að
Kristján hafi ekki traust meiri hluta
þjóðkörinna þingmanna og með
því að taka við ráðherraembættinu
hafi framið brot á 'þingræðisreglum
sem komist hafi á með skipun
tveggja undanfarandi ráðherra. Það
vita allir hvað þingræði er áríðandi
fyrir góða samvinnu þings. og
stjórnar. Undir þingræðinu sje
heill þjóðarinnar komin og henni
hætta bíiin ef þingræðið sje brotið.
Kristján hafi brotið gegn 1. og 4.
grein ráðgjafaábyrgðarlaganna með
því að takast á hendur ráðherra-
embættið.
Afgréiðsla í Pósthússtræti 14.
Opín allan daginn.
Ráðherra, en ekki konungur,ábyrg-
ist hverja stjórnarathöfn, jafnvel sjer-
rjettindastörf konungs eruframkvæmd'
á ábyrgð ráðgjafa. Hver gerð kon-
ungs sje á ábyrgð ráðherra, jafnvel
rœður er hann flytti erhanntekurá
móti útlendum sendiherrum. Að-
eins krossar og titlar væru ekki *á
hans ábyrgð. Að það hefði verið
vilji konungs að þingviljinn einnig
að þessu sinni rjeði um ráðherra-
skipunina, sást glöggt af símskeyti
konungs til forseta sameinaðs þings
28. febr. Þar sem stendur:
»Kaupmannahöfn 28/2 1910.
Með skýrskotun til símskeyta, er
mjer hafa borist, tel jeg heppilegt,
svo áð úr málum greiðist, að veita
tíma til rólegs áframhalds samninga-
umleitana þeirra, er nú eiga sjer
stað, og vænti þess, að fá síðar
skýrslu um það, hversu málum er
komið, er eg kem heim frá Svíþjóð
11. mars.
Óskað er, að foringjum þingflokk-
anna sje skýrt frá þessu.
Fredrik R.«
Af þessu símskeyti virðist Ijóstað
konungur vilji skipa ráðherra að
vilja þingsins. Sem sönnun fyrir
því að hann hafi haft stuðning
meiri hluta þjóðkjörinna þingmanna
les hann upp símskeyti sjálfstæðis-
flokksins til konungs um vilja meiri
hlutau. Þetta símskeyti hafi orðiðjtil :
á flokksfundi, en auk þess liggi hjer
fyrir sjer skrifleg yfirlýsing 19 þjóð-
kjörinna manna, og auk þesshefðu
tveir menn lýst yfir fylgi við sig í
votta viðurvist. En hlægilegt þætti
sjer þegarx andstæðingarnir þættust
vita betur um gerðir flokksins en '
flokkurinn sjálfur. Kristján gat því
aðeins haft 13 þjóðkjörna og 6
konungkjörna. Hann og sjera Sig-
urður Stefánsson hafa farið til Krist-
jáns og skorað á hann að fylgjast "
að málurn með flokknum en Krist-
ján neitaði. Kristjáni tjáði ekki að
bera fyrir sig að hann hafi verið f '
meiri hluta þar sem hann alls ekki
/