Vísir - 02.04.1911, Blaðsíða 3

Vísir - 02.04.1911, Blaðsíða 3
 V í S I R 2 Fiskiskipin, komin: Valtýr með 14 þús. Ása með 15'/2 þús. Þetta skip var áður komið með 8 þús. og er lang afla hæsta fiskiskipið lijer. Færeyskt Iifrarkaupa-gufuskip kom í gær. Þess starf er að sveima milli fiskiskipa og kaupa og bræða lifur. Botnvörpuskipin eru kom- in: Marz með 35 þús. Leiguskip, skipstj. Jón Jóhannss með 36 þús Freyr — 20 — Geir, björgunarskipið, fór í fyrri- nótt austur til Seyðisfjarðar til þess að sækja frakkneska skonnortu, sem spítalaskipið »La France« sigldi á og hafði brotið töluvert. í Slippnum eru nú 4 skip í aðgerð: Sigriður (nær fullgerð) Hrólfur, Sljettanesið og Resolut. Síðustu blöðin. ísafold l.apríl: Stjórnarskrármál- ið á þingi — Silfurbergsmálið (sagt frá viðskiftum fyrverandi ráðh. B. J. og Tuliníusar í því máli)—Þing- ræðisbrotið — Símskeytið góða og ráðherratilnefningin — Afarmikið ranghermi (símskeyti Hannesar). Þjóðólfur 31- mars: Stjórnar- skrámálið — Fjárveitingar til safn- anna — Kosning borgarstjóra — Smyrsli (um fylgi við Sk. Th.). Reykjavík 1. apríl: Sönnunar gögnin — Ráðherraeftirlaun — Hvar eru peningarnir — Rangár- brúin. Tilraunafjelagið hjer er í miðils- hraki, eftir því sem frá er skýrt í síðasta Norðurlandi. «Það má vel vera að einhverstaðar á landinu sjeu menn, er hafa góða miðilshæfileika. Það væri vert fyrir slíka menn að gefa sig fram við Tilraunafjelagið — —. Þett mætti vera þeim og fje- laginu til gagns. Er íllt til þess að vita ef slíkir hæfileikar væru til og ekkert athugaðir«. Næst er fyrir Reykvíkinga að gefa sig fram. ‘Jvá afy\w$\. Efri deild kýs gæslustjóra. Með brjefi frá 27. f. m. baðst ráðherra lausnar frá gæslustjóra- störfum við Landsbankann og var þessvegna kosinn nýr gæslustjóri fyrir deildina. Kosningin fór fram í gær og hlaut Jón Ólafsson al- þingismaður kosningu með 7 atkv. en Jón Qunnarsson samábyrgðar- stjóri hlaut 6 atkv. Kosningin gildir þann tíma, sem eftir var af kjörtíma Kristjáns Jónssonar, eða til 1. júní 1914. Samþyktir um heyforðabúr eru 3. lögin frá alþingi f ár. 1. gr. Heimilt er sýslunefnd að gera samþykt um heyforðabúr fyrir hvern hrepp innansýslu, sem óskar þess. 5. gr. í samþykt má ákveða: a. Um heyásetningseftirlit. b. Ustofnun forðabúrs, svosem með því, að hreppsnefndin semji við einn ega fleirr menn, að þeir hafi til ákveðinn forða af góðu heyi handa þeim búfjáreigendum í hreppnum, er kynnu að Ienda í heyþroti, ellegar á annan hátt tryggja það, að ákveð- inu heyforði sje til í hreppnum til hjálpar í heyþroti. c. Um ákvæðisgreiðslu úr sveitarsjóði fyrir hver 100 kg af heyi (töðu eða útheyi) til þeirraer heyforðann ábyrgj- ast. d. Um verð, fyrirfram ákveðið, á heyi úr heyfórðanum og innheimtu þess og gjalddaga. e. Umumsjón hejforðans, enda sje hann jafnan undir eftrliti sveitar- stjórnar. Fjárlögin eru þessa dagana til 2. umr. í neðri deild. Á föstu- dagskveld var gengið lil atkvæða um 14 fyrstu greinarnar og voru þar við 109 breytingartillögur. í gær voru ræddar síðari greinar lag- anna og er hætt var í gærkveldi höfðu 10 beðið um orðið. Við þennan síðari kafla eru 89 br.tillögur. "VJLtaw aj lawdv Bændanámsskeið stendur nú yfir á Hólum í Hjaltadal. Er þar að- komandi Sigurður Einarsson dyra- læknir og heldur fyrirlestra. Kristbjörg Jónsdóttir kona Magnúsar Einarsonar söngkennara á Akureyri andaðist á sjúkrahúsinu þar 14. f. m. eftir langvinna van- heilsu. E|s Jón Signrðsson. Varðskip íslendinga. í Gjallarhorni frá 16. f. m., sem kom með pósti í gær, er grein þess efnis, að að minning Jóns Sigurðs- sonar verði heiðruð með samskotuni til varðskips handa okkur. Hug- myndin er fögur, en ervitt mun um íramkvæmdir. En þeir, sem aldrei víkja.hafa sitt fram um síðir. Hjer þarf ötula forgöngumenn. Verkið er ekki ókleift. —..■iffT....... * f--------- Tínt — komið í safnið. Nú er það ekki konunginn sem vantar, bankareikningana eða vara- sjóð landsbankans, heldur dálitla glepsu úr landsjóði: Fjöldi manns er farinn að leita — eins og fyrri skiftin — en enginn árangur enn. Hvað segðuð þið um ef 200000,00 kr. hafa hripað niður úr landsjóðt? Hjer er ræðustúfur eftir ráðherra um þetta efni, tekinn úr Reykjavík- inni í gær. »Jeg vil ekki efa«, mælti ráðherra (Kr. J.), »að fje þessu hafi verið varið eftir tilætlun þingsins, eða þá að það sje einhversstaðar óeytt.. En þrátt fyrir eftirgrenslun mína í Landsbankanum, þar sem jeg hefi gefið nánar gœtur að öllu, einnig að reikningum gjaldkera landsjóðs, og þrátt fyrir eftirgrenslun embættismannanna í stjórnarráðinu, sem jeg hefi lagt fyrir að rannsaka þetta, hefur oss enn ekki tekist að finna, hvernig fje þessu hefur verið varið eða hvar það er niöur komið*. Þingvísur: 3. Kaflar ur ræðu siðra þm.Flóamanna. Nú skal sjer fyrir bændur beitt, svo blómgist kirkja og hagi mót allri mentun — »yfirleitt« »einkum og sjerílagi*. Um Flóamenn í fáu er skeytt, jeg »fjalla« um þeirra hagi með orðagjálfri — »yfirleitt« — »eirtkum og sjerflagi«. Frumvarp enn hjer flyt jeg eitt, flest er af sama tagi: annara smíði — »yfirleitt« — »einkum og sjerílagi*!1 1) Vísur þessar vora uppáhald deild- armanna, þar til þeir komust að þeirri sorglegu raun að maðurinn notar yfir- leitt ekki þessi orðatiltæki einkum og sjer í lagi ekki einkum og sjer í lagi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.